Gabi Fohr wrote:
Hallo. Warum werden die beiden Vorderteil mit gleicher Maschen Anzahl gestrickt? Das eine geht doch über das andere und wird dann gebunden. So ist doch auch die Sitze. Ich hoffe eine Rückmeldung zu bekommen. Vielen Dank. Liebe Grüße Gabi
23.07.2022 - 15:36DROPS Design answered:
Liebe Gabi, die Vorderteile laufen beide spitz zu, so wie Sie es auf dem Foto erkennen. Dadurch überlappen sie sich und können gleichartig gestrickt werden. Die Überlappung ist auf der Innenseite genauso und es wird auch für innen ein Bindeband gehäkelt. Viel Spaß beim Stricken!
25.07.2022 - 19:12Gabi Fohr wrote:
Hallo. Warum werden die beiden Vorderteil mit gleicher Maschen Anzahl gestrickt? Das eine geht doch über das andere und wird dann gebunden. So ist doch auch die Sitze. Ich hoffe eine Rückmeldung zu bekommen. Vielen Dank. Liebe Grüße Gabi
23.07.2022 - 15:35DROPS Design answered:
Antwort siehe oben! :-)
25.07.2022 - 19:12Petra wrote:
Dobrý den, prosím o radu jak mám nahodit na konci řady průkrčníku 2 nová oka. Nahozením mezi jedním okem? Nebo rozpletením oka? Pochopila jsem, že je to k vůli tomu aby byl průkrčník trošku širší když bude navazovat na zadní díl. Moc děkuji, hezký den. PETRA
30.04.2022 - 07:16DROPS Design answered:
Milá Petro, oka na okraji dílu můžete rozplést - pak je ale třeba dávat pozor, aby byla dost volná! - nebo je můžete přidat = nahodit zcela nová. Praktický návod vám poskytne např. tato video-ukázka . Další užitečné ukázky najdete v seznamu videí pod návodem. Hodně zdaru! Hana
30.04.2022 - 20:00Béatrice Pittau wrote:
Bonjour est ce que l on peut tricoter ce modèle avec des aiguilles normales et non des circulaires . Merci
26.03.2022 - 21:25DROPS Design answered:
Bonjour Mme Pittau, tout à fait, ce modèle se tricote sur aiguille circulaire pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles; si vous utilisez des aiguilles droites, vos mailles seront juste plus serrées. Cette leçon pourra vous donner encore plus d'infos. Bon tricot!
28.03.2022 - 08:48Kerstin Knedlik wrote:
Sehr geehrte Damen und Herren, wie wird das Päckchen zum Schluss gebunden. Mfg Kerstin
24.03.2022 - 08:27DROPS Design answered:
Liebe Kerstin, die Schnur an der Spitze vom rechten Vorderteil wir zusammen mit der Schnur an der Innenseite der linken Seiten gebunden; und die Schnur an der Spitze vom linken Vorderteil wird zusammen mit der Schnur an der Außenseite von der rechten Seite gebunden. Viel Spaß beim stricken!
24.03.2022 - 09:45Camilla Malmström wrote:
Hej! Skulle vara tacksam om måttet för hur brett ett framstycke är kunde framgå på mönstret. Nu framgår det bara hur bred hela tröjan är.
04.02.2022 - 07:58DROPS Design answered:
Hej Camilla, du skal have 24 masker på 10 cm. Hvilken størrelse strikker du og hvor mange masker har du, så kan vi hjælpe dig med at regne det ud :)
04.02.2022 - 14:23Anna-Lotta Östvall-Åstrand wrote:
Vilka storlek på stickan ska jag byta till då jag behöver 24 maskor för att få 10cm? Tacksam för snabbt svar 😊
15.12.2021 - 13:25DROPS Design answered:
Hej Anna-Lotta. Testa först med storlek 3 och får du inte rätt antal då så provar du att gå upp eller ner en storlek beroende på hur många maskor du får. Mvh DROPS Design
03.01.2022 - 14:02Marjan De Reus wrote:
Beste, ik heb het vestje bijna af en ben toe aan de tweede rand haken, In het patroon staat dat de tweede haakronde ook verder gaat aan de onderkant van het strikkoord, maar dat zie ik niet zo op de foto van het patroon. klopt dat wel dan dat je die tweede haakrand ook op de strikken zet? vrg Marjan
08.12.2021 - 00:43Jane Bel wrote:
Je viens de terminer ce modèle pour un bébé de 12 mois. J'ai choisi une laine gris clair, la bordure est couleur turquoise. Merci pour ce joli modèle très facile.
01.12.2021 - 22:11
Bedtime Stories |
|
|
|
Prjónuð vafningspeysa fyrir börn í garðaprjóni og með hekluðum kanti úr DROPS BabyMerino. Stærð fyrirburar - 4 ára
DROPS Baby 25-11 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: Prjónið 2 l slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjað er á öðru framstykkinu, lykkjur eru fitjaðar upp fyrir ermi og prjónað er upp að öxl. Seinna framstykkið er prjónað og síðan eru framstykkin tvö sett saman og prjónað er niður yfir bakstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið LAUST upp (34) 37-44-48-52 (55-62) l á hringprjóna nr 3 með litnum natur og prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (1. umf = rétta). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Þegar stykkið mælist (9) 12-16-16-17 (20-23) cm – passið að næsta umf sé prjónuð frá réttu, fækkið um 1 l fyrir hálsmáli innan við 1 kantlykkju frá byrjun umf – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), (17) 17-21-23-25 (27-31) sinnum til viðbótar (= alls (18) 18-22-24-26 (28-32) úrtökur, fækkið síðan lykkjum í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 2 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist (12) 15-19-20-21 (24-27) cm eru fitjaðar upp nýjar l í lok umf frá hlið fyrir ermi þannig: (3) 4-6-6-6 (6-6) l alls (4) 4-4-5-6 (7-8) sinnum og síðan (16) 19-19-18-19 (23-26) l 1 sinni. Eftir alla útaukningu og úrtöku eru (42) 52-63-70-79 (90-102) l á prjóni fyrir öxl/ermi. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist (20) 24-28-30-32 (36-40) cm. Setjið 1 prjónamerki fyrir miðju á prjóni = mitt ofan á öxl. Héðan er nú mælt – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 2 nýjar l í lok umf við hálsmál, endurtakið útaukningu í næstu umf við hálsmál = (46) 56-67-74-83 (94-106) l (síðasta umf = ranga). Setjið allar lykkjur á þráð. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og hægra framstykki, nema spegilmynd (þ.e.a.s. að lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli innan við 1 kantlykkju í lok umf frá réttu (í stað byrjun umf frá réttu). Að auki er prjónuð 1 umf slétt frá röngu í lokin á framstykki eftir að fitjaðar hafa verið upp l við hálsmál þannig að síðasta umf bæði á hægra og vinstra framstykki eru prjónaðar frá röngu. BAKSTYKKI: Prjónið inn vinstra framstykki á hringprjóna (= sl frá réttu), fitjið upp (8) 8-10-10-12 (14-16) nýjar l (= aftan við hnakka) og prjónið inn hægra framstykki á hringprjóna (= sl frá réttu) = (100) 120-144-158-178 (202-228) l. MÆLIÐ NÚ STYKKI FRÁ PRJÓNAMERKI Á ÖXLUM. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka. Þegar stykkið mælist (6) 7-7-7½-8 (9-9) cm fellið af ermalykkjur þannig: Fellið af í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: (16) 19-19-18-19 (23-26) l 1 sinni og (3) 4-6-6-6 (6-6) l alls (4) 4-4-5-6 (7-8) sinnum = (44) 50-58-62-68 (72-80) l á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca (20) 24-28-30-32 (36-40) cm – brjótið stykkið saman tvöfalt við prjónamerki á öxlum og passið uppá að framstykkin og bakstykkið séu jafn löng – fellið síðan laust af. FRÁGANGUR: Saumið hliðar- og ermasauma kant í kant yst í lykkjubogann. HEKLAÐUR KANTUR. Heklið með heklunál nr 2,5 með litnum ljós beige í kringum allt opið á peysunni þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í fyrstu l, * 1 ll, hoppið yfir ca 2 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* en þegar komið er að horni þar sem úrtaka byrjar fyrir hálsmáli er hekluð snúa / band þannig: Heklið 1 fl í oddinn, heklið síðan ll í ca 20-25 cm, snúið við og heklið 1 kl í hverja ll til baka, heklið síðan 1 fl í oddinn aftur á framstykki, haldið áfram að hekla kantinn í kringum peysuna fram að oddi á hinu framstykki, heklið snúru / band eins og á fyrra framstykki, heklið síðan í kringum afganginn af peysunni og endið á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf. UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í fyrstu ll, * 4 ll, 1 st í 4. ll frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fl + 1 ll + 1 fl, heklið 1 fl í næstu ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn (passið að heklað sé yfir snúruna / bandið þannig að snúran / bandið liggi neðst), endið á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf. Heklið umferð 1. og umferð 2. alveg eins neðst niðri í kringum báðar ermar. Heklið síðan 1 snúru / band alveg eins í hvert horn að innan verðu við sauminn í hægri hlið og að utanverðu við sauminn í vinstri hlið – passið uppá að snúrurnar/ böndin verði í sömu hæð og hornin á framstykki. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Susan Mcallister wrote:
Looking forward to knitting this for my first grand child
01.05.2022 - 10:59