DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 246.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3198.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 73-22
DROPS Design
Garnflokkur C
----------------------------------------------------------

Stærð: XS - S - M - L -XL
Efni:
DROPS Paris frá Garnstudio
250-300-300-350-350 gr nr 30, gallabuxnablár
150-200-200-200-250 gr nr 31, fjólublár
150-150-200-200-200 gr nr 25, mosagrænn
100-100-150-150-150 gr nr 08, dökk fjólublár

Einnig er hægt að prjóna stykkið með garni frá: "Garnmöguleiki (Garnflokkur C)" – sjá tengil að neðan.

DROPS PRJÓNAR NR 8 OG 9 - eða þá stærð sem þarf til að 10 lykkjur og 12 umferðir með sléttprjóni og 2 þráðum Paris verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 246.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3198.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

STROFF:
* 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.

RENDUR:
Sjá mynsturteikningu M.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

AFFELLING (á við um laskalínu): Fellið af innan við 1 kantlykkju + 1 lykkju sléttprjón.
Fellið af á eftir 2 lykkjum þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.
Fellið af á undan 2 lykkjum þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.
----------------------------------------------------------

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 40-44-48-52-56 lykkjur á prjón 8 með 1 þræði litnum dökk fjólublár + 1 þræði litum gallabuxnablár. Prjónið M.1 áfram – prjónið STROFF – sjá útskýringu að ofan – fyrstu 4 cm, skiptið síðan yfir á prjón 9 og prjónið til loka í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 9-9-10-10-10 cm aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið og þegar stykkið mælist 18-18-20-20-20 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið = 44-48-52-56-60 lykkjur. Þegar stykkið mælist 30-32-33-34-36 cm fellið af 4 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg. Fellið síðan af fyrir laskalínu sjá AFFELLING að ofan: Í 4. hverri umferð 1 lykkja 2-2-1-1-1 sinnum, í annarri hverri umferð 1 lykkja 7-5-7-6-4 sinnum og síðan í hverri umferð 1 lykkja 0-4-5-8-12 sinnum. Fellið síðan af þær 18 lykkjur sem eftir eru, stykkið mælist ca 48-50-52-54-56 cm.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki. Fellið af fyrir laskalínu eins og á bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 42-44-46-48-50 cm setjið miðju 8 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli, fellið síðan af 1 lykkju við hálsmál í annarri hverri umferð 3 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir laskalínu og hálsmáli eru 2 lykkjur eftir á hvorri öxl, fellið þessar lykkjur af. Stykkið mælist ca 48-50-52-54-56 cm upp að öxl.

ERMI:
Fitjið upp 24-24-28-28-28 lykkjur á prjón 8 með 1 þræði litnum dökk fjólublár og 1 þræði litnum gallabuxnablár. Prjónið M.1 áfram – prjónið stroff fyrstu 7 cm, skiptið síðan yfir á prjón 9 og prjónið til loka í sléttprjóni. JAFNFRAM eftir stroff er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið í 5,5. - 5,5.- 6.- 5,5 - 5,5. hverjum cm alls 8-8-7-8-8 sinnum = 40-40-42-44-44 lykkjur á prjóni. Þegar ermin mælist 50-51-51-51-51 cm fellið af 4 lykkjur í hvorri hlið. Fellið síðan af fyrir laskalínu innan við 1 kantlykkju – sjá AFFELLING: Í 4. hverri umferð 1 lykkja 2-2-1-1-1 sinnum, í annarri hverri umferð 1 lykkja 5-5-8-8-8 sinnum og í hverri umferð 1 lykkja 4-4-3-4-4 sinnum = 10 lykkjur eftir á prjóni. Fellið af, ermin mælist ca 68-69-70-71-71 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið alla laskalínu sauma innan við 1 kantlykkju nema hægra megin að aftan. Takið upp ca 46-52 lykkjur í kringum háls á prjóna 8 með 1 þræði litnum fjólublár + 1 þræði litnum gallabuxnablár. Prjónið 4 umferðir sléttprjón fram og til baka, fellið af – kantur í hálsi á að rúllast upp. Saumið hægri laskalínusaum upp meðfram kanti í hálsmáli. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 30.01.2023
FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki. Fellið af fyrir laskalínu eins og á bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 42-44-46-48-50 cm setjið miðju 8 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli, fellið síðan af 1 lykkju við hálsmál í annarri hverri umferð 3 sinnum.

Mynstur

symbols = 1 þráður litur dökk fjólublár + 1 þráður litur gallabuxnablár
symbols = 1 þráður litur gallabuxnablár + 1 þráður litur fjólublár
symbols = 1 þráður litur fjólublár + 1 þráður litur mosagrænn
symbols = 1 þráður litur mosagrænn + 1 þráður litur gallabuxnablár
symbols = 1 þráður litur fjólublár + 1 þráður litur dökk fjólublár
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 73-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Wilma wrote:

Als mijn proeflapje 8x 8 is in plaats van 10 x10, kan ik dan gewoon een grotere maat breien? Ik wil nl een ander garen/andere naalddikte gebruiken.

17.10.2023 - 10:35

DROPS Design answered:

Dag Wilma,

Als je proeflapje 2 centimeter kleiner is, dan wordt je werkstuk ook 2 centimeter kleiner per 10 cm. Dus als de breedte van het pand bijvoorbeeld 40 zou worden, dan zou dat bij jou 32 worden. Met deze manier van rekenen zou je de juiste maat kunnen vinden. In de hoogte kun je extra naalden breien om de juiste lengte te krijgen. Hier moet je ook rekening mee houden met het verdelen van de minderingen voor de raglan.

18.10.2023 - 18:46

country flag Wilma wrote:

Als mijn proeflapje 8x 8 is in plaats van 10 x10, kan ik dan gewoon een grotere maat breien? Ik wil nl een ander garen/andere naalddikte gebruiken.

15.10.2023 - 14:17

DROPS Design answered:

If you want an answer in Dutch, please, do choose the Dutch flag. Thank you!

17.10.2023 - 10:29

country flag Alexander wrote:

Bonjour, je ne comprends pas comment obtenir le bon nombre de mailles après les diminutions du devant. Je tricote une taille M. Si pour le dos, j'ai bien 52 - (4 + 1 + 7 + 5)x2 = 18 mailles restantes, pour le devant, j'ai 52 - (4 + 1 + 7 + 5)x2 (-> emmanchures) - 8 - 4x2 (-> encolure) = 2 mailles restantes alors qu'il est censé m'en rester 4 (2 pour chaque épaule). Pouvez-vous m'aider ? Merci !

28.01.2023 - 09:24

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Alexander, une correction a été faite, merci pour votre retour, on doit diminuer pour l'encolure 3 fois (et non 4 fois) 1 m, il reste ainsi 2 m pour chaque épaule. Bon tricot!

30.01.2023 - 11:48

country flag Kristine wrote:

Hej, Jeg strikker en størrelse L, men jeg forstår ikke helt hvordan raglan-indtagningerne fungerer. Der står, at man skal tage ind på hver 4. pind 1 gang, på hver 2. pind 6 gange og på hver pind 8 gange. Når der nu strikkes frem og tilbage, tæller vrang-siden så med i antal pinde? Fordi så vil man jo skulle lave halvdelen af de 8 sidste indtagninger fra vrangsiden? Og i så fald, har I så en video eller beskrivelse af dette? Vh Kristine

19.01.2023 - 17:13

DROPS Design answered:

Hei Kristine. Ja, det blir felllinger fra vrangen også. Vi har 1 video du kan ta en titt på: "Hvordan felle 2 vrang sammen" under Instruksjonsvideoene som er linket til oppskriften. Mens når det skal felles ved å "Ta 1 maske løs av pinnen, strikk 1 vrang, løft den løse masken over" har vi ingen video på (enda), men da strikker du bare som skrevet mellom de to "). mvh DROPS Design

23.01.2023 - 09:06

country flag Anne Dantorp wrote:

På diagrammet over hvordan farverne skal sammensættes, dynes jeg der er et helt sort felt, men kan ikke se hvilken farvekombination det skulle være

04.02.2021 - 15:08

DROPS Design answered:

Hej Anne, det sorte felt betyder 1 tråd mosgrøn + 1 tråd jeansblå. God fornøjelse!

04.02.2021 - 15:36

country flag Karina wrote:

Hola, no entiendo sobre este patron, que en la muestra lleva 10 puntos para 10 cm, y luego en el esquema dice que para 56 puntos da 60 cm

14.05.2019 - 23:20

DROPS Design answered:

Hola Karina. 56 puntos miden 56 cm (ver los números abajo del todo en el diagrama). Los 60 cm son las medidas en la parte del pecho después de hacer los aumentos en los laterales.

25.05.2019 - 19:54

country flag Ina Drenth wrote:

Ik heb een vraag over de raglan. Je kant toch alleen af in de heengaande rechte naald? Er staat namelijk 1x 1 steek in de 4e naald dan iedere 2e naald en dan elke naald. Maar klopt dit dan wel want de 4e naald is de averechtse naald en de 2e naald ook en wat bedoelen ze dan met iedere naald. Ik snap het echt please help me.\r\nMet vriendelijke groet\r\nIna Drenth

15.01.2019 - 16:37

country flag WAXCIN wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas comment obtenir 18 mailles à la fin du dos. Je réalise une taille XL : partant de 60 mailles, j'en rabats 8 pour les emmanchures, puis 1, 4, et 12 pour le raglan. J'ai donc diminué de 25 mailles au total, et il m'en reste 35 ! Pourriez-vous m'expliquer ? Merci ! Cordialement, Agnès

01.11.2018 - 17:57

DROPS Design answered:

Bonjour Agnès, vous rabattez 8 m pour les emmanchures = restent 52 m puis vous diminuez pour le raglan de chaque côté: 1 x 1 m, 4 x 1 m et 12 x 1 m soit 1 + 4 + 12 m x 2 côtés = vous diminuez 34 m au total, il reste: 52-34=18 m. Bon tricot!

02.11.2018 - 07:37

country flag Marianne wrote:

Kan man strikke blusen rundt på rundpind?

12.02.2018 - 15:54

DROPS Design answered:

Hej Marianne, du er velkommen til at strikke blusen rundt på rundpind, vi har dog ikke mulighed for at ändre i opskriften. God fornöjelse !

12.02.2018 - 16:25

country flag Ing-Marie Johansson wrote:

Hur mycket garn går åt till denna tröjan man vill göra den enfärgad eller i bara 2 färger eller om jag vill använda Big merino istället ?

02.03.2017 - 14:47

DROPS Design answered:

Hej Ing-Marie. Se her hvordan du beregner hvor meget du skal bruge, naar du vil bruge et andet garn. God fornöjelse med den

02.03.2017 - 15:23