DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7920.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Playdate

Prjónaður galli fyrir börn með hettu, prjónaður í garðaprjóni og 2 þráðum DROPS Alpaca. Stærð 0-4 ára

DROPS Baby 25-17
DROPS Design: Mynstur nr z-095-by
Garnflokkur A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
150-200-200-200-200-250-250 gr litur nr 100, natur
250-250-300-300-350-400 gr litur nr 3112, dauf bleikur

DROPS HRINGPRJÓNN (60 CM) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 34 umf með garðaprjóni með 2 þráðum verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 CM) NR 4 – fyrir stroff
DROPS PERLUTALA MEÐ GATI, NR 521: 5-5-6-6 (6-7) stk

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7920.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

RENDUR:
* 4 cm í garðaprjóni með 2 þráðum í litnum natur, 4 cm í garðaprjóni með 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum dauf bleikur, 4 cm í garðaprjóni með 2 þráðum í litnum dauf bleikur *, endurtakið frá *-* til loka.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst eru skálmar prjónaðar hvor fyrir sig fram og til baka á hringprjóna, síðan eru skámarnar settar saman og gallinn prjónaður fram og til baka á hringprjóna.

SKÁLM:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið LAUST upp 38-42-46-50 (54-58) l (metalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4 með 2 þráðum í litnum dauf bleikur. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, haldið áfram með stroff 2 l sl, 2 l br með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 6-6-6-8 (8-8) l jafnt yfir = 32-36-40-42 (46-50) l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið síðan GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT eru prjónaðar RENDUR – sjá útskýringu að ofan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið, endurtakið útaukningu í 3.-5.-6.-6. (8.-9.) umf alls 7-7-7-9 (9-10) sinnum = 46-50-54-60 (64-70) l. Þegar stykkið mælist 15-18-21-24 (29-34) cm fellið af 3 l í byrjun á 2 næstu umf = 40-44-48-54 (58-64) l.
Geymið stykkið og prjónið hina skálmina á sama hátt. Passið uppá að skálmarnar hafi jafn margar rendur.

GALLI:
Setjið báðar skálmarnar á sama hringprjón nr 5 með affellinguna á móti hvorri annarri = 80-88-96-108 (116-128) l. Prjónið síðan fram og til baka frá miðju að framan (1. umf = rétta og rendur halda áfram þar sem þeim þeim lauk) þannig: Prjónið 6 umf garðaprjón fram og til baka. Í byrjun á 2 næstu umf eru felldar af 3 l = 74-82-90-102 (110-122) l eftir á prjóni. Setjið 1 prjónamerki 17-19-21-24 (26-29) l inn frá hvorri hlið (= 40-44-48-54 (58-64) l á milli prjónamerkja á bakstykki). Prjónið síðan GARÐAPRJÓN og RENDUR. Þegar stykkið mælist 35-42-50-57 (67-75) cm skiptist stykkið við 2 prjónamerkin og fram- og bakstykki eru prjónuð til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 40-44-48-54 (58-64) l. Haldið áfram í garðaprjóni og rendur – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar l í lok hverrar umf í hvorri hlið fyrir ermar: 3 l 2-1-2-3 (1-2) sinnum, 5 l 1-1-1-1 (2-2) sinnum, 7 l 0-1-1-1 (2-2) sinnum og síðan 6-7-7-8 (9-12) l 1 sinni = 74-88-98-112 (130-148) l á prjóni. Þegar stykkið mælist 44-52-61-69 (80-89) cm fellið af miðju 16-16-18-18 (20-20) l af fyrir hálsmáli og hvor öxl/ermi er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið 2 umf til viðbótar yfir 29-36-40-47 (55-64) l sem eftir eru í hvorri hlið – fellið LAUST af, stykkið mælist ca 45-53-62-70 (81-90) cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 17-19-21-24 (26-29) l. Haldið áfram í garðaprjón og rendur – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar l í lok umf frá hlið fyrir ermi eins og á bakstykki = 34-41-46-53 (62-71) l. Þegar stykkið mælist 41-49-58-65 (76-85) cm fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umf frá hálsmáli þannig: 2 l 2 sinnum í öllum stærðum og síðan 1 l alls 1-1-2-2 (3-3) sinnum = 29-36-40-47 (55-64) l eftir á prjóni fyrir öxl/ermi. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 45-53-62-70 (81-90) cm, fellið LAUST af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og vinstra framstykki, nema spegilmynd.

FRÁGANGUR:
Saumið yfirermasauma með lykkjuspori frá réttu.
Saumið saum undir ermum kant í kant yst í lykkjubogann. Saumið saman skálmar innan við 1 kantlykkju og saumið síðan frá opi við miðju fram að opi.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið upp, ca 46-90 l, frá réttu innan við 1 kantlykkju, meðfram vinstra framstykki á hringprjóna nr 4 með 2 þráðum í litnum dauf bleikur. Prjónið 1 umf br frá röngu JAFNFRAMT er aukið jafnt út til 64-72-88-96 (108-116) l. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá hálsmáli og niður) 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir og endið á 2 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3½-4 cm (stillið af eftir opi neðst niðri) og fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið eins og vinstri kantur, en eftir 1½ cm fellið af fyrir 5-5-6-6 (6-7) hnappagötum jafnt yfir. 1 hnappagat = prjónið 2 l slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn (fallegast er að prjóna 2 l br saman í einingu sem er brugðin). Efsta hnappagatið á að vera að hámarki 1 cm frá kanti í hálsmáli og neðsta ca 2-3 cm frá opi. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Saumið niður kant að framan með hægri yfir vinstri neðst niðri í opi.

HETTA:
Prjónið upp ca 50 til 60 l, í kringum hálsmál frá réttu, á hringprjóna nr 5 með 2 þráðum í litnum dauf bleikur (prjónið einnig upp yfir kant að framan). Prjónið síðan garðaprjón – JAFNFRAMT í 2. umf (= frá réttu) er aukið út jafnt yfir til 72-76-80-84 (88-92) l. (Ef þið viljið ekki hafa hettu þá er fellt af eftir 4 umf garðaprjón). Þegar hettan mælist 19-21-23-25 (27-28) cm fellið af. Leggið hettuna saman tvöfalda og saumið hana saman að ofan með lykkjuspori.

KANTUR Á ERMI:
Prjónið upp 32-32-36-36 (40-40) l, frá réttu á sokkaprjóna 4 með 2 þráðum í litnum dauf bleikur neðst niðri á annarri erminni. Prjónið = 2 l sl, 2 l br þar til stroffið mælist 4 cm, fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið á sama hátt niðri á hinni erminni.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Beatrice’s winter suit

Jessi, United States

Drops Playdate

Sunbluebird, Portugal

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 25-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (88)

country flag Jan-et wrote:

Wir kämpfen hier mit einem Widerspruch in Anleitung/Kommentaren, verstehen folgendes nicht richtig: 'am Anfang der 2 nächsten R je 3 M abk = 40-44-48-54 (58-64) M.' Heißt das, a. Hinreihe-3 abnehmen-Rückreihe-Hinreihe-3 abnehmen-Rückreihe b. Hinreihe-3 annehmen-Rückreihe-3 abnehmen c. noch anders ? In Ihrer Antwort (en, 16.02.2015 11:21) klingt es nach Variante b. Allerdings steht dem 'Beide Beine mit den Abnahmen gegeneinander' etwas entgegen.

26.03.2016 - 21:05

DROPS Design answered:

Liebe Jan-et, es ist Variante b. Und haben Sie gesehen, dass an zwei Stellen je 3 M abgekettet werden? Zunächst am Bein (dann die Beine mit den Abnahmen gegeneinander auf die Rundnadel nehmen) und nachher nochmals für den Blendenschlitz. Vielleicht ist das der Grund für die Verwirrung.

29.03.2016 - 09:20

country flag Carolina wrote:

Jag har kommit till där det i mönstret står "sätt 1 markör 17-19-21-24 (26-29) m in från varje sida (=40-44-48-54 (58-64) m mellan markörerna på bakst). Sticka sedan rätst och ränder. När Arn mäter 33-42-50-57 (67-75) Cm delas ARB vid de 2 markörerna och fram och bakst stickas färdiga var för sej" jag förstår inte varför jag ska sätta dit markörerna så tidigt om det inte hände något förrän vid 50cm i mitt fall. Eller vad är det jag inte förstår?

25.03.2016 - 09:57

DROPS Design answered:

Hej. Det är bara för att markera sidorna, tycker du att det är onödigt kan du självklart låta bli att sätta ut de så tidigt. Lycka till!

01.04.2016 - 10:14

Heather Nicholls wrote:

Want to make this pattern using alternative yarn and one strand only. Which Drops yarn could I substitute please to get the same result? Thanks. I love your designs! Heather

15.03.2016 - 20:39

DROPS Design answered:

Dear Mrs Nicholls, 2 strands group A (= Alpaca) = 1 strand group C - you will find here all informations to calculate amount of yarn. Happy knitting!

16.03.2016 - 08:43

country flag Nina Helland wrote:

Jeg er en ganske ny strikker og dette er første gang jeg skal strikke noe som dette. Jeg forstår ikke dette med ermene. Jeg har økt masker osv til ermene men jeg finner ikke noe på hvordan selve ermene skal strikkes? skal de strikkes løse for å settes inn i arbeidet? Hva er isåfall målene man skal ha på ermene? Sikkert bare jeg som ikke forstår oppskriften helt.

15.03.2016 - 14:00

DROPS Design answered:

Hej. De maskor du lägger upp är det som blir ärmarna när du fortsätter att sticka. När du är färdig syr du ihop under och över ärmarna (se under montering). Lycka till!

15.03.2016 - 14:18

country flag Nina Helland wrote:

Jeg er en ganske ny strikker og dette er første gang jeg skal strikke noe som dette. Jeg forstår ikke dette med ermene. Jeg har økt masker osv til ermene men jeg finner ikke noe på hvordan selve ermene skal strikkes? skal de strikkes løse for å settes inn i arbeidet? Hva er isåfall målene man skal ha på ermene? Sikkert bare jeg som ikke forstår oppskriften helt.

15.03.2016 - 13:10

DROPS Design answered:

Hej, Når du kommer til "BAKSTK" så vil du se at der står, "legg opp nye m på slutten av hver p i hver side til ermer:" og så hvor mange m du legger op. God fornøjelse!

15.03.2016 - 16:12

country flag Rehan wrote:

I don't understand how to assemble it. Please help me with this section. I have followed the steps correctly but I think something has went wrong. I don't get the armholes and sleeves as i am supposed to get... help please

20.02.2016 - 05:20

DROPS Design answered:

Dear Mrs Rehan, before assembly your work should look like the measurement chart: sew then tog shoulders on right and back piece, sew underarm seam and sew legs tog inside. For any further individual assistance you are welcome to contact your DROPS store even per mail or telephone. Happy knitting!

20.02.2016 - 12:37

Rehan wrote:

When piece measures 15-18-21-24 (29-34) cm, cast off 3 sts at the beg of the next 2 rows = 40-44-48-54 (58-64) sts. Does it mean we have to cast off on both sides of our work or on only one side. If it will be on both sides then it means we need to cast off 3 sts on each side and if we ahve to cast off on one side only then it means we need to cast off 6 sts on one side... please help

18.01.2016 - 07:53

DROPS Design answered:

Dear Mrs Rehan, at the beg of next row from RS, cast off 3 sts at the beg of this row, work row to the end, turn and cast off the first 3 sts from WS, work to the end of row and put aside - you have cast off 3 sts on each side of piece. Happy knitting!

18.01.2016 - 15:21

country flag Ceci wrote:

Ok, c'est donc comme le point mousse, sauf qu'on double les rangs?!

09.12.2015 - 13:15

DROPS Design answered:

Bonjour Ceci, on tricote au point mousse, mais on compte ici en "côtes mousse" pour plus de facilité à compter les rangs, donc 1 côte mousse = 2 rangs endroit, 2 côte mousse = 4 rangs endroit et ainsi de suite. Bon tricot!

10.12.2015 - 09:51

country flag Ceci wrote:

Bonjour, Encore moi!! Je bloque encore au niveau de la combinaison: que signifie "Tricoter 3 côtes mousse en allers et retours"? Merci d'avance pour votre aide

28.11.2015 - 12:02

DROPS Design answered:

Bonjour Ceci, pour 1 côte mousse en aller retour (= en "rangs"), on doit tricoter 2 rangs endroit, pour 3 côtes mousse en aller-retour, on tricote 6 rangs endroit. Bon tricot!

30.11.2015 - 10:31

country flag Lisi wrote:

Hallo, Ich stricke zum ersten Mal ein Kleidungsstück mit Ärmel. Ich finde die Anleitung super verständlich nur beim Rückenteil bin ich nicht sicher wie ich die Maschen für die Ärmel zunehmen soll...wie mache ich das genau, dass ich li und rechts gleichmäßig zunehme?Muss ich immer am Anfang und am Ende Maschen aufnehmen?Oder nur am Ende?Aber wie komme ich dann auf 88 Maschen?Ich sehe mich gerade nicht aus!Vielleicht lese ich die Anleitung falsch. Danke und Lg

27.11.2015 - 22:43

DROPS Design answered:

Da Sie ja an beiden Seiten für die Ärmel Maschen anschlagen müssen, machen Sie dies am Ende JEDER Reihe, d.h. an der einen Seite schlagen Sie immer am Ende der der Hin-R neue M an, an der anderen Seite immer am Ende der Rück-R. Hilfe dazu, wie Sie zu bereits vorhandenen M neue M anschlagen, finden Sie im Video "Seitlich neue M anschlagen" im Kopf unter Videos. Die genannte Anzahl gilt für jeweils eine Seite, d.h. für Ihre Größe schlagen Sie an beiden Seiten jeweils 1x 3 M an, dann jeweils 1x 5 M, dann jeweils 1x 7 M und dann nochmals jeweils 1x 7 M. Damit haben Sie insgesamt 44 M zugenommen und kommen auf 88 M insgesamt.

30.11.2015 - 13:35