DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6336.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Autumn Love

Prjónuð peysa úr DROPS ♥ YOU #4 eða DROPS Nepal, prjónuð ofan frá og niður og með laskalínu, gataumferðum og snúru. Stærð S - XXXL

DROPS Extra 0-937
DROPS Design: Mynstur nr ne-135
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS DROPS ♥ YOU #4 frá Garnstudio
450-500-550-600-650-700 gr litur nr 2920, appelsínugulur

Eða notið:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
450-500-550-600-650-700 gr litur nr 2920, appelsínugulur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR NR 5,5 (80 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 16 l og 20 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR NR 5 (80 cm) – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6336.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING:
Prjónað fram og til baka: Aukið út um 1 l frá réttu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br.
Prjónað í hring: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn sl.

ÚRTAKA:
Fækkað er um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, 2 l sl (prjónamerkið er staðsett á milli þessa l), prjónið næstu 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fyrst er prjónað fram og til baka þar til fitjað er upp fyrir framstykki, síðan er prjónað í hring.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 48-50-52-52-52-58 l á hringprjóna nr 5,5 með litnum appelsínugulur.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið allar l br. Setjið 1 prjónamerki 8-8-8-8-6-6 l inn frá hvorri hlið (= 8-8-8-8-6-6 l á ermi í hvorri hlið, 32-34-36-36-40-46 l á bakstykki á milli prjónamerkja). Látið prjónamerkin fylgja með stykkinu.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 2 l sl, * aukið út um 1 l – LESIÐ ÚTAUKNING, prjónið sl þar til 2 l eru eftir á undan næsta prjónamerki, aukið út um 1 l, prjónið 4 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa l), aukið út um 1 l, prjónið sl þar til 2 l eru eftir á undan næsta prjónamerki, aukið út um 1 l, prjónið 4 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa l), aukið út um 1 l *, prjónið sl þar til 2 l eru eftir á prjóni, aukið út um 1 l, prjónið 2 l sl = 6 l fleiri. Fitjið nú upp 4 l á prjóninn fyrir framstykki = 58-60-62-62-62-68 l á prjóni.
UMFERÐ 3: Prjónið br, í lok umf eru fitjaðar upp 4 l = 62-64-66-66-66-72 l. Setjið 1 nýtt prjónamerki 4 l inn frá hvorri hlið (= 4 l á framstykki í hvorri hlið, alls 4 prjónamerki í stykkinu).
UMFERÐ 4: Prjónið 6 l sl, (1. prjónamerki er staðsett á eftir 4 fyrstu l), endurtakið frá *-* frá 2. umf, prjónið sl þar til 2 l eru eftir á undan síðasta prjónamerki, aukið út um 1 l, prjónið 6 l sl (síðasta prjónamerki er staðsett á undan 4 síðustu l)= 6 l fleiri. Fitjið upp 4 l = 72-74-76-76-76-82 l á prjóni.
UMFERÐ 5: Prjónið allar l br, í lok umf eru fitjaðar upp 4 l = 76-78-80-80-80-86 l (= 8 l á framstykki í hvorri hlið).
UMFERÐ 6: Prjónið 10 l sl, (1. prjónamerki er staðsett á eftir 8 fyrstu l), endurtakið frá *-* frá 2. umf, prjónið sl þar til 2 l eru eftir á undan síðasta prjónamerki, aukið út um 1 l, prjónið 10 l sl = 6 l fleiri (síðasta prjónamerki er staðsett á undan 8 síðustu l). Fitjið upp 11-12-13-13-15-18 l = 93-96-99-101-110 l á prjóni.
UMFERÐ 7: Prjónið br, í lok umf eru fitjaðar upp 11-12-13-13-15-18 l = 104-108-112-112-116-128 l á prjóni (= 19-20-21-21-23-26 l á framstykki í hvorri hlið, 38-40-42-42-46-51 l á bakstykki og 14-14-14-14-12-12 l á hvorri ermi). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið nú stykkið í hring þannig:
UMFERÐ 1: * Prjónið sl þar til 2 l eru eftir á undan næsta prjónamerki, aukið út um 1 l, prjónið 4 sl l (prjónamerkið er staðsett á milli þessa l), aukið út um 1 l *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 sinnum), prjónið þær l sem eftir eru slétt = 8 fleiri l.
UMFERÐ 2: Prjónið slétt.
Aukið nú út um 8 l í umf á sama hátt – þ.e.a.s. aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki – í annarri hverri umf 10-11-12-17-20-21 sinnum til viðbótar (= alls 11-12-13-18-21-22 útaukningar á framstykki), síðan í 4. hverri umf alls 3-3-3-1-0-0 sinnum. Þegar útaukningu er lokin eru 216-228-240-264-284-304 l á prjóni (= 66-70-74-80-88-96 l á framstykki og á bakstykki, 42-44-46-52-54-56 l á hvorri ermi). ATH! Setjið 1 prjónamerki fyrir miðju á framstykki (merkir framstykki sem hefur styttri búklengd).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað í hring. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 66-70-74-80-88-96 l á framstykki, * setjið næstu 42-44-46-52-54-56 l (= ermi) á þráð. Fitjið upp 6-8-10-12-14-16 l fyrir handveg *, prjónið næstu 66-70-74-80-88-96 l á bakstykki, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 144-156-168-184-204-224 l á prjóni. Prjónið nú sléttprjón yfir allar l. Þegar stykkið mælist 57-59-60-62-64-66 cm alls á hæðina (mælt á bakstykki) skiptið yfir á hringprjóna nr 5. prjónið 1 umf br, 1 umf sl, 1 umf br og fellið af með sl í næstu umf.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna nr 5,5.
Fitjið upp 3-4-5-6-7-8 l á sokkaprjóna með litnum appelsínugulur, prjónið upp 42-44-46-52-54-56 l af þræði frá annarri erminni. Fitjið upp 3-4-5-6-7-8 l á sokkaprjóna = 48-52-56-64-68-72 l alls (= 6-8-10-12-14-16 l fyrir handveg). Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). ATH: Stykkið er nú mælt héðan.
Prjónið nú sléttprjón hringinn í 3 cm. Í næstu umf er fækkað um 1 l – LESIÐ ÚRTAKA – hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið úrtöku með 5½-5-4-2½-2½-2 cm millibili 6-7-8-12-13-14 sinnum til viðbótar (alls 7-8-9-13-14-15 sinnum) = 34-36-38-38-40-42 l. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 41-40-40-39-39-38 cm. Í næstu umf er skipt yfir á sokkaprjóna nr 5, prjónið sl – JAFNFRAMT er aukið út um 10-8-10-10-12-10 l jafnt yfir í umf = 44-44-48-48-52-52 l. Prjónið nú stroff þannig: * Prjónið 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Þegar stroffið mælist 5 cm, fellið laust af allar l með sl yfir sl og br yfir br, ermin mælist ca 46-45-45-44-44-43 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðara axla).
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

HÁLSMÁL:
Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að framan. Byrjið við miðju að framan og takið upp frá réttu ca 90-110 l á hringprjóna nr 5,5 í kringum hálsmál. Prjónið að auki upp 1 lykkju til viðbótar í hvora af fyrstu 2 lykkjum sem voru prjónaðar upp. Með þessu kemur kanturinn við hálsmálið að skarast og opið við miðju að framan verður fallegra. Snúið við og prjónið sl til baka frá röngu. Snúið við og prjónið 2 fyrstu l slétt saman frá réttu, prjónið sl út umf. Snúið við og prjónið 2 fyrstu l br saman, prjónið br út umf. Snúið við og prjónið 2 fyrstu l slétt saman, 1 l sl, * 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn*, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 3 l sl. Snúið við og prjónið allar l og uppsláttinn slétt frá röngu. Fellið af með sl frá réttu. Hálsmálið mælist ca 3 cm.

SNÚRA:
Klippið 2 þræði ca 3 metra. Tvinnið þræðina saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá tvinnar hún sig aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda. Þræðið snúruna í gegnum gataumferðirnar.

Mynstur

symbols = prjónastefna
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-937

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

country flag Corina Avram wrote:

Hi! Please help me understand this part "Row 1 (= WS): P all sts. Insert 1 marker 8-8-8-8-6-6 sts in from each side (= 8-8-8-8-6-6 sts on sleeve in each side, 32-34-36-36-40-46 sts on back piece between markers)". What exactly happends after casting on and Purling one time? Thanks a lot!

30.01.2024 - 13:40

DROPS Design answered:

Dear Mrs Avram, after you have cast on all stitches, just purl all stitches, this will be the first row from wrong side, at the same time, insert markers to mark each part of the jumper. Happy knitting!

31.01.2024 - 08:12

country flag Stefania wrote:

Buongiorno, non riesco a capire la spiegazione per eseguire il raglan. ci sono 6 maglie aumentate ma non riesco a capire come vanno aumentate e i segni dove vanno inseriti. grazie per la vostra risposta. Non è il primo modello che eseguo, ma con questo proprio non riesco a capire.

08.02.2023 - 16:04

DROPS Design answered:

Buonasera Stefania, nelle spiegazioni del ferro 2 viene indicato il punto in cui eseguire gli aumenti; per lavorare gli aumenti deve seguire le indicazioni riportate nel paragrafo apposito. Buon lavoro!

11.02.2023 - 00:05

country flag Patricia wrote:

Bonjour, j'ai relevé les mailles pour faire le col et je ne comprends pas comment relever la maille supplémentaire dans chaque première maille relevée. Est ce que je dois faire ressortir une maille de la maille relevée ? Merci pour votre réponse.

23.11.2022 - 12:05

DROPS Design answered:

Bonjour Patricia, relevez ces 2 mailles derrière chacune des 2 premières mailles du tour, comme on le montre au time code 01:00 dans cette vidéo pour un col châle. Ainsi, les 2 premières mailles et les 2 dernières mailles du tour se chevauchent un tout petit peu. Bon tricot!

23.11.2022 - 15:59

country flag LUCQUIN Corinne wrote:

Où trouver le fil conseillé, à savoir drops you"4? Est-ce du coton ou de la laine, et par quoi le remplacer s'il vous plaît? merci...

14.03.2021 - 13:17

DROPS Design answered:

Bonjour Corinne, vous pouvez utiliser la laine DROPSLovesYou 8, DROPS Nepal ou chaque laine du group C. Bon tricot!

14.03.2021 - 18:49

country flag Louise wrote:

Bonjour, je tricote ce modèle en taille M. Je ne comprends pas comment réaliser le col. Comment fait-on pour relever 90 à 110 mailles (et combien exactement ?) alors qu'il n'y a que 50 mailles de montées au départ ? J'ai regardé la vidéo mais il y a le même nombre de mailles. Également, si l'on tricote en aller-retour, il y aura une couture pour finir ou bien c'est l'ouverture à l'avant indiquée dans les explications qui fait office ? Merci d'avance.

22.05.2019 - 07:43

DROPS Design answered:

Bonjour Louise, au début de ce pull, on tricote en allers et retours et on va augmenter pour le raglan mais également pour l'encolure devant = 4 m à la fin des rangs 2 à 5 puis 12 m à la fin des rangs 6 et 7. L'ouvrage se tricote en rond seulement après le 7ème rang. On aura donc suffisamment de mailles pour relever celles du col tout autour des mailles montées au début + celles montées de chaque côté pour l'encolure devant. Bon tricot!

22.05.2019 - 09:29

country flag Patricia Mendler wrote:

Liebes Drops Team, Ich habe noch nie eine solche gebogene Nähnadel gesehen. Und finde sie aber genial. Könnt Ihr mir sagen, wo ich eine solche Nadel bekommen kann. Hat sie einen spezielle Bezeichnung. Vielen Dank schon einmal Herzliche Grüße Patricia

12.02.2019 - 19:08

DROPS Design answered:

Liebe Frau Mendler, sicher kann Ihnen Ihr DROPS Laden weiterhelfen, nehmen Sie bitte Kontakt mit ihm - auch telefonisch oder per Email auf. Viel Spaß beim stricken!

13.02.2019 - 09:03

country flag Meike wrote:

Ich verstehe die 2. Reihe nicht. Auch weiß ich nicht was das * bedeutet. Wäre schön wenn sie mir das erklären könnten. Dankeschön

16.09.2018 - 04:26

DROPS Design answered:

Liebe Meike, die 2. Reihe wird einfach so gestrickt, wie beschrieben. Die * werden bei den nächsten Hinreihen gestrickt - siehe z.B. Reihe 4: man muss dann von *bis* der 2. Reihe stricken. Viel Spaß beim stricken!

17.09.2018 - 09:02

country flag Caroline wrote:

I would like to download/print this pattern 0-937 but the pdf is missing details on the righthand side of each page - it is not sizing correctly. Hope you can help ... Regards, Caroline

17.12.2016 - 18:32

DROPS Design answered:

Dear Caroline, we tested printing successfully to this pattern, make sure to check your printer's settings, try to refresh and empty your browser's cache - your DROPS store will be also able to help you. Happy knitting!

19.12.2016 - 09:13

country flag Cecilia Fernandez Perez wrote:

Me pueden aclarar la parte en la que dice "despues aum 8 pts en la vuelta de la misna manera a cada 2 vtas (en mi caso) 17 veces mas y que despues a cada 4° vta 1 veces. Y que deveria tener 264 pts en la aguja. Me e perdido en esta parte. Muchas gracias

22.03.2015 - 19:44

DROPS Design answered:

Hola Cecilia. Comenzamos con los aum cuando hay 112 pts para tu talla , ahora aum 144 pts (8 pts en la vta x un total de 18 vcs, cada 2ª vta) + 8 pts (8pts en la vta x 1 vez cada 4ª vta) = 112 + 144 + 8 = 264 pts.

26.03.2015 - 09:52

country flag Claudia wrote:

Wo genau befindet sich der Rundenbeginn nachdem ich zur Runde geschlossen habe? Eigentlich müsste die Runde in der Mitte des Vorderteils anfangen, jedoch heißt es bei der Einteilung für den Rumpf, dass bei Rundenbeginn ALLE Maschen des Vorderteils gestrickt werden.

29.01.2015 - 21:17

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, wo genau Sie die Rd beginnen, ist bei diesem Modell nicht so wichtig, Hauptsache, Sie kommen bei den Raglanzunahmen nicht durcheinander und beenden jede Runde. Da noch eine Halsblende angestrickt wird und nur glatt re gestrickt wird, ist der Rd-Beginn am Vorderteil hinterher nicht mehr sichtbar. Wenn Ihnen das lieber ist, können Sie den Faden aber auch neu ansetzen, am besten am Beginn des Vorderteils.

30.01.2015 - 10:04