Marie Danneels wrote:
Beste Dropsteam, kan u mij helpen met nld 5 van patroon A2. Heb ik het goed voor : 1 omslag,1st rechts afhalen, 2 st rechts samenbreien,afgehaalde st overhalen, 1omslag,5 rechtse steken, 1 omslag, 1st. rechts afhalen, 2st rechts samenbr, afgehaalde steek overhalen, 1 omslag, 6 rechtse steken enz..??? Dank bij voorbaat.
21.03.2013 - 10:55DROPS Design answered:
Beste Marie. Ja, bijna: 1 omsl, 1 st r afh, 2 st r samen, afgeh st overh, 1 omsl, 5 st r, 1 omslag, 1 st r afh, 2 st r samen, afgeh st overh, 1 omslag en 5 st r. In nld 5 verschuift het motief 1 st naar rechts, maar dat herstel je weer in de volgende nld. Succes.
28.03.2013 - 14:25TURGAULT wrote:
Petit pull à ponts ajourés pour le bas et jersey pour la discrétion en haut !!! très joli et tout à fait dans mes goûts !!
24.01.2013 - 15:21Marion Aigner wrote:
Auch diese Variante als Pulli statt Kleid ist sehr schön.
14.01.2013 - 13:58Fabienne wrote:
Superbes modèles mais moi aussi je tricote avec des aiguilles droites
12.01.2013 - 16:01Josiane wrote:
Trop mignon
09.01.2013 - 17:19Elfi wrote:
Körperbetonte Form, sehr nett.
09.01.2013 - 14:44Ruth wrote:
Frescura
08.01.2013 - 03:59Janneke wrote:
Echt leuk zomers truitje
06.01.2013 - 16:00Else Susgaard04012013 wrote:
Det er virkelig en smuk sommerbluseJeg ville gerne ha mønstret
04.01.2013 - 19:31
Jodi |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Cotton Light með stuttum ermum, gatamynstri og garðaprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 148-11 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): * 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l með því að prjóna 2 l í sömu l. ÚRTAKA (á við um úrtöku við ermar): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan prjónamerki og á undan kantlykkju þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki og á eftir kantlykkju þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp TOPPUR: Fitjið upp 156-174-192-216-240-264 l á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Light. Prjónið 1 umf slétt, prjónið nú stroff (= 3 l sl, 3 l br). Þegar stroffið mælist 3 cm er prjónað mynstur eftir mynsturteikningu A.1. Þegar stykkið mælist ca 21-22-23-24-25-26 cm (endið eftir 1 umf með gati), prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 8-10-12-14-14-14 l jafnt yfir = 148-164-180-202-226-250 l. Prjónið 1 umf brugðið, 1 umf slétt og 1 umf brugðið. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 28-36-36-42-42-42 l jafnt yfir = 120-128-144-160-184-208 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið áfram eftir mynstri A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 28-36-36-42-42-44 l jafnt yfir = 148-164-180-202-226-252 l. Prjónið 1 umf brugðið. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 74-82-90-101-113-126 l (= hliðar) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið GARÐAPRJÓN í hring á hringprjóna – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – SJÁ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 6 og 9 cm = 160-176-192-214-238-264 l. Þegar stykkið mælist 10 cm – passið uppá að næsta umf sé brugðin umf, fellið af 8-10-12-16-20-24 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 4-5-6-8-10-12 l hvoru megin við bæði prjónamerki) = 72-78-84-91-99-108 l eftir á fram- og bakstykki. BAKSTYKKI: = 72-78-84-91-99-108 l. Byrjið á sl frá réttu og fellið af í byrjun umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 l 1-1-2-2-2-2 sinnum í hvorri hlið = 68-74-76-83-91-100 l, klippið frá. Prjónið nú inn ermakúpu á bakstykki (1. umf = rétta) þannig: Fitjið upp 30-30-32-34-36-38 l á prjón, setjið 1 prjónamerki, prjónið 68-74-76-83-91-100 l frá bakstykki, setjið 1 prjónamerki og fitjið upp 30-30-32-34-36-38 l á prjóninn = 128-134-140-151-163-176 l. Haldið áfram í garðaprjón fram og til baka á hringprjóna nr 4. JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu byrjar úrtaka þannig – LESIÐ ÚRTAKA: Fækkið um 1 l í byrjun og lok umf innan við 1 kantlykkju: Fækkið lykkju í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 12-12-13-13-14-14 sinnum. Fækkið JAFNFRAMT lykkjum í hvorri hlið við ermar (þ.e.a.s. á undan fyrsta prjónamerki og á eftir öðru prjónamerki séð frá réttu): Fækkið lykkju í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu): Fækkið um 1 lykkju alls 12-12-13-13-14-14 sinnum. Fækkið JAFNFRAMT lykkjum í hvorri hlið inn við bakstykki (þ.e.a.s. á eftir fyrsta prjónamerki og á undan öðru prjónamerki séð frá réttu): *Fækkið lykkjum í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu): Fækkið um 1 lykkju alls 0-2-2-4-7-9 sinnum. HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm eru felldar af miðju 34-34-36-37-37-38 l frá réttu fyrir hálsmál og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. HÆGRI ÖXL: Haldið áfram með úrtöku við ermakúpu eins og áður. Eftir síðustu úrtöku eru 23-24-24-27-28-32 l eftir á prjóni (þ.e.a.s. 17-18-18-19-20-22 l á öxl + 6-6-6-8-8-10 l eftir efst á ermakúpu). Prjónið 1 umf slétt frá röngu og setjið síðustu 6-6-6-8-8-10 l af ermakúpu á þráð. Haldið áfram í garðaprjón fram og til baka yfir 17-18-18-19-20-22 l á öxl JAFNFRAMT eru l frá ermakúpu prjónaðar saman með l á prjóni þannig: Prjónið 1 umf slétt frá réttu þar til 1 l er eftir á vinstri prjóni, setjið síðustu l á hægri prjón án þess að prjóna hana, setjið til baka fyrstu og aðra l af þræði á vinstri prjóni, steypið óprjónuðu l af hægri prjón aftur til baka á vinstri prjón og prjónið þessar 3 l slétt saman, snúið við, herðið á þræði og prjónið 1 umf slétt frá röngu, * prjónið 1 umf slétt frá réttu þar til 1 l er eftir á vinstri prjóni, setjið síðustu l á hægri prjón án þess að prjóna hana, setjið til baka næstu l af þræði á vinstri prjón, steypið óprjónuðu l af hægri prjóni til baka yfir á vinstri prjón og prjónið þessar 2 l slétt saman, snúið við, herðið á þræði og prjónið 1 umf slétt frá röngu *, endurtakið þessar 2 umf frá *-* þar til allar l af þræði hafa verið prjónaðar saman með síðustu l á prjóni, fellið laust af. Berustykkið mælist ca 25-26-27-28-29-30 cm frá prjónamerki og allur toppurinn mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm. VINSTRI ÖXL: Prjónið á sama hátt og hægri öxl en eftir síðustu úrtöku eru síðustu 6-6-6-8-8-10 l fyrir ermakúpu settar á þráð. Byrjið frá röngu og prjónið 1 umf slétt þar til 1 l er eftir á vinstri prjón, setjið síðustu l yfir á hægri prjón án þess að prjóna þær, setjið til baka fyrstu og aðra l af þræði yfir á vinstri prjón, steypið óprjónuðu l á hægri prjóni yfir á vinstri prjón og prjónið þessar 3 l slétt saman, snúið við, herðið á þræði og prjónið 1 umf slétt frá réttu, endurtakið síðan þessar 2 umf frá *-* eins og á hægri öxl (en með byrjun frá röngu) þar til allar l af þræði hafa verið prjónaðar saman með síðustu l á prjóni, fellið laust af. FRAMSTYKKI: = 72-78-84-91-99-108 l. Prjónið á sama hátt og bakstykki og fitjið upp fyrir ermakúpur í hvorri hlið eins og á bakstykki = 128-134-140-151-163-176 l. Fellið nú af á framstykki og á ermakúpum eins og á bakstykki en þegar stykkið mælist 40-42-44-46-48-50 cm eru felldar af miðju 34-34-36-37-37-38 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með úrtöku og prjónið síðan hægri og vinstri öxl á bakstykki. Berustykkið mælist ca 25-26-27-28-29-30 cm frá prjónamerki og allt stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlarsaumana og niður meðfram ermakúpum – saumið yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Laudico wrote:
Je voudrai bien le réaliser mais je ne peux pas accéder aux explication. Il est très mognon
26.01.2013 - 10:42