DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6864.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Purple Crocus

Heklaður kjóll úr DROPS Muskat með gatamynstri neðst niðri og tölum í hlið. Stærð S-XXXL

DROPS 146-23
DROPS Design: Mynstur nr r-629
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
600-650-700-750-850-950 gr litur nr 09, ljós brúnn

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 15 umf með mynstri A.1 verði = 10 x 10 cm.
DROPS TALA NR 521: 5 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6864.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í hverri umf með fl er fyrsta fl skipt út fyrir 1 ll.
Í hverri umf með st, er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l með því að hekla 2 l saman.
Heklið 2 st saman þannig: Heklið 1 st í fyrstu l, bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næstu l, þegar draga á þráðinn í gegn í síðasta sinn er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.
Heklið 2 fl saman þannig: Stingið heklunálinni niður í fyrstu l, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Til að áferðin verði eins alla leið, er stykkið heklað fram og til baka í 2 stykkjum sem saumuð eru saman í lokn.

FRAMSTYKKI:
Heklið 90-97-104-111-125-139 ll með Muskat með heklunál nr 4.
Haldið áfram með 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, síðan 1 fl í hverja af næstu 4 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 78-84-90-96-108-120 fl (ll sem notaðar eru til að snúa við með eru einnig taldar með sem 1 fl) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Snúið við og heklið 1 fl í hverja l til baka. Haldið áfram með mynstur A.1.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar stykkið mælist ca 23-24-25-26-27-28 cm (passið uppá að næsta umf sé umf með st), fellið af 4 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með ca 2 cm millibili 4 sinnum til viðbótar (passið uppá að fellt sé af í umf með st) = 58-64-70-76-88-100 l í umf. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm, aukið úr um 5 l jafnt yfir með því að hekla 2 l í 1 l. Endurtakið útaukningu með 3 cm millibili 2 sinnum til viðbótar – en síðasta skiptið er aukið út um 4-4-6-6-6-6 l jafnt yfir. Eftir útaukningu eru 72-78-86-92-104-116 l í umf. Þegar stykkið mælist 52-53-54-55-56-57 cm, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið. Þetta er gert þannig: Heklið kl í fyrstu 4-5-5-6-7-8 l, heklið nú fram þar til 4-5-5-6-7-8 l eru eftir, snúið við. Í næstu umf eru 4 síðustu l í hvorri hlið heklaðar saman 2 og 2 – SJÁ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í hverri umf 0-0-1-1-2-3 sinnum til viðbótar. Í næstu umf eru 2 síðustu l heklaðar saman, endurtakið úrtöku í hverri umf 2-2-2-3-4-5 sinnum til viðbótar. Eftir úrtöku eru 54-58-62-64-68-72 l í umf. Haldið áfram með A.1. Þegar stykkið mælist 60-61-63-64-66-67 cm, heklið hvora öxl til loka fyrir sig.
FYRRI ÖXL: Heklið mynstur A.1 eins og áður yfir fyrstu 17-19-21-22-23-24 l, snúið við og heklið 4 fyrstu l saman 2 og 2, heklið nú út umf. Snúið við og heklið fram þar til 4 l eru eftir að hálsmáli, heklið þessar saman 2 og 2, snúið við. Í næstu umf eru 2 fyrstu l heklaðar saman, heklið síðan úr umf. Snúið við, heklið þar til 2 l eru eftir, heklið þær saman. Snúið við, heklið 2 fyrstu l saman, heklið út umf = 10-12-14-15-16-17 l eftir á öxl. Haldið áfram með A.1 þar til stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm, klippið frá.
SEINNI ÖXL: Heklið eins og sú fyrri – passið uppá að byrja í réttri umf í mynstri og að enda efst í sömu umf og fyrri öxl.

BYLGJULAGA KANTUR AÐ NEÐAN:
Heklið bylgjulaga kant að neðan á framstykki þannig:
Byrjið með að hekla 1 umf með fl frá réttu – aukið út jafnt yfir svo að það verða alls 91-97-103-109-121-139 fl. Snúið við og haldið áfram með mynstur A.2 þannig: A yfir fyrstu 7 l, síðan b þar til 6 l eru eftir, endið með c. Heklið 4 umf í A.2 tvisvar sinnum á hæðina þá mælist bylgjulaga kanturinn ca 10 cm, klippið frá og festið enda.

BAKSTYKKI:
Heklið á sama hátt og framstykki með úrtöku fyrir handveg = 54-58-62-64-68-72 l í umf. Heklið nú áfram þar til stykkið mælist ca 68-70-72-74-76-78 cm. Nú er hvor öxl hekluð til loka fyrir sig þannig: Heklið 1 umf yfir fyrstu 12-14-16-17-18-19 l, snúið við, heklið 2 fyrstu l saman, heklið út umf. Snúið við, heklið þar til 2 l eru eftir, heklið þær saman. Snúið við, heklið 1 l í hverja l út umf, klippið frá. Endurtakið á hinni öxlinni.
Heklið bylgjulaga kant neðst niðri á sama hátt og á framstykki.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið hægri hliðarsaum alla leið – kant í kant svo að saumurinn sjáist sem minnst. Saumið vinstri hliðarsaum alveg eins, en skiljið eftir op á hlið fyrir tölur. Þetta op á að vera ca 18 cm langt og byrja ca 10 cm neðan við handveg.

HNESLA:
Heklið meðfram opinu á framstykki – byrjið efst uppi þannig: Heklið 1 fl, * 3 ll, hoppið yfir ca 1 cm, heklið síðan fl í ca 2,5 cm *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, endið með 3 ll og 1 fl neðst niðri við opið. Saumið tölurnar yst meðfram opi á bakstykki, svo að þær passi við framstykki.

KANTUR Í KRINGUM HANDVEG OG HÁLSMÁL:
Heklið í kringum hálsmál og handveg þannig: Heklið 1 fl, * 3 ll, 1 st í 3. ll frá heklunálinni, hoppið fram ca 1 cm og heklið 1 fl *, endurtakið frá *-* út umf og endið með 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 01.02.2013
Röð á mynsturútskýringu er röng í vörulista

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 fastalykkja
symbols = 1 stuðull
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 146-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (32)

country flag Kamila Zoufalá wrote:

Dobrý den, jsem u těchto šatů u prvního ujimani. Když mám u vel. L nyní 90 ok, co znamená - rovnoměrně ujměte 4 oka. Chápu to dobře, že je to na začátku a na konci a potom 2x někde uprostřed? Že to má ve výsledku mít nějakou linii, když se ujimani opakuje celkem 5x po 2 cm? Děkuji za odpověď.

12.06.2021 - 19:14

DROPS Design answered:

Hi Kamila, there will be no straight line when you dectrease stitches, it will not be visible at all. How to decrease double crochet stitches you will find HERE. How to decrease treble crochet you will see HERE. Happy crocheting!

06.08.2021 - 10:22

country flag Sarah Ulkan wrote:

Wirklich ein wunderschönes Kleid, Wolle ist schon bestellt und ich kann es kaum erwarten damit zu beginnen und es im Sommer zu tragen

23.02.2019 - 04:29

country flag Susanne wrote:

Hallo. Kurze Frage: Die Maschenzunahme von 5 Maschen, bezieht sich das auf je 5 Maschen pro Reihe oder gesamt und was bedeutet 4-4-6-6-6-6? Vielen Dank für eine Antwort. LG Susanne

07.03.2018 - 10:44

DROPS Design answered:

Liebe Suzanne, in den 2 ersten Größe werden Sie 4 M zunehmen und in den 4 letzten Größen werden Sie 6 M zunehmen. Viel Spaß beim häkeln!

07.03.2018 - 12:51

country flag Karen wrote:

Voor kleding heb ik maat s (zowel voor broek als shirt) maar ik twijfel of dit wel gaat passen bij deze jurk, het breedste stuk is 80 cm omtrek maar bij mijzelf is het breedste stuk 96cm omtrek, maar als ik maat L zou aanhouden is het aantal cm bij de taile en borst weer veel te ruim, hebben jullie een advies welke maat ik het beste zou kunnen haken?

07.12.2017 - 20:14

DROPS Design answered:

Als je taille en buste maat S is en bij de heupen maat L, dan zou ik in maat L beginnen en na de heupen meer minderingen maken, zodat je ongeveer op maat S uitkomt bij de taille. Als je hem helemaal in maat L maakt, zit het niet mooi bij de schouders en borst e.d.

11.12.2017 - 12:43

country flag Karen Dijkstra wrote:

Ik ben pas begonnen aan purple crocus by drops design 146-23. Bij telpatroon A.1 tel ik 6 steken horizontaal, betekend dit dat ik na iedere 6 steken, 1 steek moet overslaan en dan weer 6 steken moet maken?

14.11.2017 - 19:47

DROPS Design answered:

Hoi Karen, Nee, je hoeft geen steken over te slaan. A.1 is 'toevallig' per 6 steken aangegeven en deze herhaal je steeds.

15.11.2017 - 10:55

country flag Marja wrote:

Wat is de lengte van deze jurk? Ik ben 1.65 lang en meestal is alles te lang voor mij.

27.05.2017 - 12:13

DROPS Design answered:

Hoi Marja, De totale lengte is 80 cm (Vanaf schouder naar beneden). Om de lengte aan te passen kun je in het rokgedeelte een aantal toeren minder maken. Veel haakplezier!

29.05.2017 - 13:20

country flag Margurithe Zellén wrote:

Skall jag fortsätta efter mönstret när jag minskar för ärmhål. Eller bara göra fm?

26.05.2017 - 10:14

DROPS Design answered:

Hej, du fortsätter med att virka A.1. Lycka till!

29.05.2017 - 14:48

country flag Yolanda wrote:

Ik moet nu meerderen voor de bovenkant (vanaf taille). Maar moet ik meerderen aan de zijkant? Of moet ik gelijkmatig over de gehele breedte meerderen?

02.02.2016 - 10:34

DROPS Design answered:

Hoi Yolanda. Nee, je moet meerderen gelijkmatig over de hele breedte - net zoals je deed bij het minderen voor de taille. Veel haakplezier verder.

03.02.2016 - 17:37

country flag Julie wrote:

Pattern sized at s thru to xxxl. But what are the measurements?? I don't know which size to make

27.05.2014 - 20:09

DROPS Design answered:

Dear Julie, you will find at the bottom of the page a measurement chart with all measures for each size taken flat, from side to side. Compare these with a similar garment you like the shape to find the matching size. Happy crocheting!

28.05.2014 - 08:52

country flag Øygunn Kallevik wrote:

Under volang nede står det: Øk jevnt fordelt til 103 masker. Utgangspunktet er 104 masker. Skal det bare økes med en maske? Er det litt lite garn? Jeg har brukt 350 g av 700 g mangler fortsatt volang nede.

11.05.2014 - 17:28

DROPS Design answered:

Hej. I large har du 104 lm men du har 90 fm på 1.rad. Så om du hekler i hver av de 90 fm så må det ökes i tillägg jevnt fördelt så det blir 103 m totalt. Vi har ikke hört tidigare at det skulle vara för lite eller för mye garn till denne design.

12.05.2014 - 19:24