DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

First Impression Booties

Prjónaðar tátiljur fyrir börn í garðaprjóni úr DROPS BabyMerino. Stærð fyrirburar - 4 ára.

DROPS Baby 25-25
DROPS Design: Mynstur nr bm-060-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: (fyrirburar) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Lengd fótar: (8) 9-10-11-12 (14-16) cm

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
(50)-50-50-50-50-(50-50) gr litur nr 02, natur
(50)-50-50-50-50-(50-50) gr litur nr 28, ljós mynta

DROPS PRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l og 34 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

RENDUR:
* 4 umf garðaprjón með litnum natur, 2 umf garðaprjón með litnum ljós mynta *, endurtakið frá *-*.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að aftan.

TÁTILJA:
Fitjið upp (44) 44-48-52-52 (56-56) l á prjóni nr 2,5 með litnum ljós mynta.
Prjónið 1 umf br frá röngu, skiptið yfir í litinn natur og prjónið stroff frá réttu þannig: Prjónið 1 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir og endið á 2 l br og 1 l sl. Haldið áfram með stroff svona í (5) 5-5-6-6 (7-8) cm – stillið af að næsta umf sé prjónuð frá röngu. Prjónið 1 umf br frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 14 l jafnt yfir í öllum stærðum = (30) 30-34-38-38 (42-42) l. Í næstu umf er prjónuð gataumferð frá réttu þannig: Prjónið 1 l sl, * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir og endið á 1 l sl. Prjónið 1 umf br frá röngu, klippið frá.
Setjið nú síðustu (11) 11-12-13-13 (15-15) l í hvorri hlið á þráð. Prjónið (3) 3½-4-4½-5½ (6½-8) cm GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir miðju (8) 8-10-12-12 (12-12) l JAFNFRAMT eru prjónaðar RENDUR – sjá útskýringu að ofan (endið rendur eftir 2 umf garðaprjón með litnum ljós mynta), klippið frá.
Næsta umf er prjónuð frá réttu með litnum natur þannig: Prjónið l af þræði í annarri hliðinni, prjónið upp (7) 9-10-11-13 (16-21) l meðfram miðjustykki, prjónið (8) 8-10-12-12 (12-12) l á prjóni (= framstykki), prjónið upp (7) 9-10-11-13 (16-21) l meðfram hinni hliðinni á miðjustykki og prjónið l af seinni þræði = (44) 48-54-60-64 (74-84) l á prjóni. Prjónið (2½) 3-3-4-5 (5-5) cm garðaprjón yfir allar l JAFNFRAMT eru prjónaðar RENDUR (byrjið með litnum natur). JAFNFRAMT eftir (1) 1½-1½-2-3 (3-3) cm fækkiði lykkjum í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) til loka. Fækkið um 1 l í byrjun og í lok umf með því að prjóna 2 l slétt saman innan við 1 kantlykkju. Að auki eru prjónaðar 2 l slétt saman í hvorri hlið á 2 miðju l á prjóni (= 4 l færri í annarri hverri umf) = ca (32) 36-42-48-52 (62-72) l eftir á prjóni. Fellið af og saumið saum undir il og upp meðfram miðju að aftan yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur.

Prjónið aðra tátilju á sama hátt.

SNÚRA:
Klippið 3 þræði í litnum ljós mynta ca 1 meter. Tvinnið þræðina saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda svo að hún tvinni sig aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda. Þræðið snúruna upp og niður í gegnum gataumferðina á tátiljunni (byrjið og endið við miðju framan á tátiljunni).

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 25-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Hannie V Ballegooy wrote:

Hoe nemen jullie alle steken weer op de naald bij de slofjes doe je dat met een rond breinaald ?

22.01.2016 - 23:46

DROPS Design answered:

Hoi Hannie. Je zou ze kunnen opnemen met de ene naald (het rekt een beetje de eerste paar naalden), vind je het onprettig, dan kan je ze verdelen over 3 naalden zonder knop of een rondbreinaald.

26.01.2016 - 15:13

country flag Lourdes wrote:

Ha estat un treball molt bonic. És un bon disseny . No té complicació.

18.09.2015 - 22:28

country flag Silvia wrote:

Hola, he mirado el video y se ve perfectamente como se cojen los puntos del lateral , es estupendo, pero es imposible cojer en la aguja los puntos que habia separado, cojer los puntos de un lateral, los puntos centrales , cojer puntos del otro lateral y los otros puntos que estaban separados en otra aguja. Estaria muy agradecida si me explican como hacerlo. Gracias.

21.04.2015 - 14:28

country flag Silvia wrote:

Buenas tardes, agradecere respondan a pregunta que envie para poder seguir tejiendo los patucos. Muchas gracias

16.04.2015 - 15:33

DROPS Design answered:

Hola Silvia, también puedes guiarte por el vídeo del modelo 25-4 de bebé

20.04.2015 - 10:10

country flag Silvia wrote:

He seguido el patron y perfecto el elastico , el calado para la cinta y el empeine pero a partir de ese momento imposible seguir. Mo se pueden cojer los puntos que he dejado en los imperdibles , ni los de los laterales. En la tienda que venden la lana no han sabido tampoco decirme como seguir. Agradecere me enseñen como hacerlo Espero sus instrucciones Evidencia perfectamente el afecto que me tienes!!! Muchas gracias

14.04.2015 - 17:22

DROPS Design answered:

Hola Silvia, en el apartado de vídeos al lado de los materiales tienes unos cuantos ejemplos que te ayudan a tejerlos. También puedes usar ag circulares o de doble punta que son un poco más flexibles. La parte de abajo también se puede trabajar en redondo. En el patrón 150-4 tienes un video explicativo. La técnica es la misma aunque sea un patrón de adulto.

20.04.2015 - 10:01

Nayla Menassa wrote:

Bonjour je ne comprend pas la partie glisser ect.. es ce que il faut travailler les mailles centrales seulement ou les 3 partie en même temps. Merci

10.03.2015 - 17:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Menassa, après avoir coupé le fil, on continue sur les 8-12 m centrales seulement (cf taille), on met en attente les 11-15 premières et les 11-15 dernières m du tour sur un fil ou un arrêt de mailles pour pouvoir tricoter les mailles centrales plus facilement. Quand le dessus du pied est fait, on reprend toutes les mailles (celles en attente), et on relève des mailles de chaque côté du dessus du pied pour continuer la "hauteur" du pied et la semelle. Bon tricot!

11.03.2015 - 08:42

country flag Marie-france Houle wrote:

Au lieu de marcher au cm,peut etre integrer le nombre de rang cela serait plus facile. Car un cm ca comprend tu la broche? 1cm et demi avant de faire les diminution ca fait pas haut pour un dessus de pied jai du en rajouter a moin que j ai eu du mal a comprendre.

07.02.2015 - 17:40

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Houle, les mesures sont faites dans la partie tricotée uniquement - ces chaussons se tricotent sur la base de 34 rangs point mousse = 10 cm, soit 1 cm = approx. 4 rangs. Bon tricot!

09.02.2015 - 16:34

country flag Nouram wrote:

Hello, vos modèles sont extraordinaire, un rajout de diagramme facilitant l'explication de l'ouvrage serait le bien venu. cordialement nouram

13.07.2014 - 02:32

country flag Brigitte wrote:

Hallo, die Schühchen sind fertig! Statt der Zunahme musste es tatsächlich die Abnahme sein... :-) Nix für ungut!

13.06.2014 - 09:56

country flag Brigitte wrote:

Hallo, beim Versuch, diese Schüchen zu stricken, ist meiner Mutter evtl. ein Fehler aufgefallen. Es betrifft die Zunahme - Zitat: Die Rückreihe li stricken und gleichzeitig für alle Größen gleichmäßig verteilt 14 M aufn. Das funktioniert nicht. Kann es sein, dass es statt der Zunahme eine Abnahme sein muss? Viele Grüße B. Warnecke

12.06.2014 - 12:13

DROPS Design answered:

Liebe Brigitte, danke für den Hinweis, Sie haben vollkommen Recht! Ich habe es gerade korrigiert.

13.06.2014 - 12:39