DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 154-37
DROPS Design: Mynstur nr r-650
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
400-450-450-500-550-600 gr litur nr 79, vín

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 15 umf í mynstri A.1 verði 10 x 10 cm. 1 mynstureining af A.2 verði ca 10 cm á hæðina.
DROPS PERLUTALA NR 521: 5 stk. í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta fl í hverri umf með fl er skipt út fyrir 1 l.
Fyrsti st í hverri umf með st er skipt út fyrir 3 ll.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

ÚTAUKNING:
Aukið út með því að hekla 2 l í 1 l, fyrst öðru megin við öll prjónamerkin í umf, í næstu umf hinum megin við öll prjónamerkin í umf, haldið svona áfram með útaukningar í annarri hverri umf á undan og á eftir prjónamerkjum.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l með því að hekla 2 l saman.
Heklið 2 fl saman þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu l, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.
Heklið 2 st saman þannig: Heklið 1 st í fyrstu l, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næstu l, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklið fram og til baka frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið 101-107-115-122-130-135 ll (meðtalin 1 ll til þess að snúa við) með heklunál nr 4 með Muskat. Heklið næstu umf þannig: Heklið 1 fl í 2. ll, 1 fl í hverja af næstu 4-5-3-5-3-3 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 82-87-93-99-105-109 fl (fyrsta fl = 1 ll) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Setjið 19-20-21-23-24-26 prjónamerki í stykkið þannig: Fyrsta prjónamerkið er sett eftir 5-6-7-6-7-5 l, síðan eru sett 18-19-20-22-23-25 prjónamerki með 4 l millibili, eftir síðasta prjónamerki eru 5-5-6-5-6-4 l. Heklið fram og til baka eftir mynsturteikningu A.1 – JAFNFRAMT í næstu umf, aukið út um 1 l við öll prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf 2-4-3-3-1-2 sinnum til viðbótar, síðan í 3. hverri umf 2-1-1-1-2-3 sinnum og í 4. hverri umf 0-0-1-1-2-1 sinnum = 177-207-219-237-249-291 l.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Heklið nú A.2 þannig: Heklið 1 st í hverja af fyrstu 4 l (= kantur að framan), a yfir 7 næstu l, síðan b þar til 10 l eru eftir, c yfir 6 næstu fl og 1 st í hverja af síðustu 4 l (= kantur að framan). Heklið mynstur 1 sinni á hæðina – ATH: Í 4 fyrstu umf eru heklaðar síðustu 4 l í hvorri hlið með st, síðan eru þær heklaðar inni í mynstur eins og áður. Aukið út við prjónamerki eins og áður í umf 6 og umf 9 í mynstri. Í næst síðustu umf (= umf 11) eru auknar út 16-8-6-8-18-8 l jafnt yfir (ekki er aukið út yfir fyrstu og síðustu 4 kantlykkjur að framan) = 231-255-267-291-315-351 l.
Síðasta umf í A.2 er hekluð þannig: Heklið 33-38-41-45-48-56 fl (= kantlykkjur að framan), 8 ll (= undir ermum), hoppið yfir 53-56-56-59-65-68 st (þær eru notaðar síðar fyrir ermi), heklið 59-67-73-83-89-103 (= bakstykki), 8 l (= undir ermi), hoppið yfir 53-56-56-59-65-68 st (þær eru notaðar síðar fyrir ermi) og heklið 33-38-41-45-48-56 fl (= framstykki). Nú eru alls 141-159-171-189-201-231 l á fram- og bakstykki. Takið í burtu öll prjónamerki á berustykki. Byrjið á umf 1 í A.2 aftur og heklið a, b og c alveg eins og áður (hver ll undir ermi er talin eins og 1 fl) – þær 4 síðustu l í hvorri hlið = kantur að framan, þær eru einungis heklaðar með st í 4 fyrstu umf, síðan í mynstri eins og áður. Haldið áfram með A.2 – JAFNFRAMT í umf 6 í A.2 er fækkað um 6 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) – SJÁ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í umf 9 = 129-147-159-177-189-219 l. Í þriðja skipti sem mynstureiningin er hekluð, aukið út um 12 l jafnt yfir í umf 6 (lykkjum er ekki aukið út yfir kant að framan) = 141-159-171-189-201-231 l. Eftir að mynstureiningin hefur verið hekluð alls þrisvar sinnum, mælist stykkið ca 20 cm frá handveg og niður. Stærð S er nú lokið. Haldið áfram með mynstur A.1 í 0-1-1-3-3-5 cm, þ.e.a.s. þar til stykkið mælist 20-21-21-23-23-25 cm frá handveg og niður. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Til aðermin fái sömu áferð og fram- og bakstykki, heklið því fram og til baka. Það eru alls 61-64-64-67-73-76 l á ermi (meðtaldar 8 ll sem heklaðar voru undir handveg á fram- og bakstykki). Byrjið að hekla mynstur A.1 í 5. ll frá miðju undir ermi sem hekluð var fyrir handveg á fram- og bakstykki. Heklið 3 umf í A.1. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermasauma kant í kant þannig að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið tölur í jafnt yfir í vinstri kant að framan – efsta talan á að vera 1 cm frá toppi. Hneppið í gegnum l í hægri kanti að framan.

Mynstur

symbols = 1 ll
symbols = 1 fl
symbols = 1 st
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Darling Please

Paolina, Belgium

Darling Please

Enza, Italy

Skrifaðu athugasemd um DROPS 154-37

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (48)

country flag Li wrote:

Farbe 79 ist einfach die schönste ..

18.03.2024 - 05:03

country flag Catia wrote:

Ciao, quante volte va ripetuto lo schema A1 sto facendo la taglia l. Grazie

17.03.2024 - 21:31

DROPS Design answered:

Buonasera Catia, deve lavorare A.1 su tutte le maglie. Buon lavoro!

17.03.2024 - 22:08

country flag Claudia wrote:

En la repeticiones del diagrama para el cuerpo, tambien se tejen los aumentos en las 6ª , 9ª y 11ª ? Gracias

03.04.2023 - 15:16

DROPS Design answered:

Hola Claudia, en la segunda repetición de A.2 disminuyes en las filas 6 y 9 y en la tercera repetición de A.2 aumentas en la fila 6.

06.04.2023 - 23:57

country flag Theres wrote:

Hej! Det står "nerifrån och upp" i tags (nyckelord). Det är fel.

26.08.2022 - 19:28

country flag Name wrote:

Hi! Where is the gauge information?

16.07.2021 - 20:17

DROPS Design answered:

Dear Name, you will find the gauge information in the header, together with the crochet hook size suggested and below the amount of yarn required in each size - make sure you are reading the appropriate English terminology (US- and UK- have different crochet terminology) - click on the scroll down menu below the photo if required. Happy crocheting!

19.07.2021 - 09:30

country flag Josiane GUILLAUME wrote:

Bonjour Quelles sont les mesures correspondantes aux tailles indiquées? S M L XL etc en vous remerciant

09.04.2021 - 01:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Guillaume, mesurez un vêtement analogue que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du schéma en bas de page, c'est le meilleur moyen de trouver la bonne taille. Retrouvez plus d'infos ici. Bon crochet!

09.04.2021 - 07:51

country flag Dina wrote:

Ik heb een vraag gesteld nog geen andwoord. Gekregen

28.07.2020 - 21:32

country flag Dina wrote:

Hoi ik kom er niet uit ik ben bij toer a2 dat heb ik een keer gehaakt mot ik die toer drie keer herhAlen d Dan verder er St Art bij de makeerders mederen dat begrijp. Ik niet groete de dina

26.07.2020 - 14:07

DROPS Design answered:

Dag Dina,

Je haakt A.2 inderdaad 3 keer in de hoogte en daarnaast meerder je bij de markeerdraden in elke 6e en 9e toer in het telpatroon.

02.08.2020 - 20:02

country flag CraftyTash wrote:

Does working back and forth mean turning your work and working on the other side or does it mean cutting the yarn and starting again?

23.07.2019 - 20:55

DROPS Design answered:

Dear CraftyTash, you dont have to cut yarn, just turn and work on the other side (so you have right and wrong side of garment). Happy crocheting!

23.07.2019 - 23:17

country flag CraftyTash wrote:

I am making a size S. I have placed my stitch markers in position and ready to start A1. First Q: I understand that A1 is the pattern I will follow but I can\\\'t see how many rows are needed. Is it just the 6 rows then move on to A2? Second Q: Am I increasing either side of every stitch marker? Third Q: Am I increasing on every row?

23.07.2019 - 19:59