DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Children 24-43
DROPS Design: Mynstur nr w-035-bn
Garnflokkur C
--------------------------------------------------------

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
50 gr litur nr 26, dökk beige
50 gr litur nr 46, ryðrauður
50 gr litur nr 17, natur
50 gr litur nr 14, skær gulur
50 gr litur nr 44, brúnn

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 22 fl verði 10 cm á breidd.
FYLGIHLUTIR: Vatt til fyllingar.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GALDRAHRINGUR:
Byrjið með þessari aðferð til að koma í veg fyrir að það myndist gat í miðju (í staðinn fyrir loftlykkjuhring): Haldið í endann á þræðinum og snúið þræðinum einu sinni í hring utan um vinstri vísifingur til þess að úr verði hringur. Haldið í hringinn með vinstri þumli og löngutöng, þráðurinn liggur yfir vinstri vísifingur. Heklunálinni er stungið inn í hringinn, þræðinum er brugðið um heklunálina og þráðurinn dreginn upp úr hringnum, heklið 1 loftlykkju, heklið nú fastalykkju utan um galdrahringinn. Þegar sá fjöldi fastalykkja er kominn sem óskað er eftir, dragið í endann á þræðinum og herðið að. Festið enda á bakhlið. Haldið áfram að hekla í hring.

HEKLAÐ Í HRING:
Eftir síðustu fl í umf, haldið áfram að næstu umf með 1 fl í næstu fl (= fyrsta fl frá fyrri umf). ATH: Merkið byrjun umf með prjónamerki á milli síðustu fl í umf og fyrstu fl í næstu umf, látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu.

ÚRTAKA:
Fækkað er um 1 l með því að hekla 2 l saman þannig: * Stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

EGG:
Stykkið er heklað í hring. Byrjið að gera GALDRAHRINGUR með litnum skærgulur – sjá útskýringu að ofan – með heklunál nr 4.
UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um galdrahringinn – LESIÐ HEKLAÐ Í HRING! Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og látið það fylgja með stykkinu.
UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 12 fl.
UMFERÐ 3: * Heklið 1 fl í næstu fl, heklið 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl.
UMFERÐ 4: * Heklið 1 fl í hvora af næstu 2 fl, heklið 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl.
UMFERÐ 5: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 3 fl, heklið 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl. Klippið frá og festið enda. Heklið annan hring á sama hátt = 2 hringir með litnum skær gulur.
UMFERÐ 6: Leggið hringina ofan á hvorn annan, haldið síðan áfram að hekla í hring með litnum natur – heklið í gegnum bæði stykkin þannig: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 4 fl, heklið 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 fl. ATH! Þegar eftir eru ca 10 fl eru miðju hringirnir fylltir með vatti áður en umf er hekluð til loka.
UMFERÐ 7: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 5 fl, heklið 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 42 fl.
UMFERÐ 8-11: Haldið áfram með útaukningu alveg eins, fyrir hverja umf verður 1 fl fleiri á milli útaukninga = 66 fl. Klippið frá og festið enda.

BRAUÐ:
EFRI HLUTI/NEÐRI HLUTI:
Heklið 16 ll með litnum dökk litnum beige með heklunál nr 4, snúið við og heklið 1 fl í aðra ll frá heklunálinni, heklið 1 fl í hverja ll = 15 fl. Heklið 1 fl í hverja fl fram og til baka þar til brauðið mælist ca 11 cm á hæðina. Heklið annan hluta á sama hátt.

KANTUR HRINGINN:
Heklið 4 ll með litnum brúnn með heklunál nr 4, snúið við og heklið 1 fl í aðra ll, heklið 1 fl í hverja ll = 3 fl. Heklið 1 fl í hverja fl fram og til baka þar til kanturinn mælist ca 39 cm.

Leggið kantinn við neðri hluta og heklið saman í hringum alla sneiðina með litnum brúnn. Heklið 1 fl í hverja fl og 2 fl í hverja umf. Heklið efri hluta á sama hátt, þegar eftir eru ca 5 cm er sneiðin fyllt með vatti áður en heklað er til loka. Klippið frá og festið enda.

BEIKON:
Heklið 35 lausar ll með heklunál nr 4 með litnum ryðrauður.
UMFERÐ 1: Heklið 2 fl í 2. ll frá heklunálinni, * 1 fl í hverja af næstu 4 ll, hoppið yfir 2 ll, 1 fl í hverja af næstu 4 ll, 3 fl í næstu ll *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, en endið einungis með 2 fl í síðustu ll = 34 fl.
UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, 2 fl í fyrstu fl, * 1 fl í hverja af næstu 4 fl, hoppið yfir 2 fl, 1 fl í hverja af næstu 4 fl, 3 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* 3 sinnum og endið einungis á 2 fl í síðustu ll.
UMFERÐ 3: Skiptið yfir í litinn natur og heklið eins og umf 2.
UMFERÐ 4-5: Skiptið yfir í litinn ryðrauður og heklið eins og umf 2. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 09.09.2022
Leiðrétting undir BEIKON.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 24-43

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Cynthia wrote:

Not understanding where to find corrections understanding bacon.

07.10.2023 - 22:02

DROPS Design answered:

Dear Cynthia, the corrections under bacon have already been made; the online version is already correct. This is a tip for those who printed the pattern before the correction and may have an outdated pattern. Happy crochetting!

08.10.2023 - 21:06

country flag Joanna wrote:

Proszę o wyjaśnienie dot. tosta - w opisie jest "Ułożyć brzeg wokół spodu tostu i przer. wokół kromki kolorem brązowym. Przer. 1 oś w każde oś i 2 oś w każdy rz." w jakim dokładnie momencie przerabiać 2 oś? Nie rozumiem tej części opisu...

20.02.2023 - 01:25

DROPS Design answered:

Witaj Joanno, 1 oczko ścisłe przerabiasz w 1 oczko ścisłe w każde oczko na górze/dole kromki (1-szy i ostatni rząd kromki). 2 oczka ścisłe przerabiasz w każdy rząd, czyli na 2 bokach kromki. Pozdrawiamy!

20.02.2023 - 13:42

country flag Dorthe Jansen wrote:

Der er ensrettelse til bacon opskriften men jeg kan ikke se hvad den er? Er de 35 masker korrekte?

05.12.2022 - 18:47

country flag Bożena wrote:

Czemu w opisie bekonu jest 46 o.ł. powinno być 35? Robią 46 wyjdzie dłuższy i nie zgodny z waszym zdjęciem

14.08.2022 - 23:40

DROPS Design answered:

Witaj Bożeno, zgadza się. Już to zgłosiłam. Wkrótce powinna pojawić się korekta. Dziękuję i pozdrawiam

17.08.2022 - 08:56

country flag Ine wrote:

Ik snap niet wat met t losse randje voor de boterham moet gaan gebeuren. Je maakt n losse en n vaste rand? Graag uw reactie. Groetjes Ine

03.06.2018 - 09:47

DROPS Design answered:

Dag Ine, Voor de boterham maak je eerst 2 lapjes, beige en dan een rand van bruin'; dit is zegmaar de korst die rondom de boterham komt en beide lapjes met elkaar verbindt. Je haakt deze dus rondom met vasten aan de lapjes. Dit doe je door vasten door de vasten te haken of 2 vasten als je a.h.w. op een toer vast moet haken (dus wanneer der rand langs de zijkant van de lapjes ligt)

03.06.2018 - 17:21

country flag Margret wrote:

Ik heb dezelfde vraag als Jaukje. Wat tedoen met de rand van de boterham?

26.04.2018 - 08:27

DROPS Design answered:

Dag Margreet, De rand is a.h.w. de korst en verbindt beide lapjes voor de boterham. Deze haak je dus rondom de lapjes, tegen beide kanten aan.

03.06.2018 - 17:23

country flag De Knutseljuf Ede wrote:

Wat een geweldig haakpatroon, superleuk! Dit fantastische voorbeeld met natuurlijk een mooie link naar hier is ook genoemd in een blogje, dat heet: Haak een pannenkoek! Kijk dan even op FB bij Crea met Kids 2-12 jr

14.03.2018 - 23:22

country flag Mirelle Rothengatter wrote:

Ik wil mijn complimenten geven voor uw prachtige ontwerp! Het ziet er net echt uit! Ik heb in mijn blog een verwijzing gegeven naar uw blog zodat iedereen dit kan bekijken en haken! Vriendelijke groeten,Mirelle

14.03.2018 - 23:11

country flag Jaukje wrote:

Hallo, ik heb het spiegelei en het spek gehaakt. Erg leuk geworden. Nu wil ik de boterham maken, maar hoe zet ik deze in elkaar? In de uitleg staat niet hoe ik de rand aan het donkerbeige vast moet maken. Groeten Jaukje.

02.06.2015 - 20:18

DROPS Design answered:

Hoi Jaukje. Je haakt eerst de rand met bruin zoals beschreven: "Haak 4 l met bruin en haaknld 4 mm, keer en haak 1 v in tweede l, haak 1 v in elke l = 3 v. Haak 1 v in elke v tot rand ongeveer 39 cm meet". Dan staat er: "Leg de bovenkant op de onderkant en haak rondom het hele sneetje brood met bruin. Haak 1 v in elke v en 2 v in elke toer, vul als er nog ongeveer 5 cm over is het sneetje brood met wat kussenvulling en haak dan verder. Hecht de draad af."

03.06.2015 - 13:39

country flag Rita wrote:

Ich habe das Spiegelei gehäkelt und es ist toll geworden. Meine Jungs lieben es!! Nun muss wohl die Kinderküche mit noch mehr Lebensmittel gefüllt werden;) Vielen Dank für die tolle Anleitung!!

08.10.2014 - 21:41