DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Dream Date

Prjónað barnateppi í garðaprjóni með röndum – prjónað frá horni að horni úr DROPS BabyMerino

DROPS Baby 25-1
DROPS Design: Mynstur nr bm-062-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Mál:
Lítið teppi (passar fyrir fyrirbura): ca 34 x 51 cm
Stórt teppi (vagnteppi): ca 50 x 75 cm

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
100-150 gr litur nr 28, ljós mynta
100-100 gr litur nr 02, natur
eða notið:
100-150 gr litur nr 05, ljós bleikur
100-100 gr litur nr 02 natur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 l og 39 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
HEKLUNÁL NR 4 – fyrir kant.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

RÖND-1:
* Prjónið 4 umf garðaprjón með litnum ljós mynta eða litnum ljós bleikur, prjónið 2 umf garðaprjón með litnum natur *, endurtakið frá *-* (passið að herða ekki of á þræði þegar skipt er um lit).

RÖND-2:
* Prjónið 2 umf garðaprjón með litnum ljós mynta eða litnum ljós bleikur, prjónið 4 umf garðaprjón með litnum natur *, endurtakið frá *-* (passið að herða ekki of á þræði þegar skipt er um lit).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Allt teppið er prjónað í garðaprjóni frá horni að horni.

TEPPI:
Fitjið upp 3 l á hringprjóna nr 4,5 með litnum ljós mynta eða litnum ljós bleikur og prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan garðaprjón og RÖND-1 – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er aukið út um 1 l í byrjun á hverri umf með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt. Endurtakið útaukningu í byrjun hverrar umf (bæði frá réttu og frá röngu) þar til stykkið mælist ca 34-50 cm meðfram báðum hliðum – endið eftir 4 umf garðaprjón með litnum ljós mynta eða litnum ljós bleikur. Prjónið 2 umf garðaprjón með litnum natur án útaukninga. Prjónið síðan RÖND-2 – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er fækkað um 1 l í byrjun umf frá réttu með því að prjóna 2 síðustu l innan við 1 kantlykkju snúnar slétt saman. JAFNFRAMT í lok sömu umf (þ.e.a.s. í lok umf frá réttu) er aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju, snúið við og prjónið sl til baka án úrtöku/útaukninga (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt).
Endurtakið úrtöku í byrjun hverrar umf og útaukningu í lok umf í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu – fjöldi l kemur til með að vera stöðugur), þar til stykkið mælist ca 51-75 cm með fram lengri hlið á teppi – endið eftir 4 umf garðaprjón með natur.
Prjónið síðan aftur RÖND-1 JAFNFRAMT er fækkað um 1 l í byrjun hverrar umf með því að prjóna 2 l slétt saman innan við 1 kantlykkju. Endurtakið úrtöku í byrjun á hverri umf (bæði frá réttu og frá röngu) þar til 5 l eru eftir á prjóni. Næsta umf frá réttu er prjónuð þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir, 1 lykkja slétt. Snúið stykkinu við, prjónið sl til baka og fellið síðan af 3 síðustu l.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið með heklunál nr 4 með litnum natur eða litnum ljós bleikur í kringum allt teppið þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í fyrstu l í garðaprjóni, * 1 ll, hoppið yfir 1 rönd í garðaprjóni, 1 fl í næstu rönd í garðaprjóni *, endurtakið frá *-* umf hringinn (passið að það verði 1 ll í hverju horni á teppinu), endið umf með 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í fyrstu ll, * 3 ll, 1 fl í næstu ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf. Klippið frá og festið enda.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 25-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (80)

country flag Marit Ellefseth wrote:

Jeg lurer på hvordan jeg skal få teppet likt på vrangen og retten? Strikker man en pinne vrangt, eller?

02.06.2016 - 00:20

DROPS Design answered:

Hej Marit. Du kan ikke faa det 100% ens paa begge sider pga overgang i striberne, men ret paa alle pinde giver riller - som er ens paa baade ret og vrangen.

02.06.2016 - 11:31

country flag Sonja wrote:

Tak for svar - nu ved jeg at jeg skal bruge 3 nøgler á 50 g af hver farve, for at strikke det store tæppe - men jeg kan altså ikke finde hvor mangler nøgler jeg skal bruge til at hækle kanten - hvor står det i opskriften: babydrops 25-1?

07.04.2016 - 12:07

DROPS Design answered:

Hej Sonja. Det er hvad du skal bruge til hele taeppet - inklusiv kant :-) God fornöjelse.

07.04.2016 - 13:41

country flag Sonja wrote:

Hvor mange nøgler skal jeg bruge af hver farve (2), når jeg vil strikke det 50 x 75 cm. Også når jeg skal have nok til den hæklede kant? Mvh Sonja

07.04.2016 - 11:03

DROPS Design answered:

Hej Sonja, Du ser hvor der er 2 tal med - imellem, som 100-150 g, det betyder at første tal er til det lille tæppe og andet tal er til det store tæppe. Det er beskrevet på samme måde ned i selve opskriften hvor der er forskel på det lille og store tæppe. God fornøjelse!

07.04.2016 - 11:16

country flag Viaux wrote:

J'ai fini la couverture et j'ai obtenu un losange et suis très déçue. Est ce normal? Merci.

07.02.2016 - 23:42

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Viaux, la vidéo ci-dessous montre comment réaliser la couverture: comment augmenter, puis diminuer/augmenter, puis diminuer. Bon tricot!

08.02.2016 - 13:45

country flag Viaux wrote:

La couverture st elle rectangulaire au final? Merci.

07.02.2016 - 23:39

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Viaux, la couverture doit être un rectangle soit de 34x51 cm (petite) soit de 50x75 cm (grande). Bon tricot!

08.02.2016 - 13:44

country flag Sabine wrote:

Hallo, Wie viel Stunden strickt man ca. an der großen Decke?

31.01.2016 - 17:11

DROPS Design answered:

Das lässt sich pauschal nicht sagen, denn es kommt ja ganz individuell auf das Stricktempo des Einzelnen an.

02.02.2016 - 13:17

country flag Anne Ma Meiningen wrote:

Jeg strikker babyteppe og har strikket en vform nå skal jeg ta to masker sammen og legge til en maske sist på pinnen og strikke tilbake på vr uten det høres rart ut at det strikkes en v form og videre tas sammen i veg av å og legger opp til ny m i slutten av å i flere cm før teppet skal skrås i motsatt vform når jeg skal føle m i begynnelsen og slutten av hver pinne. Jeg føler at dette blir veldig skeivt. Så nå står jeg fast.

10.09.2015 - 14:29

country flag Anja Blaettermann wrote:

Wenn ich eine 40x40cm Decke machen will, muss ich, wenn ich dann 40cm erreicht habe und dann mit den Zu- und Abnahmen beginne, erneut bis 40cm stricken, um die Größe zu erreichen? Und dann soll ich erst dann mit den abnahmen beginnen?

09.09.2015 - 07:17

DROPS Design answered:

Wenn Sie eine quadratische Decke stricken wollen, arbeiten Sie die Zunahmen beidseitig, bis beide Seiten 40 cm messen. Dann arbeiten Sie direkt beidseitig Abnahmen. Sie überspringen also das Stück mit Zunahmen an der einen und Abnahmen an der anderen Seite. Dies dient der Verlängerung zu einem Rechteck, beim Quadrat nehmen Sie, wie gesagt, direkt wieder beidseitig ab.

20.09.2015 - 15:35

country flag Anja Blaettermann wrote:

Wenn ich eine 40x40cm Decke machen will, muss ich, wenn ich dann 40cm erreicht habe und dann mit den Zu- und Abnahmen beginne, erneut bis 40cm stricken, um die Größe zu erreichen? Und dann soll ich erst dann mit den abnahmen beginnen?

08.09.2015 - 08:19

DROPS Design answered:

Antwort siehe oben!

20.09.2015 - 15:35

country flag Inger Andersen wrote:

Skal tæppet strikkes med dobbelt garn? Jeg synes tæppet virker noget tyndt med en tråd.

19.06.2015 - 01:12

DROPS Design answered:

Hej Inger. Dette taeppe strikkes med 1 traad. Det er lösere strikket end standard med Baby Merino - 20 m x 39 p per 10 x 10 cm, men det er meningen med designet her. Men du kan jo sagtens tilpasse og strikke strammere hvis du foretraekker det.

19.06.2015 - 14:40