DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6754.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 157-30
DROPS Design: Mynstur nr u-747
Garnflokkur B + A
-----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: S/M - M/L - L/XL
Höfuðmál: 54/56 – 56/58 – 58/60 cm.

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
100-100-100 gr litur nr 72, ljós perlugrár
Og einnig:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
25-25-25 gr litur nr 01, natur

Eða notið:
DROPS LIMA frá Garnstudio
100-100-100 gr litur nr 9010, ljós grár
Og einnig:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
25-25-25 gr litur nr 01, natur

HÁLSSKJÓL:
Stærð: Ein stærð.
Ummál neðst: 61 cm.
Ummál efst: 57 cm.
Hæð: 26 cm.

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
100 gr litur nr 72, ljós perlugrár
Og einnig:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
50 gr litur nr 01, natur

Eða notið:
DROPS LIMA frá Garnstudio
100 gr litur nr 9010, ljós grár
Og einnig:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
50 gr litur nr 01, natur

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 14 st og 8,5 umf með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6754.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll. Umferð endar á 1 kl í 1. ll frá byrjun umf.
Í byrjun á hverri umf með st, er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll. Umferð endar á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.

HEKLAÐ SAMAN:
Heklið 2 st saman í 1 st: Heklið 1 st en bíðið með að draga þráðinn í gegnum l (= 2 þræðir á heklunálinni), heklið síðan næsta st en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið * 1 fl, 3 ll, hoppið yfir 1 fl *, endurtakið frá *-* alla umf, endið á 1 kl í 1. fl, klippið frá og festið enda.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring.

HÚFA:
Heklið 69-72-74 ll með heklunál nr 5 með 1 þræði Karisma + 1 þræði af Kid-Silk (= 2 þræðir) og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 fl í hverja ll = 69-72-74 fl.
UMFERÐ 2-9: Heklið 1 fl aftan í lykkjubogann í hverja fl.
UMFERÐ 10: Heklið 1 st í hverja af fyrstu 2-4-5 fl, * 2 st í næstu fl, 1 st í næstu fl, 2 st í næstu fl, 1 st í hvora af næstu 2 fl *, endurtakið frá *-* alls 13 sinnum, 1 st í hverja af næstu 2-3-4 fl = 95-98-100 st.
UMFERÐ 11-13: Heklið 1 st í hvern st – ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Setjið 7 prjónamerki í stykkið þannig: S/M: Til skiptis 14 og 13 st á milli hverra prjónamerkja, M/L: 14 st á milli hverra prjónamerkja. L/XL: Til skiptis 14 og 15 st þannig: 5 sinnum 14 st og 2 sinnum 15 st.
Heklið 1 st í hvern st JAFNFRAMT í hverri umf eru heklaðir 2 st saman í vinstri hlið við öll prjónamerkin – lesið HEKLAÐ SAMAN. Haldið svona áfram þar til 11-7-9 st eru eftir. Klippið frá, þræði þráðinn upp og niður í gegnum l, herðið að og festið vel.

Heklið nú HEKLAÐUR KANTUR – sjá útskýringu að ofan – með 2 þráðum Kid-Silk í kringum opið.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring, neðan frá og upp.

HÁLSSKJÓL:
Heklið 86 LAUSAR ll með heklunál nr 5 með 1 þræði Karisma + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir) og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 st í hverja ll = 86 st.
UMFERÐ 2-5: Heklið 1 st í hvern st. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 6: Heklið 1 st í hvern st – JAFNFRAMT er fækkað um 6 l með því að hekla 13. og 14. hverja l saman umf hringinn – LESIÐ HEKLAÐ SAMAN = 80 st.
Heklið nú 1 st í hvern st þar til stykkið mælist ca 26 cm á hæðina. Klippið frá og festið enda.

Heklið síðan HEKLAÐUR KANTUR – sjá útskýringu að ofan – með 2 þráðum Kid-Silk í kringum bæði opin.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 17.08.2015
Leiðrétting: HÚFA: Nýjar upplýsigar um prjónamerki í stærð L/XL
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (34)

country flag Vanderschrick Christiane wrote:

Je souhaite tricoter ensemble un fil de Kid silk avec un fil de Karisma, quelle aiguilles (en mm) faut il utiliser ? Merci

02.01.2022 - 23:53

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Vanderschrick, nous vous proposons ici de mélanger Lima et Kid-Silk (Lima appartient au même groupe de fils que Karisma), avec des aiguilles 5 - consultez les modèles indiqué et rappelez-vous d'adapter la taille des aiguilles à votre échantillon en fonction du modèle et/ou de la texture souhaitée. Bon tricot!

03.01.2022 - 13:03

country flag Eldy Johnston wrote:

I am knitting the 'Morning Frost' hat pattern and am having difficulty with the shape of the back. Would it be possible to see the side/back view of the pattern? It may help me with finishing the project. Would appreciate your help

18.06.2021 - 20:01

DROPS Design answered:

Dear Eldy, unfortunately we don't have another pictures of this piece. What is ecaxtly you wantto know about the back? Happy Stitching!

19.06.2021 - 00:34

country flag Sharon wrote:

I'm confused about which stitch is the correct stitch to do the slip stitch at the end of the round. If I slip stitch into the third chain in the chain 3 that marked the beginning of the next round, do I dc the stitch right. before it? Also, I began the rounds with the chain 3 as described but ended up with way too many stitches. How do I keep the 86 stitches if I'm adding a chain 3 to every round? Please help. Thanks!

04.01.2021 - 04:10

DROPS Design answered:

Dear Sharon, you cast on 86 chains, join with a slip stitch in the first chain to make a ring of chain, then crochet 3 chain to replace the first dc of the round and then 1 dc in each of the next 85 chains = there are 86 dc (including the first 3 chains that replace the first dc). Happy crocheting!

05.01.2021 - 10:13

country flag Delphine wrote:

Bonjour Merci pour ce super modèle qui donne envie pour cet hiver. Je ne comprends pas l'indication "1 fil Karisma + 1 fil Kid-Silk (= 2 fils)", alors qu'il faut 100g du premier fil et seulement 25g de l'autre... Comment avoir assez de laine pour crocheter l'ensemble du bonnet avec 2 fils ? ou uniquement pour la bordure ? Et aussi je n'ai jamais crocheté avec 2 fils en même temps sur le crochet? une vidéo qui montre cela ? Merci

13.12.2019 - 21:56

DROPS Design answered:

Bonjour Delphine, le métrage de ces 2 pelotes est différent: 100 m pour 50 g en Karisma et 210 m environ pour 25 g en Kid-Silk; il vous faudra donc 2 pelotes Karisma = 200 m environ et 1 seule de Kid-Silk = 210 m environ, soit le même métrage des 2 laines. Pour crocheter avec 2 laines ensemble, prenez un fil de chaque pelote et crochetez comme s'il n'y en avait qu'une seule. Bon crochet!

16.12.2019 - 09:45

country flag Maria wrote:

Hej. Hvis den største størrelse er lige lille nok, hvor mange masker kan jeg så lave den i?

15.01.2019 - 18:27

DROPS Design answered:

Hej Maria, du kan evt vælge at hækle med ½ nummer større... God fornøjelse!

17.01.2019 - 08:32

country flag Mona Andersen wrote:

Hvilken af de foreslåede garntyper Karisma eller Lima er blødest mod huden?

30.03.2018 - 21:51

DROPS Design answered:

Hej Mona, de er faktisk lige bløde, men DROPS Karisma er superwashbehadlet og kan vaskes i maskine :)

04.04.2018 - 13:28

country flag Gadine wrote:

Bonjour, ma question a été posée par Rita en anglais mais je ne parviens pas à comprendre la réponse alors je la pose en français..... Je ne comprends pas l'histoire des marqueurs: au rang 14, on doit disposer les marqueurs tous les 13/14/15 brides selon la taille. Puis pour les tours suivants, doit-on continuer à utiliser un espace de 13/14/15 brides entre les marqueurs ou doit-on adapter? merci d'avance pour votre réponse, et encore merci pour ce site fabuleux ;)

22.02.2017 - 17:15

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gadine, laissez les marqueurs en place et diminuez tous les tours à gauche de chaque marqueur (= après chaque marqueur). À chaque nouveau tour, vous aurez 1 B en moins entre chaque marqueur. Bon crochet!

22.02.2017 - 17:38

country flag Hengelmann wrote:

Bonjour ... La chaînette de base avec le nombre de mailles indiquées est bien trop petite pour un tour de tête adulte et obtenir le même effet que sur la photo. je ne peux faire ce modèle et j'ai acheté tout le matériel pour rien Je suis très déçue

28.11.2016 - 15:20

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Hengelmann, la chaînette de base est légèrement plus serrée pour que le bonnet puisse bien tenir sur la tête - pensez bien à vérifier et à conserver la bonne tension, soit 14 B = 10 cm. Bon crochet!

28.11.2016 - 15:24

country flag PILLET wrote:

Bonjour. J'ai monté ma chaînette. Lorsque je regarde si le tour n'est pas trop serré je ne peux pas le mettre pourtant mon tour de tete est de 53 cm. Si je mets 69 m sur ma chaînette qui est assez lâché. Ça ne passe pas. Dois je augmenter le nombre de maille? Merci

24.10.2015 - 22:09

PILLET answered:

Bonjour. J'ai réussi à faire une chaînette de bonne dimension. Mon message précédent n'est plus d'actualité. Merci

25.10.2015 - 14:24

country flag Suzanne Bosch wrote:

Ik heb een vraag. Na toer 13 heb ik 95 stk (maat s/m). Nu moet ik deze verdelen in 7 delen door tussen elke markeerder 14 stk. te plaatsen. Maar dit komt niet uit. Nadat ik 6 markeerders heb geplaatst hou ik 11 stk over en niet 14. Wat gaat er fout?

09.10.2015 - 00:05

DROPS Design answered:

Hoi Susanne. Ik zie helaas een foutje in de vertaling. Je moet de markeerders plaatsen afwisselend met 13 en 14 stk. Ik heb het patroon aangepast.

09.10.2015 - 14:40