DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2112.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 150-2
DROPS Design: Mynstur nr li-043
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

HATTUR:
Stærð: S/M – L/XL
Höfuðmál: ca 54/56 – 56/58 cm

Efni:
DROPS Lima frá Garnstudio
100 gr litur nr 5610, brúnn
50 gr litur nr 0707, ryð
Og notið einnig afgang af litnum rauður og grænn til skreytinga.

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 fl og 18 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2112.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með fl, skiptið út fyrstu fl með 1 ll. umf endar á 1 kl í ll frá byrjun umf.

RENDUR:
UMFERÐ 1: Skiptið yfir í litinn ryð og heklið 1 kl í fremri lykkjubogann á hverri fl umf hringinn.
UMFERÐ 2: Skiptið yfir í litinn brúnn og heklið 1 fl aftan í lykkjubogann á hverri fl frá fyrri umf með fl.
UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn.
UMFERÐ 4: Skiptið yfir í litinn ryð og heklið 1 kl í fremri lykkjubogann á hverri fl umf hringinn.
UMFERÐ 5: Skiptið yfir í litinn brúnn og heklið 1 fl aftan í lykkjubogann á hverri fl frá fyrri umf með fl.
UMFERÐ 6-7: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn.
UMFERÐ 8: Skiptið yfir í litinn ryð og heklið 1 kl í fremri lykkjubogann á hverri fl umf hringinn.
UMFERÐ 9: Skiptið yfir í litinn brúnn og heklið 1 fl aftan í lykkjubogann á hverri fl frá fyrri umf með fl.
UMFERÐ 10: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn.
UMFERÐ 11: Skiptið yfir í litinn ryð og heklið 1 kl í fremri lykkjubogann á hverri fl umf hringinn.
UMFERÐ 12: Skiptið yfir í litinn brúnn og heklið 1 fl aftan í lykkjubogann á hverri fl frá fyrri umf með fl.
UMFERÐ 13: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn.
UMFERÐ 14: Skiptið yfir í litinn ryð og heklið 1 kl í fremri lykkjubogann á hverri fl umf hringinn.
UMFERÐ 15: Skiptið yfir í litinn brúnn og heklið 1 fl aftan í lykkjubogann á hverri fl frá fyrri umf með fl.
UMFERÐ 16-17: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður.

HATTUR:
Heklið 4 ll með heklunál nr 4,5 með litnum brúnn, tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 5-5 fl í hringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl umf hringinn = 10-10 fl.
UMFERÐ 3: * Heklið 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 15-15 fl.
UMFERÐ 4: * Heklið 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 20-20 fl.
UMFERÐ 5: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 25-25 fl.
UMFERÐ 6: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 4 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30-30 fl.
UMFERÐ 7: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 5 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 35-35 fl.
UMFERÐ 8: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 6 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 40-40 fl.
UMFERÐ 9: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 7 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 45-45 fl.
UMFERÐ 10: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 8 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 50-50 fl.
UMFERÐ 11: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 9 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 55-55 fl.
UMFERÐ 12: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 10 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 60-60 fl.
UMFERÐ 13: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 11 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 65-65 fl.
UMFERÐ 14: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 12 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 70-70 fl.
UMFERÐ 15: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 13 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 75-75 fl.
UMFERÐ 16: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 14 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 80-80 fl.
UMFERÐ 17: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 15 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 85-85 fl.
UMFERÐ 18: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 16 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 90-90 fl.
UMFERÐ 19: Heklið einungis í stærð L/XL: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 17 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 95 fl.
BÁÐAR STÆRÐIR: Heklið 1 fl í hverja fl í 4 umf. Heklið nú RENDUR – sjá útskýringu að ofan.

BARÐ:
Barðið er heklað með litnum brúnn með heklunál nr 4,5 þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn.
UMFERÐ 2: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 4 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 108-114 fl.
UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn.
UMFERÐ 4: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 5 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 126-133 fl.
UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn.
UMFERÐ 6: Heklið * 1 fl í næstu fl, 1 ll og hoppið yfir 1 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 22-23 cm.

BLÓM:
Stykkið er heklað í hring.
Heklið 4 ll með heklunál nr 4,5 með litnum rauður og formið í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: Heklið 3 ll (koma í stað 1. st), 11 st um hringinn, skiptið yfir í litinn ryð og endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 12 st.
UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, 1 fl í fremri lykkjubogann á fyrsta st, * 5 ll, heklið til baka í ll-umf þannig: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, 1 st í hvorn af næstu 2 ll, 1 ll, 1 fl í síðustu ll, 1 kl í fremri lykkjubogann á næsta st frá umf 1 *, endurtakið frá *-* 11 sinnum til viðbótar (= alls 12 sinnum) og endið á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf = 12 blöð.
UMFERÐ 3: Heklið nú á bakhlið á blaðinu frá fyrri umf. Heklið 1 ll, 1 fl aftan í lykkjubogann á fyrsta st * 7 ll, heklið til baka í ll-umf þannig: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, 1 st í hverja af 4 næstu ll, 1 fl í síðustu ll og 1 kl aftan í lykkjubogann í næsta st frá umf 1 *, endurtakið frá *-* 11 sinnum til viðbótar (= alls 12 sinnum) og endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf = 12 blöð. Klippið frá og festið enda.

BLAÐ:
Heklið 12 ll með heklunál nr 4,5 með litnum grænn, snúið við og heklið til baka í ll-umf. Byrjið í 2. ll frá heklunálinni og heklið 1 l í hverja l: Heklið 4 fl, 1 hst, 1 st, 2 tbst, 1 st, 1 hst, 1 fl, 1 ll, snúið við og heklið síðan neðan á ll-röðina, byrjið í fyrstu ll: Heklið 1 fl, 1 hst, 1 st, 2 tbst, 1 st, 1 hst, 4 fl og 1 kl í síðustu ll á ll-umf. Klippið frá og festið enda. Heklið alls 4 blöð.

FRÁGANGUR:
Saumið blöðin niður á bakhlið á blómi og saumið blómið í hlið á hatti.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 150-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (112)

country flag Kathy Coates wrote:

I don’t understand the instructions for crochet info. By replacing the first single crochet at the beginning of each single crochet round with a chain stitch does that mean in round one? I would only work 4 single crochet in the ring, or round two, one single crochet in the first single crochet and two in the rest?

29.03.2023 - 15:31

DROPS Design answered:

Dear Kathy, yes, you replace it at the beginning of every single crochet round. On the first round you work 1 chain stitch and 4 single crochets (the chain stitch counts as the first single crochet). The round finishes with a slip stitch in the first chain stitch. On the following round, work 1 chain stitch and 1 single crochet in the chain stitch of the previous round. Happy crochetting!

02.04.2023 - 16:20

country flag Georgene Gorres wrote:

Lovely patterns

27.05.2022 - 04:28

country flag Nina wrote:

Ich möchte diesen schönen Hut häkeln und habe mir das Garn Lima gekauft. In der Anleitung ist die Lauflänge mit 92 m/50 g angegeben, auf der Banderole von Lima steht 100 m/50 g. Das Garn ist also dünner, als in der Anleitung angegeben. Es verwundert deshalb nicht, dass meine Maschenprobe völlig abweicht. Wie kommt es zu diesen Differenzen? Wie kann ich die Anleitung umrechnen, um einen Hut in der richtigen Größe (56/58 cm) zu häkeln?

08.01.2019 - 00:06

DROPS Design answered:

Liebe Nina, die Lauflänge stimmt schon, Ihre Maschenprobe muss 16 fM x 18 Runden = 10 x 10 cm sein. Wenn für 10 cm mehr Maschen als in der Maschenprobe angegeben benötigt werden, zu einer dickeren Nadelstärke wechseln. Wenn für 10 cm weniger Maschen als in der Maschenprobe angegeben benötigt werden, zu einer dünneren Nadelstärke wechseln. Viel Spaß beim häkeln!

08.01.2019 - 09:22

country flag Christin wrote:

Hvor meget garn skal man bruge?

01.04.2018 - 16:20

country flag Winnie wrote:

Jeg forstår ikke helt det med striber i rust? Er huen hæklet helt i brun? Hvor kommer de striber ind? På billeder ser jeg kun røde striber og rød blomst, kan det forklares, til mig???

24.10.2016 - 15:00

DROPS Design answered:

Hej Winnie. Striberne paa selve hatten er haeklet i rust. Blomsten er haeklet i röd. Jeg kan godt se der ikke er meget farveforskel paa billedet, men den er god nok - det er to forskellige farver.

01.11.2016 - 14:19

country flag Rina wrote:

Leuke muts! Maar... Haak ik eerst alles met bruin en haak ik daarna nog een soort van 2e muts met bruin en strepen er tegenaan?

01.08.2016 - 21:17

DROPS Design answered:

Hoi Rina. Nee, er is hier maar één muts. Je begint bovenaan en haakt naar beneden.

02.08.2016 - 13:18

country flag Rose-Marie Löwerström wrote:

Hej , har en fråga i detta mönster, hatten Miss Potter nr 150-2 .Jag skall nu sätta igång med virkningen av hatten, undrar över - Varv 1: virka 5-5 fm om ringen, det är just 5-5 och även fortsättningsvis i mönstret där det står v runt 20-20 fm? Tackar på förhand för snabbt svar. Vill gärna börja virkningen nu/Rose-Marie

12.02.2015 - 09:30

DROPS Design answered:

Hej Rose-Marie, 5-5 är antal m i de 2 storlekar. Lycka till!

27.05.2015 - 16:00

country flag Margot wrote:

Streifen ab Rd 24. Der Hut wird von oben behäkelt.

18.06.2014 - 14:46

country flag Schmitt Cornelia wrote:

Diese Anleitung beginnt mit Streifen aber Der Hut beginnt doch mit einem Fadenring wann beginne ich also mit Streifen bzw, ab welcher Runde muss ich "Streifen" einfügen?

18.06.2014 - 13:36

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schmitt, die Absätze "Häkelinfo" und "Streifen" dienen als Informationstexte. Die eigentliche Anleitung beginnt unter der gestrichelten Linie bei "Hut". Und dort steht, wann Sie mit den Streifen beginnen: Nach der 19. Rd häkeln Sie noch 4 Rd feste M, dann beginnen Sie mit den Streifen, wie sie über der Anleitung unter "Streifen" beschrieben sind.

20.06.2014 - 16:43

country flag S.spruyt wrote:

Strepen 2de toer : waar vind ik de vasten van de vorige toer als er halve vasten zijn gemaakt

26.03.2014 - 16:12

DROPS Design answered:

Er staat: TOER 2: ga verder met bruin en haak 1 v in achterste lus van elke v van vorige toer met v. Die vasten zijn dus gehaakt in de vorige toer met vasten, niet in toer 1 van strepen. Voor de strepen zijn 4 toeren vasten gehaakt, dat zijn de vasten waarin u haakt, dus in dezelfde vasten waarin u in toer 1 van de strepen ook de hv vasten gehaakt heeft.

08.04.2014 - 20:39