DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3850.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Blush

Prjónuð basker / alpahúfa og sjal úr DROPS Snow eða DROPS Andes í sléttprjóni og garðaprjóni.

DROPS 156-49
DROPS Design: Mynstur nr ee-499
Garnflokkur E eða C + C
-----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: Ein stærð
Höfuðmál 54/56 cm

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
100 gr litur nr 09, ljós vínrauður

Eða notið:
DROPS Andes frá Garnstudio
100 gr litur nr 4090, bleikfjólublár

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 13 l og 17 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

SJAL:
Mál: Breidd: 150 cm. Hæð: ca 46 cm.

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
250 gr litur nr 09, ljós vínrauður

Eða notið:
DROPS Andes frá Garnstudio
300 gr litur nr 4090, bleikfjólublár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l og 15 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3850.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

SKIPT UM ÞRÁÐ:
Þegar skipt er um þráð er gamla endanum skipt í tvo hluta síðustu 15 cm – klippið frá annan endann, það sama er gert við nýja endann. Leggið fyrstu og síðustu 15 cm yfir hvorn annan svo að þykktin á þráðum verði sú sama og prjónið áfram – með þessu er komið í veg fyrir að samskeytin sjáist.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING:
Aukið er út um 1 l með því að prjóna 2 l í 1 l. Þ.e.a.s. prjónað er aftan í og framan í lykkjubogann.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið um 1 l á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

ALPAHÚFA / BASKER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna og á sokkaprjóna.

ALPAHÚFA / BASKER:
Fitjið laust upp 45 l á hringprjóna nr 6 með Snow.
Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, þar til stykkið mælist 6 cm.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í næstu umf er aukið út um 1 l í hverja l – LESIÐ ÚTAUKNING! = 90 l á prjóni. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 16 cm eru 5 prjónamerki sett í stykkið þannig: 1. prjónamerki í byrjun á umf. Síðan er 1 prjónamerki sett í 18. hverja l = 5 prjónamerki. Prjónið síðan sléttprjón JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í annarri hverri umf þannig: Fækkið um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki alls 8 sinnum – sjá ÚRTAKA = 10 l eftir. Þræðið þráðinn í gegnum þær 10 l sem eftir eru, herðið að og festið vel.

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Lesið SKIPT UM ÞRÁÐ!

SJAL:
Fitjið upp 9 l á hringprjóna nr 8 með Snow. Prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (= miðjulykkja) setjið prjónamerki í þessa l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 l sl = 13 l.
UMFERÐ 2 (= ranga): 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið br þar til 1 l er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 l br = 2 l fleiri.
UMFERÐ 3: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl fram að miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl þar til 1 l er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 l sl = 4 fleiri l.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
UMFERÐ 4: 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið br þar til 1 l er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 l br = 2 l fleiri.
UMFERÐ 5: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl fram að miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl þar til 1 l er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 l sl = 4 fleiri l.
UMFERÐ 6: 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl þar til 1 l er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 l sl = 2 l fleiri.
UMFERÐ 7: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl fram að miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl þar til 1 l er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 l sl = 4 fleiri l.
Endurtakið umf 2-7 þar til stykkið mælist ca 45 cm yfir miðjulykkju – stillið af að síðasta umferðin sé umferð 7 með sléttum lykkjum og útaukningu. Prjónið 1 umferð frá röngu og fellið laust af í næstu umferð frá réttu.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 10.05.2023
SJAL:...Endurtakið umf 2-7 þar til stykkið mælist ca 45 cm yfir miðju-l – stillið af að síðasta umferðin sé umferð 7 með sléttum lykkjum og útaukningum. Prjónið 1 umferð frá röngu og fellið laust af í næstu umferð frá réttu.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-49

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (55)

country flag Elisabeth wrote:

Bonjour, le point mousse en bordure autour du châle se fait à la fin en relevant des mailles ? En suivant les explications , je n’obtiens que du jersey avec2 rangs de points mousse dans le travail. Merci pour votre aide

12.02.2023 - 08:44

DROPS Design answered:

Bonjour Elisabeth, le châle se tricote de haut en bas, en jersey avec une côte mousse à intervalles réguliers, et on le termine une côte mousse) puis 2 rangs endroit, on a ainsi 2 côtes mousse avant de rabattre, comme sur la photo. Bon tricot!

13.02.2023 - 09:38

country flag Elisabeth wrote:

Bonjour, je n’arrive pas à voir le point mousse sur les bords du chale.

04.02.2023 - 11:56

DROPS Design answered:

Bonjour Elisabeth, peut-être parce que les photos ne montrent pas vraiment les côtés de l'ouvrage? On tricote le châle de haut en bas, les mailles lisières au point mousse se trouvent donc dans la base en haut du triangle et on tricote en jersey avec une côte mousse ( au rang 6 des rangs 2 à 7). Bon tricot!

06.02.2023 - 15:26

country flag Cristina wrote:

Hallo, was bedeutet das: DROPS Design 12.09.2019 kl. 20:22: Buonasera Ilaria, i modelli a maglia andrebbero sempre bloccati dopo il lavaggio. Buon lavoro! Danke Cristina

10.10.2020 - 16:11

DROPS Design answered:

Liebe Cristina, die fertige Strickstücke werden immer gespannt. ( mit Stecknadeln auf einer geeigneten Unterlage spannen, anfeuchten (z.B. mit einer Sprühflasche für Blumen) und trocknen lassen, danach entfernen Sie die Stecknadeln). Viel Spaß beim stricken!

12.10.2020 - 07:49

country flag Diane wrote:

This is the worst pattern I’ve ever knitted. It doesn’t tell where the middle stitch is, row 1 has more instructions than there are available stitches. It’s terrible! I’m disappointed, I bought all the yarn I needed and the pattern is just really bad. Also, no way to get help. I will never again buy a pattern from your company.

09.09.2020 - 05:15

DROPS Design answered:

Dear Diane, we are very sorry to hear that you got so many worries with this pattern, you are always welcome to ask your question here in this section to get helped - your DROPS store can always help you too - and you can also ask more knitters around the world in our DROPS Workshop. Row 1 on shawl is worked over 9 sts, you increase 4 sts = there are 13 sts at the end of this row. Hope this could help you to start. Happy knititng!

09.09.2020 - 09:28

country flag Holly wrote:

Hello! When knitting just the beret, do you just need circular needles, or do you also need double pointed needles? If the double pointed needles are needed, at what point would they be used? Thanks!

12.01.2020 - 01:50

DROPS Design answered:

Hi Holly, You will need the double pointed needles at the top of the beret, when you have decreased so many stitches that the circular needle is too long. Happy knitting!

13.01.2020 - 07:25

country flag Ilaria wrote:

Grazie mille!

12.09.2019 - 20:28

country flag Ilaria wrote:

Salve!! Ho realizzato entrambi i capi del modello e volevo sapere.. lo scialle va bloccato?

12.09.2019 - 18:53

DROPS Design answered:

Buonasera Ilaria, i modelli a maglia andrebbero sempre bloccati dopo il lavaggio. Buon lavoro!

12.09.2019 - 20:22

country flag Katt wrote:

I have come into a problem with the beret pattern. It says to add 5 stitch markers and decrease a stitch before and after each marker resulting in 8 sts decreased. If you are including the bor marker in the decreases it would be 10 sts decreased. So I have skipped the bor stitch decreases but now it has one side of the beret all flat with no decrease...help!!!!

12.03.2019 - 04:50

DROPS Design answered:

Dear Katt, you decrease a total of 10 sts on every decrease round (2 sts at each of the 5 markers), and repeat these decreases on every other round a total of 8 times (= a total of 8 rounds with decreases). Happy knitting!

12.03.2019 - 10:10

country flag Katt wrote:

Thank you so much for your fast reply! I am enjoying this set greatly. I have one more question. When knitting the beret...does the 6 1/4 inches before decreases mean from the cast on edge or the stockinette stitches? Thank you again in advance!

11.03.2019 - 16:40

DROPS Design answered:

Dear Katt, the 6 1/4 inches have to be measured from cast on edge. Happy knitting!

12.03.2019 - 09:28

country flag Katt wrote:

While attempting the shawl I have noticed on the starting row( up by the neck) my stitches are very loose and the edge is very unappealing.I'm thinking it's because of the yo s. Is there a way as I add new stitches by yo to make this edge tighter and neater? I've been pulling the first and last stitch tight but to no avail.

11.03.2019 - 01:57

DROPS Design answered:

Dear Katt, he yarnover increases added to the edges so you will be able to block the shawl neatly and the edge will not pull in. It will be neater once you block the shawl (soak and dry pinned into shape). However, if it still bothers you, you can try doing the increases by picking up the yarn betweentwo stitches and knitteng them twisted. Happy Knitting!

11.03.2019 - 07:45