DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3432.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sunny Side Cardigan

Prjónað vesti úr DROPS Muskat með gatamynstri á berustykki. Stærð S - XXXL.

DROPS 152-10
DROPS Design: Mynstur nr r-652
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
350-400-450-450-500-550 gr litur nr 07, ljós gulur

DROPS HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjón verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3,5 – fyrir kant með garðaprjóni.
DROPS PERLUTALA, NR 521: 7-7-8-8-9-9 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3432.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikningin sýnir allar umf séð frá réttu. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l eftir 1. og 3. prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið um 1 l á undan 2. og 4. prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l eftir 1. og 3. prjónamerki þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Aukið út um 1 l á undan 2. og 4. prjónamerki þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið aftan í uppsláttinn í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af þegar hnappagatið mælist:
STÆRÐ S: 3, 13, 22, 31, 40, 49 og 59 cm
STÆRÐ M: 5, 15, 24, 33, 42, 51 og 61 cm
STÆRÐ L: 7, 15, 23, 31, 39, 47, 55 og 63 cm
STÆRÐ XL: 8, 16, 24, 32, 40, 48, 56 og 65 cm
STÆRÐ XXL: 5, 12, 19, 26, 33, 41, 49, 58 og 67 cm
STÆRÐ XXL:5, 13, 21, 29, 37, 45, 53, 61 og 69 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 190-210-230-250-270-290 l (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3,5 með Muskat. Prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið frá réttu, 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið og sléttprjón yfir restina af l þar til stykkið mælist 7 cm – munið eftir HNAPPAGAT. Kantlykkjur að framan í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan, prjónið 20-20-25-25-30-30 l sl, setjið 1 prjónamerki (= 1. prjónamerki), prjónið 50-60-60-70-70-80 l sl, setjið 1 prjónamerki (= 2. prjónamerki), prjónið 40-40-50-50-60-60 l sl, setjið 1 prjónamerki (= 3. prjónamerki), prjónið 50-60-60-70-70-80 l sl, setjið 1 prjónamerki (= 4. prjónamerki), prjónið 20-20-25-25-30-30 l sl, endið á 5 kantlykkjum í garðaprjóni (= kantlykkjur að framan). Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA = 4 l færri í umf. ATH! Lykkjufjöldinn í miðju þ.e.a.s. hvoru megin við l við miðju kant að framan og fyrir miðju að aftan verða eins, fækkið lykkjum frá hlið. Endurtakið úrtöku í 8.-8.-8.-6.-6.-8. umf 6-7-7-9-8-6 sinnum til viðbótar (= alls 7-8-8-10-9-7 úrtökur) = 162-178-198-210-234-262 l á prjóni. Haldið áfram í sléttprjón þar til stykkið mælist 32 cm. Í næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING = 4 l fleiri í umf. A.T.H! Lykkjufjöldinn fyrir miðju þ.e.a.s. hvoru megin við miðju kantlykkju að framan og miðju að aftan verða eins, aukið er út frá hlið. Endurtakið útaukningu í 4.-6.-6.-4.-6.-8. hverri umf 5-4-5-6-5-5 sinnum til viðbótar (= alls 6-5-6-7-6-6 sinnum) = 186-198-222-238-258-286 l á prjóni. Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni yfir kantlykkjur þar til stykkið mælist 41-43-45-44-46-48 cm. Prjónið nú 2 umf garðaprjón yfir allar l (1. umf frá réttu). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM. Fellið nú af fyrir ermi í næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur í garðaprjóni, 40-43-49-53-58-65 l sl, fellið af næstu 8 l með garðaprjóni, 80-86-98-106-116-130 l sl, fellið af næstu 8 l í garðaprjóni 40-43-49-53-58-65 l sl og 5 l garðaprjón JAFNFRAM er fækkað um 7-15-12-3-31-28 l jafnt yfir l í sléttprjóni = 163-167-194-219-211-242 l á prjóni.

Geymið stykkið og prjónið kant á ermum.

KANTUR ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 54-58-62-68-72-76 l á hringprjóna nr 3,5 með Muskat. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 4 l jafnt yfir (þetta er gert til að kanturinn verði ekki of stífur á ermi) = 50-54-58-64-68-72 l á prjóni. Klippið frá og geymið stykkið, prjónið annan kant á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn kant á ermum á sama hringprjón nr 4 eins og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 263-275-310-347-347-386l á prjóni (prjónið ekki l þegar þær eru settar á sama hringprjón). Prjónið 5 kantlykkjur að framan eftir mynstri A.1 (1. umf = ranga) (= 12-12-13-14-14-15 l) 21-22-23-24-24-25 mynstureiningar á breiddina þar til 6 l eru eftir, prjónið fyrstu l í A.1 (þannig að mynstrið verði alveg eins í hvorri hlið við miðju að framan, og fyrsta l er 2 l slétt saman, prjónið síðustu l sl) og endið á 5 kantlykkjum að framan – munið eftir HNAPPAGAT. Haldið svona áfram með mynstur. Eftir alla úrtöku eru 137-143-149-155-155-161 l á prjóni. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið kant á ermum við fram- og bakstykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = sl frá röngu, br frá réttu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l sétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l br saman
symbols = mynstrið á teikn gegnur ekki upp í mynstureiningu en gengur upp í l fjölda á öllu vestinu
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 152-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Maureen Thomas wrote:

On row 6 of the S-M A.1 diagram the the K2 together at start of each repeat of 12 stitches ends up next to another knit stitch (from end of 12 stitch repeat). This means the moss stitch pattern will have a double knit or pearl all the way up. Is this correct?

14.09.2019 - 13:26

DROPS Design answered:

Dear Mrs Thomas, in the moss stitch section, just work moss stitch all the row decreasing by working the first 2 stitches in each A.1 together, ie you might have to K2 tog or P2 tog to make sure the moss stitch matches all the row - see star symbol under diagram key. Happy knitting!

16.09.2019 - 09:00

country flag Mona Lundmark wrote:

Har avslutat både minskning o ökning på fram- o bakstycke Storlek L. Inalles 222 m. Efter 2 v räta skall stickas 5 räta kantmaskor 49 r 8 avm, 98 r, 8 avm, 49 r, 5 r kantm, blir 206 m. I mönstret står det 194. Hur gör jag. Snälla beskriv ordentligt. Tack på förhand! Mitt telefonnr 0706608638

09.03.2017 - 21:00

DROPS Design answered:

Hej. Du gör rätt men du missar att det står "SAMTIDIGT som det minskas 7-15-12-3-31-28 m jämnt fördelat över de slätst m". 206-12=194 m. Lycka till!

10.03.2017 - 08:44

country flag Britt Johansen wrote:

Har strikket blusen helt færdig, men kan slet ikke passe den. Der er for få masker til slut. Jeg har fulgt diagram nøje. Hvert mønster skal jo gentages og der er mange indtagninger. Er der fejl i opskriften? Venligst Britt Johansen

23.01.2017 - 09:49

DROPS Design answered:

Hej Britt. Det burde der ikke vaere. Er din strikkefasthed korrekt og er maalene som angivet i maalskitsen nederst.

23.01.2017 - 12:13

country flag Konni wrote:

Hallo habe die Jacke jetzt fertig bin auch sehr zufrieden damit ......Habe sie in L gestrickt nur paßt sie mir nicht......Da ich jetzt vorhabe noch eine Anleitung von euch zu stricken Würde ich gerne noch wissen ob ihr auch eine Tabelle habt wo man genau ausrechnen kann das die gesagt Größe auch paßt die man dann strickt LG. Konni

21.06.2016 - 19:29

DROPS Design answered:

Liebe Konni, in der Schnittzeichnung gnaz unten auf der Seite sehen Sie die genauen cm-Angaben pro Grösse.

23.06.2016 - 08:37

country flag Konni wrote:

Hallo der unteren Teil ist eine Rückantwort von euch.. stricke ich jetzt nicht zwei maschen zusammen ? LG. Konni ( Sie stricken ja am Ende der R, vor den 5 Blenden-M, noch einmal die erste M von A.1. In der R in A.1, in der die 1. M darin besteht, dass 2 M re zusammengestrickt werden, stricken Sie stattdessen 1 M re, d.h. die letzte M vor den 5 Blenden-M ist in diesem Fall dann 1 M re und nicht 2 M re zusammen.

17.06.2016 - 11:06

DROPS Design answered:

Hallo Konni, könnten Sie bitte Ihre Frage etwas genauer formulieren? Ich habe sie leider nicht ganz verstanden.

19.06.2016 - 09:22

country flag Konni wrote:

Hallo ich bins mal wieder und ich denke das wird auch nicht das lezte mal sein 😕 Verstehe ich das richtig in der Anleitung das Diagramm A.1. Zeigt immer nur die hin runden (rechte seite ) und die rückrunden stricke ich dann immer links ?????? LG. Konni

17.06.2016 - 00:04

DROPS Design answered:

Hallo Konni, in unseren Diagrammen sind Vor- und Rückreihe bzw. alle Runden dargestellt.

19.06.2016 - 09:21

country flag Konni wrote:

Ja dann bin ich ja beruhigt das es letztendlich keine Bedeutung hat .....Habe mir nämlich schon den Kopf zerbrochen was in der strickschrieft tel. Zu bedeuten haben könnte Dann freut es mich um so mehr das die komikatio hier sehr gut läuft LG. Aus einer schönen Stadt vom Niederreihn 😊

11.06.2016 - 10:55

country flag Konni Plitschka wrote:

Wenn ich bis zur einer gesammthöhe stricken muss steht da einmal z.B 41-43-45-44-46-48 (tel.41-43-45-44-46-48 ) cm wie muss ich das jetzt verstehen tel. ??????

05.06.2016 - 17:36

DROPS Design answered:

Liebe Konni, bei uns steht nichts von “tel” – vielleicht haben Sie gleichzeitig ein andres Programm offen, wie z.B. Skype, dann werden manchmal Ziffernkombinationen als Telefonnummern dargestellt.

06.06.2016 - 07:50

country flag Patricia Venanzi wrote:

Las instrucciones son siempre correctas, pero creo que he encontrado un pequeño fallo (diría que error de tecleado) en este patrón. En el diagrama, donde dice que el cuadradito en blanco es derecho por el LR, revés por el LR, creo que lo correcto es derecho por el LD, revés por el LR. Quizás ya lo aclaró alguien más antes, pero lamentablemente no hablo noruego. Gracias por su atención y seguiré frecuentando la página!

02.06.2016 - 12:46

Maria Luisa Cevolani wrote:

I have made this jacket, but at the bottom it pulls to the left, though I mede carefully the right increasings and decreasings. I read that it may depend also on the plying of the yarn. I please would like to know your point of view!Thanks!

18.08.2015 - 11:46

DROPS Design answered:

Dear Mrs Cevaloni, the best may be to show the finished items to your store (eventually send a picture by mail) so that they can see and help you/give you personnal assistance. Happy knitting!

18.08.2015 - 14:59