DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5082.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 153-39
DROPS Design: Mynstur nr l-129
Garnflokkur C, eða A + A
-----------------------------------------------------------

Mál:
Hæð: 34 cm.
Ummál: 62 cm.

Efni:
DROPS BOMULL LIN frá Garnstudio
250 gr litur nr 03, ljós beige
100 gr litur nr 05, brúnn

Eða notið:
DROPS PARIS frá Garnstudio
250 gr litur nr 26, dökk beige
100 gr litur nr 44, brúnn

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 st á breiddina og 8 umf verði 10 x 10 cm. 2 x A.2 á breiddina = 9,5 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5082.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Allar umf með st byrja á 3 ll (ekki talin með sem 1. st), endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3.

KRABBAHEKL:
Heklið eins og fl, nema aftur á bak. Þ.e.a.s. heklað er frá vinstri til hægri.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TASKA / NET - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring frá botni og upp.

TASKA / NET:
Heklið 4 ll með heklunál nr 4,5 með litnum ljós beige Bomull Lin eða litnum dökk beige Paris og tengið í hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 11 st um hringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 2 st í hvern st = 22 st.
UMFERÐ 3: * Heklið 1 st í næsta st, heklið 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 33 st.
UMFERÐ 4: * Heklið 1 st í hvorn af næstu 2 st, heklið 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 44 st.
UMFERÐ 5: * Heklið 1 st í hvern af næstu 3 st, heklið 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 55 st.
UMFERÐ 6: * Heklið 1 st í hvern af næstu 4 st, heklið 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 66 st.
UMFERÐ 7: Heklið 2 st í fyrsta st, 1 st í hvern af næstu 4 st, 2 st í næsta st, * 1 st í hvern af næstu 5 st, heklið 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 78 st. Setjið prjónamerki á eftir umf. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!¨

Heklið nú eftir A.1 – A.3, þ.e.a.s. heklað er þannig:
UMFERÐ1: Heklið 4 ll (koma í stað 1 tbst), 3 tbst í fyrsta st, hoppið yfir 2 st, * 1 fl í næsta st, hoppið yfir 2 st, 7 tbst í næsta st, hoppið yfir 2 st *, endurtakið frá *-* 11 sinnum til viðbótar, 1 fl í næsta st, hoppið yfir 2 st, 3 tbst í 3. ll frá byrjun á umf á undan, endið á 1 kl í 4. ll frá byrjun umf = 13 sólfjaðrir.ll
UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, 1 fl í fyrstu ll, * 7 tbst í næstu fl, hoppið yfir 3 tbst, 1 fl í næsta tbst *, endurtakið frá *-* 11 sinnum til viðbótar, 7 tbst í næstu fl, endið á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf = 13 sólfjaðrir.
UMFERÐ 3: Heklið 4 ll, 3 tbst í fyrstu fl, hoppið yfir 3 tbst, * 1 fl í næsta tbst, 7 tbst í næstu fl, hoppið yfir 3 tbst *, endurtakið frá *-* 11 sinnum til viðbótar, 1 fl í næsta tbst, 3 tbst í 1. fl frá byrjun á umf á undan, endið á 1 kl í 4. ll frá byrjun umf = 13 sólfjaðrir.
Endurtakið umf 2 og 3 þar til stykkið mælist ca 25 cm frá prjónamerki.

Heklið nú þannig:
UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 st í hvorn af næstu 2 tbst, hoppið yfir 1 tbst, * 1 st í næstu fl, hoppið yfir 1 tbst, 1 st í hvern af næstu 5 tbst, hoppið yfir 1 tbst *, endurtakið frá *-* 11 sinnum til viðbótar, 1 st í næstu fl, hoppið yfir 1 tbst, 1 st í hvern af næstu 3 tbst = 78 st.
UMFERÐ 2: * Heklið 1 st, 1 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* út umf = 39 göt.
UMFERÐ 3: * Heklið 1 st í st, 1 st í ll *, endurtakið frá *-* út umf = 78 st.
UMFERÐ 4: Heklið 1 st í hvern st = 78 st.
UMFERÐ 5: Heklið 1 ll, heklið KRABBAHEKL – sjá útskýringu að ofan, í hvern st. Endið á 1 kl í fyrstu ll frá byrjun umf. Klippið frá og festið enda.

AXLARÓL:
Heklið 6 ll með heklunál nr 4,5 með litnum brúnn Bomull Lin eða litnum brúnn Paris og tengið í hring með 1 kl í 1. ll. Heklið 1 fl í hverja ll = 6 fl. Heklið nú í hring með 1 fl í hverja fl þar til axlarólin mælist ca 100 cm, klippið frá og festið enda. Dragið endann á axlarólinni í gegnum gat efst á töskunni frá röngu, gerið hnút frá réttu. Endurtakið eins hinum megin á töskunni.

SNÚRA:
Klippið 10 þræði í litnum brúnn Bomull Lin eða í litnum brúnn Paris ca 4,5 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og látið hana tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda – látið þræðina lafa nokkra cm utan við hnútinn. Þræðið snúruna í gegnum gataumferðina, hnýtið tvöfaldan hnút yfir fyrsta hnútinn á hvorum enda og búið til smá kögur úr endanum lengst út.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 28.04.2014
Heklið nú eftir mynstri A.1 – A.3, þ.e.a.s. heklað er þannig: UMFERÐ1: Heklið 4 ll (koma í stað 1 tbst)...

Mynstur

symbols = 1 ll
symbols = 1 fl
symbols = 1 tbst
symbols = 1 kl
symbols = 1 st (sýnir síðustu umf áður en mynstur byrjar - sjá mynstur)
symbols = niður í fyrsta st frá byrjun umf
symbols = niður í fyrstu fl frá byrjun umf
symbols = byrjið hér
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 153-39

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Hilde wrote:

Ich habe nach ca. 25cm mit einer 2.Runde abgeschlossen, d.h. mit einer Kettmasche in der festen Masche und möchte nun mit der Stäbchenreihe beginnen. Wie muss ich hier vorgehen? Ich habe ja nicht mit einer 3. Runde also nicht mitten in der Doppelstäbchenreihe abgeschlossen. Welche Doppelstäbchen muss ich überspringen bzw. Wie fange ich an? 3 Luftmaschen und dann?

06.08.2020 - 15:49

DROPS Design answered:

Liebe Hilde, Sie können die 1. Runde mit Stäbchen genauso wie beschrieben häkeln, diese Runde wird nur die Maschenanzahl abenhmen, ie 1 Doppelstäbchen regelmäßig überpsringen damit 78 Stb am Ende dieser Runde bleiben. Viel Spaß beim häkeln!

06.08.2020 - 16:40

country flag Hilde wrote:

Wenn ich die gewünschte Gesamthöhe erreicht habe, muss ich dann mit einer 3. Runde (nach Diagramm) abschließen, bevor ich das nächste Muster anwende? Oder kann ich auch mit einer 2. Runde (also die, die mit 1Lm und 1fM beginnt) abschließen, bevor ich das Muster für die Löcher beginne?

05.08.2020 - 16:11

DROPS Design answered:

Liebe Hilde, es wird genauso das gleiche sein, Sie sollten die selbe Maschenanzahl haben. Viel Spaß beim häkeln!

05.08.2020 - 16:50

country flag Hilde wrote:

Bei mir ergibt die Maschenprobe bei 16 Stäbchen in Breite und 8 Runden 10cm in der Breite und 8cm in der Höhe. Wieviele Maschen brauche ich dann für die Taschenbasis bzw wie muss ich ab der 7. Runde arbeiten, um auf die angegebene Größe zu kommen?Die Maschenprobe 2xA2 ergibt bei mir eine Breite von 7,5cm . Wie muss ich hier anpassen? Für eine Rückmeldung bin ich dankbar. Vielen Dank.

27.07.2020 - 21:34

DROPS Design answered:

Liebe Hilde, wenn Sie 16 Stb in der Breite auf 10 cm haben, müsste auch eigentlich A.2 in der Breite zur angegeben Maschenprobe passen. Am besten häkeln Sie mehrere Rapporte A.2 und messen dann 2 Rapporte ab. Für die Tasche insgesamt könnten Sie bis zur 7. Runde einschließlich häkeln und dann den Durchmesser noch einmal messen - etwas dehnt sich das Garn ja noch. Der Taschenboden sollte einen Durchmesser von ca. 17-18 cm haben. Ggf. können Sie eine 8. Runde häkeln und dabei 12 Stb zunehmen, dann müssten Sie nachfolgend zwei Rapporte A.2 in der Runde mehr häkeln.

28.07.2020 - 13:18

country flag Muller wrote:

Bonjour Point Fantaisie A.1-A.3 Tour 2 : 1ml. 1ms dans la 1ère ml. De quelle 1ère ml d’agit-il ? Et est ce dans cette ms qu’on devra terminer le tour par une mc ?? Merci beaucoup

15.08.2019 - 10:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Muller, on va crocheter cette maille serrée dans la 4ème ml du début du tour précédent = la 1ère ml du tour. Le tour 2 se termine par 1 maille coulée dans la maille serrée du début du tour. Bon crochet!

15.08.2019 - 14:55

country flag Sandrine wrote:

Bonjour. Serait il possible de connaitre les dimensions de ce sac ? Quel est le diamètre du sac et la hauteur sans les brides? Je suis entrain de le réaliser, il me semble petit au regard de la photo. Merci

08.05.2019 - 09:44

DROPS Design answered:

Bonjour Sandrine, vous trouverez les dimensions dans l'en-tête: 34 cm de hauteur x 62 cm de circonférence. Avez-vous bien réalisé votre échantillon? Si vous avez bien 16 brides x 8 rangs = 10 x 10 cm et 2 x A.2 en largeur = 9,5 cm, alors votre sac devrait avoir les mêmes dimensions que sur la photo en conservant la même tension. Bon crochet!

08.05.2019 - 09:49

country flag Nicole wrote:

I would like to do some amigurimie doll which calls for cotton yarn. Which of your yarns woud you suggest and being soft? Thank you

26.02.2019 - 16:32

DROPS Design answered:

Dear Nicole, you will find all our cotton yarns here , what about DROPS Loves You #7, #8, #9 or Muskat, Paris or Safran? Your DROPS store will help you choosing the best matching yarn - even per mail or telephone. Happy crocheteing!

27.02.2019 - 09:18

Jeny wrote:

Hello, i hv just finished making the bag part. And a little bit confused on how to crochet the handle part. Please help..

27.06.2016 - 11:29

DROPS Design answered:

Dear Jeny, start handle with 6 ch, join in the round with 1 sl st in 1st ch, then crochet 1 dc in every chain around = 6 dc (= UK-English terminology). Continue then working 1 dc in each st around until piece measures approx. 100 cm. You will have something like a long "tube" and each end of this tube will be then inserted into a hole at the top of bag (from inside towards outside) and make a knot at the end (facing outwards) to keep it in place. Happy crocheting!

27.06.2016 - 17:36

country flag Estelle wrote:

Bonjour, Concernant ce modèle, il faut acheter combien de pelotes ? Car vous mettez les grammages mais sur le site, on ne sait pas combien pèse une pelote. Cordialement

24.05.2016 - 16:22

DROPS Design answered:

Bonjour Estelle, vous trouverez le poids de chaque pelote sous chaque nuancier et sous la liste des prix - Bomull-Lin et Paris sont toutes les 2 en pelotes de 50g, soit 250 g = 5 pelotes beige clair (Bomull-Lin)/beige foncé (Paris) + 2 pelotes brun (Bomull-Lin/Paris). Bon crochet!

24.05.2016 - 17:48

Kriz wrote:

Hi, Which hole is the one for the handle? Is it one of the holes in the eyelet row? Thanks :D

07.04.2016 - 15:57

DROPS Design answered:

Dear Kriz, that's correct - happy crocheting!

07.04.2016 - 17:35

Hadar wrote:

Hello, i love this bag! although i got confused by the CROCHET INFO.. when counting the dc after every round in the beginning the 3 chains doesn't count? meaning, if after round 2 i should have 22 dc including the 3 chains or not including? thanks a lot!

01.02.2016 - 17:08

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hadar, the 3 ch at beg of round do not replace the 1st dc, ie when you have 22 dc, you should have 22 dc + 3 ch at beg of round. Happy crocheting!

02.02.2016 - 09:25