Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= prjónastefna |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
First Impression |
||||
|
||||
Prjónuð samfella fyrir börn með garðaprjóni og hekluðum kanti úr DROPS BabyMerino. Stærð fyrirburar - 4 ára
DROPS Baby 25-26 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: (fyrirburar): 4, 10 og 16 cm. 0/1 mán: 6, 11, 16 og 20 cm. 1/3 mán: 7, 12, 18 og 24 cm. 6/9 mán: 8, 14, 20 og 25 cm. 12/18 mán: 10, 16, 22 og 28 cm. (2 ára): 10, 15, 20, 25 og 30 cm. (3/4 ára): 12, 17, 23, 28 og 34 cm. RENDUR: * 4 umf garðaprjón í litnum natur, 4 umf garðaprjón í litnum ljós mynta *, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SAMFELLA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjað er á öðru framstykkinu, aukið er út fyrir ermi og prjónað er upp að öxl. Hitt framstykkið er prjónað á sama hátt, síðan eru stykkin sett á sama hringprjón og prjónað er yfir bakstykki, fellt er af fyrir opi fyrir fætur, aukið aftur út og prjónað er yfir bleyjusvæði. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið LAUST upp (24) 27-29-31-34 (36-39) l (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjóna nr 3 með litnum ljós mynta. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (1. umf = rétta). Þegar stykkið mælist (4) 6-7-8-10 (10-12) cm fellið af fyrir fyrsta HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá skýringu að ofan. Þegar stykkið mælist (12) 15-18-20-22 (24-27) cm – passið að næsta umf sé prjónuð frá réttu, fitjið upp nýjar l í lok hverrar umf frá hlið fyrir ermi þannig: 2 l alls (5) 5-5-4-4 (4-5) sinnum, 4 l alls (2) 2-2-3-3 (4-5) sinnum og síðan (13) 22-30-33-40 (46-51) l 1 sinni = (55) 67-77-84-94 (106-120) l. Þegar stykkið mælist (17) 21-25-26-29 (31-35) cm fellið af síðustu 8 l við miðju að framan fyrir hálsmáli. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 l alls 2 sinnum og síðan 1 l alls (3) 3-3-3-4 (4-4) sinnum = (40) 52-62-69-78 (90-104) l. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist (20) 24-28-30-33 (36-40) cm. Setjið 1 prjónamerki = miðja ofan á öxl – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 2 nýjar l í lok næstu umf við hálsmál = (42) 54-64-71-80 (92-106) l (síðasta umf = ranga). Setjið allar lykkjur á þráð / hjálparprjón. VINSTRA FRAMSTYKKI: ATH: Ekki er fellt af fyrir hnappagötum í vinstri kanti að framan. Fitjið upp og prjónið á sama hátt og á hægra framstykki, nema spegilmynd (þ.e.a.s. að fitjaðar eru upp nýjar l fyrir ermi í lok hverrar umf frá röngu (í stað lok hverrar umf frá réttu). Að auki er prjónuð 1 umf slétt frá röngu í lok á framstykki eftir að fitjaðar hafa verið upp 2 l við hálsmál þannig að síðasta umf bæði á hægra og vinstra framstykki er prjónuð frá röngu. BAKSTYKKI: Prjónið inn vinstra framstykki á hringprjóna (= sl frá réttu), fitjið upp (16) 16-16-16-18 (18-18) nýjar l (= aftan við hnakka) og prjónið inn hægra framstykki á hringprjóna (= sl frá réttu) = (100) 124-144-158-178 (202-230) l á prjóni. MÆLIÐ NÚ STYKKIÐ FRÁ PRJÓNAMERKI Á ÖXLUM. Haldið nú áfram í garðaprjóni fram og til baka. Þegar stykkið mælist (5) 6-7-7-8 (8-8) cm fellið af ermalykkjur í byrjun á hvorri hlið þannig: Fellið af (13) 22-30-33-40 (46-51) l 1 sinni, 4 l alls (2) 2-2-3-3 (4-5) sinnum og 2 l alls (5) 5-5-4-4 (4-5) sinnum = (38) 44-48-52-58 (62-68) l á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca (20) 24-28-30-33 (36-40) cm – brjótið stykkið saman tvöfalt við prjónamerki á öxlum og athugið að framstykki og bakstykki eru jafn löng. Setjið 1 nýtt prjónamerki. STYKKIÐ ER NÚNA MÆLT FRÁ ÞESSU PRJÓNAMERKI. Haldið áfram í garðaprjóni JAFNFRAMT er fellt af fyrir opi fyrir fætur þannig: Fellið af 1 l í byrjun umf með því að prjóna 2 l slétt saman innan við 1 kantlykkju. Endurtakið úrtöku í byrjun á hverri umf (bæði frá réttu og frá röngu) þar til (14) 14-14-14-16 (16-16) l eru eftir í umf (nú hafa verið felldar af (12) 15-17-19-21 (23-26) l í hvorri hlið og stykkið mælist nú ca (5) 6-7-8-9 (10-11) cm frá prjónamerki). Prjónið nú RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Þegar prjónuð hefur verið 1 mynstureining með röndum (= 8 umf garðaprjón) byrjar útaukning við opi fyrir fætur (rendur halda áfram eins og áður) og nú er aukið út þannig: Fitjið upp 1 nýja l í lok hverrar umf (bæði frá réttu og frá röngu) þar til það eru (22) 28-32-36-42 (46-52) l á prjóni (= (4) 7-9-11-13 (15-18) útaukningar á hvorri hlið). Fitjið síðan upp 2 nýjar l í lok 8 næstu umf = (38) 44-48-52-58 (62-68) l á prjóni. LESTU NÆSTA KAFLA ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! Prjónið síðan án útaukninga þar til prjónaðar hafa verið 4 umf garðaprjón í litnum natur eftir 4 umf garðaprjón í litnum ljós mynta. Setjið 1 nýtt prjónamerki. Haldið áfram með rendur eins og áður JAFNFRAMT í 1. umf frá réttu er felld af 1 l yst í hvorri hlið fyrir bleyjusvæði með því að prjóna 2 síðustu l innan við 1 kantlykkju slétt saman. Endurtakið úrtöku lengst út í hvorri hlið í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu), (4) 6-8-9-11 (11-14) sinnum til viðbótar (= alls (5) 7-9-10-12 (12-15) sinnum). Prjónið síðustu rönd til loka (þ.e.a.s. fyrirburar + 0/1 mán + 1/3 mán + 3/4 ára endar eftir 4 umf í garðaprjóni með litnum ljós mynta og í stærð 6/9 mán + 12/18 mán + 2 ára endar eftir 4 umf garðaprjón í litnum natur). Prjónið nú garðaprjón í litnum natur í öllum stærðum JAFNFRAMT í 1. umf frá réttu er fækkað um 1 l lengst út í hvorri hlið við bleyjusvæði eins og áður og fellt er af fyrir 3 hnappagötum jafnt yfir – það á að vera 1 hnappagat 2 cm inn frá hvorri hlið og 1 hnappagat fyrir miðju. Endurtakið úrtöku lengst út í hvorri hlið í 4. hverri umf 1 sinni til viðbótar. Eftir síðustu úrtöku efst á bleyjusvæði eru (24) 26-26-28-30 (34-34) l eftir á prjóni, nú hafa verið prjónað alls (8) 8-8-12-12 (12-8) umf garðaprjón efst með litnum natur og lok yfir bleyjusvæði mælist ca (6) 8-9-10-12 (12-14) cm frá síðasta prjónamerki. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma kant í kant yst í lykkjubogana. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið með heklunál nr 2,5 með litnum natur í kringum allt opið á fram- og bakstykki þannig (þ.e.a.s. meðfram neðri kanti á hægra framstykki, upp meðfram kanti að framan, í kringum hálsmál, niður meðfram hinum kanti að framan, meðfram kanti að neðan á vinstra framstykki og síðan meðfram opi fyrir fót, loki á bleyjusvæði og hinu opinu fyrir fót): UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í fyrstu l, * 1 ll, hoppið yfir 1 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kl í fyrstu fl. UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í fyrstu ll, * 2 ll, 1 fl í næstu ll *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kl í fyrstu fl. Klippið frá og festið enda. Heklið alveg eins neðst í kringum báðar ermar. FRÁGANGUR: Brjótið loki á bleyjusvæði að réttu. Saumið tölur (miðju talan á lokinu er hneppt í gegnum bæði lok og framstykki). Saumið smá spor í hvora hlið þar sem op fyrir fætur mætist hlið á fram- og bakstykki svo að opið haldist á sínum stað (merkt með stjörnu í teikningu). |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6917 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (25)
Julia wrote:
Bonsoir ! Je suis coincée à ce niveau : "à la fin de chaque rang sur le côté les mailles pour la manche ainsi : (5) 5-5-4-4 (4-5) fois 2 m, (2) 2-2-3-3 (4-5) fois 4 m et 1 fois (13) 22-30-33-40 (46-51) m = (55) 67-77-84-94 (106-120) m." Est-ce que cela signifie que je rajoute les mailles sur le rang endroit et tricote le rang envers sans ajout, ou je me trompe ? Merci par avance !
20.04.2021 - 23:11DROPS Design answered:
Bonjour Julia, pour les devants, vous montez les mailles effectivement uniquement en fin de rang côté manche, donc un seul côté, après avoir monté ces mailles pour la manche, tournez, tricotez le rang suivant sur les nouvelles mailles + les autres comme avant, tournez et tricotez le rang suivant comme avant + montez les nouvelles mailles en fin de rang. Continuez ainsi jusqu'à ce que toutes les mailles de la manche ont été montées. Pour le devant droit, vous montez les mailles en fin de rang sur l'endroit, pour le devant gauche, vous les monterez en fin de rang sur l'envers. Bon tricot!
21.04.2021 - 07:58Sylvia wrote:
I don't understand where says dec for leg opening until there 14sts then says remain on row 17sts
22.03.2020 - 23:36DROPS Design answered:
Dear Sylvia, in the 3rd size you decrease 1 stitch at the beg of each row (both from RS and from WS) until 14 stitches remain. In other words, you will decrease 17 sts on each side = 48 sts - 17 sts decreased at the beg of RS rows - 17 sts decreased at the beg of WS rows = 14 sts remain. Happy knitting!
23.03.2020 - 11:18Letizia wrote:
Buongiorno, Sto lavorando la parte destra davanti, a 15 cm de lavoro devo avviare nuove maglie per la manica. C’è scritto di aggiustare il lavoro in modo che il ferro successivo sia lavorato sul diritto, non riesco a capire se gli aumenti li faccio sul rovescio o sul diritto? Grazie:)
26.12.2019 - 09:24DROPS Design answered:
Buongiorno Letizia. Dipende dal metodo che usa per avviare le maglie. Le alleghiamo un video che può aiutarla. Se usa il primo metodo, sul davanti destro, avvia le maglie sul diritto del lavoro; con il secondo metodo le avvia sul rovescio. Buon lavoro!
27.12.2019 - 08:35Letizia wrote:
Grazie mille della risposta tempestiva!
24.12.2019 - 18:44Letizia wrote:
Buongiorno:) Sto per iniziare questo modello e mi chiedevo se l’uso dei Ferri circolari è indispensabile o se posso utilizzare dei Ferri normali. Grazie:)
23.12.2019 - 23:08DROPS Design answered:
Buonasera Letizia, questo modello è lavorato in piano, quindi può procedere anche con i ferri dritti. Buon lavoro!
24.12.2019 - 17:57Uschi wrote:
Hallo, woe hält denn die Windelklappe an der Vorderen Seite? Liegt sie nur auf? LG
12.07.2019 - 11:48DROPS Design answered:
Liebe Uschi, mit 3 Knöpfe wird die Windelklappe halten: der mittlere Knopf ist der vom rechten vorderteil, und dann nähen Sie 1 Knopf auf beiden Seiten (je auf einem Vorderteil) - siehe auch Maßskizze. Viel Spaß beim stricken!
12.07.2019 - 13:14Uschi wrote:
Hallo, reichen 150 gr, wenn ich keine Streifen arbeiten möchte? LG Uschi
18.03.2019 - 14:20DROPS Design answered:
Liebe Uschi, da dieses Modell mit Streifen gestrickt wurde, haben wir leider keine Erfahrung um die Menge ohne Streifen, am besten kalkulieren Sie die beiden Farben = 150-200-250 g je nach der Größe. Viel Spaß beim stricken!
18.03.2019 - 15:29Patricia wrote:
Pas de réponse !!!
10.06.2017 - 09:43DROPS Design answered:
Bonjour Patricia, votre réflexion a bien été transmise, nous vous remercions d'avance pour votre patience. Bon tricot!
12.06.2017 - 10:22Patricia wrote:
Merci pour votre réponse mais elle ne répond pas à ma question ! Je suis d'accord pour les 7 boutonnières mais pas pour le nombre de boutons. Si nous suivons vos explications, nous utilisons deux boutonnières, pour un seul bouton. Logiquement donc, il ne faut acheter que 6 boutons. J'aimerais que vous me le confirmiez s'il vous plaît et le cas échéant, que vous corrigiez le modèle pour éviter les erreurs. Merci
06.06.2017 - 16:21Patricia wrote:
Bonjour, me revoilà ! j'ai fini le tricot en 6/9 mois et j'en suis à coudre les boutons. Vous indiquez 7 boutons mais il n'y a que 6 boutonnières d'utilisées d'après ce que je déduis. Où va le dernier bouton s'il vous plaît ? Merci
06.06.2017 - 14:02DROPS Design answered:
Bonjour Patricia, on ouvre 4 boutonnières sur le devant (à 8, 14, 20 et 25 cm) + 3 boutonnières sur le rabat. Bon tricot!
06.06.2017 - 15:10