DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2112.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-997
DROPS Design: Mynstur nr ne-131
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - M/L

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
100-100 gr litur nr 0500, ljós grár
Og einnig:
50-50 gr litur nr 0100, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 19 l og 25 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2112.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚTAUKNING:
Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt þannig ekki myndist gat.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum þannig (byrjið 3 l á undan prjónamerki): Prjónið 2 l slétt saman, 2 l (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá úlnlið að fingurtoppi.

HÆGRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 40-40 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum ljós grár DROPS Nepal.
Prjónið 1 umf slétt. Prjóni nú stroff (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 6-7 cm prjónið næstu umf þannig: * Prjónið 5 l sl, prjónið 2 næstu l slétt saman *, endurtakið frá *-*, 2 sinnum til viðbótar, 2 l br, * 2 l slétt saman, 2 l sl *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, 2 l br og endið á 3 l sl = 34-34 l.
Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið næstu umf þannig: * Prjónið 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* út umf. Næsta umf er prjónuð þannig (uppslátturinn er prjónaður slétt): Prjónið 18 l sléttprjón (= í lófa), A.1 (= 13 l) og 3 l sléttprjón.
Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 13-14 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við fyrstu l í umf fyrir þumal – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu hvoru megin við útauknar lykkjur í annarri hverri umf, 4-5 sinnum til viðbótar = 44-46 l. Setjið nú 11-13 þumallykkjur á þráð.
Haldið áfram hringinn eins og áður JAFNFRAMT er fitjuð upp 1 ný l fyrir aftan þumal í næstu umf = 34-34 l.
Þegar vettlingurinn mælist ca 26-28 cm (mátið vettlinginn, það eru ca 4 cm að loka máli), setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 16 l í umf og 1 prjónamerki á eftir næstu 17 l (það eru 1 l í umf á eftir seinna prjónamerki). Fækkið nú um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf, 2 sinnum til viðbótar og síðan í hverri umf alls 3 sinnum = 10 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.

ÞUMALL:
Setjið til baka 11-13 þumallykkjur af þræði á sokkaprjóna nr 4. Prjónið að auki upp 4-3 l aftan við þumal = 15-16 l. Prjónið sléttprjón hringinn þar til þumallinn mælist ca 4½-5 cm (mátið vettlinginn, nú er ca ½ cm að loka máli). Prjónið 2 umf slétt JAFNFRAMT eru allar l prjónaðar saman 2 og 2 í báðum umf = 4-4 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.

VINSTRI VETTLINGUR:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri vettlingur, nema spegilmynd – þ.e.a.s. byrjið stroffið á 2 l br (í stað 2 l sl). Prjónið 1. umf á eftir stroffi þannig: Prjónið 3 l sl, 2 l br, * 2 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-*, 2 sinnum til viðbótar, 2 l br, * 2 l slétt saman, 5 l sl *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar.
Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið næstu umf þannig: Prjónið 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Næsta umf er prjónuð þannig (uppslátturinn er prjónaður slétt): 3 l sléttprjón, A.1 (= 13 l) og 18 l sléttprjón. Aukið út fyrir þumal hvoru megin við síðustu l í umf. Á undan úrtöku efst á vettlingi er sett 1. prjónamerki á eftir 1. l í umf og 2. prjónamerki á eftir næstu 17 l (= 16 l eftir í umf á eftir seinna prjónamerki).

SNÚRA:
Klippið 2 þræði ca 2,5 m með litnum natur. Tvinnið þræðina saman þar til þeir taka í, leggið þræðina saman tvöfalda þá koma þeir til með að tvinnast aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Þræðið snúruna upp og niður í gataumferðina á vettlingnum.
Gerið 2 dúska ca 2 cm að þvermáli með litnum natur. Festið dúskana á hvorn endann á snúrunni.
Endurtakið á sama hátt á hinum vettlingnum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 13.12.2013
Nýr mynsturtexti í 3. og 4. mynsturtákni
Yfirfarið á vefsvæði: 04.11.2014
VINSTRI VETTLINGUR:
Fitjið upp og prjónið eins og hægri, nema spegilmynd – þ.e.a.s. byrjið stroffið á 2 l br (í stað 2 l sl). Prjónið 1. umf á eftir stroffi þannig: Prjónið 3 l sl, 2 l br, * 2 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-*, 2 sinnum til viðbótar, 2 l br, * 2 l slétt saman, 5 l sl *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar.
Yfirfarið á vefsvæði: 21.11.2016
VINSTRI VETTLINGUR: ..Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið næstu umf þannig: Prjónið 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Næsta umf er prjónuð þannig (uppslátturinn er prjónaður slétt): 3 l sléttprjón, A.1 (= 13 l) og 18 l sléttprjón. Aukið út fyrir þumal hvoru megin við síðustu l í umf. Á undan úrtöku efst á vettlingi er sett 1. prjónamerki á eftir 1. l í umf og 2. prjónamerki á eftir næstu 17 l (= 16 l eftir í umf á eftir seinna prjónamerki).

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, 2 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 2 l sl, 2 l sl af hjálparprjóni
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-997

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Annick Combray-Leblanc wrote:

Rebonjour, et merci pour votre réponse rapide. Mais je suis perplexe. Si la moufle fait 30 cm de haut, elle m'arrive au milieu de l'avant bras ?! Du bout du majeur à la pliure du poignet ma main mesure 17 cm, il ne faut donc pas que la longueur totale de la moufle fasse plus de 22 ou 23 cm... 🤔

11.02.2021 - 17:07

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Combray-Leblanc, vous pouvez tout à fait ajuster la longueur totale de la moufle sur celle de vos mains. Les diminutions mesurent 4 cm, enfilez la moufle, et quand il reste 4 cm, commencez à diminuer. Bon tricot!

12.02.2021 - 06:46

country flag Annick Combray-Leblanc wrote:

Bonjour, Dans le modèle vous dîtes "quand la moufle mesure environ 26-28 cm...". Ne serait-ce pas plutôt 16-18 cm ? Bonne journée

11.02.2021 - 16:14

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Combray-Leblanc, il s'agit bien de 26-28 cm, il s'agit de la longueur totale depuis le rang de montage (on a commencé les augmentations du pouce à 13-14 cm). Bon tricot!

11.02.2021 - 16:27

country flag Mariann wrote:

Lurer på fellingen. Første merketråd etter 16 masker, 2 merketråd etter 17 masker, 1 maske igjen på omg. På felling går det greit med 3 masker før merketråden med 2 masker rett sammen, men kun 1 maske som kan felles etter merketråd?

18.11.2018 - 10:07

DROPS Design answered:

Hei Mariann. Litt usikker på om jeg skjønner spørsmålet ditt. Du har 1 merke i hver siden av arbeidet (med 17 masker mellom hvert merke) og feller 1 maske på hver side av hvert merke (= 4 masker felt på omgangen). Du feller slik: strikk til det gjenstår 3 masker før merket, strikk 2 masker rett sammen (= 1 maske felt før merket), strikk 2 rett (merket sitter nå midt mellom disse 2 maskene) ta 1 maske løst av pinnen, strikk 1 rett, trekk den løse masken over (= 1 maske felt etter merket). God fornøyelse.

19.11.2018 - 11:58

country flag Marianne Dahl wrote:

For høyre vott står det at man skal strikke "*2 m rett sammen, 1 kast*, gjenta fra *_* omg ut", rett etter at man har skiftet til settp 4. Dette har man ikke nevnt for venstre vott (dvs. omvendt: *1 kast, 2 m rett sammen*).

20.11.2016 - 14:53

DROPS Design answered:

Hej Marianne. Du har ret, det er fejl. Jeg skal sörge for en rettelse.

21.11.2016 - 15:23

Ulla wrote:

You work from 40 to 34 st as this: 3(5+1)+2+3(3)+5.

22.05.2014 - 10:15

country flag Esther Paris wrote:

I mean these nbrs add up to greater than 40:K 3, P 2, * K 2 tog, K 2 *, repeat from *-* 2 more times, K 2 tog, P 2, * K 2 tog, K 5 *, repeat from *-* 2 more times.

21.05.2014 - 12:56

DROPS Design answered:

Dear Mrs Paris, you are correct, we will check and come back as soon as possible. Thanks in advance for your patience.

23.05.2014 - 15:57

country flag Esther Paris wrote:

Hi The diagram is wrong (a1). You can't do a 3/3 cable on 4 sts. I see the original pattern says 2/2 cable. See: = slip 3 sts on cable needle behind piece, K 3, K 3 from cable needle = slip 3 sts on cable needle in front of piece, K 3, K 3 from cable needle

21.05.2014 - 03:23

DROPS Design answered:

Dear Mrs Paris, you are correct, diagram text will be edited, it should be slip 2 sts on cable needle behind/in front of piece, K 2, K 2 from cable needle. Happy knitting!

21.05.2014 - 09:49

country flag Esther Paris wrote:

I think the numbers for Left Mitten don't add up quite right in first row after rib, here: Work 1st round after rib as follows: K 3, P 2, * K 2 tog, K 2 *, repeat from *-* 2 more times, K 2 tog, P 2, * K 2 tog, K 5 *, repeat from *-* 2 more times.

21.05.2014 - 03:00

DROPS Design answered:

Dear Mrs Paris, left mitten is worked as right mitten but reversed. This round will not be lined up above rib. You may adjust to get it lined up if you like to. Happy knitting!

21.05.2014 - 09:48

country flag Katrine Storbakk wrote:

Hei. Hvorfor retter dere ikke feilen som er i venstre votte? Er jo flere som har kommentert denne feilen.

25.01.2014 - 21:25

DROPS Design answered:

Hej Katrine. Fejlen er rettet.

14.02.2014 - 11:31

country flag Jezi wrote:

Hittat fel i mönstret till vänster vante... Mellan upprepningarna på första varvet efter resår är där inga räta maskor på höger vante, maskorna räcker inte till om man stickar dessa. Varvet man gör därefter på höger finns inte med i beskrivningen till vänster vante

06.01.2014 - 22:24

DROPS Design answered:

Oppskriften på venstre vott er nå rettet opp. Mvh DROPS Design

04.11.2014 - 14:31