Marie wrote:
Står det fel i detta mönster om dubbel mosstickning. När jag kollar ska det vara 2 rm o 2 am men i detta mönster står det bara 1 rm och 1 am?
07.05.2022 - 23:21DROPS Design answered:
Hei Marie. Se vårt svar på ditt forrige innlegg :) mvh DROPS Design
09.05.2022 - 11:22Marie wrote:
Det står att man ska sticka dubbel mosstickning men i beskrivningen verkar det inte vara dubbel. Står bara 1 rm och 1 am. Ska väl vara 2 av varje?
07.05.2022 - 23:16DROPS Design answered:
Hei Marie. Husk å lese beskrivningen til dobbel perlestrikk (dubbel moss-st). Da vil du se at dobbel perlestrikk i denne oppskriften er i høyden, altså 1. og 2. rad strikkes likt og 3. og 4. rad strikkes likt, så gjentas 1.-4. rad. Lykke til videre. mvh DROPS Design
09.05.2022 - 11:21Dorthe Liljegreen wrote:
Jeg er ved at strikke 149-14, men er i tvivl om forstykket, skal men tage ud i begge sider, alsåogså mod ryggen? Skal man også stadig tage ud mod midt, når man er igang med forkant
20.03.2022 - 15:13DROPS Design answered:
Hej Dorthe, du tager kun ud mod midt foran :)
22.03.2022 - 13:18Nguyen wrote:
Bonjour, Ce modèle est exactement ce que je recherche, mais je n'arrive pas à avoir la version française. Pourriez-vous m'aider ? Avec tous mes remerciements et mes félicitations pour votre site pour les explications des réalisations de tricot. Très cordialement. Nhu
22.03.2021 - 17:39DROPS Design answered:
Bonjour Nhu, cliquez sur le menu déroulant sous la photo (avec le petit globe) et sélectionnez la langue de votre choix. Bon tricot!
23.03.2021 - 08:28Marie Laurence Gardaz wrote:
Bonjour, Est ce que nous conseilleriez de tricoter des deux devant et le dos ensemble, en un seul bloc puis de continuer séparément à partir des emmanchures. Je me pose la question si ce modèle en Alpaca silk supporterait de ne pas avoir de couture latérales le long du corps. Est ce que cela influencerait la tenue de la jaquette ? Merci d'avance.
19.11.2020 - 21:20DROPS Design answered:
Bonjour Mme Gardaz, les coutures apportent effectivement une certaine stabilité, toutefois, nous avons de nombreux modèles en BabyAlpaca Silk qui se tricotent en une seule partie jusqu'aux emmanchures (sans coutures sur les côtés), il est fort probablement possible de tricoter ainsi. Bon tricot!
20.11.2020 - 08:35Monica wrote:
Jeg strikker dobbelt perlestrik i garn mayflower class 1 og arbejdet forskubber sig skråt sidelæns i stedet for kvadratisk, Hvad kan jeg gøre anderledes, maskeantal er lige antal, og strikker fra side til side og ikke rundpind. Håber i kan hjælpe, elsker jeres garn og jeres side. Mvh Monica.
24.11.2019 - 14:43DROPS Design answered:
Hei Monica. Garnet Mayflower class 1 kommer ikke fra oss og jeg kjenner ikke til dette garnet. Anbefaler deg til å kontakte leverandøren eller butikken du har kjøp garnet for å få noen tips. God Fornøyelse!
25.11.2019 - 08:18Eva Johnsson wrote:
Hej! Jag tycker detta är en väldigt trevlig modell med de insprängda ränderna! Men jag undrar hur man gör och hur många maskor man lägger upp på ärmen om man vill sticka den som en vanlig lång ärm utan sprund och knappar, kan det vara 60 maskor? Med vänliga hälsningar Eva
06.10.2019 - 13:56DROPS Design answered:
Hei Eva. Det kommer an på hvilken størrelse du skal strikke. Men i 60 masker i størrelse M kan stemme, bare husk kantmaskene, og at perlestrikken stemmer overens når ermsømmen skal sys sammen. God Fornøyelse!
07.10.2019 - 14:15Paola Pomioli wrote:
Salve, sono necessari i ferri circolari perché si lavora in tondo? Può darmi una spiegazione al riguardo per favore?
16.06.2018 - 11:13DROPS Design answered:
Buongiorno Paola. L'uso dei ferri circolari è molto diffuso soprattutto nei paesi del nord Europa. Questo modello è lavorato in parti separate, avanti e indietro sui ferri. Può sostituire i ferri circolari con quelli dritti. Le spiegazioni non cambiano. Buon lavoro!
16.06.2018 - 15:40Linda Peachey wrote:
I am swatching for this pattern and have had to go to a size 6 (4.00 mm) needle to get the stitch gauge. Is the fabric supposed to be a loose knit? I often have gauge difficulty with Drops patterns, so perhaps I am doing something wrong. Help, please?
28.12.2017 - 04:20DROPS Design answered:
Dear Linda, just as every knitter work with different gauge, we also have different preferencses (as how dense we like our knitted fabric). The pattern is written for the gauge that is given, however, if you prefer somewhat thighter texture, you will have to recalculate the stitch count. If you are having difficulty achieving gauge, you might want to try a different type of needle (like metallic, instead of bamboo, etc), or a different knitting style (continental instead of English, etc). I hope you can work it out, this sweater is so pretty it will worth it. Happy crafting!
29.12.2017 - 09:58
Lady of the Forest |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk með röndum, sléttprjóni og tvöföldu perluprjóni. Stærð S - XXXL
DROPS 149-14 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. TVÖFALT PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sl yfir sl og br yfir br. UMFERÐ 3: Prjónið br yfir sl og sl yfir br. UMFERÐ 4: Eins og umf 2. Endurtakið umf 1 til 4. LEIÐBEININGAR: Prjónið 1 umf á hægra framstykki áður en útaukning við miðju að framan byrjar. Prjónið 2 umf á vinstra framstykki áður en útaukning við miðju að framan byrjar (þ.e.a.s. að vinstra framstykki verður 1 umf lengra en hægra framstykki. Þannig er hægt að sleppa við að klippa af bandið í hvert skipti sem fitjaðar eru upp nýjar l í boga að framan). HNAPPAGAT Á FRAMSTYKKI: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af fjórðu og fimmtu l frá miðju að framan og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 7, 15, 22, 30, 37 og 46 cm STÆRÐ M: 8, 16, 24, 32, 40 og 49 cm. STÆRÐ L: 8, 17, 25, 33, 41 og 51 cm STÆRÐ XL: 8, 17, 25, 33, 41 og 51 cm STÆRÐ XXL: 9, 18, 26, 35, 43 og 53 cm STÆRÐ XXXL: 9, 18, 26, 35, 43 og 56 cm ATH: Síðasta hnappagatið er fellt af í 2 umf frá hálsmáli. RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI: * Prjónið 8½-9-9½-9½-10-10½ cm sléttprjón, 8½-9-9½-9½-10-10½ cm tvöfalt perluprjón *, endurtakið frá *-*, 2 sinnum til viðbótar = alls 3 rendur með tvöföldu perluprjóni. HNAPPAGAT Á ERMI: Fellt er af fyrir hnappagötum á stykki 1 á ermi. 1 hnappagat = fellið af fjórðu og fimmtu l frá miðju að framan og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: 2, 5, 8 og 11 cm í öllum stærðum. RENDUR Á ERMI: Prjónið 7½-7-6-5½-2-1 cm sléttprjón, 8½-9-9½-9½-10-10 cm tvöfalt perluprjón, 8½-9-9½-9½-10-10 cm sléttprjón, 16½-16-15-14½-15-14 cm tvöfalt perluprjón = alls 2 rendur með tvöföldu perluprjóni. ÚTAUKNING: Í byrjun á umf: Aukið út um 1 l á eftir 1 kantlykkju með því að taka upp þráðinn á milli 2 l frá fyrri umf – prjónið þessa l snúna, þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan til þess að koma í veg fyrir göt. Þessi nýja l er prjónuð snúin slétt ef næsta l er br og snúin br ef næsta l er sl. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Í lok umf: Aukið út um 1 l á undan 1 kantlykkju með því að taka upp þráðinn á milli 2 l frá fyrri umf – prjónið þessa l snúna, þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan til þess að koma í veg fyrir göt. Þessi nýja l er prjónuð snúin sl ef fyrri l er br og snúin br ef fyrri l er sl. ÚRTAKA: Í byrjun umf: Fækkað er um 1 l með því að prjóna 2 l saman á eftir 1 kantlykkju, prjónið l slétt saman ef næsta l er br, prjónið l br saman ef næsta l er sl. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Í lok umf: Fækkað er um 1 l með því að prjóna 2 l saman á undan 1 kantlykkju, prjónið l slétt saman ef fyrri l er br, prjónið l br saman ef fyrri l er sl. Haldið áfram með mynstur eins og áður. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 99-107-117-129-143-159 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 2,5 með Baby Alpaca Silk. Prjónið TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Nú hafa verið prjónaðar 10 umf, skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið nú RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í hvorri hlið með 8-6½-7-6½-7½-10 cm millibili, 3-4-4-4-4-3 sinnum til viðbótar (= alls 4-5-5-5-5-4 l fleiri í hvorri hlið) = 107-117-127-139-153-167 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 36-38-40-39-41-43 cm fellið af 2-5-5-6-6-6 l í byrjun á 2 næstu umf fyrir handveg = 103-107-117-127-141-155 l. Haldið áfram með rendur þar til stykkið mælist 52-55-58-58-61-64 cm. Fellið nú af miðju 37-37-39-39-41-41 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsi = 32-34-38-43-49-56 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist ca 54-57-60-60-63-66 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Fitjið upp 39-43-47-53-61-69 l (meðtalin 1 kantlykkja í hlið) á hringprjóna nr 2,5 með Baby Alpaca Silk. Prjónið TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið (1. umf = rétta). ATH: Byrjið tvöfalda perluprjónið á sl við miðju að framan í 1. umf! JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar l í lok hverrar umf við miðju að framan fyrir bogalaga kant þannig: Fitjið pp 2 l alls 5 sinnum = 49-53-57-63-71-79 l. Nú hafa verið prjónaðar 10 umf, skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Haldið áfram með RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI, JAFNFRAMT er prjónað tvöfalt perluprjón fyrir miðju að framan þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 11 l tvöfalt perluprjón, sléttprjón þar til 1 l er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni þar til 11 l eru eftir, þær 11 l sem eru eftir eru prjónaðar með tvöföldu perluprjóni JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 2 nýjar l við miðju að framan. Endurtakið umf 1 og 2 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 sinnum) = 8 fleiri l. Prjónið nú þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 11 l tvöfalt perluprjón, sléttprjón þar til 1 l er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. UMFERÐ 2: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, sléttprjón þar til 11 l eru eftir, þær 11 l sem eru eftir eru prjónaðar með tvöföldu perluprjóni. UMFERÐ 3: Prjónið 9 l tvöfalt perluprjón, sléttprjón þar til 1 l er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni UMFERÐ 4: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, sléttprjón þar til 9 l eru eftir, þær 9 l sem eru eftir eru prjónaðar með tvöföldu perluprjóni. UMFERÐ 5: Prjónið 7 l tvöfalt perluprjón, sléttprjón þar til 1 l er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. UMFERÐ 6: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, sléttprjón þar til 7 l eru eftir, þær 7 l sem eru eftir eru prjónaðar með tvöföldu perluprjóni. Útaukning við miðju að framan er nú lokið og það eru 57-61-65-71-79-87 l á prjóni. Prjónið nú sléttprjón með 7 l með tvöföldu perluprjóni við miðju að framan og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið – MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út í hlið eins og á bakstykki = 61-66-70-76-84-91 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 36-38-40-39-41-43 cm (mælt á hlið þar sem er lengst) fellið af 2-5-5-6-6-6 l í byrjun umf frá hlið fyrir handveg = 59-61-65-70-78-85 l. Þegar stykkið mælist 45-48-50-50-52-55 cm setjið 17-17-17-17-19-19 l við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli (l eru prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn svo að ekki þurfi að klippa frá). Fellið nú af í byrjun á hverri umf við háls: 2 l alls 4 sinnum og síðan 1 l 2 sinnum = 32-34-38-43-49-56 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-57-60-60-63-66 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki nema spegilmynd. LEIÐ LEIÐBEININGAR! HÆGRI ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Neðra stykkið á ermi er prjónað í 2 hlutum áður en það er sett saman. STYKKI 1: Fitjið upp 26-27-28-28-28-29 l (meðtalin 1 kantlykkja og 7 l fyrir hnappagat) á hringprjóna nr 2,5 með Baby Alpaca Silk. Prjónið TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju í garðaprjóni (1. umf = rétta). MUNIÐ EFTIR HNAPPAGATI þegar ermin mælist 2, 5, 8 og 11 cm. Þegar prjónaðar hafa verið 10 umf, skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið nú þannig: UMFERÐ 11 (rétta): Prjónið 7 l tvöfalt perluprjón, sléttprjón þar til 1 l er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. UMFERÐ 12: (ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, sléttprjón þar til 7 l eru eftir, þær 7 l sem eru eftir eru prjónaðar með tvöföldu perluprjóni. Haldið áfram að prjóna svona, ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm er fellt af 7 l með tvöföldu perluprjóni= 19-20-21-21-21-22 l á prjóni. Geymið stykkið. STYKKI 2: Fitjið upp 38-40-41-43-43-45 l (meðtalin 1 kantlykkja og 7 l fyrir hnappagati) á hringprjóna nr 2,5 með Baby Alpaca Silk. Prjónið TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, með kantlykkju í garðaprjóni í hlið (= 1. umf = rétta). Þegar prjónaðar hafa verið 10 umf, skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið áfram þannig: UMFERÐ 11 (rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, sléttprjón þar til 7 l eru eftir, þær 7 l sem eru eftir eru prjónaðar með tvöföldu perluprjóni. UMFERÐ 12 (ranga): Prjónið 7 l með tvöföldu perluprjóni, sléttprjón þar til 1 l er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram að prjóna svona, ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm er stykkin tvö sett saman á prjóninn, þannig að kantar í perluprjóni skarast og opið á kanti snýr fram (STYKKI 2 liggur undir STYKKI 1). Nú eru 57-60-62-64-64-67 l á prjóni (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið). Síðan eru prjónaðar RENDUR Á ERMI – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju í hvorri hlið, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu á hvorri hlið í 8.- 7.- 7.- 6.- 5.- 4. Hverri umf, 15-16-17-18-21-22 sinnum til viðbótar (= alls 16-17-18-19-22-23 l fleiri í hvorri hlið) = 89-94-98-102-108-113 l. Þegar stykkið mælist 52-51-50-48-46-44 cm er sett 1 prjónamerki í hvora hlið. Prjónið nú áfram þar til stykkið mælist 53-53-52-51-49-47 cm og fellið af. VINSTRI ERMI: Prjónið á sama hátt og hægri ermi nema spegilmynd. Munið eftir HNAPPAGAT á STYKKI 1! FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið niður kant á ermi með hnappagötum. Saumið ermar í. Saumið hliðarsaum og ermasauma í eitt innan við 1 kantlykkju. (Prjónamerki á ermi á að passa við hlið á fram- og bakstykki). HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 120 til 140 l í kringum hálsmál (meðtaldar l af þræði að framan) á hringprjóna nr 2,5 með Baby Alpaca Silk. Prjónið 9 umf tvöfalt perluprjón fram og til baka, JAFNFRAMT í 2. umf er fellt af fyrir 1 hnappagati í hægri kanti að framan! Fellið af. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Milou wrote:
Ik loop helemaal vast bij het rechter voorpand. Ik moet na naald 1 en 2 vier keer te hebben gedaan verder met strepen op het lijf tijdens het breien tot naald 6 en 7 steken gerstekorrel middenvoor terwijl een andere aanwijzing zegt dat ik 9 steken gerstekorrel middenvoor ,let breien. Ik vind het heel verwarrend en kan veel hulp gebruiken.
05.12.2022 - 17:29