DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2068.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 155-25
DROPS Design: Mynstur nr ab-047
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA BOUCLÉ frá Garnstudio
100-100-150-150-150-150 gr litur nr 0100, natur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 12 l og 17 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2068.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l á eftir 3 l garðaprjón þannig: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið um 1 l á undan 3 l garðaprjón þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 108-116-124-136-152-168 l á hringprjóna nr 8 með Alpaca Bouclé. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm setjið prjónamerki í stykkið JAFNFRAMT er prjónað þannig: Prjónið 1 l sléttprjón, A.1a (= 8 l), 36-40-44-50-58-66 l sléttprjón, A.2a (= 8 l), 1 l sléttprjón (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki, 1 l sléttprjón, A.1a (= 8 l), 36-40-44-50-58-66 l sléttprjón, A.2a (= 8 l), 1 l sléttprjón (= framstykki). ATH: Mynstur A.1a/A.2a færist til um 1 l við miðju að framan og við miðju að aftan í annarri hverri umf. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1a og A.2a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.1b prjónað í stað A.1a og A.2b í stað A.2a. Mynstur A.1b og A.2b endurtekur sig til loka, JAFNFRAMT er haldið áfram með gataumferðir sem þegar er byrjað á. Þegar stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm er hvor hluti prjónaður til loka fyrir sig. Nú skiptist stykkið upp við hvort prjónamerki.

BAKSTYKKI:
= 54-58-62-68-76-84 l. Prjónið A.1/A.2 og sléttprjón eins og áður JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 3 l í hvorri hlið á stykki í lok 2 næstu umf = 60-64-68-74-82-90 l á prjóni. Þær 3 nýju l í hvorri hlið á stykki eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, til loka. Þegar stykkið mælist 27-29-30-32-33-35 cm (stillið af að næsta umf sé frá réttu) prjónið 6 umf garðaprjón yfir miðju 24-24-24-26-26-26 l (= 18-20-22-24-28-32 l í hvorri hlið, sléttprjón og A.1/A.2 eins og áður). Í næstu umf frá réttu eru felldar af miðju 18-18-18-20-20-20 l fyrir hálsmáli (= 21-23-25-27-31-35 l eftir á hvorri öxl). Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram í garðaprjóni yfir 3 l við háls, sléttprjón og A.1/A.2 eins og áður JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l á eftir/undan 3 l garðaprjón við hálsmál – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku 1 sinni til viðbótar (= alls 2 sinnum) = 19-21-23-25-29-33 l eftir á prjóni. Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm. Fellið af.

FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 23-25-26-28-29-31 cm (stillið af að næsta umf sé frá réttu). Prjónið 6 umf garðaprjón yfir miðju 18 l (= 21-23-25-28-32-36 l í hvorri hlið), sléttprjón og A.1/A.2 eins og áður. Í næstu umf frá réttu eru felldar af l fyrir hálsmáli þannig: Fellið af miðju 12 l( = 24-26-28-31-35-39 l á hvorri öxl). Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram í garðaprjóni yfir 3 l við hálsmáli, sléttprjón og A.1/A.2 eins og áður JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l á eftir 3 l garðaprjón – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu 4-4-4-5-5-5 sinnum til viðbótar = 19-21-23-25-29-33 l eftir á prjóni. Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið sauma undir ermum.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = sláið 2 uppá prjóninn á milli 2 l, í næstu umf er fyrri uppslátturinn prjónaður br, sá seinni er látin falla niður
symbols = takið 1 l óprjónaða,1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 155-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (31)

country flag A Nijhof wrote:

Kun je dit patroon ook met 2 naalden breien ipv een rondbreinaald?

29.04.2022 - 12:11

country flag Lorraine Harbin wrote:

For pattern 155-25 In the chart pattern, 12th row up in the A1a stitch pattern there is a jog. I’m not sure how to handle it. Do I knit three stitches then YOslip1K1pssoK2 YOslip1? This pushes my pattern into my 44stocking stitch section. Is this correct? Thanks

07.02.2022 - 02:01

DROPS Design answered:

Dear Mrs Harbin, on this row, start with another stitch in stocking stitch (2 sts then) and start diagram, so that you will now continue the lace pattern diagonally. On next row from RS you will star a new repeat/diagonal inside the 1 st in stocking stitch. Happy knitting!

07.02.2022 - 10:45

country flag Nancy wrote:

I have question on lace pattern. After 1st row with 2 YO is said on next row P 1st YO drop 2nd YO. This is knitted in the round so there is no wrong side until you separate. I would like to know if every even row if you K the 1st YO & drop 2nd YO. Thank you.

07.10.2021 - 01:09

DROPS Design answered:

Dear Nancy, knitting one yo and droppong the other makes the hole left after the yo bigger. In this case it does not really matter if you knit the first and drop the 2nd one or vica versa, however it will be easier to knit if you knit the first and drop the second. Happy Stitching!

07.10.2021 - 03:11

country flag Dorthe wrote:

Hej Jeg er nu kommet dertil hvor jeg har lukket masker af til hals på ryggen og skal nu strikke tre retmasker ind mod halsen på hver pind + tage masker ind gange to. Min udfordring er at når jeg har gjort dette kommer det til at påvirke diagrammet som for hver ret pind skråner ind mod halsen. Håber dette giver mening og at i kan hjælpe mig. På forhånd tak. Med venlig hilsen Dorthe

12.07.2021 - 22:54

DROPS Design answered:

Hej Dorthe, når du tager ind i diagrammet, strikkes de masker som ikke går op i glatstrik :)

14.07.2021 - 09:39

country flag Inger Holzmann wrote:

Mht det ene omslag, der skal strikkes vrang. Når man deler til for- og bagstykke og altså strikker frem og tilbage, skal omslaget så stadig strikkes vrang? Eller skal man nu strikke det ret?

10.02.2021 - 07:23

DROPS Design answered:

Hej Inger, det skal strikkes ret fra retsiden :)

16.02.2021 - 13:56

country flag Anne Taschereau wrote:

How many balls of yarn are needed for the different sizes?

10.02.2021 - 03:28

DROPS Design answered:

Dear Mrs Taschereau, the amount of yarn is given under the header in grams, so that in S for example you need 100 g DROPS Alpaca Bouclé/50 g a ball = 2 balls. Happy knitting!

10.02.2021 - 07:20

country flag Kathy wrote:

Bonjour, Facile et rapide à faire ce joli petit top. J'ai acheté une pelote en plus car je le voulais plus long (51 cm pour la taille M) et moins décolleté dans le dos. Je l'ai tricoté  avec des aiguilles n° 7. Merci pour ce beau modèle :-)

21.03.2018 - 10:46

country flag Anne Maach Schrøder wrote:

Ved normal strikkefasthed bliver denne model for stor med p8. Brug istedet p7 og lav den 10 cm længere før udtag til ærmer. Så svarer den til foto. Mvh FruStrik

07.05.2017 - 14:31

country flag Marja De Leeuw wrote:

Ik ben geen ervaren breister... Maar in het patroon wordt gesproken over "lijf" en voor- en achterpand. Moet ik hieruit opmaken dat ik het patroon hetzij op een rondbreinaald brei (lijf), hetzij op gewone naalden (voorpand/achterpand)? En ribbelsteek wordt eenmaal omschreven als recht heen, averecht terug (op de rondbreinaald) en daarna als recht heen recht terug.... Ik nie begrijp nie...

30.03.2015 - 16:21

DROPS Design answered:

Beste Marja, je begint met het lijf, in de rondte zoals in het patroon staat. Dan staat er op een gegeven moment: "Splits het werk bij een hoogte van 21-22-23-24-25-26 cm en brei elk deel apart verder – verdeel het werk tussen elke markeerder." Je hebt nu twee delen, een voorpand en een achterpand die je beiden apart verder breit, zodat je armsgaten krijgt - je breit nu heen en weer. Succes!

30.03.2015 - 17:03

country flag Joyce wrote:

What is the difficulty of this pattern? The pattern seems rather confusing to read. I'd say my level is e.intermediat.

27.06.2014 - 21:19

DROPS Design answered:

Dear Joyce, you will find under the "video" tab some videos related to this pattern. For any personnal assistance, do not hesitate to contact the store where you bought your yarn or any knitting forum/group (see Ravelry). Happy knitting!

30.06.2014 - 08:44