DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 147-30
DROPS Design: Mynstur nr db-015
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

FERHYRNDUR POTTALEPPUR Í SPÍRAL:
Stærð:
Fyrir þæfingu: ca 25 x 25 cm.
Eftir þæfingu: ca 20 x 20 cm.

Efni:
DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio
100 gr litur nr 07, sólarupprás (fyrir 2 stk)

DROPS PRJÓNAR NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 33 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

HRINGLAGA POTTALEPPUR Í SPÍRAL:
Stærð:
Fyrir þæfingu: ca 23 cm að þvermáli.
Eftir þæfingu: ca 18 cm að þvermáli.

Efni:
DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio
100 gr litur nr 07, sólarupprás (fyrir 2 stk)

DROPS PRJÓNAR NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 33 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

STUTTAR UMFERÐIR (á við um ferhyrndan pottalepp):
Prjónið 1 umf yfir fyrstu 14 l, snúið við og prjónið til baka. Prjónið 1 umf yfir fyrstu 13 l, snúið við og prjónið til baka. Haldið áfram með stuttar umferðir, prjónað er yfir 1 l færri í hvert skipti, þar til prjónaðar hafa verið 2 umf yfir einungis fyrstu l. Prjónið 1 umf yfir 2 fyrstu l, snúið við og prjónið til baka, 1 umf yfir 3 fyrstu l, snúið við og prjónið til baka. Haldið svona áfram að prjóna yfir 1 l fleiri í hvert skipti, þar til prjónuð hefur verið 1 umf yfir fyrstu 14 l, snúið við og prjónið til baka. 1 mynstureining með stuttum umferðum = 54 umf.

LEIÐBEININGAR (á við um hringlaga pottalepp):
Í hvert skipti sem snúið er við er fyrsta l tekin óprjónuð. Herðið á þræði og prjónið nú áfram eins og áður. Þetta er gert til að koma í veg fyrir göt í snúningi.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

FERHYRNDUR POTTALEPPUR Í SPÍRAL- STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Allur pottaleppurinn er prjónaður í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Mynsturteikning A.1 sýnir prjónstefnu.

FERHYRNDUR POTTALEPPUR Í SPÍRAL:
Fitjið upp 14 l á prjóna nr 5 með Big Delight og prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! JAFNFRAMT er prjónuð 1 eining með STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan! Prjónið nú 2 umf slétt yfir allar l, prjónið 1 einingu með stuttum umferðum, 2 umf slétt yfir allar l og 1 einingu aftur með stuttum umferðum. * Prjónið nú 1 umf yfir allar l (frá réttu). Næsta umf er prjónuð þannig (frá röngu): * Takið upp síðustu l frá uppfitjunarkanti, prjónið fyrstu l af vinstra prjóni, steypið nýju l yfir, prjónið út umf, prjónið 2 umf fram og til baka yfir 14 l (án þess að taka upp)*, endurtakið þessar 4 umf frá *-* þar til prjónuð hefur verið upp 1 l í aðra hverja l meðfram uppfitjunarkanti. Prjónið 1 einingu með stuttum umferðum . ** Prjónið 1 umf yfir allar l (frá réttu), næsta umf er prjónuð (frá röngu): Takið upp síðustu lykkjuboganna meðfram hlið á fyrstu umf með stuttum umferðum, prjónið fyrstu l af vinstra prjóni, steypið nýju l yfir, prjónið út umf, prjónið 2 umf fram og til baka yfir 14 l (án þess að taka upp) **, endurtakið þessar 4 umf frá **-** þar til prjónuð hefur verið upp 1 l í aðra hverja l meðfram allri hliðinni frá fyrri umf. Prjónið 1 einingu með stuttum umferðum, endurtakið frá **-** þar til prjónuð hefur verið upp 1 l í aðra hverja l meðfram allri hliðinni frá fyrri umf og fellið af – ATH: Passið uppá að fella af frá uppfitjunarkanti og út að horni. Þegar 1 l er eftir er gerð lykkja í horninu þannig: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, fellið af 1 l með því að steypa l yfir uppsláttinn *, endurtakið frá *-* þar til lykkjan mælist ca 10 cm. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum síðustu l og festið lykkjuna fallega í horninu á pottaleppnum. Pottaleppurinn mælist ca 25 x 25 cm.

ÞÆFING:
Setjið stykkið í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm.
Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi.
Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott.

EFTIR ÞÆFINGU:
Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott.
Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst.
Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík.

-------------------------------------------------------

HRINGLAGA POTTALEPPUR Í SPÍRAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Allur pottaleppurinn er prjónaður í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.

HRINGLAGA POTTALEPPUR Í SPÍRAL:
Fitjið upp 2 l á prjóna nr 5 með Big Delight.
UMFERÐ 1-2: Prjónið 2 l sl, snúið við og prjónið sl til baka.
UMFERÐ 3-4: Prjónið 1 l sl, snúið við og prjónið sl til baka.
UMFERÐ 5-6: Prjónið 2 l sl, snúið við og prjónið 2 l í fyrstu l, prjónið síðustu l slétt = 3 l.
UMFERÐ 7-8: Prjónið 1 l sl, snúið við og prjónið sl til baka.
UMFERÐ 9-10: Prjónið 2 l sl, snúið við og prjónið sl til baka.
UMFERÐ 11-12: Prjónið 3 l sl, snúið við og prjónið 1 l sl, 2 l í næstu l, prjónið síðustu l slétt = 4 l.
UMFERÐ 13-14: Prjónið 1 l sl, snúið við og prjónið sl til baka.
UMFERÐ 15-16: Prjónið 2 l sl, snúið við og prjónið sl til baka.
UMFERÐ 17-18: Prjónið 3 l sl, snúið við og prjónið sl til baka.
UMFERÐ 19-20: Prjónið 4 l sl, snúið við og prjónið 2 l sl, 2 l í næstu l, prjónið síðustu l slétt = 5 l.
UMFERÐ 21-22: Prjónið 1 l sl, snúið við og prjónið sl til baka.
UMFERÐ 23-24: Prjónið 2 l sl, snúið við og prjónið sl til baka.
UMFERÐ 25-26: Prjónið 3 l sl, snúið við og prjónið sl til baka.
UMFERÐ 27-28: Prjónið 4 l sl, snúið við og prjónið sl til baka.
UMFERÐ 29-30: Prjónið 5 l sl, snúið við og prjónið 3 l sl, 2 l í næstu l, prjónið síðustu l slétt = 6 l.
UMFERÐ 31-32: Prjónið 1 l sl, snúið við og prjónið sl til baka.
UMFERÐ 33-34: Prjónið 2 l sl, snúið við og prjónið sl til baka.
UMFERÐ 35-36: Prjónið 3 l sl, snúið við og prjónið sl til baka.
UMFERÐ 37-38: Prjónið 4 l sl, snúið við og prjónið sl til baka.
UMFERÐ 39-40: Prjónið 5 l sl, snúið við og prjónið sl til baka.
UMFERÐ 41-42: Prjónið 6 l sl, snúið við og prjónið 4 l sl, 2 l í næstu l, prjónið síðustu l slétt = 7 l.
Haldið svona áfram að auka út um 1 l í lok næstu umf eftir að prjónaðar hafa verið 2 umf fleiri yfir allar l þar til 10 l eru á prjóni, nú hafa verið prjónaðar 90 umf - setjið 1 prjónamerki.
Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig:
UMFERÐ 91 (= frá réttu): Prjónið yfir fyrstu 8 l.
UMFERÐ 92 (= frá röngu): Snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 93 (= frá réttu): Prjónið yfir allar l.
UMFERÐ 94 (= frá röngu): Prjónið upp síðasta lykkjubogann frá 1. umf, prjónið fyrstu l af vinstra prjóni, steypið nýju l yfir, prjónið út umf.
UMFERÐ 95 (= frá réttu): Prjóni yfir fyrstu 8 l.
UMFERÐ 96 (= frá röngu): Snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 97 (= frá réttu): Prjónið yfir allar l.
UMFERÐ 98 (= frá röngu): Takið upp síðustu lykkjubogana frá 3. umf, prjónið fyrstu l af vinstra prjóni, steypið nýju l yfir, prjónið út umf.
Endurtakið síðustu umf, prjónið 4 umf í hverja rönd með garðaprjóni frá hring/fyrri umf.
Haldið áfram með spíral þar til prjónað hefur verið að prjónamerki í umf 90.
Fækkið nú lykkjum smá saman svo að lokum er 1 l eftir á prjóni þannig:
Haldið áfram eins (endurtakið umf 95-98) JAFNFRAMT eru 2 fyrstu l í byrjun á 12. hverri umf prjónaðar slétt saman þar til einungis er 1 l eftir á prjóni. Prjónið nú lykkju þannig: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, steypið l á hægri prjón yfir uppsláttinn *, endurtakið frá *-* þar til lykkjan mælist ca 10 cm. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum l og festið lykkju. Pottaleppurinn mælist ca 23 cm að þvermáli.

ÞÆFING:
Setjið stykkið í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm.
Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi.
Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott.

EFTIR ÞÆFINGU:
Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott.
Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst.
Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 15.02.2013
Efni í pottalepp er: DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio

Mynstur

symbols = uppfitjunarkantur
symbols = prjónstefna
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 147-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Wusel7 wrote:

Da es Big Delight nun nicht mehr gibt: Welche Altetnative hat man für einen schönen Farbverlauf?

18.11.2023 - 23:14

DROPS Design answered:

Liebe Wusel7, leider haben wir keine andere filzbare Wolle mit Farblauf - siehe hier. Viel Spaß beim stricken!

20.11.2023 - 10:29

country flag Anette Frandsen wrote:

Hej Jeg forsøger at lave den runde grydelap, og har pillet op rigtig mange gange. Den ‘kupler’ sig så det kan være starten på en bøllehat. Som om der mangler en vending i hver ‘rapport’. Hvad gør jeg forkert. Jeg strikker i Big Delight

21.08.2019 - 09:19

DROPS Design answered:

Hei Anette. Sjekk strikkefastheten din og sjekk at du strikker alle vendinger. Det er også laget en hel video til denne grytelappen, ta en titt på den og se om du kan finne ut hva du evnt gjør feil. God Fornøyelse!

09.09.2019 - 11:07

country flag Lehna wrote:

Dag, ik heb twee vragen over het minderen bij de ronde pannenlap: elke 12e nld 2 st samenbreien, volgens mij is de 12e nld een herh van nld 98, dus zou je na het overhalen van de opgenomen steek 2 steken moeten samenbreien? Dit blijkt niet uit de video. En wat gebeurt er met de herhalingen van nld 95? Moet ik dan steeds een stk minder breien voor ik het werk keer? Alvast dank voor uitleg, Vriendelijke groet, Lehna

21.08.2019 - 08:06

DROPS Design answered:

Dag Lehna,

Het minderen doe je steeds op de buitenkant van de pannenlap en je hebt inderdaad na elke mindering een steek minder op de naald. De doe je dus niet perse op de naald 98, maar wel steeds om de 12 naalden herhalen.

01.09.2019 - 12:09

country flag Tina wrote:

Hej, Nej, jag använder Big Delight som i mönstret. Ska kolla stickfastheten men undrar om du även kan förklara min sista fråga: Vad betyder " det stickas 4 v i varje rätst rand från cirkeln/föregående v."?

16.05.2019 - 11:35

DROPS Design answered:

Hej Tina, nu har vi lavet en video som viser hvordan du gør :)

How to work a spiral pot holder from Garnstudio Drops design on Vimeo.

14.06.2019 - 08:23

country flag Tina wrote:

Jag har en fråga ang. den runda grytlappen. Jag har fortsatt sticka v.95-98 och är nu framme vid markören men diametern är bara 19 cm på det bredaste stället så känns inte rätt att börja maska av redan. Grytlappen har dessutom kupat sig så jag misstänker att jag gjort något fel, men vad? Vad betyder " det stickas 4 v i varje rätst rand från cirkeln/föregående v."?

14.05.2019 - 10:27

DROPS Design answered:

Hej Tina, Stickar du i DROPS Eskimo? Kan det vara så att din stickfasthet är för tight ... ? Har du 17 m på 10 cm i bredden och 33 varv rätstickat i höjden. Om du har mer än 17 m på 10 cm så måste du använda en tjockare sticka så arbetet blir lösare. Lycka till :)

15.05.2019 - 15:39

Mónica wrote:

Muchas gracias por responderme!!!!,,, aplicaré la indicación,,,, saludos y mi agradecimiento nuevamente!!! felices fiestas navideñas a todos.

10.12.2014 - 02:27

country flag Mara wrote:

Aiuto!!!sto realizzando la presina a spirale, tutto bene fino al 93° ferro, ora non riesco proprio a capire nonostante il video da quale ferro devo riprendere la maglia per formare la spirale! riprendendo dal 1° ferro rimane il buco al centro... grazie mille Mara

06.12.2014 - 23:04

DROPS Design answered:

Buongiorno Mara. Al ferro 94, la m va ripresa nel filo davanti della m del primo ferro. La presina andrà poi infeltrita e questo dovrebbe far sì che il buco al centro si chiuda o quantomeno si riduca. Buon lavoro!

07.12.2014 - 15:48

Mónica wrote:

Espiral redondo no entiendo:"Continuar de esta manera,aumentando 1pt al final de la vta sig después de 2hileras más tejidas sobre todos los pts hasta tener 10pts en la ag, se han tejido 90hileras hasta ahora" confunde, pues entiendo que debo tejer como hasta la vta42, dice 90vtas,entonces:"aumentando 1pt al final de la hilera sig después de 2hileras más tejidas sobre todos los pts",donde se aplica? me indica 3vtas no acortadas y 1aumento entonces para mí son 93vtas y 11pts.

22.11.2014 - 08:22

DROPS Design answered:

Hola Mónica! Si te fijas después de ¨tejer¨ la secuencia de derechos va aumentando: HILERA 3-4: Tejer 1d, HILERA 5-6: Tejer 2d, ...= 3 pts HILERA 7-8: Tejer 1d, HILERA 9-10: Tejer 2d, HILERA 11-12: Tejer 3d, ...=4 pts HILERA 13-14: Tejer 1d, HILERA 15-16: Tejer 2d, HILERA 17-18: Tejer 3d, HILERA 19-20: Tejer 4d, ...= 5 pts HILERA 21-22: Tejer 1d, HILERA 23-24: Tejer 2d, HILERA 25-26: Tejer 3d, HILERA 27-28: Tejer 4d, HILERA 29-30: Tejer 5d, ...= 6 pts tienes que seguir con esa secuencia hasta tener = 10 pts q es justo en la fila 90.

30.11.2014 - 20:31

country flag Barbara wrote:

Schöne Topflappen, keine Frage, aber: Schon beim Stricken des runden Topflappens irritierte mich das große Loch in der Mitte. Bis die Topflappen aus der Waschmaschine kamen, hatte ich noch Hoffnung, dass es vielleicht verschwinden würde. Leider war dies nicht der Fall. Gibt es einen Trick dieses Loch zu vermeiden? Und noch eine Frage zum quadratischen Modell: Soll bei den verkürzten Reihen die erste Masche der Rückreihe nur abgehoben (wie beim runden Modell) oder gestrickt werden?

15.10.2014 - 18:28

DROPS Design answered:

Eigentlich sollte das Loch nach dem Filzen tatsächlich verschwunden sein. Wenn es besonders groß ist, können Sie es mit einem Faden etwas zusammenziehen. Zu den verkürzten R können Sie sich auch das Video "Verkürzte Reihen" anschauen, den Link dazu finden Sie unter "Videos" im Kopf der Anleitung. Sie können die erste M wie beim runden Topflappen und wie im Video gezeigt auch abheben, damit werden Löcher vermieden.

16.10.2014 - 14:42

country flag Birgit wrote:

Tolle Filzwolle! Habe 2 runde und einen quadratischen Topflappen nach Anleitung aus einem Knaeuel gestrickt.

28.03.2013 - 20:43