DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 151-18
DROPS Design: Mynstur nr ks-079
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Breidd (efst): 200 cm
Lengd fyrir miðju: 85 cm

Efni:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
125 gr litur nr 13, kirsuber

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.9. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Allar útaukningar eru gerðar frá réttu: Uppslátturinn er prjónaður eins og venjuleg l (ekki snúin) þannig að það myndist gat. Aukið út um 4 l í annarri hverri umf þannig:
Aukið út um 1 l í byrjun umf þannig: Prjónið 1 l garðaprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Aukið út um 2 l fyrir miðju í stykkinu þannig: Sláið uppá 1 sinni prjóninn, 1 l sléttt (= l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Aukið út um 1 l í lok umf þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l garðaprjón.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá hálsi og niður með 1 lykkkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í hvorri hlið.

SJAL:
Fitjið upp 3 l á hringprjóna nr 3 með Kid-Silk.
Prjónið 6 umf slétt. Eftir 6. umf er ekki snúið við, heldur er sjalinu snúið um 90 gráður réttsælis, prjónið upp 3 l meðfram kanti (þ.e.a.s. 1 l í hverja rönd í garðaprjóni), snúið sjalinu aftur réttsælis og prjónið upp 3 l meðfram uppfitjunarkanti (þ.e.a.s. 1 l í hverja l) = 9 l á prjóni.
Setjið 1 prjónamerki í 5. l (l merkir miðjulykkju í sjali).
Prjónið nú sléttprjón með 1 l garðaprjón í hvorri hlið JAFNFRAMT er aukið út um 4 l í hverri umf frá réttu – lesið ÚTAUKNING! Haldið svona áfram þar til 29 l eru á prjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTU!
Prjónið nú frá réttu – þannig: Prjónið 1 l garðaprjón, A.3 (= 2 l), A.2 (= 6 l), A.1 (= 5 l), 1 l sléttprjón (= miðjulykkja, prjónið sléttprjón til loka), A.3, A.2, A.1 og endið á 1 l garðaprjón. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina (= 24 umf ) eru 101 l á prjóni.

Haldið áfram með mynstur þannig – ATH: Fyrir hvert skipti sem A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 6 mynstureiningum fleiri af A.2 hvoru megin við miðjulykkju. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið A.2 alls 7 sinnum (stykkið mælist ca 58 cm, mælt meðfram miðjulykkju) = 533 l á prjóni – JAFNFRAMT í síðustu umf í A.1, A.2, A.3 (= ranga) aukið út um 6 l jafnt yfir hvoru megin við miðjulykkju (= alls 12 l) = 545 l á prjóni.

Næsta umf frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 1 l garðaprjón, A.9 (= 5 l) og síðan A.8 (= 12 l) þar til 2 l eru eftir á undan miðjulykkju, prjónið A.7 (= 2 l), 1 l sléttprjón, A.6 (= 2 l), endurtakið A.5 (= 12 l) þar til 6 l eru eftir, prjónið A.4 (= 5 l) og endið á 1 l garðaprjón.
Prjónið 1 mynstureiningu af mynstri á hæðina. Fellið LAUST af.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 03.12.2013
Undir SJAL: Prjónið nú frá réttu – þannig: Prjónið 1 l garðaprjón, A.3 (= 2 l), A.2 (= 6 l), A.1 (= 5 l), 1 l sléttprjón (= miðju-l, prjónið sléttprjón til loka), A.3, A.2, A.1 og endið á 1 l garðaprjón. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina (= 24 umf ) eru 101 l á prjóni. Haldið áfram með mynstur þannig – ATH: Fyrir hvert skipti sem A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 6 mynstureiningum fleiri af A.2 hvoru megin við miðju-l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið A.2 alls 7 sinnum (stykkið mælist ca 58 cm, mælt meðfram miðjul-l) = 533 l á prjóni – JAFNFRAMT í síðustu umf í A.1, A.2, A.3 (= ranga) aukið út um 6 l jafnt yfir hvoru megin við miðju-l (= alls 12 l) = 545 l á prjóni.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða, prjónið 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = kúla - prjónið sl frá réttu: 1 l sl, sláið uppá prjóninn, 1 l sl í sömu l (= 3 l), snúið við, prjónið 4 umf sléttprjón yfir þessar 3 l. Steypið 2. l af hægri prjóni yfir 1. l steypið síðan 3. l yfir 1. l (= 1 l eftir)
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (33)

country flag Francine wrote:

Voici ce que j'ai compris à reprendre au rang 1 du diagramme dès que l'on a 151 m. 1 endroit, A3, 7 fois A2, A1, 1 jersey, A3, 7 fois A2, A1, 1 endroit = 151m Chaque reprise au rg 1, ajouter ainsi 6 A2

05.09.2023 - 10:28

country flag Jette wrote:

Hej Når jeg har strikket A3 A2 A1 mønsteret 1 x, hvordan kommer jeg så videre? Strikker jeg igen A3 A2 A1 og selv regner mønsteret ud eller fortsætter jeg med A4 A5 A6 A7 A8 A9 og så igen forfra?

29.10.2022 - 14:41

DROPS Design answered:

Hei Jette. Husk at for hver gang A.2 er strikket 1 gang i høyden blir det 6 rapporter mer av A.2 på hver side av midt-masken (dette vil du se automatisk evnt kan du telle maskene og sette makemarkører mellom hver A.2 for bedre oversikt). Du strikker 1 rillemaske + A.3 + A.2 + A.1 + Midt-maske + A.3 + A.2 + A.1 + 1 rillemaske, og slik strikkes det til arbeidet måler ca 58 cm målt langs midt-maske og det er 605 masker på pinnen. Neste pinne fra retten startes det å strikke ette de andre diagrammene (A.4 til og med A.9). Disse diagrammene gjentas bare 1 gang i høyden før det felles løst av. mvh DROPS Design

31.10.2022 - 11:56

country flag Emmy wrote:

Hej, verkar som att maskantalet för varven med mönster stämmer inte med nästa varv. t.ex A3 borde vara 4 maskor efter första varvet men på diagrammet står att det blir bara 3 maskor.. hjälp!

29.01.2020 - 16:51

DROPS Design answered:

Hej Jag förstår att det ser lite konstigt ut men ser man på alla 3 diagram tillsammans så stämmer det. Ökningarna på varje sida av minskningarna hör ihop (även om det inte blir så tydligt när de är i olika diagram) och ökningarna längst ut på sidorna blir de ökade maskorna. Lycka till!

30.01.2020 - 13:43

country flag Tamar Terpstra wrote:

Ik begrijp niet goed waarom er staat dat er staat dat A.3 uit twee steken bestaat. Ik tel in totaal 4 steken, namelijk 1omslag, 1recht, 1omslag en nog 1recht=4steken (toch?) Hierdoor klopt de derde naald volgens mij niet, waar staat 1omslag 3recht,1omslag ...ik heb vier steken op nodig staan...hoe moet ik dit oplossen? Met vr.groet, T.Terpstra

29.10.2019 - 19:07

DROPS Design answered:

Dag Tamar,

In dit geval kun je het feit dat het aantal steken van A.3 op zichzelf niet klopt negeren en gewoon de derde naald breien zoals aangegeven, omdat A.3, A.2 en A.1 bij elkaar horen waarbij de steken in totaal wel weer kloppen. Ik heb een klein proefje gebreid en het patroon zou goed uit moeten komen.

30.10.2019 - 10:31

country flag DONATELLA PIETRAPERTOSA wrote:

Buongiorno,La balza del bordo è a parte o compresa nello schema?

12.07.2018 - 09:23

DROPS Design answered:

Buongiorno Donatella, nelle spiegazioni è indicata tutta la lavorazione, balza compresa. Buon lavoro!

12.07.2018 - 09:43

country flag Irène wrote:

Bonjour, le modèle est superbe, mais comment faites vous après avoir obtenu les 545 mailles ? il faut continuer avec les diagramme A4 A5 A6 A7 A8 A9 mais nous sommes sur la partie supérieure du châle et non sur les côtés, or sur la photo la partie volantée sur trouve sur le côté. Faut-il relever des mailles sur les côtés ? si je travaille selon vos explications le volant se trouve sur le haut du châle et non sur les côtés. Merci pour votre réponse. Cordialement

16.03.2018 - 08:18

DROPS Design answered:

Bonjour Irène, le châle se tricote de haut en bas, en forme de triangle: on augmente sur les côtés et au milieu tout du long. Après les 545 m on termine ainsi: 1 m point mousse, A.9, 22 fois A.8, , A.7, 1 m jersey (m centrale), A.6, 22 fois A.5, A.4 et 1 m point mousse = 1+ (5+22x12+2) + 1 + (2+22x12+5) + 1 = 545 m. Bon tricot!

16.03.2018 - 09:29

country flag Monbellet Odette wrote:

Je suis bloquée après le rang où l'on obtient 101 mailles. J'ai lu les réponses des 26/5/2014 et 19/9/2014 à cette question,mais elles ne disent pas la meme chose! 2 fois A2 de chaque coté de la maille centrale ou 2 fois A2 à chaque motif? Le modèle est très beau mais les explications et les diagrammes ne sont pas clairs du tout! J'ai essayé un autre modèle et ai été confrontée au meme problème, j'ai abandonné!

07.11.2014 - 20:29

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Monbellet, quand vous avez tricoté 1 fois A1,A2 et A3, vous avez 101 m et répétez les diagrammes à nouveau de la même façon, mais vous avez alors suffisamment de mailles pour tricoter 6 fois de plus A.2 entre A.1 et A.3 de chaque côté de la m centrale. Voir aussi ici. Bon tricot!

08.11.2014 - 10:03

country flag Alylla wrote:

Merci pour votre réponse rapide ! Mais en procédant ainsi, je n'obtiens que 81 m au total, au lieu de 101 ?!

19.09.2014 - 18:53

DROPS Design answered:

Bonjour Alylla, après avoir tricoté 1 fois les diagrammes A.3, 1 x A.2 et A.5 de chaque côté de la m centrale (avec 1 m point mousse de chaque côté), vous avez 101 m. À chaque fois que l'on tricote ces 3 diagrammes en hauteur, on augmente de 72 m, on avait 29 m + 72 = 101. Après avoir tricoté 2 fois les diagrammes en hauteur, vous aurez 101+ 72 = 173 m et ainsi de suite jusqu'à ce que vous ayez tricoté 7 fois les diag. en hauteur = 533 m. Bon tricot!

20.09.2014 - 10:26

country flag Alylla wrote:

Bonjour ! Superbe modèle, mais je bloque au niveau des explications. J'ai tricoté 1 fois A3A2A1 en hauteur, et j'ai bien obtenu 101 mailles ; mais je ne sais pas comment continuer ! Pour le 25ème rang, cela donnerait donc 49 mailles de chaque ôté de la maille centrale, + 2 mailles extérieures au point mousse. Mais je ne comprends pas comment se répartissent les diagrammes le long du rang ! Pouvez vous me dire, maille par maille, comment je dois tricoter le 25ème rang ? Merci :)

19.09.2014 - 12:49

DROPS Design answered:

Bonjour Alylla, quand vous avez tricoté 1 fois les diagrammes A.1, A.2 et A.3 en hauteur, recommencez comme avant, c'est-à-dire A.1 sur les premières m, répétez A.2 une fois de plus que la dernière fois en hauteur, puis A.3 sur les dernières m. Ainsi, on tricote 2 fois A.2 entre A.1 et A.3 la 2ème fois, puis 3 fois A.2 entre A.1 et A.3 la 3ème fois et ainsi de suite. Bon tricot!

19.09.2014 - 16:28

country flag Sahut wrote:

Bonjour, les explications de ce modèle débutent par "Se tricole en allers et retours sur l'aiguille circulaire de HAUT EN BAS à partir de l'encolure....". Ne serait-ce pas plutôt de BAS EN HAUT ? On doit monter 3 mailles en tout début et ensuite augmenter au fur et à mesure de l'avancement, ce qui fait que c'est de bas en haut ? Cordialement,

29.08.2014 - 11:14

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Sahut, le châle se tricote à partir de l'encolure, avec des augm. de chaque côté et au milieu pour créer la pointe du bas. La vidéo ci-dessous vous montre comment démarrer. Bon tricot!

29.08.2014 - 13:31