DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 25-7
DROPS Design: Mynstur nr bm-046-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: (fyrirburar) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm : (40/44) 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
(100) 100-100-150-150 (150-150) gr litur nr 02, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 eða 60 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 48 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 2,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR:
Í hvert skipti þegar snúið er við mitt í stykkinu er hert vel á þræði áður en prjónað er áfram svo gatið sjáist minna.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna/hringprjóna):
* 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING:
Aukið út í 1. umferð með brugðnum lykkjum og aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn þannig: 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum í 1 umferð með slétt: Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna, slétt þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring frá mitti og niður.

BUXUR:
Fitjið upp (84) 112-136-140-152 (156-164) l á hringprjóna nr 2,5 með Baby Merino – byrjun umf = miðja að aftan.
Prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist (2) 2-3-3-3 (3-4) cm prjónið upphækkun í stroffi aftan á buxunum þannig: Byrjið við miðju að aftan og prjónið (4) 6-8-8-8 (8-8) l, snúið við – LESIÐ LEIÐBEININGAR. Prjónið (8) 12-16-16-16 (16-16) l og snúið við. Prjónið (12) 18-24-24-24 (24-24) l og snúið við. Prjónið (16) 24-32-32-32 (32-32) l og snúið við. Haldið svona áfram með stroffið með því að prjóna (4) 6-8-8-8 (8-8) l fleiri fyrir hvert skipti sem snúið er við, 10 sinnum til viðbótar (= 14 stuttar umf). Haldið síðan áfram með stroff í aftur hringinn yfir allar l.
Þegar stroffið mælist (6) 7-8-8-8 (8-9) cm (mælt frá miðju að framan), skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um (12) 16-20-20-22 (22-24) l jafnt yfir = (72) 96-116-120-130 (134-140) l. Prjónið síðan GARÐAPRJÓN í hring á hringprjóna – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist (12) 14-14-17-18 (19-20) cm frá uppfitjunarkanti (mælt frá miðju að framan) er sett 1 prjónamerki í byrjun á umf og 1 prjónamerki á eftir (36) 48-58-60-65 (67-70) l (merkir miðju að framan og miðju að aftan á buxunum). Aukið síðan út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu í 4. hverri umf, (3) 3-4-4-4 (4-4) sinnum til viðbótar (= alls (4) 4-5-5-5 (5-5) útaukningar) = (88) 112-136-140-150 (154-160) l.
Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca (15) 17-18-21-22 (23-24) cm frá uppfitjunarkanti (mælt við miðju að framan).

SKÁLM:
Byrjið við miðju að aftan, prjónið (44) 56-68-70-75 (77-80) l og setjið þær l sem eftir eru á þráð. Prjónið GARÐAPRJÓN í hring – setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= innanverðu á skálm).
Þegar skálmin hefur verið prjónuð í (1) 1-1-1-1 (2-2) cm – stillið af að næsta umf er slétt umf, fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA.
Endurtakið úrtöku (4) 8-11-10-10 (9-8) sinnum til viðbótar (= alls (5) 9-12-11-11 (10-9) úrtökur) þannig:
STÆRÐ FYRIRBURAR: Í 8. hverri umferð.
STÆRÐ 0/1 + 1/3 MÁN: Í 4. hverri umferð.
STÆRÐ 6/9 MÁN: Í 4. hverri umferð.
STÆRÐ 12/18 MÁN: Í 8. hverri umferð.
STÆRÐ 2 ÁRA: Í 10. hverri umferð.
STÆRÐ 3/4 ÁRA: Í 14. hverri umferð.

Eftir úrtöku eru (34) 38-44-48-53 (57-62) l á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist (24) 27-30-36-40 (46-52) cm frá uppfitjunarkanti og niður (mælt við miðju að framan). Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2,5 og prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um (10) 10-8-8-11 (11-10) l jafnt yfir = (44) 48-52-56-64 (68-72) l. Prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br) þar til buxurnar mælast (28) 32-36-42-46 (52-59) cm frá mitti (stroffið mælist ca (4) 5-6-6-6 (6-7) cm). Fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br.
Prjónið hina skálmina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 23.03.2021
ÚTAUKNING og ÚRTAKA hefur verið leiðrétt.
Yfirfarið á vefsvæði: 07.03.2022
ÚTAUKNING: Aukið út í 1. umferð með brugðið og aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn þannig: 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, brugðið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, brugðið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið...

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 25-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (62)

country flag Olivia wrote:

I am considering this pattern for a nappy cover/soaker. Is drops merino suitable for this? Will it take lanolising well? If not, which drops yarns would you suggest (any yarn group)?

25.05.2023 - 19:09

DROPS Design answered:

Dear Olivia, we have no experience with such process so that we can unfortunately not answer, you might have to try. Happy knitting!

26.05.2023 - 10:36

country flag Gunilla Holmgren Schmieg wrote:

Jag stickar storlek 0/1 och efter att ha stickat 14 cm har kommit till att jag ska öka 4 maskor på varvet. Jag förstår inte hur ökningarna ska göras. Det står i ökningstips att jag ska öka 4 maskor vid varje markör. Det kan väl inte vara rätt? jag har ju 2 markörer och då blir det ju 8 maskor ökade. Förklara för mig, tack.

19.04.2023 - 18:05

DROPS Design answered:

Hei Gunilla. Nei, det står det ikke. Du skal øke 2 masker ved hvert merke. På begynnelsen av omgangen øker du med 1 kast, så strikker du til neste merke og her øker du med 2 masker (foran og etter merket), og til slutt øker du med 1 maske på slutten av omgangen = 4 økte masker. mvh DROPS Design

24.04.2023 - 11:29

country flag Petra Tinti wrote:

Muss ich bei der Erhöhung und der verkürzten Reihe im Rippenmuster arbeiten? Die Tutorials sind immer nur für das glatt rechts stricken eingestellt. Und vor allem wie geht das bei der verkürzten Reihe mit Umschlägen. I LG Petra

09.01.2023 - 18:12

DROPS Design answered:

Liebe Frau Tinti, bei der Erhöhung stricken Sie die verkürzten Reihen im Rippenmuster (2 re/2 li). Wenn Sie die Technik mit den Umschläge die verkürzten Reihen stricken, dann finden Sie hier Videos für die Hinreihen/Maschen die rechts gestrickt werden< /a> und für die Rückreihen/Maschen die links gestrickt werden. Viel Spaß beim stricken!

10.01.2023 - 09:37

country flag Alena wrote:

Hello the clothes you have very nice inly I xan't to knitt according it because I can't understand it.How for example to knitt only 8 stiches and turn the row?

08.01.2023 - 09:57

DROPS Design answered:

Dear Alena, yes correct, at the beginning of the pants you will work some short rows to make the back piece higher than the front piece, just work the short rows as explained for your size then continue in the round again. Happy knitting!

09.01.2023 - 09:48

country flag Jacqueline wrote:

Beim Hosenteil steht bzgl. Der Zunahme: "Diese Zunahmen noch (3) 3-4-4-4 (4-4) x in jeder 4.Rd wdh" Da ich aber immer in einer Linksreihe zunehmen muss, sollte ich doch in jeder 3. Oder 5. Rd zunehmen. Die 4. Rd ist eine Rechtsreihe. Danke

21.12.2022 - 18:03

DROPS Design answered:

Liebe Jacqueline, die Zunahmen werden in jede 4. Runde gestrickt, wenn Sie in einer Runde mit linken Masche zunehmen, dann stricken Sie noch 3 Runden (1 mit rechten Maschen, 1 mit linken Maschen, 1 mit rechten Maschen) und die nächste Zunahmen stricken Sie in der nächsten Runde = eine Runde mit linken Maschen. Viel Spaß beim stricken!

22.12.2022 - 08:47

country flag Buggy wrote:

Randmaschen markieren: von Hüfte zu Hüfte oder von Bauch zu Po? Danke

23.11.2022 - 11:20

Buggy answered:

Wer lesen kann ist klar im Vorteil! Vielen Dank

23.11.2022 - 11:25

country flag Gerd Lillegaard wrote:

Takk for fin oppskrift, men skulle ønske rettelsene også var utført i hjelpe videoen. Tror mange med meg blir litt forvirret og har vanskeligheter med å forstå oppskriften!

01.10.2022 - 13:28

country flag Julia wrote:

Hej! Jag stickar just nu förhöjningen på resåren i början på arbetet. Jag följde videon som det hänvisas till där man ser att varannat varv görs med räta/aviga maskor. Instruktionen säger ju inte vilken sorts maskor, så då utgick jag från att det ska göras enligt videon. Men efter förhöjningen ska man ju fortsätta resårstickning runt hela arbetet. Jag tycker att det känns konstigt att ha en slät förhöjning omringad av resår. Ska det vara så? Tacksam för snabb hjälp!

30.01.2022 - 12:28

DROPS Design answered:

Hej Julia. Förhöjningen stickas i resår i detta mönster ("...stickas det förhöjning i resåren..."). Mvh DROPS Design

01.02.2022 - 09:26

country flag Mimi wrote:

Guten Tag, werden die Beine auf dem Nadelspiel gestrickt? Die Rundnadel mit 60cm wird wohl zu groß sein für die kleinen Beinchen, oder? Liebe Grüße

15.11.2021 - 17:37

DROPS Design answered:

Liebe Mimi, ja stimmt, die Beine werden auf Nadelspiel Nr 3 - gerne können Sie auch mit Magic Loop stricken. Viel Spaß beim stricken!

16.11.2021 - 08:27

country flag Susanne Pawelzik wrote:

Meine 14. Reihe im rippenmuster ist eine Rückreihe. Muss ich wenden, damit ich wieder bei der Virderseite weiterstricken kann

27.08.2021 - 19:15

DROPS Design answered:

Liebe Frau Pawelzik, wenden Sie noch einmal und bis hintere Mitte stricken (= Begin der Runden) und dann in Runden von der Vorderseite weiterstricken. Viel Spaß beim stricken!

30.08.2021 - 07:11