DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Yesterday Cardigan

Hekluð peysa úr DROPS Merino Extra Fine með hringlaga rúnuðu hálsmáli og gatamynstri, hekluð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 156-17
DROPS Design: Mynstur nr me-070
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
600-700-750-850-900-1000 gr litur nr 15, ljós grágrænn

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 st og 9 umf verði 10 x 10 cm eða A.2 verði 2,5 cm á breiddina.
DROPS PERLUTALA, NR 522: 4 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta st í hverri umf er skipti út fyrir 3 ll. Fyrstu fl í hverri umf er skipt út fyrir 1 ll.
Allar umf með st enda á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. Allar umf með fl enda á 1 kl í 1. ll frá byrjun umf.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að hekla 2 st í 1 st, fyrst öðru megin við öll prjónamerkin í umf, næsta skipti hinum megin við öll prjónamerki í umf, haldið svona áfram með útaukningu.

ÚRTAKA:
Heklið 1 st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 l.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklið fram og til baka frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið 111-116-121-131-136-146 ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við með) með heklunál nr 4,5 með Merino Extra Fine. Heklið næstu umf þannig: 1 st í 4. ll (= 2 st), 1 st í hvora af næstu 2 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-*= 88-92-96-104-108-116 st – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR. Setjið 19-20-21-23-24-26 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið 1. prjónamerki eftir 8. st, síðan eru sett 18-19-20-22-23-25 prjónamerki með 4 st millibili, eftir síðasta prjónamerki eru 8 st. Heklið fram og til baka með st, JAFNFRAMT er aukið út um 1 st við öll prjónamerki þannig: Aukið út í annarri hverri umf 5-6-6-5-5-6 sinnum í 4. hverri umf 2-2-2-3-3-3 sinnum – LESIÐ ÚTAUKNING = 221-252-264-288-300-350 st. Heklið eina umf þar sem aukið er út um 14-7-7-7-19-5 st jafnt yfir (ekki er aukið út yfir fyrsta og síðustu 6 st= kantur að framan) = 235-259-271-295-319-355 st. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

Í næstu umf er heklað þannig: 36-40-43-47-51-58 st (framstykki), 8 ll (undir ermi), hoppið yfir 52-56-56-60-64-68 st frá fyrri umf (eru síðar heklaðar fyrir ermi), 59-67-73-81-89-103 st (bakstykki), 8 ll (undir ermi), hoppið yfir 52-56-56-60-64-68 st frá fyrri umf (eru síðar heklaðar fyrir ermi) og 36-40-43-47-51-58 st (framstykki.). Setjið prjónamerki, héðan er nú mælt. Heklið 1 st í hvern st/ll JAFNFRAMT er fækkað um 8-8-8-12-12-12 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 139-155-167-179-195-223 st.

Heklið nú þannig: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 6 st (= kantur að framan), A.1, A.2 alls 30-34-37-40-44-51 mynstureiningar á breidd, endið á A.3 og 1 st í hvern af síðustu 6 st. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1-A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.4 endurtekið á hæðina til loka.

Þegar stykkið mælist 14-14-14-15-15-15 cm frá prjónamerki, passið að næsta umf sé síðasta umf í A.4, aukið út um 1 mynstureiningu í A.2 í 8.-9.-9.-10.-11.-13. mynstureiningu um ll-boga þannig: Heklið 2 ll, 1 fl um ll-boga, 2 ll, 1 st um sama ll-boga, 2 ll, 1 fl í sama ll-boga. Heklið 14-16-19-20-22-25 mynstureiningar af A.2, í næstu mynstureiningu af A.2 er aukið út alveg eins. Heklið síðan áfram eins og áður = 32-36-39-42-46-53 mynstureiningar af A.2 á breiddina. Klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist 34-34-36-35-37-37 cm frá prjónamerki, stillið af að endað sé í næst síðustu umf í A.4, stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm.

ERMI:
Ermin er hekluð í hring, ofan frá og niður. Setjið prjónamerki, héðan er nú mælt. Byrjið á að hekla við miðju undir ermi þannig: Heklið 1 fl í 5. ll af þeim 8 ll sem heklaðar voru við handveg á fram- og bakstykki, 3 ll (= 1 st), heklið 1 st í hverja af næstu 3 ll, 1 st í hvern st yfir ermi, áður en 1 st er heklaður í hverja af þeim 4 ll sem eftir eru undir ermi = 60-64-64-68-72-76 st. Setjið 1 prjónamerki við miðju undir ermi.
Heklið nú þannig: 1 st í hvern af fyrstu 11-11-11-13-13-15 st JAFNFRAMT er fækkað um 1 st (= 10-10-10-12-12-14 st), A.1, A.2 8-9-9-9-10-10 sinnum á breiddina, A.3, heklið 1 st í hvern af síðustu 10-10-10-12-12-14 st. Haldið áfram með 1 st í hvern af þeim 20-20-20-24-24-28 st við miðju undir ermi og A.1-A.3 yfir ermi. Þegar A.1-A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.4 endurtekið á hæðina til loka mælingar. Haldið áfram með þetta mynstur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 st hvoru megin við prjónamerki – munið eftir ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 3½-3½-3½-2½-2½-2 cm millibili 9-9-9-11-11-13 sinnum til viðbótar. Heklið nú bara A.1-A.3 yfir ermi. Klippið frá og festið enda þegar ermin mælist 43½-42½-42½-39½-40-38 cm, passið að enda í næst síðustu umf í A.4 – ATH – styttri mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og breiðari axla. Heklið hina ermina á sama hátt.

HÁLSMÁL:
Hálsmálið er heklað í ll-umferðir.
Heklið með heklunál nr 4,5 með Merino Extra Fine þannig: Heklið 1 fl í 1. ll, * 2 ll, hoppið yfir 2 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* í kringum allt hálsmálið. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstra framstykki – efsta talan 1 cm frá kanti við hálsmál, neðsta talan er í skiptingunni á milli stuðla og mynsturs. Tölum er hneppt á milli 2 st í hægra framstykki.

Mynstur

symbols = ll
symbols = fl
symbols = st í l
symbols = st um l
symbols = Heklið 3 st saman í 1 st í sömu l þannig: Heklið 1 st en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 þræðir á heklunálinni), heklið 1 st alveg eins, heklið síðan næsta st en þegar draga á bandið í gegn í lokin er það dregið í gegnum allar l á heklunálinni.
symbols = 1. röðin/umferðin er útskýrð í mynstri
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Esther Huhn wrote:

The Yesterday Cardigan pattern is written for sizes S-M-L-XL etc. However, I'e like to know what chest and arm measurements these sizes correspond with. The pattern gives stitch counts for each size but not actual measurements in cm of inches. Can you help me?

24.07.2023 - 18:22

DROPS Design answered:

Hi Esther, You will find a measurements chart, with all the measurements for each size, at the bottom of the page. Happy knitting!

25.07.2023 - 06:44

country flag Michele wrote:

Hi I am having trouble with the following instructions: "When piece measures 14-14-14-15-15-15 cm from marker, adjust so that next row is last row in A.4, inc 1 repetition of A.2 in 8th-9th-9th-10th-11th-13th repetition in ch-space as follows: ....Work 14-16-19-20-22-25 repetitions of A.2" I thought I was supposed to be working A4 until the end? Am I supposed to work a row of A2 at this point? Many thanks

11.05.2023 - 11:24

DROPS Design answered:

Dear Michelle, A.4 shows the pattern in height, while in width you read diagrams as follows: start with A.1, repeat A.2 and end with A.3 (seen from RS; from WS you will work: A.3, repeat A.2 and end with A.1). This lesson could help you understanding how to read crochet diagrams. Happy crocheting!

11.05.2023 - 16:35

country flag Dawn wrote:

I am really enjoying this pattern! I need help with the increase within the A2 repetitions. The pattern reads, "inc 1 repetition of A.2 in 9th repetition in ch-space as follows: Work ch 2, 1 sc in ch-space, ch 2, 1dc in same ch-space,ch 2, 1 sc in same ch-space." I have just finished the dc of the 8th rep. Can you please tell me each step of the entire 9th repetition-plus inc, before I continue with the 1st ch 2 of 10th rep? and is this done in the single ch-sp of A2 (not the 3 ch-sp) Thnx!

08.04.2023 - 19:09

DROPS Design answered:

Dear Dawn, work as follows in the 9th repeat: ch 2, in the chain-3 space of the previous row work (1 dc in ch-space, ch 2, 1 tr in same ch-space, ch 2, 1 dc in same ch-space), 1 tr in the next chain-1 space of the previous row. Happy crochetting!

08.04.2023 - 23:09

country flag Dawn Roehrs wrote:

Concerning instructions of the BODY : ...1 dc in each of the next ch 2, * skip ch 1, 1 dc in each of the next 4 ch *, repeat from *-* = 88-92-96-104-108-116 dc I am wondering about the "skip ch 1" . It is not clear to me if I should ch 1 and skip the chain st below or if I just skip the ch st below and dc in the next 4 ch sts. I find it confusing that it first uses "ch 2" and "ch 1" language and then switches to "4 ch". (switching the order of abbr.)

20.01.2023 - 15:13

DROPS Design answered:

Dear Mrs Roehrs, on the very first row you should just skip 1 chain from the foundation chain and crochet 1 dc in each of the next 4 chains from the foundation chain; most of the time the chains are always tighten on the foundation chain as when crocheting the dc afterwards, reason why we crochet here more chains than you need stitches on first row. Happy crocheting!

20.01.2023 - 16:41

country flag Christine wrote:

Hello, I am going to attempt yesterday cardigan and have briefly looked at the diagram please would you tell me what (tr around st) means? and where can I find the meaning of the black dot? I have been doing crochet for a long time but have never followed a pattern. thank you, Christine

03.01.2023 - 17:40

DROPS Design answered:

Hello Christine! A symbol with black dot is "tr in st" meaning you have to make treble crochet in stitch. Please look at step-by-step tutorials, videos and a very handy technical dictionary below the pattern. How to read crochet diagrams . Hope it helps!

03.01.2023 - 20:37

country flag Dawn Roehrs wrote:

Starting with the BODY of the piece (size M), I am asking for clarity on the following instructions: " ... AT THE SAME TIME inc 1 dc at all markers as follows: Inc every other row 5-6-6-5-5-6 times, and every 4th row 2-2-2-3-3-3 times." I do not understand what 6 and 2 "times" means. Is this the amount of rows or the amount of markers I inc at? Will I inc at each of the 19 markers- every other row? Then how does that work with the 4th row? Thank you.

01.01.2023 - 09:40

DROPS Design answered:

Hi Dawn, You increase at all the markers every other row 6 times (you have worked 12 rows with 6 rows of increases), then every 4th row 2 times (you have worked 8 rows with 2 rows of increases). Hope this helps. Happy New Year!

02.01.2023 - 06:50

country flag LES GRANDS CHAMPS wrote:

Bonjour, je reviens vers vous concernant le modele Drops 156-17 et je ne comprends pas la partie concernant les augmentations. Quel motif faut il augmenter ? A quoi correspond A2 ? Merci beaucoup.

02.10.2022 - 21:55

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Les Grands Champs, vous devez augmenter pour l'empiècement 1 bride à chaque marqueur (la 1ère fois que vous augmentez, crochetez 2 brides avant les marqueurs, la fois suivante, crochetez 2 brides après les marqueurs) vous allez ainsi augmenter 19-20-21-23-24-26 brides à chaque rang d'augmentations, et augmenter ainsi tous les 2 rangs puis tous les 4 rangs. A.1 correspond au début du point fantaisie, vous répétez ensuite A.2 et vous terminez le point fantaisie par A.3. Bon crochet!

03.10.2022 - 10:03

country flag Rits wrote:

Kan dere legge ut en video av hvordan man hekler selve mønsteret fra diagrammer?

15.07.2022 - 21:48

DROPS Design answered:

Hej, Her ser du :) Det er lidt andre symboler, men teknikken er den samme: Vifter ifølge diagram

02.08.2022 - 14:31

country flag CATTANEO wrote:

Bonjour, je ne comprends pas le diagrammes, pourriez vous me donner plus d'explications ?

07.05.2022 - 16:39

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Cattaneo, chaque symbole représente 1 maille ou 1 groupe de mailles, vous lisez les diagrammes sur l'endroit ainsi: commencez par A.1, repétez A.2 et terminez par A.3; sur l'envers, commencez par A.3, répétez A.2 (en le lisant de gauche à droite) et terminez par A.1. Lorsque vous avez crocheté le diagramme en hauteur, répétez A.4 = les 4 derniers rangs. Bon crochet!

09.05.2022 - 08:30

country flag Cattaneo wrote:

Je vous remercie pour tous ces beaux modèles avec les explications a la clé !

06.05.2022 - 20:15