DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2618.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Pretty pink

Prjónaður toppur úr DROPS Cotton Light með stroffprjóni og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 147-5
DROPS Design: Mynstur nr cl-016
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio
350-350-400-450-450-500 gr litur nr 18, bleikur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l og 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3 – fyrir stroff.
DROPS HEKLUNÁL NR 3 – fyrir hálsmál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2618.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikningin sýnri allar umf í mynstri séð frá réttu.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf slétt og 1 umf brugðið *, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚRTAKA-1 (á við um þrengingu í mitti):
Fækkið lykkjum á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

ÚRTAKA-2 (á við um handveg):
Fækkið lykkjum innan við 3 kantlykkju í garðaprjóni.
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 3 kantlykkjum þannig: Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.
Fækkið lykkjum á undan 3 kantlykkjum þannig: 2 lykkjur slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um þrengingu í mitti):
Aukið út eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki.
Aukið út á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 l sl, sækið síðan sömu l frá fyrri umf og prjónið slétt.
Aukið út á undan prjónamerki þannig: Byrjið á 1 l á undan prjónamerki og takið upp l frá fyrri umf, prjónið hana slétt og prjónið síðustu l á undan prjónamerki slétt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 220-240-260-280-310-340 l á hringprjóna nr 3 með Cotton Light.
Prjónið 1 umf slétt. Næsta umf er prjónuð þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= hlið), prjónið 1 l sl, * 3 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* alls 21-23-25-27-30-33 sinnum 3 l br, 2 l sl (setjið 1 prjónamerki á milli þessa 2 l sl = hlið), * 3 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* alls 21-23-25-27-30-33 sinnum og endið á 3 l br og 1 l sl. Haldið áfram með stroff þannig. Þegar stykkið mælist 4 cm eru allar 3 l br fækkað til 2 l br með því að prjóna 2 fyrstu l í hverri brugðinni einingu brugðið saman = 176-192-208-224-248-272 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5. Byrjið næstu umf 3 l á undan prjónamerki í byrjun umf og prjónið þannig: Prjónið mynstur A.1 (= 6 l – prjónamerki í hlið er í miðju A.1), * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 1-1-2-3-4-5 sinnum, 2 l sl, mynstur A.1 (= 6 l), setjið 1 prjónamerki (= 1. prjónamerki), prjónið sléttprjón yfir næstu 58-66-66-66-70-74 l, setjið 1 prjónamerki (= 2. prjónamerki), mynstur A.1 (= 6 l), * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 1-1-2-3-4-5 sinnum, 2 l sl, mynstur A.1 (= 6 l – prjónamerki í hlið er í miðju A.1), * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 1-1-2-3-4-5 sinnum, 2 l sl, mynstur A.1 (= 6 l), setjið 1 prjónamerki (= 3. prjónamerki), prjónið sléttprjón yfir næstu 58-66-66-66-70-74 l, setjið 1 prjónamerki (= 4. prjónamerki), mynstur a.1 (= 6 l), * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 1-1-2-3-4-5 sinnum og endið á 2 l sl. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6-7-7-7-8-8 cm er fækkað um 1 l á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf 8-7-7-7-6-6 sinnum til viðbótar = 140-160-176-192-220-244 l. Þegar stykkið mælist 22 cm er aukið út um 1 l á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 7-8-9-10-13-14 umf millibili 6-5-5-5-4-4 sinnum til viðbótar = 168-184-200-216-240-264 l.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm er prjónað stroff (= 2 l sl, 2 l br) yfir miðju 54-62-62-62-66-70 l í sléttprjóni fram og til baka (þ.e.a.s. á milli 1. og 2. prjónamerkis og á milli 3. og 4. prjónamerkis, aðrar l eru prjónaðar eins og áður – ATH: stroffið byrjar og endar á 2 l sl í hvorri hlið). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm eru prjónaðar 4 umf GARÐAPRJÓN –sjá útskýringu að ofan, yfir miðju 12 l í hvorri hlið (þ.e.a.s. 6 l garðaprjón hvoru megin við prjónamerki í hliðum – aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Í næstu umf á eftir 4 umf garðaprjón eru felldar af miðju 6 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 3 l hvoru megin við bæði prjónamerki). Fram- og bakstykki er nú prjónað hvort fyrir sig, fram og til baka á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
= 78-86-94-102-114-126 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður en 3 síðustu l í hvorri hlið eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l í hvorri hlið fyrir handveg – LESIÐ ÚRTAKA-2 (= 2 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), 1-1-3-6-10-14 sinnum til viðbótar og síðan í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 0-0-2-3-3-3 sinnum = 74-82-82-82-86-90 l. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm eru felldar af miðju 34-34-34-34-38-42 stroff-l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 2 l í næstu umf frá hálsmáli = 18-22-22-22-22-22 l eftir á öxl. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 3 l garðaprjón við handveg og 2 l garðaprjón við hálsmál. Fellið af þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm.
Endurtakið á sama hátt á hinni öxlinni.

FRAMSTYKKI:
= 78-86-94-102-114-126 l. Prjónið á sama hátt og bakstykki, en þegar stykkið mælist 44-46-48-48-50-52 cm fellið af miðju 14-14-14-14-18-22 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af í byrjun hverar umf frá hálsmáli: 2 l 4 sinnum og 1 l 4 sinnum = 18-22-22-22-22-22 l eftir á öxl. Prjónið mynstur með 3 l garðaprjóni við handveg og 2 l garðaprjóni við hálsmál þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm og fellið af.
Endurtakið á sama hátt á hinni öxlinni.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma.

HÁLSMÁL:
Byrjið við miðju að aftan og heklið kant í kringum hálsmálið með heklunál nr 3 þannig: Heklið 1 fl í fyrstu l, * 2 ll, hoppið yfir ca 1-1½ cm, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 2 ll og 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt, takið fyrstu lykkju sem var prjónuð yfir hinar 2 svo að lykkjan liggi yfir þær 2 lykkjur sem prjónaðar voru síðastar á hægri prjóni (= 1 lykkja færri)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Green Top

Diann, United States

147-5 Pretty Pink

JoeJ5, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS 147-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (50)

country flag Manon wrote:

. Continuer avec l'aiguille circulaire 3.5 et commencer le tour suivant 3 m avant le marqueur du début du tour: Diagramme A.1 (= 6 m – le marqueur sur le côté est au milieu de A.1), *mais j'ai déjà tricoter mes 3 mailles pour finir mon tour alors commencer le tour 3 mailles avant le marqueur?????

20.02.2022 - 21:13

DROPS Design answered:

Bonjour Manon, détricotez ces 3 mailles à la fin de votre dernier tour avec les aiguilles 3, vous allez désormais commencer ici par le diagramme A.1 (= les 3 dernières mailles du tour + les 3 premières mailles du tour suivant). Bon tricot!

21.02.2022 - 10:05

country flag Manon wrote:

Merci pour vos explications maintenant je suis rendu a faire le A1 mais je n,y comprends explications simple svp merci beaucoup ...

19.02.2022 - 17:11

DROPS Design answered:

Bonjour Manon, cette leçon explique comment lire un diagramme; et cette vidéo montre comment tricoter ce type de petites torsades. Bon tricot!

21.02.2022 - 09:35

country flag Manon wrote:

Bonjour merci pour l'info..maintenant ces le entre parenthèse ( (2+ (5x27)+3+1)+(1+(5*27)+3) que je ne comprends pas Merci !

09.02.2022 - 15:55

DROPS Design answered:

Bonjour Manon, les chiffres dans les parenthèses correspondent aux mailles décrites juste au-dessus, autrement dit: *1 m end (et non pas 2 désolée), (3 m env, 2 m end) x 27 (soit 5 x 27 =135 mailles en côtes 3 m env, 2 m end) , 3 m env, 1 m end*, (vous avez maintenant tricoté: 1 + 135+3+1=140 mailles, placez le 2ème marqueur, et répétez de * à* encore 1 fois = 140 mailles après le 2ème marqueur = 280 mailles au total. Bon tricot!

09.02.2022 - 16:05

country flag Manon wrote:

Bonjour moi je me demande quand on commence au début 1 m end 3 m env 2 m end c'esi écris 2 fois répéter 21 a 33 fois moi je fais ex donc 27 fois et mettre un marqueur je ne sais pas ou je doit mettre les marqueurs Merci !

08.02.2022 - 01:16

DROPS Design answered:

Bonjour Manon, tricotez ainsi en XL: placez votre 1er marqueur au début du tour, puis tricotez: 2 m end, (3 m env, 2 m end) x 27, 3 m env, 1 m end, placez le 2ème marqueur, 1 m end, (3 m env, 2 m end) x 27, terminez par 3 m end, soit: (2+ (5x27)+3+1)+(1+(5*27)+3)=280 mailles (140 de chaque côté de chaque marqueur). Bon tricot!

08.02.2022 - 09:24

country flag Rose wrote:

I am doing a project with pattern 147-5. But having problem after the rib for body. The calculation of stiches does not match with my rib sticthes. My size is L

12.08.2021 - 15:07

DROPS Design answered:

Dear Rose, In size L work as follows: Insert 1 marker at beg of round (= side), K 1, * P 3, K 2 *, repeat from *-* 25 times in total (= 5 sts x 25 = 125 sts) , P 3, K 2 (insert 1 marker in the middle of these 2 K sts = side), * P 3, K 2 *, repeat from *-* 25 times in total (= 5 sts x 25 = 125 sts) and finish with P 3 and K 1 = 1+ 125 + 3 +2 + 125 + 3 +1=260 sts. Happy knitting!

12.08.2021 - 16:17

country flag Fanny Andrä wrote:

Ich stricke dieses Top nach. Ich komme beim Beginn des Musters nur auf 96 Maschen und nicht auf die nötigen 208. wo liegt mein Fehler?

24.04.2020 - 15:23

DROPS Design answered:

Liebe Frau Andrä, Sie beginnen mit 260 M und stricken: 1 M re, * 3 M li, 2 M re *, von *-* insgesamt 25 x arbeiten, 3 M li, 2 M re, * 3 M li, 2 M re *, von *-* insgesamt 25 x arbeiten und mit 3 M li und 1 M re enden = 260 M und Sie haben jetzt 3 M li x 52 insgesamt. Bei 4 cm nehmen Sie 1 Masche in jeder dieser 3-M-Li-Partien (2 M li zs) = 52 werden abgenommen, so haben Sie 260-52=208 M übrig. Viel Spaß beim stricken!

24.04.2020 - 15:49

country flag Duperrex wrote:

Modèle très facile à faire et j'ai eu grand plaisir à le faire !

15.07.2019 - 22:54

country flag Sølvi wrote:

I oppskriften begynner vrangbord på midt foran/midt bak feltene før felling for ermer og deling til for og bakstykker På bildet er denne vrangborden kun øverst på toppen. Når skal man begynne vrangborden for å få det likt som på bildet av modellen?

25.05.2016 - 10:43

DROPS Design answered:

Hei Sølvi. Du skal begynne som der staar i mönstret. Jeg tror den ogsaa er begyndt för paa modellen paa billedet, men pga barmen traekker den lidt op.

25.05.2016 - 13:32

country flag Julia wrote:

Please let me know which video tutorial I can watch for the increase tip after marker and before marker. Thank you

28.01.2016 - 20:35

DROPS Design answered:

Dear Julia, the video below shows how to inc as under "increase-tip". Happy knitting!

29.01.2016 - 09:03

country flag Grethe Augustesen wrote:

Ups :-) Jeg er så gået i gang med at trevle op. Har glemt indtagningerne. Tak for svaret. Med venlig hilsen Grethe

04.05.2015 - 19:15