DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2552.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 151-41
DROPS Design: Mynstur nr fa-251
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: S/M – L/XL
Höfuðmál: ca 54/56 - 58/60 cm

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
100-100 gr litur nr 547, grár/brúnn

HÁLSSKJÓL:
Stærð: S/M – L/XL
Mál:
Ummál að neðan: ca 118-126 cm.
Ummál að ofan: ca 30-32 cm.

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
100-150 gr litur nr 547, grár/brúnn

DROPS HRINGPRJÓNN (60 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l og 46 umf með garðaprjón verði 10 x 10 cm.
DROPS SKELJATALA MEÐ GATI, NR 525: 6 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2552.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti á fyrsta Dominoferningi. Byrjið á umf 8 frá byrjun (= 1. umf frá réttu yfir allar l) og fellið af þannig: 3 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman, 8-9 l sl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman og prjónið sl út umf (með úrtöku í Dominoferningi eins og áður).

STUTTAR UMFERÐIR (HÚFA):
Yfir síðustu 41-43 l (séð frá röngu) eru prjónaðar stuttar umf þannig:
UMFERÐ 1 = frá röngu: Prjónið 32-34 l sl, snúið við.
UMFERÐ 2 = frá réttu: Prjónið sl til baka.
UMFERÐ 3 = frá röngu: Prjónið 23-25 l sl, snúið við.
UMFERÐ 4 = frá réttu: Prjónið sl til baka.
UMFERÐ 5 = frá röngu: Prjónið sl yfir allar 41-43 l.
UMFERÐ 6 = frá réttu: Prjónið sl yfir allar l.
Endurtakið umf 1-6.

STUTTAR UMFERÐIR (HÁLSSKJÓL):
Yfir síðustu 46-50 l (séð frá röngu) á að prjóna stuttar umf þannig:
UMFERÐ 1 = frá röngu: Prjónið 21-25 l sl, snúið við.
UMFERÐ 2 = frá réttu: Prjónið sl til baka.
UMFERÐ 3 = frá röngu: Prjónið 14-17 l sl, snúið við.
UMFERÐ 4 = frá réttu: Prjónið sl til baka.
UMFERÐ 5 = frá röngu: Prjónið 4-6 l sl, snúið við.
UMFERÐ 6 = frá réttu: Prjónið sl til baka.
UMFERÐ 7 = frá röngu: Prjónið sl yfir allar 46-50 l.
UMFERÐ 8 = frá réttu: Prjónið sl yfir allar l.
Endurtakið umf 1-8.

DOMINOFERNINGUR:
Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á undan l með prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið sl út umf.
Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. að fækkið um 2 l fyrir miðju á ferningnum í annarri hverri umf þar til 1 l er eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum l.

LEIÐBEININGAR (á við um húfu):
Prjónið upp l meðfram hlið á ferningi yst í lykkjubogann. Þá verður húfan falleg í báðum hliðum og er því hægt að nota hana beggja vegna.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað frá hlið, fram og til baka á hringprjóna og saumað saman í lokin. Hægt er að snúa húfunni við og nota hana beggja vegna.

HÚFA:
Fitjið upp 78-80 l á hringprjóna nr 3,5 með Fabel.
Allar l eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá úrskýringu að ofan. Prjónið 1 umf slétt frá réttu yfir allar l. Prjónið nú (1. umf = ranga) þannig: * Prjónið DOMINOFERNINGUR – sjá útskýringu að ofan – yfir fyrstu 37-37 l, JAFNFRAMT eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan – yfir næstu 41-43 l. Haldið áfram þar til ferningurinn hefur verið prjónaður til loka, prjónið 1 umf slétt frá röngu yfir þær 41-43 l sem eftir eru. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sl yfir þær fyrstu 41-43 l, prjónið upp 19-19 l meðfram hlið á ferningi – LESIÐ LEIÐBEININGAR, fitjið upp 18-18 nýjar l á prjóninn = 78-80 l *. Endurtakið frá *-* þar til prjónaðar hafa verið alls 6-7 DOMINOFERNINGAR (á síðasta ferningi er fellt af með sl frá röngu þegar ferningurinn hefur verið prjónaður til loka).

FRÁGANGUR:
Saumið saman uppfitjunarkantinn og affellingarkantinn. Þræðið þráð í gegnum lykkjur meðfram kanti efst uppi og dragið húfuna saman.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað frá hlið, fram og til baka á hringprjóna.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 79-83 l á hringprjóna nr 3,5 með Fabel.
Allar l eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umf slétt frá réttu yfir allar l. * Prjónið nú (1. umf = rétta) þannig: Prjónið DOMINOFERNINGUR – sjá útskýringu að ofan – yfir fyrstu 33-33 l, JAFNFRAMT eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan – yfir næstu 46-50 l. Haldið áfram þar til ferningurinn hefur verið prjónaður til loka – munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar ferningurinn hefur verið prjónaður til loka er prjónuð 1 umf slétt frá röngu yfir þær l sem eftir eru. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sl yfir fyrstu 46-50 l, prjónið upp 17-17 l meðfram hlið á ferningnum, fitjið upp 16-16 nýjar l á prjóninn = 79-83 l *. Endurtakið frá *-* þar til prjónaðar hafa verið alls 16-17 ferningar (í síðasta ferningi er fellt af með sl frá röngu þegar ferningurinn hefur verið prjónaður). Saumið tölur í.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-41

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Mamieflo wrote:

Fini le domino 41m+1qui reste +les 19 montées sur le côté avec les 18 à monter ..il y an a UNE de trop pour moi! Et je ne sais pas trop COMMENT MONTER CES 19m pour moi c'est plutôt 18 après les 18 relevées et celle qui reste donc 19m et les 18 que je monte=37

16.05.2017 - 09:10

DROPS Design answered:

Cf réponse et lien ci-dessous pour un tuto en images. Bon tricot!

16.05.2017 - 10:47

country flag MamieFlo wrote:

ENFIN trouvé j'étais bloquée ,je m'arrêtais à 19m , la moitié du domino ! Ôter SVP le nom de Vire dans la vidéo du 15 mai et dans mon commentaire car par erreur j'ai fait cette demande dans un commentaire au lieu d'une question Merci

16.05.2017 - 08:13

DROPS Design answered:

Bonjour MamieFlo, je n'ai pas trouvé ce nom dans les commentaires/questions des vidéos, tout est donc en ordre.

16.05.2017 - 10:47

country flag MamieFlo wrote:

Bonjour, 3ème fois je défais. Je ne comprends pas "relever 19m et astuce tricot monter 18m " que faire de la 19ème , et moi ça fait tjrs une poche, je n'y arrive pas, c'est la 1ère fs.

16.05.2017 - 07:38

DROPS Design answered:

Cf réponse ci-dessous.

16.05.2017 - 10:46

country flag MamieFlo wrote:

J'ai trouvE où monter leS mailles mais cela fait une poche , un dôme quand le domino est fini. Je n'y arrive pas ! Pourriez vous aussi ôter mon nom dans la vidéo de ce matin merci

15.05.2017 - 17:11

DROPS Design answered:

Bonjour MamieFlo, vous trouverez ici un tuto en images montrant comment tricoter les dominos. N'hésitez pas à rejoindre le forum DROPS pour toute question complémentaire. Bon tricot!

16.05.2017 - 10:46

country flag Mamieflo wrote:

Bonjour,merci yeux fermés pendant les soins j'ai trouvé pù monter les 18 m merci bien. Ôter Svp le nom vire dans la vidéo de 09:36

15.05.2017 - 15:31

country flag Mamieflo wrote:

Pourriez-vous SVP ôter mes deux commentaires avec mon nom ou mettre Mamieflo à la place( j'ai toujours commenté avec ce nom depuis des années par courriel avant !

15.05.2017 - 09:56

DROPS Design answered:

Modification faite :)

15.05.2017 - 10:09

country flag Mamieflo wrote:

Bonjour je l'ai bien regardé ainsi que d'autres , faire des dominos... j'ai bien monté les mailles mais le rendu n'est pas le modèle . j'en suis au 3eme domino. Je n'y arrive décidément pas. je pars pour examens médicaux , je voulais continuer ce bonnet. Cordialement,

15.05.2017 - 09:54

DROPS Design answered:

Un tuto en images va être fait pour vous montrer comment tricoter le domino suivant. Merci d'avance pour votre patience.

15.05.2017 - 11:02

country flag Mamieflo wrote:

Bonjour Nathalie Etonnée d'avoir écrit en 2016. Le 23 déc.16, j' apprends que j'ai un cancer , pendant ce temps je tricote une très jolie robe terminée ce jeudi . Hier je commence le tour du cou , je rencontre des ennuis . vos explications, m'aident, j'en suis au 3 ème motif mais bizarre,mal monter les 18 mailles. Je ne sais plus faire les photos sur ce site

14.05.2017 - 23:31

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Vire, la vidéo ci-dessous montre comment monter des mailles en fin de rang - c'est ainsi que vous pourrez monter les 18 m. Bon tricot!

15.05.2017 - 09:36

country flag Mamieflo wrote:

J'ai tout défait et mal à la tête ! le montage des 78m compte donc pour l'endroit Rg0 puisque le Dg1=envers ( pas simple de reconnaître déj endr. env au pt mousse et sur ce 1er rg env. le domino est au début et tricoté sur les m puis 32m pour le raccourci MERCI bcp pr votre c'est bon

18.10.2016 - 17:46

DROPS Design answered:

Bonjour Mamieflo, on commence par 1 rang sur l'endroit, puis on continue sur l'envers: 1 domino sur les 37 premières m (mais on diminue pour le domino qu'aux rangs sur l'endroit) et les rangs raccourcis sur les 41 dernières m. Placez votre marqueur dans la m centrale, vu sur l'endroit, ainsi vous saurez plus facilement reconnaître l'endroit et l'envers au début. Bon tricot!

19.10.2016 - 09:18

country flag Mamieflo wrote:

IIIIIIIIIIIIIIIIII M IIIIIIIIIIIIIIIIII MARQUEUR m19 rg1 IIIIIIIIIIIIIIIII M IIIIIIIIIIIIIIIII MARQUEUR M18 rg3 Mon commentaire trop long a été tout effacé ; ( C'est la ligne du rg2 du domino qui me bloque ( sans doute pour rien ) Le marqueur doit donc CHANGER DE PLACE ? Merci bien

17.10.2016 - 19:14

DROPS Design answered:

Bonjour Mamieflo, au 1er rang (= sur l'envers), vous avez: 18 m, 1 m avec le marqueur, 18 m - 41 m (sur lesquelles vous allez tricoter les rangs raccourcis, soit uniquement 32 m au 1er rang). Au 2ème rang (= sur l'endroit), tricotez les 32 m, puis sur les 37 dernières m, tricotez le domino (on diminue 2 m, il reste 35 m). Le marqueur du domino doit bien rester dans la même maille qu'au début, et on va diminuer 2 m au milieu du domino (on glisse la m avant le marqueur, on tricote ens à l'end la m avec le marqueur et la m suivante et on passe la m glissée par-dessus la m tricotée). Bon tricot!

18.10.2016 - 10:11