DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Dancing Wind

Prjónað sjal með dominoferningum og stuttum umferðum úr DROPS Delight og DROPS BabyAlpaca Silk .

DROPS 155-5
DROPS Design: Mynstur nr de-114
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Mál:
Stórt sjal (sjal á mynd):
Breidd efst: ca 164 cm.
Lengd við miðju: ca 73 cm
Lítið sjal:
Breidd efst: Ca 142 cm.
Lengd við miðju: 68 cm.

Efni:
DROPS Delight frá Garnstudio
200-250 gr litur nr 06, bleikur/fjólublár
og einnig:
DROPS BabyAlpaca Silk frá Garnstudio
250-300 gr litur nr 1760, ljós gráfjólublár

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 40 umf garðaprjón verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

DOMINOFERNINGUR:
Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á undan l með prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið síðan óprjónuðu l yfir, prjónið sl út umf.
Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. að fækkað er um 2 l við miðju á ferningi í annarri hverri umf þar til 1 l er eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum lykkjuna.

STUTTAR UMFERÐIR:
Yfir síðustu 84-108 l (séð frá röngu) á að prjóna stuttar umferðir þannig:
UMFERÐ 1 = frá röngu: Prjónið 6-4 l sl, snúið við.
UMFERÐ 2 = frá réttu: Prjónið sl til baka.
UMFERÐ 3 = frá röngu: Prjónið 12 l sl, snúið við.
UMFERÐ 4 = frá réttu: Prjónið sl til baka.
Haldið áfram alveg eins með því að auka stuttar umf með 6-8 l fyrir hvert skipti sem prjónað er frá röngu. Í 27. umf er prjónað yfir allar l á prjóni og síðan er fækkað um 6-8 l í hvert skipti sem prjónað er þannig:
UMFERÐ 27 = frá röngu: Prjónið sl yfir allar þær 84-108 l, snúið við.
UMFERÐ 28 = frá réttu: Prjónið sl til baka.
UMFERÐ 29 = frá röngu: Prjónið sl þar til 6-8 l eru eftir, snúið við.
UMFERÐ 30 = frá réttu: Prjónið sl til baka.
UMFERÐ 31 = frá röngu: Prjónið sl þar til 12-16 l eru eftir, snúið við.
UMFERÐ 32 = frá réttu: Prjónið sl til baka.
Haldið áfram alveg eins með því að fækka í stuttum umf með 6-8 l í hvert skipti sem prjónað er frá röngu. Þar til 4 l eru eftir og dominoferningurinn hefur verið prjónaður.

LEIÐBEININGAR:
Í hverjum dominoferningi er fyrsta og síðasta umf prjónuð í garðaprjóni (þ.e.a.s. í þeirri umferð sem prjónaðar eru upp 55 l og fitjaðar eru upp 54 nýjar lykkjur) með BabyAlpaca Silk, þannig að það verður mynstur í stuttu umferðunum í BabyAlpaca Silk.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjur. Prjónið 2 umf garðaprjón með Delight og 2 umf garðaprjón með BabyAlpaca Silk – LESIÐ LEIÐBEININGAR!

SJAL:
Fitjið LAUST UPP 193-217 l á hringprjóna nr 4 með BabyAlpaca Silk. Allar l eru prjónaðar með GARÐAPRJÓN – sjá skýringu að ofan. Prjónið 1 umf sl frá réttu yfir allar l. * Síðan er prjónað með Delight þannig (1. umf = ranga): Prjónið DOMINOFERNINGUR – lesið útskýringu að ofan – yfir fyrstu 109-109 l, JAFNFRAMT eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR – lesið útskýringu að ofan – yfir næstu 84-108 l. Haldið svona áfram með 2 umf garðaprjón úr Delight og 2 umf garðaprjón úr BabyAlpaca Silk þar til dominoferningurinn hefur verið prjónaður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar dominoferningurinn hefur verið prjónaður er prjónuð 1 umf slétt með BabyAlpaca Silk frá röngu yfir allar l.
Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig (ATH! Munið eftir LEIÐBEININGAR): Prjónið sl yfir fyrstu 84-108 l, prjónið upp 55 l meðfram hlið á dominoferningi. Þegar síðasti dominoferningurinn hefur verið prjónaður, prjónið upp ca 280-330 l (meðtaldar l á prjóni) með Delight yfir kant efst á sjali (þ.e.a.s. meðfram hlið á síðasta dominoferningi sem prjónaður og upp yfir uppfitjunarkantinn á fyrsta dominoferningnum). Prjónið garðaprjón með 2 umf garðaprjón úr Delight og 2 umf garðaprjón úr BabyAlpaca Silk fram og til baka þar til kanturinn mælist ca 2 cm. Felli laust af.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 18.08.2015
Sjalið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar l. Prjónið 2 umf garðaprjón með Delight og 2 umf garðaprjón með BabyAlpaca Silk – LESIÐ LEIÐBEININGAR!
Fitjið LAUST UPP 193-217 l á hringprjóna nr 4 með BabyAlpaca Silk. Allar l eru prjónaðar með GARÐAPRJÓN – sjá skýringu að ofan. Prjónið 1 umf sl frá réttu yfir allar l. * Síðan er prjónað með Delight þannig (1. umf = ranga):..
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 155-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (50)

country flag Julia wrote:

Sorry, ich bin am verzweifel mit den verkürzten R. Ich versuch mich klarer auszudrücken, denn ich bin noch garnicht an der stelle wo man M anschlägt und auffasst. ich habe jetzt 54R gestrickt.( Auf der nadel sind die verkürzten R. Mit Baby Alpaka Silk ) ich weiß dass nun wieder mit R1 weitergestrickt werden soll. Ich weiß aber nicht ob ich erst über alle M stricken soll damit in den verkürzten R keine Löcher enstehen. Wenn ja, mit Delight oder mit Baby Alpaka Silk?

29.12.2015 - 19:19

DROPS Design answered:

Liebe Julia, Sie stricken über alle Maschen bevor das nächste Dominodreick gestrickt wird: "Nachdem das Dominoeck fertig ist, eine Rück-R re mit BabyAlpaca Silk über alle M str."

08.03.2016 - 14:09

country flag Julia Fladischer wrote:

Hallo, ich habe den Rapport nun ein mal gestrickt, 4 M in Delight von den verkürzten R sind auf der Nadel. Meine Frage, wie beginne ich den 2. Rapport? Wenn ich jetzt verkürzte R str dann enstehen mir Löcher da ich ja noch nicht einmal über alle M gestrickt habe um die verkürzten R des 1. Rapports zu schließen. Stricke ich jetzt mit Delight über die ersten 12M (4+8M) und dann weiter ? Ich verstes nicht. BITTE HILFE Was genau muss ich tun? Und mit welcher wolle?

25.12.2015 - 09:33

DROPS Design answered:

DAs Dominorechteck und der Verkürzte-Reihen-Rapport sind gleichzeitig fertig, dann stricken Sie 1 Rück-R über alle M, bevor Sie mit einem neuen Rapport beginnen (bei dem Sie zunächste M auffassen und neue M anschlagen).

29.12.2015 - 18:06

Maria wrote:

This is solution to my question: to obtain the same numbers of rows in each section (which is finishing domino squer and short rows at the same time) you have to make one row back and forth through all the stitches in between each short rows. This is not indicated in the pattern. This means you have 108 rows (54 ridges) for the domino and 54 short rows and 54 rows on all the stitches.

20.09.2015 - 16:52

Maria wrote:

I have problem with finshing domino part and the short rows part at the same time. I have done all of the short rows and still have many stithes on needle from the domino part. What do I do wrong?

17.09.2015 - 23:10

DROPS Design answered:

Jest dokładnie tak jak pisze Pani w ostatnim poście. Przyjrzymy się wzorowi jeszcze raz i jeśli zajdzie potrzeba wprowadzona zostanie korekta. POWODZENIA!

20.09.2015 - 18:53

country flag DROPS Design wrote:

Kaere alle. Der er lavet en lille rettelse til dette sjal, man skal begynde med at strikke vendingerne med Delight og ikke BabyAlpaca Silk. Se ogsaa under RETTELSER.

18.08.2015 - 12:08

country flag Chatarina wrote:

Hej! Är verkligen detta mönstret rätt? Jag får iallafall inte det till att stämma. Snälla, ni kan väl göra rättelser om det är något fel. Tack på förhand.

21.06.2015 - 15:22

country flag Anne-Marie Brosbøl wrote:

Kan det passe at man skal skifte garntype i de forkortede pinde, jeg kan ikke få det til at passe! Og hvis jeg skifter garn i domino-starten, bliver ret til vrang??? Venlig hilsen Anne-Marie

09.05.2015 - 11:13

DROPS Design answered:

Hej Anne-Marie, du kan godt skifte garn i de forkortede pinde, dog ikke i den side hvor du vender midt i arbejdet. God fornøjelse!

22.05.2015 - 15:31

country flag Ingrid wrote:

Het lijkt mij heerlijk zo'n lange kerstvakantie te hebben. Natuurlijk ben ik met mijn vragen naar de verkoopster gegaan, maar wist de antwoorden niet en verwees mij naar U. Vaak opnieuw begonnen en niet helemaal gelukt,maar het werkstuk is inmiddels gereed. Blijft voor mij overeind dat er een fout in het patroon zit en ik geen antwoord op mijn vragen kreeg. Met vriendelijke groet, Ingrid.

04.02.2015 - 16:46

DROPS Design answered:

Hoi Ingrid. De vraag over het probleem in dit patroon ligt nog bij onze Designafdeling, omdat zij de laatste tijd heel druk zijn geweest met het afmaken van de nieuwe zomercollectie. Ik hoop natuurlijk dat er binnenkort een reactie zal komen! En een persoonlijke noot: ik begrijp uw frustratie, maar aan de andere kant van het internet zitten ook hardwerkende mensen die hun best doen om u en andere gratis ondersteuning te bieden op onze gratis patronen. Fijne dag verder! Mvg. Tine

05.02.2015 - 11:35

country flag Linda Rasmussen wrote:

Nu har jeg strikket de forkortede pinde første gang således, at der er 4 masker tilbage + maskerne fra dominoruden. Skal der strikkes 1 pind ret over alle masker, inden man strikker de forkortede pinde 2. gang? Eller skal jeg starte med at strikke 12 (4+8) masker på første pind. Jeg synes ligesom Diana og Maja, at det ikke kommer til at passe, så jeg kan få den lyse kant i nakken. I har tidligere lovet en rettelse til opskriften, men den er ikke kommet endnu.

01.02.2015 - 17:16

DROPS Design answered:

Hej Linda, Ja så strikker du en pind over alle m inden du starter forfra. God fornøjelse!

27.05.2015 - 15:17

country flag Linda Rasmussen wrote:

Vedr. Model nr. de-114 - Dancing Wind (sjal) På billedet af sjalet er der et meget flot mønster, men den mønstereffekt får jeg slet ikke. Jeg kan ikke helt forstå, hvordan det skal fremkomme, når man skal strikke skiftevis 2 p i hver garntype, det giver hos mig kun et stribet mønster.

27.01.2015 - 12:11

DROPS Design answered:

Hej Linda. Du skal ogsaa strikke de forkortede pinde og dominoruder som staar beskrevet i mönstret

27.01.2015 - 15:55