DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4004.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 147-6
DROPS Design: Mynstur nr r-625
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M /L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
350-400-450-450-500 gr litur nr 30, vanillugulur

DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4 (80 og 40 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4004.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf slétt og 1 umf brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum frá réttu þannig: Byrjið 3 l á undan l með prjónamerki: Prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

LEIÐBEININGAR:
Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast verður laskalínan of stutt og handvegur of þröngur. Þetta er hægt að stilla af með því að prjóna 1 auka umf án úrtöku með jöfnu millibili á milli úrtöku.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

TOPPUR:
Fitjið upp 176-204-232-260-288 l á hringprjóna nr 4.
Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 2 prjónamerki í stykkið með 88-102-116-130-144 l millibili. Þegar stykkið mælist 7 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki, endurtakið úrtöku með 3 cm millibili alls 5 sinnum til viðbótar (alls 6 úrtökur )= 152-180-208-236-264 l. Þegar stykkið mælist 28 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki, endurtakið úrtöku með 5-5-5½-5½-6 cm millibili 3 sinnum til viðbótar (alls 4 útaukningar) = 168-196-224-252-280 l. Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm er prjónað garðaprjón yfir 8 l í hvorri hlið (= 4 l hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið), hinar l eru prjónaðar eins og áður. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umf í garðaprjóni yfir 8 l í hvorri hlið er þessar 8 l felldar af fyrir handveg = 152-180-208-236-264 l. Stykkið mælist nú ca 45-46-47-48-49 cm.

BERUSTYKKI:
Prjónið sléttprjón yfir framstykki, fitjið upp 48-48-55-55-62 nýjar l yfir handveg, prjónið sléttprjón yfir bakstykki, fitjið upp 48-48-55-55-62 nýjar l yfir handveg í hinni hliðinni = 248-276-318-346-388 l. Prjónið 3 umf yfir allar l þannig: Prjónið garðaprjón yfir miðju 44-44-51-51-58 nýjar l fyrir ermi, aðrar eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við nýju l fyrir ermi í hvorri hlið (= 4 prjónamerki). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið nú þannig: Prjónið 2 l sl, 2 l br, A.1 yfir næstu 70-84-98-112-126 l, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), 2 l br, A.1 yfir næstu 42-42-49-49-56 l, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), 2 l br, A.1 yfir næstu 70-84-98-112-126 l, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), 2 l br, A.1 yfir næstu 42-42-49-49-56 l, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l). Í næstu umf byrjar úrtaka fyrir laskalínu í hverri af þeim 4 skiptingum á milli fram- og bakstykkis og erma (þ.e.a.s. 8 l færri í hverri úrtöku umferð) – LESIÐ ÚRTAKA og LEIÐBEININGAR! Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf 2-3-2-3-2 sinnum til viðbótar í annarri hverri umf alls 12-11-15-14-18 sinnum (alls 15-15-18-18-21 úrtökur). Skiptið yfir á stutta hringprjóna eftir þörfum. Eftir úrtöku eru 128-156-174-202-220 l í umf. Prjónið 4 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 0-10-16-28-34 l jafnt yfir = 128-146-158-174-186 l. Fellið af.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 05.02.2013
ÚRTAKA: Fellið af frá réttu þannig: Byrjið 3 l á undan l með prjónamerki: Prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 147-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (53)

country flag Martina wrote:

Hallo. Der Mustersatz geht bei mir nicht auf. Das heisst, ab dem ich die Reihe mit den Umschlägen stricke wirkt für mich das Muster nicht so wie auf dem Bild. Ich fange mit den ersten 5 rechten Maschen an ( die ersten 2 rechten stricke ich zusammen dann stricke ich 2 Umschläge und dann bleibt noch eine rechte und eine linke Masche übrig. Hier hebe ich die rechte Masche ab und ziehe sie dann über die darauf folgende linke Masche, die ich zuvor rechts strickte? Ist das so richtig? LG Martina

23.03.2022 - 21:07

DROPS Design answered:

Liebe Martina, da Sie gleichzeitig für den Raglanabnehmen haben Sie nach und nach immer weniger Maschen, die in A.1 passen am Anfang und am Ende von jedem Teil (Vorder-, Rückenteil und Ärmel), wenn Sie nicht genügend Maschen um die Abnahmen + Umschlag bei der 3. Reihe zu stricken, dann stricken Sie diese Maschen rechts, aber das Muster muss immer in der Höhe wiederholt werden (also das Muster nicht verschieben, ben den ganzen Muster stricken Sie wie im Diagram gezeigt). Viel Spaß beim stricken!

24.03.2022 - 09:54

country flag Patricia Schwartz wrote:

I have placed markers at the beginning of the round and 102stitches apart.( Size med). When beginning the garter section 4 stitches each side of marker on each side . The. Problem is my first marker is at the beginning of my round . To do 4 stitches before an after marker means I would be knitting the entire round finishing up with last 4 stitches garter before starting the next round. When binding these stitches off creates a gap . What did I do wrong?

02.06.2020 - 22:21

DROPS Design answered:

Dear Mrs Schwartz, work the cast off row for armhole as follows: cast off the first 4 sts on round (the first 4 sts in garter st of the round), work until 4 sts remain before next marker, cast off the next 8 sts (= 4 sts before + 4 sts after marker), work until 4 sts remain before end of round, cast off the last 4 sts, cut the yarn and pull it through the last st. Join then yarn again on front piece to work yoke. Happy knitting!

03.06.2020 - 07:06

country flag Sabine wrote:

Hallo, ich möchte diese Tunika mit einem anderen Garn stricken. Mein Garn ist von Lana Grossa und heißt Summer Lace. Es besteht zu 97 % aus Baumwolle und zu 3 % aus Polyester bei einer Lauflänge von 195 m auf 50 g. 25 M und 32 R sollen 10 x 10 cm ergeben. Kann ich dieses Garn verwenden? Wie rechne ich die Maschenzahl um? Vielen Dank für Ihre Unterstützung. Mit freundlichen Grüßen Sabine

02.06.2020 - 18:41

DROPS Design answered:

Liebe Sabine, wir bitten um Verständnis, dass wir nicht Produkte unserer Konkurrenz empfehlen können und dass der Kauf des Materials uns hilft, weiterhin kostenlose Anleitungen zur Verfügung stellen zu können.

03.06.2020 - 06:39

country flag Tracey wrote:

Where do I put markers after complete 6 garter rows. I’m doing 5th size do I put marker in the beg Continue in stockinette st. REMEMBER THE GAUGE! Insert 2 markers in the piece, 88-102-116-130-144 sts apart. When piece measures 7 cm / 2¾'', dec 1 st on each side of markers, repeat dec every 3 cm / 1 1/8'' 5 more times (6 dec in total) = 152-180-208-236-264 sts.

29.01.2020 - 15:03

DROPS Design answered:

Dear Tracey, in 5th size insert 1 marker at the beg of the round and the other marker after 144 sts. Happy knitting!

29.01.2020 - 15:54

country flag Pamela Thomas wrote:

Good day, I am making this sweater in size M (the second in the stitch count), and I have now had to rip it back multiple times trying to get it to work. If I'm suppose to have 276 stitches when starting the lace pattern, why does the instruction only cover 266 of those stitches. (84+4+42+4+84+42+2=266) I can only assume that this discrepancy is the cause of the pattern not lining up properly with the sleeves. Help?

17.08.2015 - 03:18

DROPS Design answered:

Dear Mrs Thomas, work the 276 sts as follows: K 2, P 2, A.1 over the next 84 sts, K 4 (marker is in the middle of these 4 sts), P 2, A.1 over the next 42 sts, K 4 (marker is in the middle of these 4 sts), P 2, A.1 over the next 84 sts, K 4 (marker is in the middle of these 4 sts), P 2, A.1 over the next 42 sts, K 2 (marker is after these sts). Happy knitting!

17.08.2015 - 09:48

country flag Kirsten wrote:

Blusen får en meget stor halsåbning, hvis man følger opskriften. Der bør tages væsentlig flere masker ind på de sidste 4 omgange!

13.07.2014 - 12:34

Olga Ivanova wrote:

Might be useful to mention that the required gauge is for stockinette in the round.

30.07.2013 - 10:31

Nathalie Vergobbi wrote:

Bonjour, Le top ci me plait bcp,voilà,il y a 232 mailles en aiguilles circulaires,je divise en 2 ca fait 116 mailles +2(mailles lisieres),c bien ca?.

18.07.2013 - 20:11

DROPS Design answered:

C'est tout à fait ça, attention pour l'empiècement à bien recalculer pour tomber juste avec les manches/les diminutions. Bon tricot !

19.07.2013 - 09:40

Nathalie Vergobbi wrote:

Bonjour, le top se peut se faire avec des aiguilles droites aussi?

18.07.2013 - 20:04

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Vergobbi, vous pouvez tout à fait le tricoter en allers et retours si vous le souhaitez, il suffit de répartir les mailles. Attention toutefois à bien recompter pour l'empiècement avec les manches. Bon tricot !

19.07.2013 - 09:38

Marielle Dame wrote:

Bonjour, Jee me demande pourquoi la photo nous montre un gilet avec une couture sur le côté, alors que vous dites de tricoter en rond. Étant donné que mes expériences de gilets tricotés en rond n'ont jamais été des réussites (le tricot semble toujours dévier d'un côté), ça aurait été intéressant d'avoir les explications pour le devant et le dos montés séparément. Y a-t'il une raison pour laquelle la photo ne correspond pas aux explications? J'apprécie beaucoup votre site et vos modèles.

14.06.2013 - 18:31

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dame, les stylistes ont décidé qu'il serait beaucoup plus beau tricoté en rond. Pour le tricoter en 2 parties, divisez le nombre de mailles en 2 pour le dos et le devant et ajoutez les m lis. Pensez à nos vidéos pour apprendre à tricoter en rond et n'hésitez pas à vous inscrire sur le forum DROPS pour une aide plus complète. Bon tricot!

15.06.2013 - 09:41