DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6336.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 149-41
DROPS Design: Mynstur nr ne-126
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

EYRNABAND:
Stærð: Ein stærð

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
100 gr litur nr 4311, grár/fjólublár

AXLARSKJÓL:
Stærð: Ein stærð
Ummál að ofan: 35 cm
Ummál að neðan: 140 cm

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
350 gr litur nr 4311, grár/fjólublár

DROPS PRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HORNATALA, DÖKK, NR 535: 4 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6336.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR (eyrnaband):
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

MYNSTUR (axlarskjól):
Sjá mynsturteikningu A.4 til A.5. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

GISIÐ GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
UMFERÐ 1: sl frá réttu
UMFERÐ 2: br frá röngu
UMFERÐ 3: sl frá réttu
UMFERÐ 4: sl frá röngu

STUTTAR UMFERÐIR:
Stuttar umferðir eru prjónaðar þannig:
* Prjónið 1 umf yfir A.4, snúið og prjónið til baka. Prjónið 1 umf yfir A.4 + 2 l sl + 12 l gisið garðaprjón, snúið við og prjónið til baka. Prjónið 1 umf yfir A.4 + 2 l sl + 12 l gisið garðaprjón + 2 l sl + A.5 + 2 l sl + 6 l gisið garðaprjón, snúið við og prjónið til baka. Prjónið 1 umf yfir allar l, snúið við og prjónið til baka *. Endurtakið frá *-*, þ.e.a.s. að það eru 8 umf þar sem er breiðast og 2 umf þar sem er grennst í 1 mynstureiningu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin.

EYRNABAND:
Fitjið upp 23 l á prjón nr 5 með Nepal.
Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í 3 cm. Prjónið nú eftir A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram eftir A.2. Þegar stykkið mælist ca 46 cm, passið uppá að það sé heil mynstureining af A.2. prjónið eftir A.3. Prjónið A.3 1 sinni á hæðina, prjónið síðan garðaprjón í 3 cm eða óskaðri lengd. Fellið af og saumið saman kant í kant við miðju að aftan þannig að saumurinn verði ekki of þykkur.

-------------------------------------------------------

AXLARSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

AXLARSKJÓL:
Fitjið upp 67 l á hringprjóna nr 5 með Nepal. Prjónið 10 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið A.4, 2 l sléttprjón, GISIÐ GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan - yfir næstu 12 l, 2 l sléttprjón, A.5, 2 l sléttprjón, 6 l gisið garðaprjón, 18 l garðaprjón. JAFNFRAMT eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan. Prjónið stuttar umferðir þar til stykkið mælist 35 cm þar sem stykkið er styst (eða að óskaðri lengd), stillið af eftir heila mynstureiningu af A.4. Prjónið 6 umf garðaprjón, í næstu umf frá réttu er fellt af fyrir hnappagati þannig: Prjónið 16 l, 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn, * prjónið 13 l, 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* 3 sinnum, endið á 4 l sl. Haldið áfram í garðaprjóni þar til prjónaðar hafa verið alls 10 umf garðaprjón, fellið af. Saumið tölur í vinstri kanti að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 24.11.2016
Leiðrétting í mynsturtexta

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = setjið 1 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 1 l sl, 1 l br af hjálparprjóni
symbols = setjið 1 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 1 l br, 1 l sl af hjálparprjóni
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn sl
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = aukið út með því að prjóna 2 l í 1 l
symbols = fellið af 1 l
symbols = 3 l slétt saman
symbols = 2 l br saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = setjið 1 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 2 l br, 1 l sl af hjálparprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-41

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (31)

country flag Beverley Mcalister wrote:

The answer from my last question I feel was not answered. 1 repetition has 8 rows So if I knit row 1-8, I then repeat this again to get to upto row 16. A4 has 20 rows So what do I knot from row 17 to row 20 to complete the chart A4?

16.08.2021 - 08:36

DROPS Design answered:

Dear Beverly, A.4 will have to be worked on every row, this means you work the first 20 rows will be worked following the 20 rows in A.4 (but you will sometimes work only A.4, sometimes more stitches). Sorry If your question is misunderstood, would it be possible to try rewording it? Thanks for your comprehension.

16.08.2021 - 09:04

country flag Beverley wrote:

Next question. If 1 repetition is 8 rows (2 rows at narrowest), on row 9 do you start the repetition again until row 16, if so, what happens to next 4 rows from row 17 to row 20 to complete A4?

15.08.2021 - 21:53

DROPS Design answered:

Dear Beverley, when working the short rows, you will work the stitches in A.4 just as shown in the diagram (= every row is worked with A.4 at the beg of row from RS/end of row from WS), then work the ridge pattern after A.4 as frollwos: row 1-4 ridge pattern on row 3 to 6, then work row 1-2 ridge pattern on row 7-8 short rows; then row 3-4 ridge pattern on row 3-4 next repeat short rows, etc... Hope this will help. Happy knitting!

16.08.2021 - 08:29

country flag Beverley wrote:

Just to clarify my question, there are 8 rows to a pattern but the 1st two rows don’t contain and ridge stitches. On row 3 to 8 these have ridge stitches ( total of 6 rows) but the pattern for ridge stitches has 4 rows ). What pattern of ridge stitch do I knit on row 7 and 8 of the main pattern?

15.08.2021 - 21:24

DROPS Design answered:

Dear Beverly, you just have to always repeat the 4 rows in the ridge pattern, this means you will always repeat these 4 rows over the first 12 sts ridge pattern (after A.4) and repeat the 4 rows ridge pattern after A.5 (see previous answer). Happy knitting!

16.08.2021 - 08:25

country flag Beverley wrote:

Hi, I understand the principles of how to knit this by knitting as instructions then turn to go back then kip it the next row plus a few more of the pattern and so on. What I don’t understand is on row 5 out of 8 when you start A5 for the first time and which row of the 4 ridge stiches rows that constructed the 6 ridge stitches? Is it the same row as the 12?

15.08.2021 - 19:24

DROPS Design answered:

Dear Beverley, you will work the stitches in A.5 just when you will work row 5 to 8, ie the first time you work row 5, work row 1 in A.5, then work on row 6 to 8, you will work row 2 to 4. Next time you will work row 5 -8 in short rows, you will then work row 5 to 8 in A.5 etc. The 6 sts ridge pattern are worked then repeating the 4 rows the same way, ie when working row 5-8 short rows, work row 1 to 4 ridge pattern. Happy knitting!

16.08.2021 - 08:19

country flag Sally wrote:

When working the short rows, when it says "Work 1row over all stitches" does "all stitches" mean all the stitches worked so far or all the stitches cast on?

23.03.2019 - 17:16

DROPS Design answered:

Dear Sally, when working the short rows, "work 1 row over all stitches" means to work all stitches on left needle = the onen previously worked with the short rows as well as the other ones. Happy knitting!

25.03.2019 - 10:36

country flag Deb wrote:

Are the charts to be read from left to right or right to left? Thank you.

21.11.2018 - 21:58

DROPS Design answered:

Hi Deb, The charts are read from bottom right to left on first row. If you are working back and forth the next row is read from left to right, if you are working in the round continue the next row from right to left. Happy knitting!

22.11.2018 - 07:46

country flag Kate Gomes wrote:

Is this garment knitted from the top down?

15.10.2018 - 21:15

DROPS Design answered:

Dear Mrs Gomes, the cape is worked sideways with short rows. Happy knitting!

16.10.2018 - 09:10

country flag Torunn Riise-Larsen wrote:

Og hva skal stikkes når det står: "strikk 1 p over a4, snu og strikk tilbake. Men hva slags masker skal man bruke? Synes ikke det er så lett å forstå oppskriften deres...

02.10.2018 - 17:13

DROPS Design answered:

Hei Torunn. Vendinger er det samme som forkortede pinner: altså på hver pinne fra retten strikker du over fler masker enn forrige pinne. Du skal strikke dette samtidig som du strikker mønster etter diagram - så når det står snu og strikk tilbake følger du anvisningene i diagrammet som vanlig. Altså første gang strikker du en omgang A.4, snur og strikker neste omgang A.4 tilbake. Så snur du arbeidet igjen og strikker neste omgang A.4 og strikker videre 2 masker rett og 12 masker åpne rille. Så snur du og strikker tilbake osv. Dette gjentar du til halsen måler 35 cm i den korteste siden. God fornøyelse.

03.10.2018 - 14:19

country flag Torunn Riise-Larsen wrote:

Ang. vendinger. Skal det gjøres etter at hele A4, dvs 20 pinner, er strikket. Eller etter hver pinne av a4?

02.10.2018 - 15:52

country flag Patricia wrote:

Pourriez vous mettre une vidéo pour le commencement du diagramme A4 svp merci ?

18.11.2016 - 16:21

DROPS Design answered:

Bonjour Patricia, votre demande a été enregistrée, mais en attendant la vidéo, lisez le diagramme en commençant en bas à droite sur l'endroit de droite à gauche et de gauche à droite sur l'envers. Retrouvez sous la légende la signification de chaque symbole. Bon tricot!

18.11.2016 - 17:43