DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Simply Sweet

Prjónuð samfella fyrir börn í stroffprjóni, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS BabyMerino. Stærð fyrirburar - 4 ára

DROPS Baby 25-30
DROPS Design: Mynstur nr bm-053-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: (fyrirburar) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: (40/44) 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
(50) 100-150-150-150 (150-200) gr litur nr 02, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR EÐA HRINGPRJÓNAR (40 eða 60 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 34 l og 32 umf með stroffprjóni verði 10 x 10 cm (24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm).
DROPS PERLUTALA, NR 521: 5 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið er út um 1 l í hvorri hlið við 4 laskalínur með því að slá 1 sinniuppá prjóninn hvoru megin við 2 l sl í hverri laskalínu (séð frá réttu). Uppslátturinn er prjónaður jafnóðum inn í stroffiprjón, þ.e.a.s. 2 fyrstu lykkjur brugðið frá röngu, næstu 2 lykkjur slétt frá réttu o.s.frv – ATH: Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn (þ.e.a.s. að það á að myndast gat hvoru megin við 2 l sl í laskalínu).

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan.
1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ (fyrirburar): 1 og 3 cm.
STÆRÐ 0/1 mán + 1/3 mán: 1 og 4 cm.
STÆRÐ 6/9 mán + 12/18 mán: 1 og 4½ cm.
STÆRÐ (2 ára + 3/4 ára): 1 og 5 cm.

ÚRTAKA-1 (á við um op fyrir fætur):
Fækkið lykkjum innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni.
FRÁ RÉTTU:
Fækkið lykkjum á eftir 3 l sl þannig: 2 l snúnar br saman.
Fækkið lykkjum á undan 3 l sl þannig (byrjið þegar 5 l eru eftir í umf): 2 l br saman.
FRÁ RÖNGU:
Fækkið lykkjum á eftir 3 l sl þannig: 2 l snúnar slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir 3 l sl þannig (byrjið þegar 5 l eru eftir í umf): 2 l sl saman.

ÚRTAKA-2 (á við um ermar):
Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið síðan 2 l slétt saman (stroffprjón), prjónið 2 l (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l) og prjónið síðan 2 l snúnar saman (stroffprjón).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SAMFELLA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Prjónað er fram og til baka á hringprjóna fyrir op fyrir hálsmáli, síðan er stykkið prjónað í hring á sokkaprjóna / hringprjóna fram að opi fyrir fætur. Ermarnar prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp (54) 60-60-64-74 (74-74) l (meðtaldar 6 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3,5 með litnum natur Baby Merino.
Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (1. umf = rétta). Prjónið síðan upphækkun að aftan við hnakka þannig (1. umf = rétta): Prjónið sl þar til (6) 8-8-8-10 (10-10) l eru eftir, snúið við, herðið á þræði og prjónið þar til (6) 8-8-8-10 (10-10) l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við, herðið á þræði og prjónið þar til (12) 16-16-16-20 (20-20) l eru eftir, snúið við, herðið á þræði og prjónið þar til (12) 16-16-16-20 (20-20) l eru eftir. Snúið við, herðið á þræði og prjónið þar til (18) 24-24-24-30 (30-30) l eru eftir, snúið við og prjónið þar til (18) 24-24-24-30 (30-30) l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið út umf.
Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan slétt, prjónið br yfir næstu (42) 48-48-52-62 (62-62) l JAFNFRAMT er aukið út um (32) 26-42-38-44 (60-60) l jafnt yfir þessar l og endið á 6 kantlykkjum að framan slétt (munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan) = (86) 86-102-102-118 (134-134) l á prjóni.
NÆSTA UMFERÐ ER PRJÓNUÐ FRÁ RÉTTU ÞANNIG:

STÆRÐ (fyrirburar + 0/1 mán):
6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 l sl, 2 l br, A.1 (= 2 l), 2 l br, 2 l sl (setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 2 l = laskalína), * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 2 l br, 2 l sl (setjið 1 prjónamerki á milli þessa 2 l = laskalína), *2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, 2 l br, 2 l sl (setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 2 l = laskalína), * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* alls 3 sinum, 2 l br, 2 l sl (setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 2 l = laskalína), 2 l br, A.1 (= 2 l), 2 l br, 2 l sl og 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN - sjá útskýringu að ofan.

STÆRÐ 1/3 mán + 6/9 mán + 12/18 mán:
6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 l sl, 2 l br, A.1 (= 2 l), 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl (setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 2 l = laskalína), * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* alls 3-3-5 sinnum, 2 l br, 2 l sl (setjið 1 prjónamerki á milli þessa 2 l = laskalína), *2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* alls 7 sinnum, 2 l br, 2 l sl (setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 2 l = laskalína), * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* alls 3-3-5 sinum, 2 l br, 2 l sl (setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 2 l = laskalína), 2 l br, 2 l sl, 2 l br, A.1 (= 2 l), 2 l br, 2 l sl og 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN - sjá útskýringu að ofan.

STÆRÐ (2 ára + 3/4 ára):
6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 l sl, 2 l br, A.1 (= 2 l), 2 l br, ** endurtakið frá **-** alls 2 sinnum, (setjið 1 prjónamerki á milli þessa 2 l = laskalína), *2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, 2 l br, 2 l sl (setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 2 l = laskalína), * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* alls 9 sinum, 2 l br, 2 l sl (setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa 2 l = laskalína), 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, 2 l br, 2 l sl (setjið 1 prjónamerki á milli þessa 2 l = laskalína), ** 2 l br, A.1 (= 2 l), 2 l br, 2 l sl **, endurtakið frá **-** alls 2 sinnum og endið á 6 kantlykkjum að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.

ALLAR STÆRÐIR:
Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l fleiri). Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), (7) 7-7-11-11 (11-11) sinnum til viðbótar (= alls (8) 8-8-12-12 (12-12) útaukningar hvoru megin við hverja laskalínu).
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist (4) 5-5-6-6 (7-7) cm endar kantur að framan og stykkið er síðan prjónað í hring þannig (passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá réttu):
Setjið stykkið saman með l frá hægri kanti að framan efst (þannig að kantarnir að framan liggja ofan á hvor öðrum og hnappagötun eru yst). Prjónið 1 umf í hring JAFNFRAMT eru 6 l frá hægri og vinstri kanti að framan prjónaðar slétt saman 2 og 2, prjónið út umf, klippið frá og byrjið á næstu umf við miðju að aftan.
Haldið áfram í stroffprjóni og mynstur hringinn JAFNFRAMT er haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu eins og áður, en þær 6 l við miðju að framan eru prjónaðar þannig: 2 l br, A.1 (= 2 l) og 2 l br.
Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru (144) 144-160-192-208 (224-224) l á prjóni. Prjónið (0) 2-2-2-2 (2-2) umf til viðbótar eins og áður, stykkið mælist ca (7) 8-8-10-11 (11-11) cm frá öxl. Í næstu umf eru settar (32) 32-32-40-48 (48-48) l á milli hverra prjónamerkja yfir ermar á þráð (l eru prjónaðar áður en þær eru settar á þræðina)= (40) 40-48-56-56 (64-64) l eftir á fram- og bakstykki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= (80) 80-96-112-112 (128-128) l. Í næstu umf til baka eru fitjaðar upp (8) 16-12-12-16 (16-20) LAUSAR l undir hvorri ermi = (96) 112-120-136-144 (160-168) l á fram- og bakstykki, setjið eitt prjónamerki í hvora hlið – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Haldið áfram í stroffprjóni hringinn eins og áður (= 2 l sl, 2 l br) með A.1 að framan eins og áður. Þegar stykkið mælist (13) 16-20-20-21 (24-27) cm frá handveg, er stykkinu skipt við prjónamerki í hvorri hlið og framstykki og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= (48) 56-60-68-72 (80-84) l. Prjónið nú stroffprjón fram og til baka eins og áður, en 3 síðustu l í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. JAFNFRAMT er fækkað um 1 l innan við 3 kantlykkjur í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 2 l færri). Endurtakið úrtöku í hverri umf (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu), (6) 10-12-16-14 (18-14) sinnum til viðbótar (= alls (7) 11-13-17-15 (19-15) sinnum) og síðan í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls (5) 5-5-5-7 (7-11) sinnum = (24) 24-24-24-28 (28-32) l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um (8) 8-8-8-10 (10-12) l jafnt yfir = (16) 16-16-16-18 (18-20) l eftir á prjóni. Prjónið 10 umf slétt og fellið síðan laust af með sl frá röngu.

FRAMSTYKKI:
= (48) 56-60-68-72 (80-84) l. Prjónið stroff fram og til baka eins og áður, en 3 síðustu l í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. JAFNFRAMT er felld af 1 l innan við 3 kantlykkjur í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 2 l færri). Endurtakið úrtöku í hverri umf (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu), (11) 13-17-21-19 (23-17) sinnum til viðbótar (= alls (12) 14-18-22-20 (24-18) sinnum) og síðan í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls (0) 2-0-0-2 (2-8) sinnum = (24) 24-24-24-28 (28-32) l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um (8) 8-8-8-10 (10-12) l jafnt yfir = (16) 16-16-16-18 (18-20) l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Í næstu umf (= rétta) fellið af fyrir 3 hnappagötum þannig: prjónið (3) 3-3-3-3 (3-4) l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman, (2) 2-2-2-3 (3-3) l sl *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og (3) 3-3-3-3 (3-4) l sl. Prjónið 4 umf slétt og fellið síðan laust af með sl frá röngu.

ERMI:
= (32) 32-32-40-48 (48-48) l. Fitjið upp (8) 16-12-12-16 (16-20) LAUSAR l við handveg undir ermi = (40) 48-44-52-64 (64-68) l á prjóni (prjóni í hring á sokkaprjóna). Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Haldið áfram í stroffprjóni hringinn (= 2 l sl, 2 l br). JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku í (4.-) 4.-6.-6.-6.- (8.-8) hverri umf, (3) 7-3-7-7 (7-7) sinnum til viðbótar (= alls (4) 8-4-8-8 (8-8) sinnum) = (32) 32-36-36-48 (48-52) l eftir á prjóni.
Þegar ermin mælist (12) 16-20-20-24 (29-35) cm fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.
Saumið 2 tölur í vinstri kant að framan við hálsmál og 3 tölur neðst á stykkið.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röng
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = prjónið 3 l sl, takið fyrstu l sem prjónuð var yfir hinar 2 þannig að l liggi utan um 2 síðustu l sem voru prjónaðar á hægri prjón (= 1 l færri)
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Simply Sweet

Sofylo, France

Simply Sweet

Cheryl, Australia

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 25-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (50)

country flag MAYA wrote:

Derfra mangler diagram på netudgave!

17.02.2021 - 17:55

country flag Maya wrote:

Hej jeg er i tvivl, om man fortsætter i retstrikning, mens man laver forhøjning ba i nakken m vendestrik. Mvh maya

17.02.2021 - 17:15

DROPS Design answered:

Hej Mays, ja forhøjningen strikkes i retstrik, men du kan naturligvis strikke den i glatstrik hvis du hellere vil det :)

18.02.2021 - 08:42

country flag Hilde wrote:

Strikker denne i str 12/18 mnd. Får ikke maskeantallet til å stemme på første omgang der inndelingen til raglanlinjen er. Følger inndelingen som det står, men får for lite masker på slutten.

29.12.2020 - 19:33

DROPS Design answered:

Hei Hilde. Har du satt merket for raglanlinjene etter 2 rett eller slik det står i oppskriften, sett 1 merke midt mellom disse 2 maskene? Strikk 6 stolpemasker + 14 masker, 1. raglanmerke settes mellom 13. og 14. maske. Deretter strikkes det 24 masker og 2. raglanmerke settes mellom 23. og 24. maske (=1.erme). Så strikkes det 32 masker og 3. raglanmerke settes mellom 31. og 32. maske (=bakstykket). Så strikkes det 24 masker og 4. raglanmerke settes mellom 23. og 24. maske (=2.erme), så strikkes det 12 masker + 6 stolpemasker. Da blir det 19 masker (1.merke) + 24 masker (2. merke) + 32 masker (3.merke) + 24 masker (4.merke) + 19 masker = 118 masker på pinnen. God Fornøyelse!

13.01.2021 - 14:34

country flag Nobutan wrote:

It does :) Thank you!!

17.12.2019 - 15:28

country flag Nobutan wrote:

Thank you so much for your quick response! Very much appreciated. If my understanding is right, then I would have to increase without creating new ribbing until the purl stitches between the RAGLAN LINE and the 2 KNIT STITCHES OF THE RIB (next to the raglan line on both sides) become 6. Then I can create 2P, 2K, 2P

17.12.2019 - 11:02

DROPS Design answered:

Dear Mrs Nobutan, if you have: P2, K2 (with marker = raglan line), P2, you will work the 1st increases like this: P2, K1, K2 (raglan line), K1, P2, then 2nd: P2, K2, K2 (raglan line), K2, P2, then Purl the next 2 sts increased and so on. Does it answer your question?

17.12.2019 - 14:49

country flag Nobutan wrote:

Hi, I understand this part: Inc 1 st on each side of the 4 raglan lines by making 1 YO on each side of the 2 sts K in each raglan line (seen from RS), but my question is, if I keep on increasing every other row on the RS, the PURL STITCHES between the 'raglan line' and the 'knit stitches of rib on both sides of the raglan line' keep on increasing. It says to work in rib but should I not go along with the original rib created in the pattern? I hope you understand my question, I am a beginner!

17.12.2019 - 02:05

DROPS Design answered:

Dear Nobutan, hope I understand your question: you will increase on both sides of the K2 = raglan lines, and the new stitches increased will be worked in rib so that the rib on each piece will continue over the new stitches. But you should always have K2 on each raglan line (= between the both yarn overs for inc). You will increase on every other row = every row from RS when working back and forth hand then every other round (when working in the round later). Happy knitting!

17.12.2019 - 09:28

country flag Lise-Gro Henriksen wrote:

Hei. Maskeantallet stemmer ikke når jeg setter merketrå for raglanfelling. Er sikker på at jeg har fulgt maskeantallet i mønsteret . Forslag til hva jeg skal gjøre videre?

27.11.2018 - 13:14

DROPS Design answered:

Hei Lise-Gro. Så etter å ha økt masker jevnt fordelt har du nå (86) 86-102-102-118 (134-134) masker på pinnen. Hvilken størrelse strikker du? vi kan enklere forklare deg akkurat hva du skal gjøre om vi vet hvilken størrelse du strikker nemlig. Hilsen Drops

29.11.2018 - 14:25

Dhanam wrote:

Hi, me again - I counted the total stitches in 1/3 month size - starting with 86 after the increase in the yoke section. In the following pattern - the stitches totoalled to 96 !

03.02.2018 - 18:37

DROPS Design answered:

Hi Dhanam, You have a total of 12 band stitches in garter stitch, + 2 x A.1 (4 stitches), + K2, P2 x 17 (68 stitches) + P2, which is a total of 86 stitches. Hope this helps and happy knitting!

04.02.2018 - 06:53

Salomé wrote:

I am already done with the yoke and the neck elevation, there is no indication whether you start the diagram on the row where you make a stitch or whether you start at the bottom which is just plain knitting. Normally the diagrams are numbered, but yours is not.

31.12.2017 - 19:07

DROPS Design answered:

Dear Salomé, start reading diagram on the bottom corner on the right side, from the right towards the left from RS (and every round), and from the left towards the right from WS when working back and forth. Happy knitting!

02.01.2018 - 11:20

Salomé wrote:

Hi there, I have an uncertainty about where to start with the diagram, normally it is numbered starting from the bottom. I am to start on the pattern after the increase but am not sure whether to start from the bottom of the diagram which is a make one row or do I start at the top which is just plain knit?

29.12.2017 - 19:40

DROPS Design answered:

Dear Salomé, after you finish knitting the yoke (including the elevation of the back) you start the patterned stitches with the first row of the diagram. Happy Knitting!

30.12.2017 - 15:54