DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Jay bird

Prjónað sjal í garðaprjóni með stuttum umferðum og með hekluðum kanti úr DROPS Delight.

DROPS 145-3
DROPS Design: Mynstur nr de-097
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð:
Breidd efst: ca 128 cm
Hæð: ca 70 cm

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
350 gr litur nr 07, beige/blár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 41 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 3 – fyrir kant

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

LEIÐBEININGAR:
Í hvert skipti sem snúið er við í miðri umf er 1. l tekin óprjónuð. Herðið á þræði og prjónið síðan áfram eins og áður. Þetta er gert til að koma í veg fyrir göt í snúningunum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Kantur er heklaður í kringum sjalið í lokin.

SJAL:
Fitjið upp 60 l á hringprjóna nr 4 með Delight.
Prjónið garðaprjón með byrjun frá réttu þannig: Prjónið 1 umf þar til 58 l eru eftir, snúið við og prjónið til baka. 1 umf þar til 56 l eru eftir, snúið við og prjónið til baka. Prjónið 2 l í fyrstu l, prjónið þar til 54 l eru eftir, snúið við og prjónið til baka. 1 umf þar til 52 l eru eftir, snúið við og prjónið til baka. 1 umf þar til 50 l eru eftir, snúið við og prjónið til baka. Prjónið 2 l í fyrstu l, prjónið þar til 48 l eru eftir, snúið við og prjónið til baka. Haldið áfram með stuttar umferðir þar til 2 l eru færri en í fyrri umf fyrir hvert skipti sem snúið er við þar til prjónaðar hafa verið 2 umf yfir 2 síðustu l, prjónið 2 umf yfir allar l. JAFNFRAMT í 6. hverri umf eru prjónaðar 2 l í fyrstu l í umf frá réttu. Þegar prjónuð hefur verið heil mynstureining (= 60 umf) hefur verið aukið út um 10 l = 70 l.

Næsta mynstureining er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 umf þar til 68 l eru eftir, snúið við og prjónið til baka. 1 umf þar til 66 l eru eftir, snúið við og prjónið til baka. Prjónið 2 l í fyrstu l, prjónið þar til 64 l eru eftir, snúið við og prjónið til baka. 1 umf þar til 62 l eru eftir, snúið við og prjónið til baka. 1 umf þar til 60 l eru eftir, snúið við og prjónið til baka. Prjónið 2 l í fyrstu l, prjónið þar til 58 l eru eftir, snúið við og prjónið til baka. Haldið áfram með stuttar umferðir þar til 2 l eru færri en í fyrri umf fyrir hvert skipti sem snúið er við þar til prjónaðar hafa verið 2 umf yfir 2 síðustu l, prjónið 2 umf yfir allar l. JAFNFRAMT í 6. hverri umf eru prjónaðar 2 l í fyrstu l í umf frá réttu. Þegar prjónuð hefur verið heil mynstureining (= 70 umf) hefur verið aukið út um 12 l = 82 l.
Haldið áfram alveg eins, fyrir hverja mynstureiningu sem prjónuð er verða fleiri og fleiri l í mynstureiningunni og mynstureiningin nær yfir fleiri umf.

Haldið áfram þar til prjónaðar hafa verið 8 mynstureiningar – nú eru ca 206 l á prjóni.
Fellið af. Herðið að í miðjunni með því að þræða þráðinn í gegnum innstu l og herðið að.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant kringum allt sjalið með heklunál nr 3 með Delight þannig: Heklið 1 fl, * 3 ll, 1 st í 1. ll, hoppið fram um ca 1 cm, 1 fl *, endurtakið frá *-* í kringum allt sjalið og endið með 1 kl í fyrstu fl.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 145-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (216)

country flag Silke Wieseke wrote:

In der Anleitung steht:bis 2R über die letzten 2 M gestrickt wurden,dann 2R über alle M stricken.ich steh da irgendwie auf dem schlauch.muss ich jetzt nach jeder verkürzten Reihe 2R drüber stricken.......??vielen lieben dank im voraus:-)

15.03.2015 - 18:04

DROPS Design answered:

Sie stricken nur am Ende nach einem kompletten Rapport mit verkürzten R 1x 2 R über alle M. Sie stricken also zunächst immer in jeder Hin-R 2 M weniger und wenden dann. Dann haben Sie ja zuletzt nur noch 2 M, die Sie stricken. Wenn Sie mit diesen 2 M 2 R gestrickt haben, stricken Sie 2 R komplett über alle M. (Und die Zunahmen in jeder 6. R nicht vergessen... :-)) Gutes Gelingen und viel Spaß beim Stricken!

15.03.2015 - 22:44

country flag Martha wrote:

I am confused about the line at the end of the pattern "Tighten tog in the middle by pulling a strand of yarn through the inner sts and tighten tog." Is that the line between each of the sections? Beautiful Pattern!!!

28.11.2014 - 19:31

DROPS Design answered:

Dear Martha, to make the long side on the top of the shawl straight, pull a thread through the outer loop of sts in the inner sts and tighten tog - as in the video below (except that you will make this now with a yarn needle). Happy knitting!

01.12.2014 - 09:44

country flag Teresa Azevedo Rua wrote:

Boa tarde. Quando se chega a meio do trabalho não se começa a diminuir, em vez de aumentar, para formar o redondo do xaile? Obrigada.

11.11.2014 - 18:07

country flag Annick wrote:

Bonjour, Merci de votre réponse. j'ai bien compris de quel côté on passe ce fil (mais comme c'est indiqué quand le tricot est terminé, il faut le passer avec une aiguille à coudre). mais comment faut-il serrer les mailles ? De combien faut-il rétrécir le côté ? Sur la photo, on ne voit pas du tout de fronces ou de réduction de longueur, au contraire.

23.06.2014 - 13:08

DROPS Design answered:

Bonjour Annick, les rangs raccourcis vont créer un petit "creux" en haut (dans la grande longueur), les resserrer permet d'avoir le bord du haut du châle tout droit, ça ne fera pas aussi froncé que dans la vidéo (c'est le niveau où les rayures se rejoignent sur la photo). Bon tricot!

23.06.2014 - 13:46

country flag Annick wrote:

"Serrer les mailles centrales en passant un fil dans les mailles à l'intérieur du châle et serrer." Je ne comprends pas cette indication.Sur la photo, on ne voit pas de partie ou on aurait resserré les mailles. merci de m'éclairer !

23.06.2014 - 03:06

DROPS Design answered:

Bonjour Annick, on passe ce fil au niveau de l'extrémité des rangs raccourcis (du côté où on a tricoté le moins de rang) comme dans la vidéo ci-après. Bon tricot!

23.06.2014 - 09:26

country flag Louise wrote:

I would like to know exactly what the run on sentence is saying."Continue with short rows until 2 sts less remain for every turn until 2 rows have been worked over the last 2 sts,..."

19.06.2014 - 17:21

DROPS Design answered:

Dear Louise, you should work short rows to create the shape for shawl, ie work 2 rows over the sts, leaving 2 more sts unworked at the end of the 1st of these 2 rows as you did before: 2 rows over 58 sts, 2 rows over 56 sts, 2 rows over 54 sts and so on. Happy knitting!

19.06.2014 - 17:35

country flag Roxanne Stair wrote:

When doing a short row, how do I count the rows in this pattern? Does knit row turn and knit back count as 1 or 2 rows? It is my first time to knit short rows. I will greatly appreciate your help with this pattern.

29.05.2014 - 00:17

DROPS Design answered:

Dear Mrs Stair, when you work "K 1 row until 58 sts, turn and K back" you have worked a total of 2 rows. Happy knitting!

29.05.2014 - 18:47

country flag Roxanne wrote:

How many balls of yarn do I need to knit this shawl?

22.05.2014 - 03:46

DROPS Design answered:

Dear Roxane, you will find amount of yarn at the right side of the picture : 350 g Drops delight / 50 g a ball Delight = 7 balls Delight are required for the shawl. Happy knitting!

22.05.2014 - 08:50

country flag Ulla Olsen wrote:

Jeg har strikke opskrift 145-3 (sjal) men kan ikke finde ud af hvor jeg skal trække det sammen hilsen ulla

02.05.2014 - 12:50

DROPS Design answered:

Du träkker det sammen i den side hvor du har mindst antal pinde, der hvor pindene mödes i en spids.

07.05.2014 - 10:55

country flag Tineke wrote:

De tweede naald: brei tot er 54 steken over zijn, bedoelen ze dan je tot 6 steken van het eind van de naald moet breien? Dat je dus na de meerdering 54 steken moet breien?

05.04.2014 - 11:55

DROPS Design answered:

Dit betekent dat je 6 steken breit, er zijn dan 54 steken over op de linkernaald. Dan keren.

07.04.2014 - 18:58