DROPS Vivaldi
DROPS Vivaldi
56% Mohair, 30% Polyamide, 14% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS Extra 0-914
DROPS Design: Mynstur nr oo-101
Garnflokkur C
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS VIVALDI frá Garnstudio
200-200-200-250-250-300 gr litur nr 24, ljós fjólublár

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 14 st og 7 umf af mynstri A.1 = 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Vivaldi
DROPS Vivaldi
56% Mohair, 30% Polyamide, 14% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta st í hverri umf er skipt út fyrir 3 ll.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 st með því að hekla 2 st saman þannig:
Heklið 1 st í fyrstu l, bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næstu l, þegar draga á þráðinn í gegn er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið 175-187-204-225-244-264 ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við) með heklunál nr 5 með Vivaldi.
Heklið næstu umf þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni , heklið síðan 1 st í hverja af næstu 3-3-2-5-6-2 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 5 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 145-155-169-187-203-219 st (3 fyrstu ll = 1 st). LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!
Setjið 1 prjónamerki eftir 37-40-43-48-52-56 st inn frá hvorri hlið (= 71-75-83-91-99-107 st á milli prjónamerkja á bakstykki).
Haldið áfram með mynstur A.1 þannig: a yfir 2 fyrstu st, b þar til 3 st eru eftir, síðan c. Þeir 3 síðustu st í hvorri hlið = kantur að framan. Endurtakið 3 umf í mynstri til loka. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Jafnframt þegar stykkið mælist ca 15 cm, fellið af 1 st hvoru megin við prjónamerki – fellið af í fyrstu eða þriðju umf í mynstri með því að hekla 2 st saman – SJÁ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með ca 5 cm millibili 6 sinnum til viðbótar. Eftir úrtöku eru 117-127-141-159-175-191 st eftir í umf og stykkið mælist ca 45 cm.
LESIÐ AÐ SEINNA FRAMSTYKKI ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM!

KRAGI:
Þegar stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm, byrjar útaukning fyrir sjalkraga. Aukið út í næstu umf með því að hekla 2 st í næst síðasta st í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu í hverri umf 5 sinnum til viðbótar, síðan í annarri hverri umf 2 sinnum. Útauknnar lykkjur eru einungis heklaðar með st, þ.e.a.s. eftir útaukningu eru 11 st í hvorri hlið við gatamynstur í umf 2 í mynstri A.1.

HANDVEGUR:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 53-54-55-56-57-58 cm, er bakstykki og hvort framstykki heklað til loka fyrir sig.

FYRRA FRAMSTYKKI:
Heklið þar til eftir eru 2-3-3-4-5-6 st á undan prjónamerki, snúið við og heklið til baka. Þegar öll útaukning hefur verið gerð fyrir kraga, eru 36-38-41-45-48-51 l í umf. Heklið nú áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 72-74-76-78-80-82 cm – passið uppá að næsta umf byrji frá miðju að framan. Síðustu 19-20-23-26-29-32 l við handveg = öxl, eru ekki lengur heklaðar. Haldið áfram með 4 umf með st yfir þær 17-18-18-19-19-19 l við miðju að framan (= kragi). Heklið nú næstu umf þannig (frá miðju að framan): Heklið 1 st í hvern af fyrstu 10 st, * 1 hst í næsta st, 1 fl í næsta st og 1 kl í næsta st, snúið við með 1 ll. Hoppið yfir kl og heklið 1 kl í fl, 1 fl í hst, 1 hst í fyrsta st og st út umf *. Snúið við og heklið 1 st í hvern af fyrstu 6 st, endurtakið síðan í sömu umf frá *-* 1 sinni til viðbótar. Klippið frá.

SEINNA FRAMSTYKKI:
Heklið á sama hátt og fyrra framstykki, nema spegilmynd.

BAKSTYKKI:
Heklið mynstur eins og áður yfir miðju 53-55-63-69-75-81 st (4-6-6-8-10-12 st í hvorri hlið = handvegur). Þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm, heklið 1 umf einungis yfir síðustu 19-20-23-26-29-32 st í hvorri hlið (miðju 15-15-17-17-17-17 st = hálsmál). Klippið frá.

ERMI:
Stykkið er heklað fram og til baka og saumað saman í lokin. Heklið 40-43-43-45-45-48 ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við) með heklunál nr 5 með Vivaldi. Snúið við og heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni. Haldið áfram með 1 st í hverja af næstu 6-3-3-5-5-2 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 5 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 33-35-35-37-37-39 st – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Haldið áfram eftir mynstri A.1b – endið á 1 st í síðasta st. Þegar A.1 hefur verið heklað 3 sinnum á hæðina, haldið áfram einungis með st til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10 cm, aukið út um 1 st í hvorri hlið með því að hekla 2 st í næst síðasta st. Endurtakið útaukningu í 4. – 3. – 3.- 2. – 2. – 2. hverri umf 6-7-8-8-10-10 sinnum til viðbótar = 47-51-53-55-59-61 st. Þegar stykkið mælist 50-50-47-46-42-41 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna víðari erma og breiðari axla), heklið næstu umf þannig. Heklið kl yfir fyrstu 4 st, síðan 1 kl + 3 ll upp frá næsta st, haldið áfram með st þar til 4 l eru eftir, snúið við. Heklið nú 2 síðustu st saman í hvorri hlið á næstu 3-3-4-4-5-5 umf. Klippið frá, þegar stykkið mælist ca 56-56-54-53-51-50 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma. Saumið saman kragann við miðju að aftan kant í kant og saumið síðan kragann við hálsmálið á bakstykki. Saumið saman ermar kant í kant og saumið ermarnar á fram- og bakstykki.

BELTI:
Heklið 12 ll með heklunál nr 5 með Vivaldi. Snúið við og heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, heklið nú 1 st í hverja af síðustu 8 ll (= 10 st). Snúið við og haldið áfram með 1 st í hvern st þar til beltið mælist ca 100-110-120-130-140-150 cm, klippið frá og festið enda.
Gerið lítinn hnút neðst niðri í hvorum enda á beltinu og vefjið beltinu utan um mittið.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 15.02.2021
Leiðrétting (á að vera stuðull): FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka frá miðju að framan.
Heklið 175-187-204-225-244-264 ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við) með heklunál nr 5 með Vivaldi. Heklið næstu umf þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni , heklið síðan 1 st í hverja og eina af næstu 3-3-2-5-6-2 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja og eina af 5 næstu ll *,

Mynstur

symbols = 1 ll
symbols = 1 st
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-914

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Helen Mala wrote:

Srdečné pozdravy, nemohu přijít na to, jak má být háčkováno toto: ... , then work 1 tr in each of the next 3-3-2-5-6-2 ch, ... . Týká se to návodu "BODY". Prosím o vysvětlení, děkuji Vám. Helen

26.02.2023 - 10:42

DROPS Design answered:

Dobrý den, Helen, then work 1 tr in each of the next 3-3-2-5-6-2 ch = pak háčkujeme po 1 dlouhém sloupku do každého z následujících 3-3-2-5-6-2 řetízkových ok. Hodně zdaru! Hana

26.02.2023 - 11:43

country flag Sascha wrote:

Hoi, ik lees bij de mouw dat er bij een hoogte van 50cm: haak hv over de eerste 4 stk, dan 1 hv en 3 l in volgend stk. Hoe haak ik 3 l (losse?) in volgend stk?

17.11.2021 - 16:21

DROPS Design answered:

Dag Sascha,

Je haakt een vaste in de volgende steek en daarna haak je 3 losssen. (Dus die lossen hoef je niet ergens in te haken.)

09.12.2021 - 13:53

country flag Monica wrote:

In the body, the instructions say: * skip 1 ch, 1 dc in each of the next 5 ch * However, the diagram and all other instructions only use a tr rather than dc stitch. Am I correct in assuming that the instructions should be * skip 1 ch, 1 tr in each of the next 5 ch *?

13.02.2021 - 08:24

DROPS Design answered:

Dear Monica, thanks for noticing, parttern has been edited now, you should work a row of trebles there (no double crochet at all) (UK-crochet terms). Happy crocheting!

15.02.2021 - 10:44

country flag Alex wrote:

Hi, ich verstehe den Aufbau des Kragens nicht. Die 500 Zeichen in der Kommentarspalte reichen leider nicht aus, um meine Herangehensweise/Frage wie der Kragen pro Reihe aufgebaut wird, zu stellen. Könntet ihr mich evtl. per Mail kontaktieren? Danke, Alex

17.01.2021 - 20:05

DROPS Design answered:

Liebe Alex, der Kragen wird mit unterschiedlichen Maschen und verkürzten Reihen gehäkelt, damit er Höher gegen Blende als gegen Schulter wird. Folgen Sie die Beschreibung Schritt für Schritt. Sollten Sie individuelle Assistanz brauchen, dann wird Ihnen Ihr DROPS Händler gerne auch telefonisch oder per E-Mail weiterhelfen. Viel Spaß beim häkeln!

18.01.2021 - 11:22

country flag Evelien wrote:

Hoi, Er staat tussen sterretjes dat ik het patron van 1 losse en 5 vasten moet herhalen en dan kom ik uit op 187 stokjes. Moet ik nu vasten of stokjes haken? Haak volgende toer als volgt: 1 stk in 4e l vanaf haak, haak dan 1 stk in elke van volgende 3-3-2-5-6-2 l, * sla 1 l over, 1 v in elke van de volgende 5 l *, herhaal van *-* de rest van toer = 145-155-169-187-203-219 stk Groet Evelien

13.06.2016 - 14:38

DROPS Design answered:

Hoi Evelien. De eerste toer waren stk. Hierna haak je volgens het telpatroon - zie onderaan

16.06.2016 - 15:45

country flag Martina wrote:

Hallo! Ich möchte mir gerne diese Jacke häkeln, von mir aber nicht sicher bei der Größe. Ich trage Kaufgröße 46, welche Größe soll ich häkeln? XL? Lg Martina

07.02.2016 - 20:45

DROPS Design answered:

Schauen Sie am besten in die Maßskizze ganz am Ende der Anleitung, dort finden Sie alle relevanten Maße. Vergleichen Sie die Maße mit einer gut sitzenden Jacke oder messen an sich selbst und wählen Sie dann die entsprechende Größe aus. Viel Spaß beim Häkeln!

09.02.2016 - 14:45

country flag Janina wrote:

Hallo ihr Lieben, ich verstehe diesen Teil der Anleitung leider nicht : RUMPFTEIL : ... Die nächste R wie folgt häkeln: 1 Stb in die 4. Lm von der Nadel, dann 1 Stb in jede der nächsten 3-3-2-5-6-2 Lm, * 1 Lm überspringen, 1 feste M in jede der 5 nächsten Lm *, von * - * wdh = 145-155-169-187-203-219 Stb .... wenn ich 1LM überspringen und dann 5 feste Maschen machen soll uns das immer wiederhole. Wie soll ich dann am Ende auf Stäbchen kommen ?

14.09.2015 - 14:00

DROPS Design answered:

Liebe Janina, das ist tatsächlich ein Fehler in der Anleitung, der gleich korrigiert wird, es sind Stäbchen gemeint, nicht feste Maschen. Entschuldigung für die Verwirrung und gutes Gelingen!

20.09.2015 - 11:13

Paloma wrote:

Qué chaqueta tan maravillosa!!! Tengo algunos problemas al intentar leer el patrón. No tenéis pensado traducirlo al español? Qué pena!

09.04.2014 - 15:59

DROPS Design answered:

Hola Paloma! Estamos intentando ponernos al día con las traducciones al español porque se empezó más tarde. Tomo nota y verás que este patrón estará traducido en unos pocos días. Entre las colecciones nuevas hacemos un esfuerzo para que vayan saliendo patrones anteriores. Gracias por seguirnos.

11.04.2014 - 11:38

country flag Monica wrote:

Varför går det inte att skriva ut era mönster?

14.01.2014 - 16:46

DROPS Design answered:

Hej Monica. Der skulle ikke vaere fejl paa vores side ved udskrivning. Pröv en gang til (evt tryk paa F5 (refresh)) og se om det ikke virker.

14.01.2014 - 17:21

country flag Wendelien wrote:

Haak volgende toer als volgt: 1 stk in 4e l vanaf haak, haak dan 1 stk in elke van volgende 3-3-2-5-6-2 l, * sla 1 l over, 1 v in elke van de volgende 5 l *, herhaal van *-* de rest van toer = 145-155-169-187-203-219 stk (eerste 3 l = 1 stk) volgens mij zit er een fout hier in omdat ik niet uit kom op stokjes want wat er staat tussen de sterretjes klopt dan niet als ik uit moet komen met het aantal stokjes wendelien

03.01.2014 - 10:49

DROPS Design answered:

Hoi Wendelien. Zou je willen doorgeven welke maat je haakt, dan kan ik sneller berekenen of er een fout zit of uitleggen hoe je moet haken. Alvast bedankt.

14.01.2014 - 15:30