DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2244.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Jodi

Prjónaður toppur úr DROPS Cotton Light með stuttum ermum, gatamynstri og garðaprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 148-11
DROPS Design: Mynstur nr cl-018
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio
300-300-350-350-400-450 gr litur nr 25, ljós fjólugrár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm og 21 l og 42 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm. Að 17 l í mynstri eftir mynsturteikningu A.2 verði 10 cm á breiddina.
DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3,5 – fyrir stroff og gatamynstur neðst niðri á fram- og bakstykki.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2244.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
* 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

ÚTAUKNING:
Aukið er út um 1 l með því að prjóna 2 l í sömu l.

ÚRTAKA (á við um úrtöku við ermar):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki og á undan kantlykkju þannig: Prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki og á eftir kantlykkju þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp

TOPPUR:
Fitjið upp 156-174-192-216-240-264 l á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Light.
Prjónið 1 umf slétt, prjónið nú stroff (= 3 l sl, 3 l br). Þegar stroffið mælist 3 cm er prjónað mynstur eftir mynsturteikningu A.1. Þegar stykkið mælist ca 21-22-23-24-25-26 cm (endið eftir 1 umf með gati), prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 8-10-12-14-14-14 l jafnt yfir = 148-164-180-202-226-250 l. Prjónið 1 umf brugðið, 1 umf slétt og 1 umf brugðið. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 28-36-36-42-42-42 l jafnt yfir = 120-128-144-160-184-208 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið áfram eftir mynstri A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 28-36-36-42-42-44 l jafnt yfir = 148-164-180-202-226-252 l. Prjónið 1 umf brugðið. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 74-82-90-101-113-126 l (= hliðar) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið GARÐAPRJÓN í hring á hringprjóna – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – SJÁ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 6 og 9 cm = 160-176-192-214-238-264 l. Þegar stykkið mælist 10 cm – passið uppá að næsta umf sé brugðin umf, fellið af 8-10-12-16-20-24 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 4-5-6-8-10-12 l hvoru megin við bæði prjónamerki) = 72-78-84-91-99-108 l eftir á fram- og bakstykki.

BAKSTYKKI:
= 72-78-84-91-99-108 l. Byrjið á sl frá réttu og fellið af í byrjun umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 l 1-1-2-2-2-2 sinnum í hvorri hlið = 68-74-76-83-91-100 l, klippið frá.
Prjónið nú inn ermakúpu á bakstykki (1. umf = rétta) þannig:
Fitjið upp 30-30-32-34-36-38 l á prjón, setjið 1 prjónamerki, prjónið 68-74-76-83-91-100 l frá bakstykki, setjið 1 prjónamerki og fitjið upp 30-30-32-34-36-38 l á prjóninn = 128-134-140-151-163-176 l.
Haldið áfram í garðaprjón fram og til baka á hringprjóna nr 4. JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu byrjar úrtaka þannig – LESIÐ ÚRTAKA:

Fækkið um 1 l í byrjun og lok umf innan við 1 kantlykkju: Fækkið lykkju í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 12-12-13-13-14-14 sinnum.

Fækkið JAFNFRAMT lykkjum í hvorri hlið við ermar (þ.e.a.s. á undan fyrsta prjónamerki og á eftir öðru prjónamerki séð frá réttu): Fækkið lykkju í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu): Fækkið um 1 lykkju alls 12-12-13-13-14-14 sinnum.

Fækkið JAFNFRAMT lykkjum í hvorri hlið inn við bakstykki (þ.e.a.s. á eftir fyrsta prjónamerki og á undan öðru prjónamerki séð frá réttu): *Fækkið lykkjum í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu): Fækkið um 1 lykkju alls 0-2-2-4-7-9 sinnum.

HÁLSMÁL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm eru felldar af miðju 34-34-36-37-37-38 l frá réttu fyrir hálsmál og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.

HÆGRI ÖXL:
Haldið áfram með úrtöku við ermakúpu eins og áður. Eftir síðustu úrtöku eru 23-24-24-27-28-32 l eftir á prjóni (þ.e.a.s. 17-18-18-19-20-22 l á öxl + 6-6-6-8-8-10 l eftir efst á ermakúpu). Prjónið 1 umf slétt frá röngu og setjið síðustu 6-6-6-8-8-10 l af ermakúpu á þráð. Haldið áfram í garðaprjón fram og til baka yfir 17-18-18-19-20-22 l á öxl JAFNFRAMT eru l frá ermakúpu prjónaðar saman með l á prjóni þannig: Prjónið 1 umf slétt frá réttu þar til 1 l er eftir á vinstri prjóni, setjið síðustu l á hægri prjón án þess að prjóna hana, setjið til baka fyrstu og aðra l af þræði á vinstri prjóni, steypið óprjónuðu l af hægri prjón aftur til baka á vinstri prjón og prjónið þessar 3 l slétt saman, snúið við, herðið á þræði og prjónið 1 umf slétt frá röngu, * prjónið 1 umf slétt frá réttu þar til 1 l er eftir á vinstri prjóni, setjið síðustu l á hægri prjón án þess að prjóna hana, setjið til baka næstu l af þræði á vinstri prjón, steypið óprjónuðu l af hægri prjóni til baka yfir á vinstri prjón og prjónið þessar 2 l slétt saman, snúið við, herðið á þræði og prjónið 1 umf slétt frá röngu *, endurtakið þessar 2 umf frá *-* þar til allar l af þræði hafa verið prjónaðar saman með síðustu l á prjóni, fellið laust af. Berustykkið mælist ca 25-26-27-28-29-30 cm frá prjónamerki og allur toppurinn mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm.

VINSTRI ÖXL:
Prjónið á sama hátt og hægri öxl en eftir síðustu úrtöku eru síðustu 6-6-6-8-8-10 l fyrir ermakúpu settar á þráð. Byrjið frá röngu og prjónið 1 umf slétt þar til 1 l er eftir á vinstri prjón, setjið síðustu l yfir á hægri prjón án þess að prjóna þær, setjið til baka fyrstu og aðra l af þræði yfir á vinstri prjón, steypið óprjónuðu l á hægri prjóni yfir á vinstri prjón og prjónið þessar 3 l slétt saman, snúið við, herðið á þræði og prjónið 1 umf slétt frá réttu, endurtakið síðan þessar 2 umf frá *-* eins og á hægri öxl (en með byrjun frá röngu) þar til allar l af þræði hafa verið prjónaðar saman með síðustu l á prjóni, fellið laust af.

FRAMSTYKKI:
= 72-78-84-91-99-108 l.
Prjónið á sama hátt og bakstykki og fitjið upp fyrir ermakúpur í hvorri hlið eins og á bakstykki = 128-134-140-151-163-176 l. Fellið nú af á framstykki og á ermakúpum eins og á bakstykki en þegar stykkið mælist 40-42-44-46-48-50 cm eru felldar af miðju 34-34-36-37-37-38 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með úrtöku og prjónið síðan hægri og vinstri öxl á bakstykki. Berustykkið mælist ca 25-26-27-28-29-30 cm frá prjónamerki og allt stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsaumana og niður meðfram ermakúpum – saumið yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 22.08.2014
TOPPUR (nýr texti)... = 120-128-144-160-184-208 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið áfram eftir mynstri A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað... – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið GARÐAPRJÓN í hring á hringprjóna – sjá skýringu að ofan.

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 148-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (62)

country flag Heléne Lundqvist wrote:

Fortsätt minskn mot ärmkupan som förut. Efter sista minskn är det 23-24-Sticka 1 v rätt från avigsidan och sätt de yttersta 6-6-6-8-8-10 m på ärmkupan på 1 tråd. Fortsätt med rätst fram och tillbaka över de 17-18... Jag förstår verkligen inte hur jag ska göra. Finns det någon instruktionsvideo? Finns det någon bild på ryggen så man kan se hur det är tänkt att det ska vara. Tack på förhand! /Helene

04.06.2014 - 21:07

DROPS Design answered:

Hej Heléne. Du har 23-24-24-27-28 eller 32 m paa pinden (afhaengigt af hvilken str du laver). Naar du har strikket 1 v rätt från avigsidan saetter du de ytterste 6-6-6-8-8 eller 10 m paa en traad eller maskeholder og nu har du 17-18-18-19-20-22 m paa pinden som du nu skal strikke riller over. Og derefter skal du strikke disse m sammen med de 6-6-6-8-8-10 m paa traaden som beskrevet. Hjaelper det?

11.06.2014 - 19:44

country flag Debbi Darling wrote:

For the large size. the schematic shows 46" & 43" above and below the breast line yet the measurement for the chest size is 36.5". The photo does look like there is a lot of ease in the bodice. are these numbers correctly displayed? thanks!

03.06.2014 - 14:40

DROPS Design answered:

Dear Mrs Darling, the schematic gives measurements in cm, ie bust is 46 cm x 2 = 92 cm around = 36 1/4'' around. Happy knitting!

03.06.2014 - 16:30

country flag Jules wrote:

This pattern is offered in sizes s-xxxl, but there are no measurements so I don't know which size to make? Thanks

23.05.2014 - 13:47

DROPS Design answered:

Dear Jules, you will find at the bottom of the page a measurement chart with all measures for each size, in cm, taken flat from side to side. Compare these with a similar garment you like the shape to find the matching size. Happy knitting!

23.05.2014 - 13:58

country flag Bobbie Doucet wrote:

Do I start with 2 or 1 edge stitches for A.2? On the diagram it appears to be "2".

30.01.2014 - 20:48

DROPS Design answered:

Dear Mrs Doucet, A.2 is a repetition worked over 16 sts, ie starts with K2. Repeat these 16 sts around. Happy knitting!

31.01.2014 - 09:46

country flag Mamenko wrote:

Très joli et facile à réaliser une fois qu'on a compris l'astuce pour les manches.

01.08.2013 - 19:30

country flag Robin wrote:

I cannot get 5th line in A.2 (second) motif to complete the round without 2 stitches left over. What could I be doing incorrect?

16.07.2013 - 22:42

DROPS Design answered:

Dear Robin, on 5th row in A.2, the last st of 4th row is worked with the 2 first sts from next row, so that when 1 st remains at the end of 4th round, work this as follows : yo, slip 1 (the last st from 4th round), K2 tog (first 2 sts from 5th round), YO, and continue as stated. Happy knitting!

17.07.2013 - 09:14

country flag Marja Van Maaren wrote:

Kunt u nogmaals naar het armsgat kijken? Op de tekening ziet het er anders uit dan het breiwerk.groetjes Marja.

24.04.2013 - 01:39

DROPS Design answered:

Zie hieronder

29.04.2013 - 16:27

country flag Marja Van Maaren wrote:

Bedankt voor de uitleg,maar dat is niet het probleem meer,Als je naar de tekening kijkt is die anders dan het breiwerk.Ik bedoel de mouw. Er staat brei na de 16 steken afkanten,34 steken voor de mouw op.oke,ga je dan de mouw breien,dan zie je al naar een paar naalden dat het niet klopt.Want wat ik nu wil weten Hoe zit het dan aan de onderkant,het armsgat.Wij 3 buurvrouwen komen er niet uit. Groetjes Marja.

18.04.2013 - 16:49

DROPS Design answered:

De tekening op het patroon is een standaard. Het werk zelf komt niet precies zo uit te zien. Volgt u de beschrijving, dan gaat het niet verkeerd. Probeer het eventueel te tekenen, dan komt u misschien uit - of ga naar uw winkel voor persoonlijke ondersteuning. Het is moeilijk uit te leggen per mail.

29.04.2013 - 16:27

country flag Marja Van Maaren wrote:

Tot aan de opzet mouw gaat het goed maar dan kan ik niet verder.het in elkaar zetten van de mouw gaat het fout.Dus armsgat klopt niet. Graag hoor ik er iets over. Groetjes Marja.

18.04.2013 - 14:10

DROPS Design answered:

Het patroon klopt. U breit na het afkanten van de armsgaten eerst het achterpand + mouwen. U kant verder af zoals beschreve n = 83 st. Zet nu 34 st op aan beide kanten voor de mouwkoppen = 151 st. Ga nu verder met minderen zoals beschreven.

29.04.2013 - 16:25

country flag Marie Danneels wrote:

Madame Fabienne, Madame Masson, j'ai acheté des aiguilles de 60 cm et ça marche très bien !

21.03.2013 - 11:01