DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-938
DROPS Design: Mynstur nr ne-015-bn
Garnflokkur C
--------------------------------------------------------

KÁPA:
Stærð: 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærð í cm: 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

Efni:
DROPS ♥ YOU #4 frá Garnstudio
400-450-500-550-600 gr litur nr 0607, ljós beige
50-50-50-50-50 gr litur nr 0282, beige

Eða notið:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
400-450-500-550-600 gr litur nr 0618, brúnn camel
50-50-50-50-50 gr litur nr 0206, ljós beige

DROPS HEKLUNÁL NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 12 st og 6 umf verði = 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 5 – fyrir skrautvasa.
DROPS KÓKOSTALA NR 515: 5-5-5-6-6 stk.

HÚFA:
Stærð: 3/5 - 6/9 - 10/12 ára
Höfuðmál: 50/52 - 52/54 - 54/58 cm

Efni:
DROPS ♥ YOU #4 frá Garnstudio
100-100-100 gr litur nr 0607, ljós brúnn
Afgangur af lit nr 0282, beige til skreytinga.

Eða notið:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
100-100-100 gr litur nr 0618, brúnn camel
Afgangur af lit nr 0206, ljós beige til skreytinga.

DROPS HEKLUNÁL NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 12 st og 6 umf verði = 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR/KÁPA:
Fyrsta st í umf er skipt út fyrir 3 ll.

ÚRTAKA/KÁPA:
Fækkið um 1 st með því að hekla 2 st saman þannig:
Heklið 1 st í fyrsta st, bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næsta st, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er það dregið í gegnum allar 3 l á heklunálinni.
Fækkið um 2 st með því að hekla 3 st saman þannig:
Heklið 1 st í fyrsta st, bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næsta st, bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næsta st, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 4 l á heklunálinni.

HEKLLEIÐBEININGAR/HÚFA:
Allar umf með st byrja á 3 ll í stað fyrsta st. Allar umf enda á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.
Allar umf með fl byrja á 1 ll í stað fyrstu fl. Allar umf enda á 1 kl í 1. ll frá byrjun umf.

ÚTAUKNING/HÚFA:
Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í sama st.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KÁPA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Heklið 61-63-68-73-78 ll með litnum brúnn með heklunál nr 6. Snúið við og heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, haldið áfram með st í hvern af næstu 2-4-4-4-4 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hvern af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 48-50-54-58-62 st – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR/KÁPA! Haldið áfram með st í öllum umf.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 15 cm, fækkið um 1 st í hvorri hlið með því að hekla 2 næst síðustu st saman – SJÁ ÚRTAKA/KÁPA! Endurtakið úrtöku með 5-5-6-6-7 cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 40-42-46-50-54 st. Þegar stykkið mælist 33-36-39-42-45 cm, fellið nú af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Heklið kl yfir fyrstu 2-2-3-4-5 st, heklið nú þar til 2-2-3-4-5 st eru eftir, snúið við. Haldið áfram með st, nú eru 36-38-40-42-44 st í umf.
Heklið nú áfram þar til stykkið mælist 47-51-55-59-63 cm. Heklið nú 1 umf með st einungis yfir síðustu 12-13-13-14-14 st í hvorri hlið fyrir öxl (miðju 12-12-14-14-16 st = hálsmál). Klippið frá.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið 34-36-38-41-43 ll með litnum brúnn með heklunál nr 6, snúið við og heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, haldið áfram með 1 st í hverja af næstu 5-2-4-2-4 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 27-28-30-32-34 st. Haldið áfram með st í öllum umf (þær 3 síðustu st við miðju að framan = kantur að framan). Þegar stykkið mælist 15 cm, byrjar úrtaka í hlið eins og á bakstykki. Þegar úrtöku er lokið eru 23-24-26-28-30 st eftir í umf. Þegar stykkið mælist 33-36-39-42-45 cm, heklið ekki lengur yfir síðustu 2-2-3-4-5 st í hlið. Haldið áfram með st yfir síðustu 21-22-23-24-25 st. Þegar stykkið mælist 43-47-50-54-57 cm, heklið ekki lengur yfir síðustu 7-7-8-8-9 st við miðju að framan. Fækkið nú um 1 st við miðju að framan á 2 næstu umf með því að hekla 2 næst síðustu st við miðju að framan saman = 12-13-13-14-14 st eftir á öxl. Klippið frá þegar stykkið mælist 48-52-56-60-64 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd.

ERMI:
Heklið 32-32-32-39-39 ll með litnum brúnn með heklunál nr 6. Snúið við og heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið nú 1 fl í hverja af næstu 5-5-5-2-2 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 fl í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 26-26-26-31-31 fl (ll sem snúið við var við með eru ekki taldar sem 1 fl hér). Snúið við og haldið áfram með 1 st í hverja fl. Þegar stykkið mælist 10 cm, aukið út um 1 st í hvorri hlið með því að hekla 2 st í næst síðasta st. Endurtakið útaukningu í 2.-2.-2.-3.-3. hverri umf 3-4-5-4-5 sinnum til viðbótar = 34-36-38-41-43 st.
Þegar stykkið mælist 26-30-34-37-41 cm, byrjar útaukning fyrir er ermakúpu. Heklið kl yfir fyrstu 3 st, síðan eru st heklaðir fram þar til 3 st eru eftir, snúið við. Heklið 3 ll, heklið næstu 3 st saman – SJÁ ÚRTAKA! Heklið st þar til 4 st eru eftir, heklið 3 næstu st saman, heklið síðan 1 st í síðasta st, haldið svona áfram með að hekla 3 næst síðustu st saman í hverri umf þar til stykkið mælist 33-37-41-45-49 cm, klippið frá.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma, hliðarsauma og ermasauma kant í kant svo ekki myndist þykkur saumur. Saumið síðan ermar í fram- og bakstykki. Saumið tölur í vinstra framstykki, efsta talan ca 2 cm frá hálsmáli/byrjun á kraga, sú neðsta ca 12 cm frá neðri brún. Staðsetjið þær tölur sem eftir eru á milli þessa 2 talna. Tölum er hneppt í gegnum kant að framan í hægra framstykki.

KRAGI:
Heklið ca 35-50 fl í kringum hálsmálið með litnum brúnn með heklunál nr 6. Haldið áfram með 1 fl í hverja fl þar til kraginn mælist ca 6-7-7-8-8 cm. Klippið frá og festið enda.

AFLÍÐANDI SAUMUR:
Saumið aflíðandi saum með litnum beige undir brjósti og aftan á baki. ca 1-2 cm neðan við handveg. Saumurinn nær yfir ca 1,5 x 1,5 cm.

SKRAUTVASI:
Heklið 18-18-20-20-22 ll (meðtalin 1 ll til þess að snúa við með) með heklunál nr 6 með litnum brúnn. Heklið 1, umf þannig: Heklið 1 fl í 2. ll, 1 fl í hverja og eina af næstu 2 ll, hoppið yfir 1 ll, * 1 fl í hverja af næstu 3 ll, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-* og endið á að hekla 1 fl í hverja af síðustu 1-1-3-3-1 ll = 13-13-15-15-16 fl. Heklið nú 1 fl í hverja fl þar til heklaðir hafa verið ca 6-6-6-7-7 cm. Klippið frá.
Heklið annan skrautvasa til viðbótar á sama hátt.
Saumið skrautvasana ca 3-5 cm undir aflíðandi sauminn við miðju á framstykki. Saumið með fínu spori í efri kant á vasanum og setjið eitt spor í hvert horn að neðan.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið í kringum kantinn á allri kápunni með litnum beige með heklunál nr 6. Byrjið við miðju að aftan við kraga. Heklið 1 fl, * 1 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* kringum kragann, niður meðfram framstykki, í kringum kantinn neðst niðri og upp meðfram framstykki og aftur aftan við kraga. Endið á 1 kl í byrjun umf. Heklið alveg eins neðst niðri á ermum og í kringum lausu kantana á vösum.

HEKLAÐUR KANTUR (í kringum handveg):
Heklið kant í kringum ermi, rétt við efri brún þar sem ermin var saumuð föst á fram- og bakstykki. Notið heklunál nr 6 og litinn beige og byrjið undir ermi. Heklið 1 fl, * 1 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl *, endurtakið frá *-* umf í kringum allan handveginn og endið á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður.

HÚFA:
Heklið 4 ll með heklunál nr 6 með litnum brúnn og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 1: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR/HÚFA! Heklið 8 st um hringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 2 st í hvern st umf hringinn = 16 st.
UMFERÐ 3: * Heklið 1 st í fyrsta st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 st.
UMFERÐ 4: * Heklið 1 st í hvorn af fyrstu 2 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 32 st.
UMFERÐ 5: * Heklið 1 st í hvern af fyrstu 3 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 40 st.
UMFERÐ 6: * Heklið 1 st í hvern af fyrstu 4 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 st.
UMFERÐ 7: * Heklið 1 st í hvern af fyrstu 5 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 56 st. Hér enda útaukningar í stærð 3/5 ára.
UMFERÐ 8: EINUNGIS HEKLUÐ FYRIR STÆRÐ 6/9 -10/12 ára: Heklið 1 stí hvern st JAFNFRAMT er aukið út um 3-6 st jafnt yfir - LESIÐ ÚTAUKNING! 59-62 st.
ALLAR STÆRÐIR: Heklið 1 st í hvern st í hverja umf þar til stykkið mælist ca 18-19-20 cm. Skiptið yfir í litinn beige, heklið 1 fl í hvern st umf hringinn. Klippið frá og festið enda.

HEKLAÐ BLÓM:
Heklið 6 ll með litnum brúnn með heklunál nr 6 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, 1 hst um hringinn, * 7 ll, 1 kl í gegnum 2 þræðina á framhlið á fyrri hst, 2 hst um hringinn, * endurtakið frá *-* þar til komnir eru 5 ll-bogar, 7 ll, 1 kl í gegnum 2 þræðina á framhlið á fyrri hst, 1 hst um hringinn og endið á 1 kl í 1. ll frá byrjun umf.
UMFERÐ 2: Heklið kl fram að fyrsta ll-boga. Heklið 1 ll, heklið 12 hst um bogann, * heklið 12 hst um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* um alla ll-boga og endið á 1 kl í 1. ll frá byrjun umf. Klippið frá og dragið þráðinn í gegn.
UMFERÐ 3: Skiptið yfir í litinn beige og byrjið á 1 kl í annan hst í 1. umf, 1 ll, 1 fl í sömu l. Brjóttu ll-bogann að þér og heklaðu 1 fl um einn af þráðunum á bakhlið á öllum hst (efri hlutinn á hst frá fyrri umf snúast þá fram og sjást vel frá framhlið). Á milli allra boga er heklað 1 mjög laus fl í annan hst frá 1. umf. Endið á 1 kl í fyrstu ll frá byrjun umf. Klippið frá og dragið þráðinn í gegn.

FRÁGANGUR:
Saumið blómið á húfuna. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-938

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Ulrika wrote:

Hej jag kan inte hitta knapparna hos er? I kokos? Vilken storlek är det på dem? Och vilka är likvärdiga som dem? Mvh

15.02.2020 - 22:09

DROPS Design answered:

Hej Det är knapp 515 som är 20 mm i diameter och du hittar den under knappar på vår hemsida. Lycka till!

17.02.2020 - 09:27

country flag Ingrid wrote:

,Hejsan! Har gjort denna söta kappa till mitt barn-barn, stor succé. Nu skulle jag ville göra en likadan till mig själv? Hur ska man göra för att få till en stl 38-40?? Vänliga hälsningar Ingrid

14.04.2018 - 18:01

DROPS Design answered:

Tyvärr har vi inte just nu resurser att räkna om mönstret till vuxen stl. Se gärna på våra andra virkmönster i vuxen storlek.

17.04.2018 - 13:39

country flag Myriam Le Corre wrote:

Bonjour comment assemblez vous les côtés de la veste et des manches au crochet ou à l' aiguille à coudre? merci de votre aide

18.09.2016 - 17:40

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Le Corre, les 2 peuvent être envisagés, au choix, en tous les cas à ce que la couture ne soit pas trop épaisse, quelle que soit la technique que vous choisissez. Bon crochet!

19.09.2016 - 09:49

country flag Anna wrote:

Ja det läste jag med i mönstret. Så det är inte meningen att man ska göra knapphål då?

04.11.2015 - 20:31

DROPS Design answered:

Nej det är inte meningen, de knäpps bara genom framkanten.

05.11.2015 - 12:20

country flag Anna wrote:

Hej. Ska det inte vara knapphål på kappan? Det står ingenstans att man ska göra knapphål men det står hur man ska sy i knapparna??! Ska knapparna knäppas genom maskorna i kappan bara??

31.10.2015 - 21:33

DROPS Design answered:

Hej Anna, ja precis "Knapparna knäpps genom framkanten på höger framst" Lycka till!

02.11.2015 - 10:07

country flag K.winnemuller wrote:

Ik heb dit vest voor mijn kleindochter gemaakt geweldig het staat haar zo mooi. Nu wil ik van dezelfde wol en voor een jongetje van bijna 2 jaar een truitje maken met een capuchon en voorsluitng met grote knopen. Hebben jullie daar een patroontje van?

21.11.2014 - 19:07

DROPS Design answered:

Hallo. Wij hebben maar een paar gehaakte truien/vesten, klik hier voor het zoekresultaat. Of u kunt proberen dit patroon aan te passen voor een jongetje.

27.11.2014 - 16:08

country flag Irene Heed Dalman wrote:

Hur ska man göra "knapphålen" på Matilda barnkappa?

09.11.2014 - 10:26

DROPS Design answered:

Hej Ireen. Knapparna knäpps genom framkanten på höger framst

10.11.2014 - 11:20

country flag Desiré wrote:

Ik heb deze als beginner gehaakt voor 3/5 jaar. Helaas vond ik hem met toer 7 erbij echt nog te groot. Daarna nog een x gehaakt, maar dan tot toer 6 en toen gestopt met meerderen. Heb er tot 2 x toe een roze toer doorheengehaakt. Resultaat is echt super!! De maat is perfect voor een 3-5 jarige en voor een beginner ook heel goed te haken dit!! Dit wordt echt mn favo muts patroon ben ik bang!! Dank je wel Garnstudio!

29.12.2013 - 18:57