Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= sl frá réttu, br frá röngu | |
= takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir | |
= sláið uppá á milli 2 l | |
= 2 l slétt saman | |
= takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir | |
= sláið tvisvar uppá prjóninn á milli 2 l, í næstu umf er fyrri uppslátturinn prjónaður, seinni uppslátturinn er látinn falla niður (þá myndast stórt gat) |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Rondane |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónað poncho úr DROPS Paris með gatamynstri og garðaprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 152-15 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.2. Mynsturteikningin sýnir allra umf í mynstri séð frá réttu. MYNSTUR-1: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 6 l garðaprjón, prjónið br þar til 6 l eru eftir, 6 l garðaprjón. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 6 l garðaprjón, * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 7 l eru eftir, 1 l sl, 6 l garðaprjón. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið 6 l garðaprjón, prjónið br þar til 6 l eru eftir, 6 l garðaprjón. ATH: Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það á að myndast gat. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 9 (= rétta): Prjónið slétt. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð í hverri umf sem er prjónuð frá réttu (ekki í umf 5 í mynstur-1), þ.e.a.s. að það verða 2 úrtökur á 2 cm sléttprjón, 4 úrtökur í mynstur-1 og 2 úrtökur í 2 cm sléttprjón. Fellið af 1 l með því að prjóna 2 l slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í tveimur stykkjum og saumað saman í hliðum í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið upp 111-123-135 l með Paris á hringprjóna nr 6. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan þar til stykkið mælist 2 cm. Prjónið nú áfram í sléttprjóni með 6 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki. Þessar 6 l garðaprjón eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Þegar stykkið mælist 4-6-8 cm, stillið af að síðasta umf sé frá röngu. Prjónið MYNSTUR-1 - sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú sléttprjón þar til stykkið mælist ca 10-12-14 cm. Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 6 l garðaprjón, A.1B (= 3 l) – sjá útskýringu að ofan – yfir næstu 3 l, prjónið A.1A (= 12 l) þar til 6 l eru eftir (= 8-9-10 mynstureiningar á breiddina), 6 l garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 23-28-33 cm. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið nú 2 cm sléttprjón. Stillið af að síðasta umf sé frá röngu. Prjónið mynstur-1. Prjónið síðan 2 cm sléttprjón. – JAFNFRAMT í hverri umf frá réttu í þessum kafla er fækkað um 4 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA – alls 7 sinnum. ATH: Lykkjum er ekki fækkað í umf 5 í mynstur-1 og ekki í 6 l garðaprjón í hvorri hlið. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1-3-5 l jafnt yfir = 82-92-102 l eftir á prjóni. Stykkið mælist nú ca 31-36-41 cm. Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 6 l garðaprjón, A.2 (= 10 l) þar til 6 l eru eftir (= 7-8-9 mynstureiningar á breiddina), 6 l garðaprjón. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað í sléttprjóni með 6 l garðaprjóni í hvorri hlið á stykki þar til stykkið mælist ca 40-45-50 cm. Stillið af að síðasta umf sé frá röngu. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið mynstur-1. Prjónið síðan 2 cm í sléttprjóni. Prjónið 6 umf garðaprjón. JAFNFRAMT í hverri umf frá réttu í þessum kafla er fækkað um 5-6-7 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA – alls 7 sinnum. ATH: Lykkjum er ekki fækkað í umf 5 í mynstri-1 og ekki í 6 l garðaprjón í hvorri hlið. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 8 l jafnt yfir = 39-42-45 l á prjóni. Fellið af. Stykkið mælist ca 48-53-58 cm. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju frá hálsmáli og niður þar til ca 20 cm er eftir að klauf í hvorri hlið. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6918 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (13)
Scilla wrote:
Hello, when the pattern says to ''work in stockinette stitch'' (ie after working Pattern 1) should we still work six stitches in garter stitch on each side of the piece? Thanks.
02.04.2019 - 07:30DROPS Design answered:
Hi Scilla! Yes, you should till work six stitches in garter stitch on each side of the piece. Happy knitting!
02.04.2019 - 08:18Dunoyer Karine wrote:
Bonjour, j'aimerai faire et commander de la laine drops paris pétrole, mais je ne trouve pas les quantités qu'il me faut. Je vais faire le modèle en taille L/XL. Merci de m'aider... Karine
05.03.2019 - 10:48DROPS Design answered:
Bonjour Mme Dunoyer, vous trouverez la quantité nécessaire pour votre taille indiquée au poids dans l'en-tête, soit 450 g DROPS Paris / 50 g la pelote = 9 pelotes en taille L/XL. Bon tricot!
05.03.2019 - 11:45DROPS Design wrote:
You can also find here some pictures showing step by step how to work diagrams A.1B and A.1A. Happy knitting!
06.04.2016 - 14:37Meg wrote:
Help! Can you post a video of how to do the middle part of the pattern--the a1b and a1a parts. I can't figure it out!! Thank you meg
06.04.2016 - 06:58DROPS Design answered:
Dear Meg, see video below, diagram is slightly different but will give same result (A.1B here = first 3 sts in video, A.1A = work last 3 sts in A.1 in video + 6 sts in A.1 in video + first 3 sts in A.1 in video). Happy knitting!
06.04.2016 - 11:04Meg wrote:
Help! Can you post a video of how to do the middle part of the pattern--the a1b and a1a parts. I can't figure it out!! Thank you meg
03.04.2016 - 06:07DROPS Design answered:
Dear Meg, there is no video to that pattern yet, but your request has been forwarded thank you. Work A.A as follows: start at the very bottom corner on the right side of diagrams and read every row from RS towards the left (and WS row from the left toward the right): work 1st row on A.1B on the first 3 sts, then repeat first row in A.1A over the next sts (= 12 sts a total of 8-9-10 times, see size) and continue upwards. read more about diagrams here. Happy knitting!
04.04.2016 - 08:56Chedoz wrote:
Bonjour Je suis bloquée au niveau des 1ère diminutions (7x4) concernant la répartition En effet dans l'explication des diminutions on nous explique qu'il y a 2 diminutions ds les 2 cm Jersey 4 diminutions ds le points fantaisie et 2 diminutions ds les 2 cm Jersey Ce qui donne 8 diminutions Or il faut faire 7 fois 4 diminutions Pouvez vous m'explique D'avance merci
31.08.2015 - 19:05DROPS Design answered:
Bonjour Mme Chedoz, votre question a bien été transmise à nos stylistes. Encore merci pour votre patience.
02.03.2016 - 10:12Leue wrote:
Goeiemorgen vraag 2 klopt het dat als ik patroon 1B maak dat ik dan van 123 st.naar 88 steken ga? met vriendelijke groet Diane Leue
27.03.2014 - 07:35DROPS Design answered:
Hoi. Je verandert niet in het aantal st door patroon A.1B/A.1A te breien. Je mindert pas als je Patroon 1 voor de tweede keer gaat breien.
27.03.2014 - 15:44Leue wrote:
Goeiedag ik ben deze poncho aan het breien maar bij het eerste motief staat dat ik patroon 1 moet doen maar als ik op het model kijk is dat volgens mij patroon 1B en dan tricotsteek en na 12 cm dan met patroon 1A beginnen..zoals ik het zie zijn deze 2 motieven omgedraaid....klopt dit of zie ik het niet goed met vriendelijke groet Diane Leue
26.03.2014 - 18:57DROPS Design answered:
Hoi Diane. Het patroon klopt. De eerste patroon is PATROON 1 (de ribbels met 1 nld 2 r samen/omsl tussen). Vervolgens bij 12 cm brei je A.1B/A.1A in de hoogte (kantpatroon).
27.03.2014 - 15:42Ulrike wrote:
In der Anleitung heißt es zu Beginn,dass alle Hinreihen eingezeichnet sind.In der Legende zu A2 heißt es aber "....in der nächsten Rd den ersten Umschlag rechts stricken...." was ja logisch ist,wenn man wirklich in Runden strickt.Wenn man aber hin und her strickt,hat man jeweils zwei Reihen mehr,wenn man jede Zeile in der Legende als Hinreihe liest.Wie ist es denn für diesen Poncho gemeint?
28.02.2014 - 16:02DROPS Design answered:
Liebe Ulrike, im Diagramm sind ALLE Reihen eingezeichnet, also nicht nur die Hin-R, sondern auch die Rück-R. Das Diagramm zeigt alle R, wie sie auf der Vorderseite erscheinen. Die Symbolerklärung wird in Kürze korrigiert, hier hat sich leider noch ein Fehler eingeschlichen - es muss Reihe heißen und nicht Runde, außerdem müssen Sie den Umschlag li stricken, nicht re. Viel Spaß beim Stricken!
28.02.2014 - 21:05Allie wrote:
One word: Enchanting!
06.01.2014 - 19:45