DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8316.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Little Oliver

Hekluð jakkapeysa með opi og kanti með tölum framan við hálsmál úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð börn 3-12 ára

DROPS Children 24-28
DROPS Design: Mynstur nr me-014-bn
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------
Stærð: 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærð í cm: 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152
Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
250-250-300-300-350 gr litur nr 23, gráblár
200-200-200-250-250 gr litur nr 15, ljós grágrænn

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 l og 12 umf með mynstri verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA NR 513, TRÉTALA: 2-2-3-3-3 stk.
--------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8316.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í öllum umf með fl er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll.
Í öllum umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll.

MYNSTUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
UMFERÐ 1: Heklið 1 st í hverja fl með ljós grágrænn.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í hvern st með ljós grágrænn.
UMFERÐ 3: Heklið 1 st í hverja fl með gráblár.
UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hvern st með gráblár.
Endurtakið umf 1 til 4.

MYNSTUR Á ERMI:
UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í hvern st með gráblár.
UMFERÐ 2: Heklið 1 st í hverja fl með gráblár.
UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hvern st með gráblár.
UMFERÐ 4: Heklið 1 st í hverja fl með gráblár.
UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í hvern st með gráblár.
UMFERÐ 6: Heklið 1 st í hverja fl með gráblár.
UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hvern st með ljós grágrænn.
UMFERÐ 8: Heklið 1 st í hverja fl með ljós grágrænn.
Endurtakið umf 1 til 8.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l með því að hekla 2 l saman.
Heklið 2 fl saman þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu l, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

Heklið 2 st saman þannig: Heklið 1 st í fyrstu l, bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næstu l, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.
--------------------------------------------------------

PEYSA:
Svo að áferðin verði eins í öllu stykkinu, heklið öll stykkin fram og til baka og saumið saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Heklið 67-71-76-81-85 ll með gráblár með heklunál nr 4. Haldið áfram með 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, síðan 1 fl í hverja og eina af næstu 2-6-4-2-6 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja og eina af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 58-62-66-70-74 fl (fyrsta ll = 1 fl). LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Snúið við og heklið 4 umf með 1 fl í hverja fl. Haldið áfram með MYNSTUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI til loka – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 10-11-12-13-14 cm, aukið út um 1 l í hvorri hlið með því að hekla 2 l í næst síðustu l. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24 cm = 62-66-70-74-78 l. Þegar stykkið mælist ca 27-30-33-36-39 cm (passið uppá að næsta umf er umf með fl), fellið af fyrir handveg þannig: Heklið kl yfir 4 fyrstu st, heklið nú fl þar til 4 st eru eftir, snúið við. * Heklið 3 ll (= 1 st), heklið nú 2 næstu st saman – SJÁ ÚRTAKA, heklið st þar til 3 fl eru eftir, heklið 2 næstu st saman, síðan 1 st í síðustu f. Snúið við og heklið 1 umf með fl yfir allar l til baka, snúið við *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar = 46-50-54-58-62 l í umf.
Heklið nú áfram þar til stykkið mælist ca 39-43-47-51-55 cm. Heklið nú 2 umf með mynstri eins og áður einungis yfir 12-13-14-16-17 l í hvorri hlið (miðju 22-24-26-26-28 l = hálsmál). Klippið frá.

FRAMSTYKKI:
Heklið eins og bakstykki þar til stykkið mælist ca 27-30-33-36-39 cm (stillið af þannig að næsta umf er umf með fl) = 62-66-70-74-78 st. Nú byrjar úrtaka fyrir handveg – jafnframt er stykkinu skipt við miðju að framan fyrir op.

STYKKI 1:
Heklið kl yfir 4 fyrstu st, síðan eru heklaðar fl yfir næstu 29-31-33-35-37 st * snúið við og heklið st til baka þar til 3 fl eru eftir, heklið 2 næstu st saman – SJÁ ÚRTAKA, heklið nú 1 st í síðustu fl. Snúið við og heklið fl til baka yfir alla st *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar. Nú hefur fækkað um alls 8 l fyrir handveg og eftir eru 25-27-29-31-33 l í umf. Heklið nú áfram eins og áður. Þegar stykkið mælist ca 35-38-42-45-49 cm (stillið af að næsta umf byrjar frá hlið), byrjið úrtöku við hálsmál.
Nú er einungis heklað yfir fyrstu 17-18-19-21-22 l. Snúið og heklið til baka – jafnframt eru heklaðar 4 fyrstu l við hálsmál saman 2 og 2 – SJÁ ÚRTAKA! Í næstu umf eru 2 síðustu l við hálsmál heklaðar saman, endurtakið þessa úrtöku í hverri umf 2 sinnum til viðbótar = 12-13-14-16-17 l eftir fyrir öxl. Heklið nú áfram þar til stykkið mælist 40-44-48-52-56 cm, klippið frá.

STYKKI 2:
Byrjið við miðju að framan og heklið 1 fl á bakstykki í hverja og eina af 4 síðustu l frá stykki 1 (þannig að kantur fyrir hnappagöt liggi yfir kant fyrir tölur neðst niðri). Heklið nú fl fram þar til 4 st eru eftir, snúið við og heklið til baka. Heklið nú þessa hlið eins og stykki 1.

ERMI:
Ermin er hekluð ofan frá og niður.
Heklið 32-35-38-43-46 ll með heklunál nr 4 með gráblár.
Fyrsta umf er hekluð þannig. Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið 1 fl í hverja og eina af 2-1-0-1-0 næstu ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja og eina af 3 næstu ll*, endurtakið frá *-* út umf = 24-26-28-32-34 fl í umf (þetta er umf 1 í MYNSTUR Á ERMI – sjá útskýringu að ofan). Haldið nú áfram með rendur eins og útskýrt er í MYNSTUR Á ERMI. JAFNFRAMT er aukið út í hvorri hlið í hverri umf með st þannig:
Aukið út í hverri umf með st með því að hekla 2 st í l innan við síðustu l í hvorri hlið (= 1 st fleiri í hvorri hlið – ATH: í umf með fl er hekluð 1 fl í hvern st án þess að auka út).
Haldið svona áfram með útaukningu þar til 38-40-42-46-48 l eru eftir í umf (stillið af að næsta umf er umf með fl).
Klippið frá og heklið þannig: Heklið 4 lausar ll, heklið 1 fl í hverja eina af 38-40-42-46-48 st í umf og heklið síðan 6 lausar ll, snúið við og heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, 1 st í hverja eina af 2 næstu ll, heklið 1 st í hverja eina af þeim 38-40-42-46-48 fl í umf og endið á 1 st í hverja og eina af 4 ll í lok umf = 46-48-50-54-56 st í umf. Setjið 1 prjónamerki yst í aðra hliðina á stykki. Ermakúpan er nú hekluð og heklið nú niður ermina þannig:
Haldið áfram með MYNSTUR Á ERMI í röndum eins og áður. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm frá prjónamerki er fækkað um 1 st/fl í hvorri hlið með því að hekla 2 næst síðustu st/fl í hvorri hlið saman – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í 4.- 4.- 5.- 5.- 5. hverri umf 5-6-6-7-8 sinnum til viðbótar (= alls 6-7-7-8-9 l færri) = 34-34-36-38-38 l í umf. JAFNFRAMT þegar ermin mælist ca 30-34-39-43-47 cm – stillið af eftir 1 rönd með ljós grágrænn, heklið með gráblár til loka. Þegar stykkið mælist 35-39-43-47-51 cm klippið frá. Heklið aðra ermi alveg eins.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma, hliðarsauma og ermasauma kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið síðan ermar í fram- og bakstykki. Saumið tölur í hægra stykki við miðju að framan og hneppið í gegnum l.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið nú kant meðfram opi að framan, í kringum hálsinn og niður meðfram hinni hliðinni á opi.
Byrjið frá réttu og heklið með gráblár með heklunál nr 4 þannig: Heklið 1 fl í 1. fl, * 1 ll, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* passið uppá að kanturinn verði jafn og fallegur. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 03.03.2014
ERMI/Klippið frá og heklið þannig (2 st fleiri):... fl í umf og endið á 1 st í hverja og eina af 4 ll í lok umf = 46-48-50-54-56 st í umf. + ERMI/ Haldið áfram með MYNSTUR Á ERMI með röndum eins og áður ( 2 st fleiri):... = 34-34-36-38-38 l í röð JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca ...

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 24-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (55)

country flag Monika wrote:

Hallo, danke für Ihre schönen Anleitungen! Zu dieser habe ich zwei Fragen: 1) Wie kommt man bei der Breite von 34 cm auf 26 cm, wenn je Armauschnitt 7 cm gerechnet sind? 2) Kann ich diesen Pullover auch gerade hoch häkeln, also ohne Abnahmen für die Achseln und auch die Ärmel gerade, also ohne Armkugel, arbeiten oder ergibt das keine brauchbare Form? Würde mich sehr über Antwort freuen, eilt nicht! Monika

07.11.2023 - 13:42

DROPS Design answered:

Liebe Monika, so wird es nicht gerechnet; die 7 cm sind für die Armkugel, aber in die 1. Größe messen die Armausschnitt nur 8 Maschen beidseitig in der Breite = ca 4 cm. Viel Spaß beim häkeln!

08.11.2023 - 07:47

country flag Marie Nordqvist wrote:

Var beskrivs knapphålen? Ska de inte vara på den påvirkade kanten runt halsen och ned mot sprunnet?

01.05.2023 - 15:36

DROPS Design answered:

Hei Marie. Det kneppes igjennom en stavmaske, så da trenges det ikke å hekle egen knappehull. Sy knappene på i høyre siden og kneppes igjennom en maske på venstre side. mvh DROPS Design

02.05.2023 - 14:03

country flag Marie Nordqvist wrote:

Sen man ökat till 38 maskor på varvet å klippt av tråden, skall man börja med ärmkullen...🤔 Men då är ju bara ärmen drygt en decimeter lång bara.\r\nHar man inte missat i beskrivningen, att man skall sticka vidare tills arbetet mäter ett visst mått, innan man börjar med ärmkullen. I beskrivningen, efter ärmkullen, när man minskar nedåt, finns det ju längdangivelser på både 30 och 35 cm??? HJÄLP!

27.04.2023 - 12:38

DROPS Design answered:

Hej igen Marie, du börjar uppifrån med ärmkullen och först när du har ökat 1 m i varje sida 7ggr (= 13 varv) har du 38 m och du klipper tråden :)

27.04.2023 - 13:32

country flag Marie Nordqvist wrote:

Har nyss skickat in mitt problem! Frågan var ju HUR man gör, när man stickat första sidan på framstycket och skall sticka andra sidan? Vad menas med att sticka i de 4:a första maskorna från första sidan (vid delningen) ? Sen ska man sticka vidare på stolpar, vilken sida är man på då? Efter att man klurat ut det, om man lyckas, ska man fortsätta med sida 2. Förstår inte🤔 Jobbigt😑😅

26.04.2023 - 11:39

DROPS Design answered:

Hej Marie, du virkar bakom de 4 första m mitt fram (i samma 4 maskor) sedan fortsætter du över det andra framstycket på samma sätt som du virkade 1:a sidan (framstycket) :)

26.04.2023 - 14:55

country flag Marie Nordqvist wrote:

Har gjort första sidan på framstycket, del 1 Ska nu börja med del 2. Står att jag skall virka i de 4 1:a maskorna från del 1 sedan fortsätta med fasta maskor till det återstår 4 stolpar. Efter det fortsätta som del 1, med del 2.

25.04.2023 - 17:57

DROPS Design answered:

Hej Marie, ja det stemmer, hvad er dit spørgsmål?

26.04.2023 - 07:54

country flag Nathalie wrote:

Diminutions au total) = 34-34-36-38-38 m. EN MÊME TEMPS, quand la manche mesure environ 30-34-39-43-47 cm – ajuster après 1 rayure gris clair, terminer en bleu gris jusqu'à la fin. À 35-39-43-47-51 cm de hauteur totale, arrêter. En suivant bien les diminutions, je suis bien a 38 m mais 52 cm. Alors je ne comprend pas?

29.12.2022 - 05:10

DROPS Design answered:

Bonjour Nathalie, votre échantillon est-il exact? Vous devez avoir 12 rangs du point fantaisie (= alternativement 1 rang de brides, 1 rang de mailles serrées) = 10 cm, si vous diminuez 8 fois tous les 5 rangs, il vous faut : 7x5 + le dernier rang de diminutions = 36 rangs soit 30 cm + les 2 cm avant de commencer à diminuer + les 7 cm de la tête de manche= 39 cm. Si vous ne tombez pas juste en hauteur, essayez en diminuant moins souvent. Bon crochet!

02.01.2023 - 11:38

country flag Nathalie wrote:

Répéter ces diminutions encore 5-6-6-7-8 fois tous les 4 -4 -5 -5 -5 rangs(= 6-7-7-8-9 diminutions au total) = 34-34-36-38-38 m. EN MÊME TEMPS, quand la manche mesure environ 30-34-39-43-47 cm – ajuster après 1 rayure gris clair, terminer en bleu gris jusqu'à la fin. Bonjour, j'ai du mal à suivre: tous les 5 rangs faire la diminution pourriez vous me l'expliquer simplement svp. Je vous remercie

17.12.2022 - 14:01

DROPS Design answered:

Bonjour Nathalie, crochetez 1 rang en diminuant 1 maille de chaque côté (à 1 m des bords), crochetez 4 rangs sans diminuer et crochetez ces 5 rangs ainsi le nombre de fois indiqué pour la taille. Bon crochet!

19.12.2022 - 08:50

country flag Nancy G wrote:

Cont.- if the sweater weren’t buttoned, what would it look like? The 2 sides? Is Side 1 on the right or left?

15.01.2022 - 23:03

DROPS Design answered:

Dear Nancy, for boys the side that is overlapping is usually the left one, passing over the right side. So the 1st side would be the left one and the Side 2 would be the right one. Happy crocheting!

17.01.2022 - 00:17

country flag Nancy G wrote:

Front sides- help!\r\nI did side 1 backwards\r\nNeither Side is right at the neck.

15.01.2022 - 22:22

country flag Linda wrote:

I'm stuck on the last part of the back. It says work 2 rows in pattern for 16 stitches on each side. How do you get to the other side? Do you slip stitch the middle stitches or cut the yarn and fasten on the other side? Thx

18.12.2021 - 06:20

DROPS Design answered:

Dear Linda, in this case, you would need to cut the yarn and fasten on the other side. Happy crochetting!

19.12.2021 - 18:29