DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1056.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 147-21
DROPS Design: Mynstur nr w-490
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

BLEIKUR POTTALEPPUR:
Stærð: ca 20 cm að þvermáli.

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
50 gr litur nr 06, skærbleikur
50 gr litur nr 33, millibleikur
50 gr litur nr 35, vanillugulur

GULUR POTTALEPPUR:
Stærð: ca 20 cm að þvermáli.

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
50 gr litur nr 14, skærgulur
50 gr litur nr 35, vanillugulur
50 gr litur nr 17, natur

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 17 st verði 10 cm á breidd.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1056.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BLEIKUR POTTALEPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring.

BLEIKUR POTTALEPPUR:
Heklið 4 ll með litnum vanillugulur með heklunál nr 4 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, 8 fl um hringinn, endið á 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 2: Heklið 3 ll, 2 st í 1. fl, 3 st í hverja fl í kringum hringinn, endið á 1 kl í 3. ll = 24 st.
UMFERÐ 3: Í fyrstu l eru heklaðar 3 ll og 6 st (= blað), hoppið yfir 3 l, * í næstu l eru hekluð 1 kl, 3 ll, 6 st í sömu l eins og kl, hoppið yfir 3 l *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar. Endið á 1 kl í fyrstu ll í umf = 6 blöð.
UMFERÐ 4: Brjótið nú blaðið fram og heklað er aftan við blaðið þannig: Heklið 3 ll, 6 st í 3. l í umf 2 (heklað er nú mitt á milli 2 blaða), * hoppið yfir 3 l og í 4. l á milli 2 næsta blaða eru heklaðir 6 st í sömu l *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar = 5 sinnum alls. Endið á 1 kl í fyrstu ll í umf = 6 blöð.
UMFERÐ 5: Skiptið yfir í litinn millibleikur. * Heklið 3 ll, 6 st í l undir (= blað), hoppið yfir 3 l, í næstu l er hekluð 1 kl *, endurtakið frá *-* 8 sinnum til viðbótar.
Endið á 1 kl í fyrstu ll í umf = 9 blöð.
UMFEÐ 6: Brjótið nú blöðin fram og heklað er aftan við blöðin þannig: Heklið 3 ll, 6 st í 3. l frá umf 4 (heklað er nú mitt á milli 2 blaða), * hoppið yfir 3 l og í 4. l á milli 2 næstu blaða eru heklaðir 5 st í sömu l, hoppið yfir 3 l og í 4. l á milli 2 næstu blaða eru heklaðir 5 st í sömu l, hoppið yfir 3 l og í 4. l á milli 2 næstu blaða eru heklaðir 6 st í sömu l *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 2 sinnum alls. * hoppið yfir 3 l og í 4. l á milli 2 næstu blaða eru heklaðir 5 st í sömu l *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Endið á 1 kl í fyrstu ll í umf = 9 blöð.
UMFERÐ 7: * Heklið 3 ll, 6 st í l undir (= blað), hoppið yfir 3 l, í næstu l er hekluð 1 kl *, endurtakið frá *-* 11 sinnum til viðbótar.
Endið á 1 kl í fyrstu ll í umf = 12 blöð.
UMFERÐ 8: Brjótið nú blöðin fram og heklað er aftan við blöðin þannig: Heklið 3 ll, 5 st í 3. l frá umf 6 (heklað er nú á milli 2 blaða), * hoppið yfir 3 l og í 4. l á milli 2 næstu blaða eru heklaðir 5 st í sömu l *, endurtakið frá *-* 10 sinnum til viðbótar. Endið á 1 kl í fyrstu ll í umf = 12 blöð.
UMFERÐ 9: * Heklið 3 ll, 6 st í l undir (= blað), hoppið yfir 3 l, í næstu l er hekluð 1 kl *, endurtakið frá *-* 14 sinnum til viðbótar.
Endið á 1 kl í fyrstu ll í umf = 15 blöð.
UMFERÐ 10: Skiptið yfir í litinn skærbleikur. Brjótið nú blöðin fram og heklað er aftan við blöðin þannig: Heklið 3 ll, 5 st í 3. l frá umf 8 (heklað er nú á milli 2 blaða), * hoppið yfir 3 l og í 4. l á milli 2 næstu blaða eru heklaðir 5 st í sömu l *, endurtakið frá *-* 13 sinnum til viðbótar. Endið á 1 kl í fyrstu ll í umf = 15 blöð.
UMFERÐ 11: * Heklið 3 ll, 6 st í l undir (= blað), hoppið yfir 3 l, í næstu l er hekluð 1 kl *, endurtakið frá *-* 18 sinnum til viðbótar.
Endið á 1 kl í fyrstu ll í umf = 19 blöð.
UMFERÐ 12: Brjótið nú blöðin fram og heklað er aftan við blöðin þannig: Heklið 3 ll, 4 st í 3. l í umf 10 (heklað er nú mitt á milli 2 blaða), * hoppið yfir 3 l og í 4. l á milli 2 næstu blaða eru heklaðir 5 st í sömu l, hoppið yfir 3 l og í 4. l á milli 2 næstu blaða eru heklaðir 5 st í sömu l, hoppið yfir 3 l og í 4. l á milli 2 næstu blaða eru heklaðir 4 st í sömu l *, endurtakið frá *-* 5 sinnum til viðbótar. Endið á 1 kl í fyrstu ll í umf = 19 blöð.
UMFERÐ 13: Heklið 15 ll (fyrir lykkju), 1 kl í fyrstu l. * Heklið 3 ll, 6 st í l undir (= blað), hoppið yfir 3 l, í næstu l er hekluð 1 kl *, endurtakið frá *-* 21 sinnum til viðbótar. Heklið 1 kl í hverja og eina af 15 ll fyrir lykkju.
Endið á 1 kl í fyrstu ll í umf = 22 blöð. Klippið frá og festið enda.

-------------------------------------------------------

GULUR POTTALEPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið saman stendur af 2 hringjum sem eru settir saman og heklaðir saman.
Pottaleppurinn er heklaður í hring í tveimur lögum.

GULUR POTTALEPPUR:
Heklið 4 ll með litnum natur og heklunál nr 4, tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, 8 fl um hringinn. Endið á 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 2: Heklið 3 ll, 2 st í 1. fl, 3 st í hverja fl í kringum hringinn, endið á 1 kl í 3. ll = 24 st.
UMFERÐ 3: Heklið 3 ll, * 2 st í næsta st, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-*. Endið á 1 kl í 3. ll = 36 st.
UMFERÐ 4: Heklið 3 ll, * 2 st í næsta st, 1 st í hvorn af næstu 2 st *, endurtakið frá *-*. Endið á 1 kl í 3. ll = 48 st.
UMFERÐ 5: Heklið 3 ll, 1 st í fyrsta st, * 2 st í næsta st, 1 st í hvern af næstu 3 st *, endurtakið frá *-* . Endið á 1 kl í 3. ll = 60 st.
UMFEÐR 6: Leggið hringina ofan á hvorn annan og heklið þá saman með litnum vanillugulur með því að stinga heklunálinni í gegnum báðar lykkjurnar á báðum hringjunum þannig: Heklið * 1 ll, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* í kringum allan hringinn. Endið á 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 7: * Heklið 3 ll, 6 st í l undir (= blað), hoppið yfir 3 l, í næstu l er hekluð 1 kl *, endurtakið frá *-* 14 sinnum til viðbótar.
Endið á 1 kl í fyrstu ll í umf = 15 blöð.
UMFERÐ 8: Nú eru blöðin brotið fram og heklað er aftan við blöðin þannig: Heklið 3 ll, 5 st í 3. l frá umf 6 (heklað er nú mitt á milli 2 blaða), * hoppið yfir 3 l og í 4. l á milli 2 næstu blaða eru heklaðir 5 st í sömu l *, endurtakið frá *-* 13 sinnum til viðbótar.
Endið á 1 kl í fyrstu ll í umf = 15 blöð.
UMFERÐ 9: * Heklið 3 ll, 6 st í l undir (= blað), hoppið yfir 3 l, í næstu l er hekluð 1 kl *, endurtakið frá *-* 18 sinnum til viðbótar.
Endið á 1 kl í fyrstu ll í umf = 19 blöð.
UMFERÐ 10: Skiptið yfir í litinn skærgulur. Brjótið nú blöðin fram og heklað er aftan við blöðin þannig: Heklið 3 ll, 4 st í 3. l í umf 8 (heklað er nú á milli 2 blaða), * hoppið yfir 3 l og í 4. l á milli 2 næstu blaða eru heklaðir 5 st í sömu l, hoppið yfir 3 l og í 4. l á milli 2 næstu blaða eru heklaðir 5 st í sömu l, hoppið yfir 3 l og í 4. l á milli 2 næstu blaða eru heklaðir 4 st í sömu l *, endurtakið frá *-* 5 sinnum til viðbótar. Endið á 1 kl í fyrstu ll í umf = 19 blöð.
UMFERÐ 11: Heklið 15 ll (fyrir lykkju), 1 kl í fyrstu l. * Heklið 3 ll, 6 st undir (= blað), hoppið yfir 3 l, í næstu l er hekluð 1 kl *, endurtakið frá *-* 21 sinnum til viðbótar. Heklið 1 kl í hverja og eina af 15 ll fyrir lykkju. Endið á 1 kl í fyrstu ll í umf = 22 blöð. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 30.01.2013
GULUR POTTALEPPUR: UMFERÐ 5: Heklið 3 ll, 1 st í fyrsta st, * 2 st í næsta st, 1 st í hvern og einn af 3 næstu st *, endurtakið frá *-* . Endið á 1 kl í 3. ll = 60 st.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 147-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (64)

country flag Mohamed wrote:

Hello there! I could have sworn I've visited this web site before but after browsing through some of the articles I realized it's new to me. Anyways, I'm definitely happy I stumbled upon it and I'll be book-marking it and checking back often! Gry hazardowe kasyno website kasyno z bonusem na start bez depozytu

16.09.2022 - 21:36

country flag Moni wrote:

Habe es selbst geschaft,ohne das mir jemand geantwortet hatte.Mein erster versuch war die beigelegte Wolle zu lapprig,und hatte Fehler dabei.Mein jetzt 2ter angefangner Topflappen schön fest mit anderer Wolle.jetzt hab ich Freude daran.viel Spass den anderen.lg

10.02.2020 - 11:02

country flag Moni wrote:

Habe seid gestern auch solch Topflappen Arbeit vor mir zu liegen und raubt mir den letzten nerv .Häkle eigentl.auch Figuren u.paar Schultertücher aber das ist hier ne herraus forderung ab runde 4.Dann fiel mir heut ein man könnte mal in ruhe im Netz schaun ob es eine bildl.Darstellung per vidio gibt siehe da habs gefunde,bloß gut.na mal sehn obich es ohne Auftrudeln endlich hinbek.und eure Anleitung ist größer als mein kleingedrucktes auf Papier.danke

26.01.2020 - 13:09

country flag Ute Haake wrote:

Ich hätte gern gewußt,welche Lauflänge die Garne haben.Da ich gern Cartania mit der Lauflänge 63,125 und 165 auf 50 g verwende,kann ich nicht vergleichen. Ich bestelle auch nicht gern über Internet und bekomme Ihr Garn hier in Bremen nicht,ohne lange Wege.\r\n\r\nIhre Videos sind sehr gut,aber manchmal zu schnell,.Mit vielen Grüßen aus Bremen\r\n\r\nUte Haake

27.08.2019 - 11:34

DROPS Design answered:

Liebe Frau Haake, wir bitten um Verständnis, dass wir nicht Produkte unserer Konkurrenz empfehlen können und dass der Kauf des Materials uns hilft, weiterhin kostenlose Anleitungen zur Verfügung stellen zu können. Individuelle Hilfe bekommen Sie gerne wenn Sie Kontakt mit Ihrem DROPS Laden aufnehmen - auch telefonisch oder per mail. Viel Spaß beim stricken!

27.08.2019 - 12:39

country flag Anna wrote:

Non ho ancora comprato il paris, perciò non ho la possibilità di fare un campione. Devo fare 14 Presine , vorrei sapere quanto ne occorre per ciascun colore, più o meno. Grazie

07.05.2018 - 16:42

DROPS Design answered:

Buongiorno Anna. Le suggeriamo di rivolgersi al suo rivenditore Drops di fiducia che può consigliarla sui quantitativi necessari per il suo lavoro. Buon lavoro!

08.05.2018 - 08:37

country flag Anna wrote:

Quante presine rosa si possono fare acquistando i tre gomitoli? dovrei farne 12 da regalare. grazie

05.05.2018 - 21:56

country flag Charlotte Bille wrote:

Hej Drops. Jeg vil gerne hækle 2 rosa grydelapper. Kan jeg nøjes med at købe 50 g. af hver af farverne, eller skal jeg købe 100 g. af hver af de to rosa farver?

08.12.2015 - 17:03

DROPS Design answered:

Hej Charlotte, nu har vi ingen vægt på grydelappen, så det er svært at sige, men jeg skulle tro at du skal bruge 100 g af hver farve i og med du vil hækle 2 grydelapper... God fornøjelse!

09.12.2015 - 08:49

country flag Laura wrote:

Creo que hay un error en la vuelta 6. Si contamos bien cuántos pétalos dan las instrucciones de esta vuelta, comprobamos que no son 9 sino 10 en total.

14.09.2014 - 19:17

DROPS Design answered:

Hola Laura. La fila 6 está correcta. Un pétalo antes de los *-*, 3 pétalos dentro de *-* (ya tenemos 4), repetir un total de 2 vcs (ahora tenemos 7 = 1+3+3), 1 pétalo dentro de los segundos *-* (ahora son 8), repetir 1 vez más = 9 pétalos.

19.09.2014 - 10:05

country flag Pia Madsen wrote:

Nu har jeg og min veninde forsøgt flere gange at hækle den rosa grydelap og hver gang når vi til omg 5, vi kan ikke få 9 buer

23.02.2014 - 14:27

DROPS Design answered:

Hej Pia, efter 4.omg har du 6 blad og totalt 36 staver. På 5.omg så hekler du 3 lm+6 staver i 1 st og sedan hoppar över 3 st, så denne rapport går över 4 masker. 36 delt på 4 er 9, så det ska bli 9 nye blad på denne omg.

04.03.2014 - 00:19

country flag Anja wrote:

Beim gelben Topflappen heißt es in Runde 5:* 2 Stb in das nächste Stb, 2 Stb in jedes der 3 nächsten Stb *, muß es aber nicht heißen: * 2 Stb in das nächste Stb, 1 Stb in jedes der 3 nächsten Stb *?

26.01.2014 - 15:49

DROPS Design answered:

Liebe Anja, vielen Dank für den Hinweis, wir haben gleich eine Korrektur vorgenommen.

28.01.2014 - 07:39