DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 14520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Morning Mist Sweater

Prjónuð peysa með röndum úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL

DROPS 151-10
DROPS Design: Mynstur nr: z-650
Garnflokkur A+A
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
200-200-200-250-250-250 gr litur nr 9020, ljós perlugrár.
100-100-100-150-150-150 gr litur nr 100, natur.
Og einnig:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
75-75-75-75-75-75 gr litur nr 20, ljós beige.
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 10, grár
25-25-25-25-25-25 gr litur nr 01, natur.

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni og 17 l og 33 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm með 1 þræði af hvorri tegund.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 - (fyrir garðaprjón)

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 14520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*Prjónið 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið sléttprjón á prjóna nr 5 og skiptið yfir á prjóna nr 4 í garðaprjóni.
Alpaca litur nr 9020 og Kid-Silk nr 20 í sléttprjóni: 15-14½-15½-16-16-17 cm
Alpaca litur nr 9020 og Kid-Silk nr 10 í sléttprjóni: 8-8½-8½-9-9½-9½ cm
Alpaca litur nr 9020 og Kid-Silk nr 10 í garðaprjóni: 8-8½-8½-9-9½-9½ cm
Alpaca litur nr 9020 og Kid-Silk nr 20 í garðaprjóni: 5-5½-5½-5-5-5 cm
Alpaca litur nr 9020 og Kid-Silk nr 20 í sléttprjóni: 3-3-3-3½-4-4 cm
Alpaca litur nr 0100 og Kid-Silk nr 20 í sléttprjóni: 8-8½-8½-9-9½-9½ cm
Alpaca litur nr 0100 og Kid-Silk nr 01 til loka.

RENDUR Á ERMI:
Prjónið sléttprjón á prjóna nr 5 og skiptið yfir á prjóna nr 4 í garðaprjóni.
Alpaca litur nr 9020 og Kid-Silk litur nr 20 í sléttprjóni: 16-14½-14½-15-14-14 cm
Alpaca litur nr 9020 og Kid-Silk litur nr 10 í sléttprjóni: 8-8½-8½-8½-9-9 cm
Alpaca litur nr 9020 og Kid-Silk litur nr 10 í garðaprjóni: 8-8½-8½-8½-9-9 cm
Alpaca litur nr 9020 og Kid-Silk litur nr 20 í garðaprjóni: 5-5½-5½-5-5-5 cm
Eftir þetta eru rendurnar prjónaðar eftir röndum á fram- og bakstykki.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum hvoru megin við 4 prjónamerki.
Fækkið lykkjum á UNDAN prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á EFTIR prjónamerki þannig: Takið 1 l eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 l sl og steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið laust upp 142-164-176-192-204-220 l á hringprjóna nr 4 með 1 þræði í litnum ljós perlugrár Alpaca og 1 þræði í litnum ljós beige Kid-Silk. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og setjið 1 prjónamerki í hvora hlið = 71-82-88-96-102-110 l hvoru megin við prjónamerkin. Prjónið nú RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin í hliðum (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 3 cm millibili 5 sinnum til viðbótar (= alls 6 sinnum) = 118-140-152-168-180-196 l. Þegar stykkið mælist 25 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 2½-2½-3-3-3½-3½ cm millibili 4 sinnum til viðbótar (= alls 5 sinnum) = 138-160-172-188-200-216 l. Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm, fellið af 8 l frá réttu í báðum hliðum fyrir handveg (þ.e.a.s. 4 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 122-144-156-172-184-200 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið LAUST upp 38-40-42-44-46-48 l á sokkaprjóna nr 4 með 1 þræði í litnum ljós perlugrár Alpaca og 1 þræði í litnum ljós beige Kid-Silk. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan þar til stykkið mælist 3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5, setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Prjónið nú RENDUR Á ERMI – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 8-8-9-9-8-9 cm aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu með 4-3½-3-3-3-2½ cm millibili 7-8-9-9-10-11 sinnum til viðbótar (= alls 8-9-10-10-11-12 sinnum) = 54-58-62-64-68-72 l. Þegar stykkið mælist 40 cm í öllum stærðum eru felldar af 8 l fyrir miðju undir ermi (4 l hvoru megin við prjónamerkin) = 46-50-54-56-60-64 l eftir á prjóni. Geymið stykkið, prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 214-244-264-284-304-328 l. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli erma og fram- og bakstykkis (= 4 prjónamerki). Haldið síðan áfram með RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI yfir allar l – JAFNFRAMT er byrjað á LASKALÍNA (= 8 l færri) – sjá útskýringu að ofan!
Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 2-2-2-2-3-4 sinnum til viðbótar (= alls 3-3-3-3-4-5 sinnum) = 190-220-240-260-272-288 l. Setjið 1 nýtt prjónamerki, stykkið er mælt héðan! Í næstu umf er fækkað um 4-4-6-8-8-18 l jafnt yfir = 186-216-234-252-264-270 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 6-6-6-7-7-7 cm frá prjónamerki. Í næstu umf er fækkað þannig: * Prjónið 4 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* út umf = 155-180-195-210-220-225 l. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 11-11-12-13-13-13 cm. Í næstu umf er fækkað þannig: * 3 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* út umf = 124-144-156-168-176-180 l. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 15-16-17-18-18-18 cm. Skiptið yfir á minni hringprjóna eftir þörf. Næsta umf er prjónuð þannig:
STÆRÐ S: * Prjónið 2 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* út umf = 93 l.
STÆRÐ M: Prjónið 3 ls l, * 2 l sl, 2 l slétt saman, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* út umf og endið á 3 l sl = 98 l.
STÆRÐ L: * Prjónið 2 l sl, 2 l slétt saman, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* út umf = 104 l.
STÆRÐ XL: Prjónið 4 l sl, * 2 l slétt saman, 1 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* út umf og endið á 4 l sl = 104 l.
STÆRÐ XXL: Prjónið 3 l sl, * 2 l slétt saman, 1 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* út umf og endið á 3 l sl = 108 l.
STÆRÐ XXXL: Prjónið 2 l sl, * 2 l slétt saman, 1 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* út umf og endið á 3 l sl = 110 l.

ALLAR STÆRÐIR:
Klippið frá. Setjið 1 prjónamerki við miðju að framan. Byrjið við miðju að aftan og prjónið sl þar til 19-21-23-23-23-23 l eru eftir á undan prjónamerki, snúið við herðið á þræði og prjónið br frá röngu þar til 19-21-23-23-23-23 l eru eftir á undan prjónamerki. Snúið við og herðið á þræði og prjónið sl frá réttu þar til 33-35-37-37-37-37 l eru eftir á undan prjónamerki, snúið við herðið á þræði og prjónið br frá röngu þar til 33-35-37-37-37-37 l eru eftir að prjónamerki. Snúið við, herðið á þræði og prjónið sl frá réttu þar til 40-42-44-44-44-44 l eru eftir á undan prjónamerki, snúið við og herðið á þræði og prjónið br frá röngu þar til 40-42-44-44-44-44 l eru eftir á undan prjónamerki. Snúið við og prjónið sl yfir allar l í umf fram að miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 6 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið laust af. Stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm mælt við miðju að framan.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 06.08.2013
Nýtt efnismagn: DROPS ALPACA frá Garnstudio 200-200-200-250-250-250 litur nr 9020, ljós perlugrár

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (47)

country flag Pippilotta wrote:

Hallo, kann ich den Pullover auch nur mit Alpaka, ohne Kidsilk stricken?

11.01.2024 - 22:10

DROPS Design answered:

Liebe Pippilotta, dann sollen Sie mit 2 Fäden Alpaca stricken, damit die Maschenprobe stimmt. Benutzen Sie den Garnumrechner, um die neue Garnmenge kalkulieren zu lassen. Viel Spaß beim stricken!

12.01.2024 - 08:02

country flag Cristina wrote:

Buongiorno non mi è chiaro l'ultmo passaggio delle diminuzioni prima di tagliare il filio...

04.11.2022 - 12:23

DROPS Design answered:

Buonasera Cristina, in quel passaggio viene spiegato come lavorare le diminuzioni per le diverse taglie: in quale punto riscontra difficoltà? Buon lavoro!

13.11.2022 - 00:15

country flag Lisbeth K wrote:

Hei, på bildet av genseren ser det ut som om den har rundfelling, men i oppskriften står det raglanfelling. Hvilken felling skal egentlig brukes? Rundfelling er også et av stikkordene som er koblet til gensere. På forhånd takk for svar 😊

19.02.2021 - 12:50

DROPS Design answered:

Hej Lisbeth, Når du læser hele opskriften kan du se at vi starter med nogle raglanfellinger nærmest ærmegabet og senere på bærestykket bliver det til rundfelling :)

19.02.2021 - 13:34

country flag Anita Andersen wrote:

Er det muligt at lave trøjen lidt længere ? Jeg kunne godt tænke med at forlænge med ca 5 cm. Kan det så stadig komme til at passe med striberne på ærmerne?

07.02.2021 - 22:43

DROPS Design answered:

Hei Anita. Du kan fint strikke noen cm extra på de første stripene. Om de nederste stripene på ermene blir litt kortere enn bolen vil ikke ha så mye å si/vises, (men husk at garnmengden er utregnet fra de målene som er skrevet i oppskriften). mvh DROPS design

08.02.2021 - 14:29

country flag Rony Usenki Leget wrote:

Ik begrijp niet goed hoe ik de vier steken, van de mouw moet afkanten aan het eind van het rondje. Ik ben begonnen met vier steken, rondje afbreken tot vier steken voor het eind. Als je dan afkant, blijft er een losse steek in het midden over. Hoe kan dat anders?

30.12.2019 - 00:20

DROPS Design answered:

Dag Rony

Je kan tot het einde van het rondje breien, het werk keren en dan nog 4 steken afkanten.

04.01.2020 - 19:51

country flag Rita wrote:

Buongiorno...non capisco il significato della frase all’ interno della sezione sprone:”cambiare per il ferro circolare quando necessario”....in che senso?....decido io a mio piacimento di passare ai Ferri più piccoli per dare un miglior risultato al mio lavoro?

04.02.2019 - 11:55

DROPS Design answered:

Buongiorno Rita. Sullo sprone, il numero delle maglie si riduce per via delle diminuzioni. Può trovare più comodo lavorare con i ferri circolari corti al posto di quelli più lunghi. Buon lavoro!

04.02.2019 - 12:27

country flag Sus wrote:

I sidste del af opskriften, hvor man skal klip tråd og starte midt bagpå, driller mig, kan man ikke forsætte med nu værende tråd og vende 23(l) m før mærke midt på og strikke frem og tilbage?

26.11.2018 - 11:49

DROPS Design answered:

Hei Sus. Du skal strikke en forhøyning bak i nakken, og for at denne skal bli lik på begge sider må du begynne midt bak. Om du strikker frem til midt bak (isteden for å klippe tråden) vil du ikke ha strikket like mang omganger over alle maskene, og arbeidet blir ujevnt. God fornøyelse.

03.12.2018 - 09:15

country flag Nicki wrote:

Ich bin an der Stelle, wo ich den Faden abschneiden soll. Aber wie lang? Und wie strick ich dann weiter? Ich verstehe das Ende nicht. Ich freue mich auf eure Hilfe.

16.11.2018 - 21:53

DROPS Design answered:

Liebe Nicki, jetzt werden Sie die Erhöhung in der hinteren Mitte stricken. Die nächste Reihe wird in der hinteren Mitte anfangen = die Maschen abheben bis zur hinteren Mitte und mit dem Faden die Reihe von hier anfangen. Siehe hier wie man dann die Erhöhung strickt. Viel Spaß beim stricken!

19.11.2018 - 08:04

country flag Ninna Aamann wrote:

Når man har strikket kanten på 3 cm og skal lave første stribe på ryg og forstykke og man skal strikke ( str L ) 151/2 cm Er det så målt fra start altså med kanten eller skal striben være 151/2 cm ??

19.08.2018 - 09:11

DROPS Design answered:

Hej Ninna, alle mål er fra kanten, med mindre der står andet :)

20.08.2018 - 09:51

country flag Laura Caroline Vivi wrote:

Très beau pull et très chaud. Je l'adore. Mais il faut savoir que le rendu est plus foncé que sur la photo.

30.10.2016 - 10:45