DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
DROPS Puddel
DROPS Puddel
94% Mohair, 6% Polyester
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Little Grey Riding Hood

Prjónað poncho með hettu úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Puddel eða DROPS Alpaca Boucle og DROPS Andes.

DROPS 150-50
DROPS Design: Mynstur nr ab-040
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - M/L - XL/XXL

Efni:
DROPS ALPACA BOUCLÉ frá Garnstudio
250-250-300 gr litur nr 5110, ljós grár
Og einnig:
DROPS PUDDEL frá Garnstudio
200-200-200 gr litur nr 01, natur

Eða notið:
DROPS ALPACA BOUCLE frá Garnstudio
250-250-300 gr litur nr 5110, ljós grár
Og einnig:
DROPS ANDES frá Garnstudio
200-200-200 gr litur nr 0100, natur

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni með 1 þræði af Alpaca Bouclé verði 10 x 10 cm.

DROPS HRINGPRJÓNN (60 cm) NR 7 – eða þá stærð sem þarf til að 10 l og 14 umf með sléttprjóni og 1 þræði með Puddel eða Andes verði 10 x 10 cm.

DROPS HEKLUNÁL NR 6 – fyrir heklaðan kant.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
DROPS Puddel
DROPS Puddel
94% Mohair, 6% Polyester
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l þannig:
Á undan prjónamerki: Prjónið þar til 2 l eftir á undan prjónamerki, takið 1 l eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l sl.
Á eftir prjónamerki: Prjónið 2 l slétt saman.

MÆLING:
Öll mæling er gerð þegar stykkið liggur flatt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað hver fyrir sig fram og til baka á hringprjóna og og saman eftir klauf á hliðum.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 136-144-153 l á hringprjóna nr 5 með 2 þráðum af Alpaca Bouclé. Skiptið yfir í 1 þráð og prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – fram og til baka á hringprjóna. Haldið áfram í sléttprjón fram og til baka, en 1 l í hvorri hlið er prjónuð í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15 cm er það lagt til hliðar.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og framstykki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið fram- og bakstykki á hringprjóna nr 5 = 272-288-306 l.
Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið við skiptingarnar á milli bakstykkis og framstykkis og fyrir miðju á bakstykki og framstykki (= ca 68-72-76 l á milli prjónamerkja). Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar l JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið og við miðju að framan við miðju að aftan (þ.e.a.s fækkað er um 8 l í hverri úrtöku) – sjá ÚRTAKA: Fækkið lykkjum eftir annan hvorn cm 14-15-16 sinnum, síðan er lykkjum fækkað eftir hvern cm 6-7-8 sinnum = 112-112-114 l. Skiptið yfir í stutta hringprjóna eftir þörf. Þegar stykkið mælist 49-52-55 cm er fækkað um 14 l jafnt yfir (= 98-98-100 l), endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 54-57-60 cm = 84-84-86 l eftir. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 59-62-65 cm – sjá MÆLING að ofan.

HETTA:
Skiptið yfir í 1 þráð af Puddel eða Andes og hringprjóna nr 7. Prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l, JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 11-4-0 l jafnt yfir = 73-80-86 l. Nú skiptist stykkið þannig. Fellið af miðju 3 l við miðju að framan = 70-77-83 l. Stykkið er nú prjónað fram og til baka. Prjónið sléttprjón með 6 l garðaprjón í hvorri hlið þar til hettan mælist 35-36-37 cm. Prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Leggið hettuna tvöfalda og saumið hana saman efst uppi.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant með heklunál nr 6 með Puddel eða Andes neðst niðri á poncho upp að klauf í báðum hliðum. Heklið * 1 fl, 1 ll, hoppið yfir ca 1 cm *, endurtakið frá *-*, endið á 1 kl í 1. fl.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 150-50

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Sheila wrote:

I can't seem to find how many balls of yarn to buy?? How many do I need all together to make a s/m size? I am using a bit thicker yarn then the yarn suggested. Just need an approx. number of how many. Thanks

15.10.2019 - 05:56

DROPS Design answered:

Hi Sheila, You need approx. 250 g of the light grey - 5 balls, and 200 g of the off white - 4 balls. Happy knitting!

15.10.2019 - 07:09

country flag Susan wrote:

Hello, Would you please clarify directions: Front Piece states ..continue in stockinette st back and forth but work 1 st in each side of garter st. Does this mean to increase or decrease stitch? Is there a specific video I should reference. Thank you.

03.10.2018 - 23:06

DROPS Design answered:

Hi Susan, The piece is worked in stockinette back and forth, apart from the 1 edge stitch on each side which is worked in garter stitch (always knitted both from right and wrong side). So no increases or decreases here. Happy knitting!

04.10.2018 - 07:55

country flag Lara wrote:

Vielen Dank! Ist es von Bedeutung, ob diese Abnahme rechts oder links gerichtet ist? Lara

23.07.2018 - 16:00

DROPS Design answered:

Liebe Lara, Sie können einfach mit 2 M rechts zusammen abnehmen, also bei 49 cm 2 M re zs x 14 Mal gleichmäßig verteilt und bei 54 cm diese 14 Abnahmen wiederholen. Viel Spaß beim stricken!

24.07.2018 - 09:03

country flag Lara wrote:

Hallo, beim Rumpf-Teil steht, dass nach 49 cm gleichmäßig verteilt 14M abgenommen werden sollen (und das gleiche nochmal nach 54 cm zu wiederholen). Bezieht sich das "gleichmäßig abnehmen" darauf, dass man die 14M innerhalb einer Runde gleichmäßig verteilt abnehmen soll, oder über mehrere Runden die Abnahme der 14M verteilen soll? Lara

21.07.2018 - 00:26

DROPS Design answered:

Liebe Lara, diese 14 Maschen werden innerhalb einer Runde (2 Mal insgeasamt: nach 49 und dann nach 54 cm, dh 28 Abnahmen insgesamt) gleichmäßig verteilt abgenommen - Hier lesen Sie, wie man gleichmäßig verteilt abnimmt. Viel Spaß beim stricken!

23.07.2018 - 07:31

country flag Georgia wrote:

Hallo, das ist das erste Mal, dass ich etwas von DROPS nachstricken möchte. Ich bin mir jetzt unsicher, wie viele Knäuel Garn ich bestellen muss (Ich nehme anstatt Puddel ebenfalls Alpaca Boucle). Bei meiner Rechnung ist da eine verwunderlich hohe Anzahl herausgekommen. Schöne Grüße und schonmal Danke für die Hilfe

01.05.2018 - 15:23

DROPS Design answered:

Liebe Georgia, hier lesen Sie, wie man die neue Garnangabe kalkuliert, sollten Sie unsicher sein, nehmen Sie bitte Kontakt mit Ihrem DROPS Laden (telefonisch oder per mail) auf. Viel Spaß beim stricken!

02.05.2018 - 10:09

country flag Katchou wrote:

Je l'ai fini. Je l'adore et il me va comme un gant. Il est tout doux, confortable et chaud. Merci GarnStudio ! ❤️

18.04.2017 - 18:50

country flag Connie wrote:

Hi - if I am reading this pattern correctly it calls for 250g to make the m/l size for the body and 200g for the hood and trim. It doesn't seem like enough wool for the body - is this the correct amount to make this sweater or am I misunderstanding the instructions? thank you

26.11.2016 - 16:36

DROPS Design answered:

Dear Connie, amount of yarn is correct, both yarn do have different caracteristics and yardage/thickness - click on each shadecard to read more. Happy knitting!

28.11.2016 - 09:12

country flag Katerina wrote:

Hallo, I´d like to knit this poncho, but PUDDLE is not produced anymore. If I´m going to use CLOUD instead, which needle width should I use to get 10 meshes x 14 rows for 10 x 10 CM? Thank you in advance for quick reaciton.

18.07.2016 - 22:54

DROPS Design answered:

Dear Katerina, Cloud is from the same yarn group of Puddle, so you can use the same needle stated in the pattern. Remember to check your gauge first! Happy knitting!

18.07.2016 - 23:53

country flag Marietta wrote:

Hallo, ich möchte gerne diesen Poncho nacharbeiten. Die angegebene Wolle Puddel ist ja nicht mehr im Verkauf und eine Alternative haben Sie ja auch angegeben. Meine Frage: können Sie mir bitte die Lauflänge von der Puddel mitteilen, damit ich weiß, wieviel ich von der Alternativ Wolle nehmen muss. Mit freundlichem Gruß Marietta

10.05.2016 - 07:59

DROPS Design answered:

Liebe Marietta, unter Garne - Auslaufgarne finden Sie alle Informationen zu älteren Qualitäten.

10.05.2016 - 08:55

country flag Yvonne Oswald wrote:

Guten morgen 😉 Muss ich nach 15 cm beide Teile auf eine Nadel nehmen? Verstehe das Diagramm und die Abnahme nich😕

19.02.2016 - 06:37

DROPS Design answered:

Ja genau, Sie stricken die beiden Teile separat, bis sie jeweils 15 cm messen, dann nehmen Sie alle M auf eine Nadel und stricken in Runden weiter. Die Seiten, also die Stellen, an denen die beiden Teile aufeinandertreffen, markieren Sie mit je einem Markierungsfaden, ebenso die vordere und hintere Mitte. Sie haben dann also vier Markierungsfäden in der Arbeit. Die Abnahmne arbeiten Sie beidseitig jedes Markierers, also jeweils rechts und links neben jedem Markierer.

21.02.2016 - 13:10