DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-990
DROPS Design: Mynstur nr mb-008
Garnflokkur C
--------------------------------------------------------

Stærð:
Hæð: ca 28 cm (frá höfði og að fæti)

Efni:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio
50 g litur nr 02, grár
50 g litur nr 18, rauður
Afgangur af lit nr 04, svartur

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 fl verði 10 cm á breiddina með Big Merino.
FYLGIHLUTIR: Vatt til fyllingar
DROPS PERLUTALA, NR 521: 2 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GALDRAHRINGUR:
Til þess að koma í veg fyrir göt í miðju er heklað með þessari aðferð. Haldið í endann með vinstri hendi og gerið lykkju utan um vinstri vísifingur (frá vinstri að hægri). Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og vísifingri. Heklunálinni er stungið inn í hringinn, þræðinum er brugðið um hana og þráðurinn dreginn upp úr hringnum, heklið 1 ll, heklið nú fl utan um galdrahringinn. Þegar sá fjöldi fl er kominn sem þú óskar eftir, dragið í endann á þræðinum þannig að lykkjan dragist saman og gatið hverfi. Festið endann á bakhlið. Haldið áfram að hekla í hring.

HEKLAÐ Í HRING:
Eftir síðustu fl í umf, haldið áfram að næstu umf með 1 fl í næstu fl (= fyrsta fl frá fyrri umf). ATH: Merkið byrjun umf með prjónamerki á milli síðustu fl í umf og fyrstu fl í næstu umf, látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu.

HEKLAÐ SAMAN:
Heklið 1 fl, bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), hekli síðan næstu fl (eða næstu 2 fl alveg eins), þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni.

LITASKIPTI:
Til þess að ná fram fallegum litaskiptum er síðasta fl í umf hekluð þannig: Stingið heklunálinni í síðustu l, sækið þráðinn, bregðið þræðinum með nýja litnum um heklunálina og dragið í gegnum l á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

MÚS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst er höfuðið og búkurinn heklað, síðan fætur og hendur.

HÖFUÐ:
Stykkið er heklað í hring með heklunál nr 4. Byrjið neðst á nefinu með því að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – með litnum grár.
UMFERÐ 1: Heklið 4 fl um galdrahringinn. Lesið HEKLAÐ Í HRING.
UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 8 fl.
UMFERÐ 4: * Heklið 1 fl í hvora af næstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 16 fl.
UMFERÐ 5: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 20 fl.
UMFERÐ 6: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 4 fl, 2 fl í næst fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl.
UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hverja fl = 24 fl.
UMFERÐ 8: Heklið fyrstu 2 fl saman – LESIÐ HEKLAÐ SAMAN, heklið næstu 2 fl saman, 1 fl í næstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* 7 sinnum til viðbótar (alls 8 útaukningar), heklið síðan 4 síðustu fl 2 og 2 saman = 28 fl.
UMFERÐ 9: Heklið 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, * 1 fl í hvora af næstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* 7 sinnum til viðbótar (alls 8 útaukninga), síðan 1 fl í hvora af síðustu 2 fl = 36 fl.
UMFERÐ 10: Heklið 1 fl í hverja fl = 36 fl.
UMFERÐ 11: Heklið 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, * 1 fl í hverja af næstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* 7 sinnum til viðbótar (alls 8 útaukningar), heklið nú 1 fl í hvora af síðust 2 fl = 44 fl.
UMFERÐ 12: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 18 fl, * 1 fl í næstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar (alls 4 útaukningar), heklið nú 1 fl í hverja af þeim 18 fl sem eftir eru = 48 fl. Setjið 1 prjónamerki á milli miðju 2 útaukninga = miðja að framan (þetta er fyrir frágang).
UMFERÐ 13-15: Heklið 1 fl í hverja fl = 48 fl í umf.
UMFERÐ 16: * Heklið 1 fl í hverja af 6 næstu fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 42 fl.
UMFERÐ 17: Heklið 1 fl í hverja fl = 42 fl í umf.
UMFERÐ 18: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 5 fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 fl.
UMFERÐ 19: Heklið 1 fl í hverja fl = 36 fl.
UMFERÐ 20: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 4 fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl.
UMFERÐ 21: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 3 fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl.
UMFERÐ 22: * Heklið 1 fl í hverja af 2 næstu fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl.
UMFERÐ 23: * Heklið 1 fl í næstu fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl. Klippið ekki frá.
Saumið út með litnum svartur fyrir augu og munn á höfuðið, gerið 1 hnút með litnum rauður fyrir nef. Fyllið höfuðið með vatti. Haldið áfram að hekla höfuðið til loka þannig:
UMFERÐ 24: Heklið allar fl 2 og 2 saman = 6 fl. Klippið frá og dragið þráðinn í gegnum allar l, herðið að.

EYRA:
Stykkið er heklað fram og til baka.
UMFERÐ 1: Með byrjun neðst á eyra, heklið 5 ll með litnum grár, síðan 2 fl í 2. ll frá heklunálinni, 1 fl í hvora af næstu 2 ll, 2 fl í síðustu ll = 6 fl, snúið við.
UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, 2 fl í 1. fl , 1 fl í hverja fl þar til 1 fl er eftir, 2 fl í síðustu fl = 8 fl, snúið við.
UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, 1 fl í hverja fl = 8 fl.
UMFERÐ 4: Heklið 1 ll, heklið fyrstu 2 fl saman, 1 fl í hverja fl þar til 2 fl eru eftir, heklið síðustu 2 fl saman = 6 fl.
Endurtakið umf 4 2 sinnum til viðbótar = 2 l eftir í umf, klippið frá og festið enda.
Heklið annað eyra til viðbótar á sama hátt. Brjótið eyrun saman tvöföld neðst niðri og saumið þau niður hvoru megin við höfuðið.

BÚKUR:
Stykkið er heklað í hring með heklunál nr 4. Byrjið með því að gera galdrahring neðst á búk með litnum rauður.
UMFERÐ 1: Heklið 8 fl um galdrahringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 16 fl.
UMFERÐ 3: * Heklið 1 fl í næstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl.
UMFERÐ 4: * Heklið 1 fl í hvora af næstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 32 fl.
UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í hverja fl = 32 fl.
UMFERÐ 6: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 40 fl.
UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hverja fl = 40 fl.
UMFERÐ 8: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 9 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 44 fl.
UMFERÐ 9-14: Heklið 1 fl í hverja fl = 44 fl í umf – en í lok síðustu umf er skipt yfir í litinn grár – LESIÐ LITASKIPTI.
UMFERÐ 15: Heklið 1 fl í hverja fl = 44 fl.
UMFERÐ 16: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 9 fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 40 fl.
UMFERÐ 17-18: Heklið 1 fl í hverja fl = 40 fl.
UMFERÐ 19: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 3 fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 32 fl.
UMFERÐ 20-21: Heklið 1 fl í hverja fl = 32 fl í umf.
UMFERÐ 22: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 2 fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl.
UMFERÐ 23-24: Heklið 1 fl í hverja fl = 24 fl í umf.
UMFERÐ 25: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 2 fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl.
UMFERÐ 26-27: Heklið 1 fl í hverja fl = 18 fl í umf. Klippið frá og haldið eftir 30 cm fyrir frágang. Fyllið búkinn með vatti.

FÓTUR:
Stykkið er heklað í hring með heklunál nr 4. Byrjið lengst niðri á fæti með því að gera galdrahring með litnum rauður.
UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um galdrahringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 12 fl.
UMFERÐ 3: * Heklið 1 fl í næstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl.
UMFERÐ 4 og 5: Heklið 1 fl í hverja fl = 18 fl í umf.
UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 5 fl, * heklið 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar (alls 4 úrtökur), síðan 1 fl í hverja af síðustu 5 fl í umf = 14 fl.
UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, * heklið 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar (alls 4 úrtökur), síðan 1 fl í hverja af síðustu 3 fl í umf = 10 fl.
UMFERÐ 8 og 9: Heklið 1 fl í hverja fl = 10 fl í umf – en í lok síðustu umf er skipt yfir í grár – LESIÐ LITASKIPTI.
Heklið nú 1 fl í hverja fl þannig: * Heklið 2 umf með litnum grár, 2 umf með litnum rauðum *, endurtakið frá *-* þar til það verða alls 3 rendur með litnum rauður, heklið nú 2 umf til viðbótar með litnum rauður (fóturinn mælist ca 10 cm). Klippið frá og haldið eftir 20 cm fyrir frágang.
Heklið hinn fótinn á sama hátt. Fyllið fótinn með vatti.

HANDLEGGUR:
Stykkið er heklað í hring með heklunál nr 4. Byrjið lengst niðri á handlegg með því að gera galdrahring með litnum rauður.
UMFERÐ 1: Heklið 4 fl um galdrahringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 8 fl.
UMFERÐ 3: * Heklið 1 fl í næstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl.
UMFERÐ 4 og 5: Heklið 1 fl í hverja fl = 12 fl í umf.
UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í næstu fl, heklið 2 næstu fl saman, endurtakið frá *-* umf hringinn = 8 fl – skiptið yfir í litinn grár í lok umf.
Heklið nú 1 fl í hverja fl með litnum grár þar til handleggurinn mælist ca 9 cm. Klippið frá og haldið eftir 20 cm fyrir frágang. Heklið annan handlegg á sama hátt. Fyllið með vatti.

SKOTT:
Heklið ll í ca 22 cm með litnum grár með heklunál nr 4 (fjöldi l á að vera jafn), snúið við og heklið 1 kl í 2. ll frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 ll, 1 kl í næstu ll *, endurtakið frá *-* meðfram allri ll-umf, klippið frá og haldið eftir 20 cm fyrir frágang.

FRÁGANGUR:
Saumið niður höfuðið á búkinn með fínu spori. Saumið fæturna og hendurnar í hvorri hlið á búk, saumið skottið aftan á búk.

AXLABÖND:
Heklið 3 ll með litnum rauður með heklunál nr 4. Heklið 1 fl í 2. ll og 1 fl í næstu ll. Byrjið hverja umf með 1 ll og heklið fl fram og til baka þar til stykkið mælist 14 cm. Endið á 8 ll og 1 kl í síðustu fl í umf. Klippið frá. Heklið annað band til viðbótar. Saumið niður í byrjun á síðustu umf með litnum rauður, (buxur) aftan á músinni með ca 4 cm millibili. Saumið tvær tölur í síðustu umf með litnum rauður á músinni ca 3,5 cm frá miðju að framan og festið í ll-hringinn á axlaböndunum í kringum tölur.
Axlaböndin eiga að vera í kross aftan á baki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.12.2021
Leiðrétting undir HÖFUÐ, 4 umferðir hafa verið fjarlægðar (til að fá betra form á höfuðið).
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-990

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Carmen wrote:

Hola, cuál es el punto e. (p.e) que se usa para tejer la cola? No aparece en los tutoriales ni en el diccionario. gracias!

05.08.2022 - 16:23

DROPS Design answered:

Hola Carmen, p.e es punto enano, también llamado punto bajísimo. Puedes ver cómo trabajarlo en la siguiente lección: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=20&cid=23

07.08.2022 - 23:59

country flag Sofia wrote:

Jag får inte mönstret att stämma på huvudet. Det blir långt och spetsigt baktill, inte alls runt som på bilden. Har det i beskrivningen kommit in för många varv? Jag är säker på att jag virkat rätt.

04.12.2021 - 08:41

DROPS Design answered:

Hei Sofia. Oppskriften er oversendt design avd. slik at de kan ta en dobbeltsjekk og evnt komme med en rettelse. Men du kan evnt hoppe over omgang 21. 23, 25 og 27. Da vil bakhodet bli noe flatere. mvh DROPS Design

07.12.2021 - 12:50

country flag Cricri692 wrote:

Bonjour et merci pour ce joli modèle ! Pourriez vous nous donner les explications pour terminer la queue et qu'elle soit comme sur la photo svp ! Merciii

07.06.2019 - 19:45

DROPS Design answered:

Bonjour Cricri692, crochetez bien la queue comme expliquée, autrement dit, commencez par 1 mc dans la 2ème ml à partir du crochet, puis *sautez 1 maille en l'air, 1 maille coulée dans la maille en l'air suivante*, répétez de *-* tout le long de la chaînette, on va ainsi former une petite spirale, comme sur la photo. Bon crochet!

11.06.2019 - 09:52

country flag Gabi wrote:

Ein großes Lob und Danke von mir für die Anleitung, Ich habe noch nicht viele Tiere gehäkelt, aber dies ist mit Abstand die beste und verständlichste Anleitung, die ich bisher nachhäkeln durfte. Da können sich Einige, die ihre Anleitungen verkaufen, noch eine dicke Scheibe abschneiden.

06.05.2019 - 13:30

country flag FORESTIER Monique wrote:

Bonjour, je ne sais pas comment placer la tète sur le corps.Merci pour tous les magnifiques modèle s

16.03.2019 - 15:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Forestier, placez la tête au-dessus du haut du corps (comme on le voit sur la 2ème photo), et avec une aiguille à coudre et le fil gris (les 30 cm de la fin du corps), assemblez la tête au corps en piquant alternativement dans les mailles de la tête et dans les mailles et dans celles du dernier rang du corps en faisant tout le tour. Maintenez la tête en place, vous pouvez épingler dans un premier temps si besoin pour ajuster la position de la tête. Bon assemblage!

18.03.2019 - 08:43

country flag "> wrote:

">

04.01.2019 - 15:22

country flag Margareta wrote:

Hur tvättar man alla virkade leksaker, som är stoppade med vadd och gjorda av bomull och akryl?

19.11.2018 - 21:48

DROPS Design answered:

Hei Margareta. det står vaskeanvisning på alle våre garn. Bomullsgarnet Paris feks kan vaskes på 60 grader, mens Safran vaskes på 40. Du kan finne vaskeanvisning til alle våre garn ved å klikke deg inn på dem her . Når det kommer til vatten må du nesten frohøre deg med forhandleren av dette, vi har dessverre ingen oversikt over det. God fornøyelse.

23.11.2018 - 11:16

country flag Lucie wrote:

Merci de votre réponse si rapide. Nous ne nous sommes pas compris il me semble. Je ne recherche pas une souris à faire au tricot mais un modèle de souris à faire au crochet, mais cette souris en question tricote elle même (j’ai une photo mais je ne peux visiblement pas la joindre pour illustrer mon propos.)

10.08.2018 - 15:43

DROPS Design answered:

Bonjour Lucie, vous trouverez tous nos modèles de jouets ici. Bon crochet!

13.08.2018 - 10:50

country flag Lucie wrote:

Bonjour, Je suis actuellement a la recherche de ce type de modèle de souris mais je recherche précisément une petite souris blanche qui porte une robe rose et qui tricote, auriez-vous ce type de modèle ? Cordialement

10.08.2018 - 11:18

DROPS Design answered:

Bonjour Lucie, nous avons un lapin au tricot mais pas de souris blanche habillée, désolée.

10.08.2018 - 15:13

country flag Lies wrote:

Hallo liebes Drops-Team, ich habe bei einer Händlerin in Berlin die Drops Big Merino in Farbe 02 und 18 gekauft. Beim Häkeln habe ich gemerkt, dass der Faden von Farbe 18 teilweise kaputt war. Immer wieder gab es Stellen, wo mehrere Teilfaden durch waren, aber nicht der komplette Faden. Die Händlerin war sehr freundlich und hat mir neue Wolle gegeben. Ich wollte den Vorfall aber trotzdem bei Ihnen als Hersteller melden.

16.10.2017 - 14:30

DROPS Design answered:

Liebe Lies, so haben Sie es richtig gemacht, der Laden wird uns darüber besprechen. Viel Spaß beim stricken!

16.10.2017 - 15:32