DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Children 23-56
DROPS Design: Mynstur nr w-020-bn
Garnflokkur C
--------------------------------------------------------

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
200 g nr 26, dökk beige
100 g nr 39, pistasía
50 g nr 13, appelsínugulur
50 g nr 45, ljós appelsínugulur
50 g nr 14, skærgulur
50 g nr 06, skærbleikur
50 g nr 12, rauður
50 g nr 11, ópalgrænn
50 g nr 44, brúnn
50 g nr 43, grænn
50 g nr 17, natur

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 fastalykkjur verði 10 cm á breidd.
DROPS HEKLUNÁL NR 5 – fyrir handfang á körfu.
FYLGIHLUTIR: Vatt til fyllingar.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GALDRAHRINGUR:
Byrjið með þessari aðferð til að koma í veg fyrir að það myndist gat í miðju (í staðinn fyrir loftlykkjuhring): Haldið í endann á þræðinum og snúið þræðinum einu sinni í hring utan um vinstri vísifingur til þess að úr verði hringur. Haldið í hringinn með vinstri þumli og löngutöng, þráðurinn liggur yfir vinstri vísifingur. Heklunálinni er stungið inn í hringinn, þræðinum er brugðið um heklunálina og þráðurinn dreginn upp úr hringnum, heklið 1 loftlykkju, heklið nú fastalykkju utan um galdrahringinn. Þegar sá fjöldi fastalykkja er kominn sem óskað er eftir, dragið í endann á þræðinum og herðið að. Festið enda á bakhlið. Haldið áfram að hekla í hring.

HEKLAÐ Í HRING:
Eftir síðustu fastalykkju í umferð, haldið áfram að næstu umferð með 1 fastalykkju í næstu fastalykkju (= 1. fastalykkja frá fyrri umferð). ATH: Merkið byrjun á umferð með prjónamerki á milli síðustu fastalykkju í umferð og 1. fastalykkju í næstu umferð, látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 fastalykkju með því að hekla næstu 2 fastalykkjur saman þannig: * Stingið heklunálinni í næstu fastalykkju, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.

LITASKIPTI:
Til að fá falleg litaskipti er síðasta fastalykkjan í umferð hekluð þannig: Stingið heklunálinni í síðustu fastalykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina með nýja litnum og dragið í gegnum allar lykkjur á heklunálinni. Haldið áfram að næstu umferð með nýja litnum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

GULRÓT:
Stykkið er heklað í hring. Heklið 2 loftlykkjur með litnum ljós appelsínugulur með heklunál 4,5.
UMFERÐ 1: Heklið 3 fastalykkjur í 1. loftlykkju sem var hekluð – SJÁ HEKLAÐ Í HRING!
UMFERÐ 2: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja fastalykkju – SJÁ ÚTAUKNING = 6 fastalykkjur.
UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 8 fastalykkjur.
UMFERÐ 4 (og síðan allar jafnar umferðir): Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 5: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 10 fastalykkjur.
UMFERÐ 7: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 12 fastalykkjur.
UMFERÐ 9: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 14 fastalykkjur.
UMFERÐ 11: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 6 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 16 fastalykkjur.
Heklið síðan 1 fastalykkju í hverja fastalykkju í hring í 12 umferðir að auki. Fækkið nú lykkjum þannig:
UMFERÐ 1: * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju – sjá ÚRTAKA, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur.
UMFERÐ 2: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, fækkið um 1 fastalykkju, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 8 fastalykkjur.
UMFERÐ 3: Heklið allar fastalykkjur í umferð 2 og 2 saman = 4 fastalykkjur, klippið frá. Fyllið gulrótina með vatti, saumið saman síðustu 4 fastalykkjur með endanum.

BLÖÐ:
Heklið 3 loftlykkjur með litnum ópalgrænn, tengið lykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. Um hringinn er heklað þannig: * 1 fastalykkja, 9 loftlykkjur, 1 fastalykkja, 11 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju = alls 8 loftlykkjubogar, klippið frá og festið enda. Saumið blöðin á toppinn á gulrótinni.
--------------------------------------------------------

EPLI:
Stykkið er heklað í hring. Byrjið á að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – neðst á epli með litnum rauður með heklunál 4,5.
UMFERÐ 1: Heklið 7 fastalykkjur um galdrahringinn – sjá HEKLAÐ Í HRING!
UMFERÐ 2: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 14 fastalykkjur.
UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 21 fastalykkjur.
UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 28 fastalykkjur.
UMFERÐ 5: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 35 fastalykkjur.
UMFERÐ 7: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 42 fastalykkjur.
UMFERÐ 8 -16: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkjur.
UMFERÐ 17: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 36 fastalykkjur.
UMFERÐ 18: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 30 fastalykkjur.
UMFERÐ 19: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur.
UMFERÐ 20: * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, fækkið um 1
UMFERÐ 21: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur.
UMFERÐ 22: Heklið allar fastalykkjur í umferð 2 og 2 saman = 6 fastalykkjur, klippið frá. Fyllið eplið með vatti, saumið saman síðustu 6 fastalykkjur með endanum. ATH: Dragið endann í gegnum toppinn og botninn á eplinu þannig að það myndist smá hola í hvorri hlið.

STILKUR:
Stykkið er heklað í hring. Heklið 3 loftlykkjur með litnum brúnn með heklunál 4,5, síðan 2 fastalykkjur í 1. og 2. loftlykkju sem var hekluð = 4 fastalykkjur. Heklið síðan 16 fastalykkjur með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju, klippið frá og festið enda.

BLAÐ:
Stykkið er heklað fram og til baka. Heklið 8 loftlykkjur með litnum pistasía með heklunál 4,5 og síðan er heklað meðfram loftlykkjukeðju þannig: 1 keðjulykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 loftlykkjum, 1 hálfur stuðull í næstu loftlykkju, 1 stuðull í hvora af næstu 2 loftlykkjum, 2 fastalykkjur í síðustu loftlykkju. Heklið síðan frá hinni hliðinni á loftlykkjukeðju þannig: 1 stuðull í hvora af næstu 2 loftlykkjum, 1 hálfur stuðull í næstu loftlykkju, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 loftlykkjum, 1 keðjulykkja í síðustu loftlykkju, klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið stilk og blöð á toppinn á eplinu.
--------------------------------------------------------

PERA:
Stykkið er heklað í hring. Byrjið á að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – neðst niðri á perunni með litnum pistasía með heklunál 4,5.
UMFERÐ 1: Heklið 7 fastalykkjur um galdrahringinn – sjá HEKLAÐ Í HRING!
UMFERÐ 2: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 14 fastalykkjur.
UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 21 fastalykkja.
UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 28 fastalykkjur.
UMFERÐ 5: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 35 fastalykkjur.
UMFERÐ 6: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 7: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 42 fastalykkjur.
UMFERÐ 8 -13: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 14: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 35 fastalykkjur.
UMFERÐ 15: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 28 fastalykkjur.
UMFERÐ 16: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur.
UMFERÐ 17 - 22: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 23: * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur.
UMFERÐ 24: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 25: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur.
UMFERÐ 26: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 27: Heklið allar fastalykkjur í umferð 2 og 2 saman = 6 fastalykkjur, klippið frá. Fyllið peruna með vatti, saumið saman síðustu 6 fastalykkjur með endanum.

STILKUR:
Stykkið er heklað í hring. Heklið 3 loftlykkjur með litnum brúnn með heklunál 4,5 síðan 2 fastalykkjur í 1. og 2. loftlykkju sem var hekluð = 4 fastalykkjur. Heklið síðan 16 fastalykkjur með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju, klippið frá og festið enda.

BLAÐ:
Stykkið er heklað fram og til baka. Heklið 8 loftlykkjur með litnum opalgrænn með heklunál 4,5 og síðan er heklað meðfram loftlykkjukeðju þannig: 1 keðjulykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 loftlykkjum, 1 hálfur stuðull í næstu loftlykkju, 1 stuðull í hvora af næstu 2 loftlykkjum, 2 fastalykkjur í síðustu loftlykkju. Heklið síðan frá hinni hliðinni á loftlykkjukeðju þannig: 1 stuðull í hvora af næstu 2 loftlykkjum, 1 hálfur stuðull í næstu loftlykkju, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 loftlykkjum, 1 keðjulykkja í síðustu loftlykkju, klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið stilk og blöð á toppinn á perunni.
--------------------------------------------------------

KLEMENTÍNA:
Stykkið er heklað í hring. Byrjið á að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – neðst niðri á klementínunni með litnum appelsínugulur með heklunál 4,5.
UMFERÐ 1: Heklið 7 fastalykkjur um galdrahringinn – sjá HEKLAÐ Í HRING!
UMFERÐ 2: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 14 fastalykkjur.
UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 21 fastalykkja.
UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja hvora af næstu 2 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 28 fastalykkjur.
UMFERÐ 5: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 35 fastalykkjur.
UMFERÐ 6-10: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 11: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 30 fastalykkjur.
UMFERÐ 12: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 13: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur.
UMFERÐ 14: * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur.
UMFERÐ 15: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur.
UMFERÐ 16: Heklið allar fastalykkjur í umferð 2 og 2 saman = 6 fastalykkjur, klippið frá. Fyllið klementínuna með vatti, saumið saman síðustu 6 fastalykkjur með endanum. ATH: Dragið endann í gegnum toppinn og botninn á klementínunni þannig að það myndist smá hola í hvorri hlið.

BLAÐ:
Stykkið er heklað fram og til baka. Heklið 6 loftlykkjur með litnum opalgrænn með heklunál 4,5 og síðan er heklað meðfram loftlykkjukeðju þannig: 1 keðjulykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í í næstu loftlykkju, 1 hálfur stuðull í næstu loftlykkju, 1 stuðull í næstu loftlykkju, 3 stuðlar í síðustu loftlykkju. Heklið síðan frá hinni hliðinni á loftlykkjukeðju þannig: 1 stuðull í næstu loftlykkju, 1 hálfur stuðull í næstu loftlykkju, 1 fastalykkja í næstu loftlykkju, 1 keðjulykkja í síðustu loftlykkju, klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Heklið annað blað alveg eins og saumið á toppinn á klementínunni. Saumið nokkur spor með brúnum á milli þessa tveggja blaða.
--------------------------------------------------------

JARÐABER:
Stykkið er heklað í hring. Byrjið á að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – neðst niðri á jarðaberinu með litnum skærbleikur með heklunál 4,5.
UMFERÐ 1: Heklið 4 fastalykkjur um galdrahringinn – sjá HEKLAÐ Í HRING!
UMFERÐ 2: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 8 fastalykkjur.
UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur.
UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 16 fastalykkjur.
UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 6: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 20 fastalykkjur.
UMFERÐ 7: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 8 * 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur.
UMFERÐ 9 og 10: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 11: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 2 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur.
UMFERÐ 12: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur.
UMFERÐ 13: Heklið allar fastalykkjur í umferð 2 og 2 saman = 6 fastalykkjur, klippið frá. Fyllið jarðaberið með vatti, saumið saman síðustu 6 fastalykkjur með endanum.

BLAÐ:
Stykkið er heklað í hring. Heklið 48 loftlykkjur með litnum pistasía með heklunál 4,5 og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju.
UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í 1. loftlykkju, * hoppið yfir 5 loftlykkjur, 1 fastalykkja í næstu loftlykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn, endið með að hoppa yfir síðustu 5 loftlykkjurnar, 1 keðjulykkja í 1. fastalykkju = 8 fastalykkjur og 8 loftlykkjubogar.
UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju, endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju.
UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, heklið allar fastalykkjur í umferð 2 og 2 saman = 4 fastalykkjur. Heklið síðan 1 fastalykkju í hverja fastalykkju, klippið frá og festið enda. Saumið blöðin á toppinn á jaðaberinu. Saumið nokkur spor með litnum skærgulur á jarðaberið.
--------------------------------------------------------

KIWI:
Stykkið er heklað í hring. Byrjið á að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – með litnum pistasía með heklunál 4,5 efst á opnu kiwi.
UMFERÐ 1: Heklið 7 fastalykkjur um galdrahringinn – sjá HEKLAÐ Í HRING!
UMFERÐ 2: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 14 fastalykkjur.
UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 21 fastalykkjur.
UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 28 fastalykkjur.
UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju – skiptið yfir í litinn grænn í síðustu fastalykkjunni í umferð – SJÁ LITASKIPTI.
UMFERÐ 6 – 10: Með litnum grænn, heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 11: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur.
UMFERÐ 12: 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur.
UMFERÐ 13: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur.
UMFERÐ 14: Heklið allar fastalykkjur 2 og 2 saman = 6 fastalykkjur, klippið frá. Fyllið stykkið með vatti og saumið saman síðustu 6 fastalykkjur með endanum.
Saumið nokkur spor á brúnum á botni á stykki með litnum pistasía.
--------------------------------------------------------

SVEPPUR:
Stykkið er heklað í hring. Byrjið á að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – efst á svepp með litnum brúnn með heklunál 4,5.
UMFERÐ 1: Heklið 7 fastalykkjur um galdrahringinn – sjá HEKLAÐ Í HRING!
UMFERÐ 2: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 14 fastalykkjur.
UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 21 fastalykkjur.
UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 28 fastalykkjur.
UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 6: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 35 fastalykkjur.
UMFERÐ 7: Aukið út um 1 fastalykkju í 1 fastalykkju, síðan 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 36 fastalykkjur.
UMFERÐ 8 og 9: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 10: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 30 fastalykkjur, skiptið yfir í litinn dökk beige í síðustu fastalykkjunni í umferð – sjá LITASKIPTI.
UMFERÐ 11: Með litnum dökk beige, heklið * 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur.
UMFERÐ 12: * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur.
UMFERÐ 13: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur.
UMFERÐ 14 og 15: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 16: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 14 fastalykkjur.
UMFERÐ 17: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 18: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 6 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 16 fastalykkjur.
UMFERÐ 19: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 20: * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, fækkið um 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur.
UMFERÐ 21: Heklið allar fastalykkjur í umferð 2 og 2 saman = 6 fastalykkjur, klippið frá. Fyllið sveppinn með vatti, saumið saman síðustu 6 fastalykkjur með endanum.
--------------------------------------------------------

BANANI:
Stykkið er heklað í hring. Heklið 2 loftlykkjur með litnum skærgulur með heklunál 4,5.
UMFERÐ 1: Heklið 3 fastalykkjur í 1. loftlykkju sem var hekluð – sjá HEKLAÐ Í HRING!
UMFERÐ 2: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 6 fastalykkjur.
UMFERÐ 3: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur.
UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju – en aukið út um 1 fastalykkju í 1. og síðustu fastalykkju í umferð = 14 fastalykkjur.
Endurtakið umferð 4 og 5 (þ.e.a.s. aukið út um 1 fastalykkju í 1. og síðustu fastalykkju í annarri hverri umferð) þannig að það verða 20 fastalykkjur í umferð.
UMFERÐ 12: Aukið út um 1 fastalykkju í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 4 fastalykkjur yfir næstu 8 fastalykkjur – sjá ÚRTAKA, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í hvora af síðustu 2 fastalykkjum = 20 fastalykkjur.
UMFERÐ 13 og 14: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 15: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 3 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 4 fastalykkjur yfir næstu 8 fastalykkjur, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í síðustu fastalykkju.
UMFERÐ 16 og 17: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 18: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 4 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 4 fastalykkjur, 1 fastalykkja í hverja af síðustu 4 fastalykkjum.
UMFERÐ 19 og 20: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 21: Heklið 1 fastalykkju í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 4 fastalykkjur yfir næstu 8 fastalykkjur, 1 fastalykkja í hvora af síðustu 2 fastalykkjum.
UMFERÐ 22 og 23: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 24: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 4 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 4 fastalykkjur yfir síðustu 8 fastalykkjur.
UMFERÐ 25 og 26: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 27: Fækkið um 1 fastalykkju yfir fyrstu 2 fastalykkjur, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 3 fastalykkjur yfir næstu 6 fastalykkjur.
UMFERÐ 28 og 29: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 30: Fækkið um 2 fastalykkjur yfir fyrstu 4 fastalykkjur, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 2 fastalykkjur yfir næstu 4 fastalykkjur.
UMFERÐ 31: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 32: Fækkið um 2 fastalykkjur yfir fyrstu 4 fastalykkjur, heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju þar til 4 fastalykkjur eru eftir, fækkið um 2 fastalykkjur yfir næstu 4 fastalykkjum = 16 fastalykkjur.
Endurtakið umferð 32 2 sinnum til viðbótar = 8 fastalykkjur. Fyllið bananann með vatti. Í næstu umferð er fækkað um 2 fastalykkjur = 6 fastalykkjur eftir, heklið síðan 12 fastalykkjur með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju, klippið frá og festið enda.
--------------------------------------------------------

BANANI MEÐ OPNU HÝÐI:
Stykkið er heklað í hring. Heklið 2 loftlykkjur með litnum skærgulur með heklunál 4,5.
UMFERÐ 1: Heklið 3 fastalykkjur í 1. loftlykkju sem var hekluð – sjá HEKLAÐ Í HRING!
UMFERÐ 2: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 6 fastalykkjur.
UMFERÐ 3: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur.
UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju – en aukið út um 1 fastalykkju í 1. og síðustu fastalykkju í umferð = 14 fastalykkjur.
Endurtakið umferð 4 og 5 (þ.e.a.s. aukið út um 1 fastalykkju í 1. og síðustu fastalykkju í annarri hverri umferð) þannig að það verða 20 fastalykkjur í umferð.
UMFERÐ 12: Aukið út um 1 fastalykkju í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 4 fastalykkjur yfir næstu 8 fastalykkjur – sjá ÚRTAKA, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í hvora af síðustu 2 fastalykkjum = 20 fastalykkjur.
UMFERÐ 13 og 14: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 15: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 3 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 4 fastalykkjur yfir næstu 8 fastalykkjur, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í síðustu fastalykkju.
UMFERÐ 16 og 17: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 18: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 4 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 4 fastalykkjur, 1 fastalykkja í hverja af síðustu 4 fastalykkjum.
UMFERÐ 19 og 20: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju, skiptið yfir í litinn natur í síðustu fastalykkjunni í síðustu umferð – sjá LITASKIPTI.
UMFERÐ 21: Heklið með litnum natur, heklið 1 fastalykkju í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 4 fastalykkjur yfir næstu 8 fastalykkjur, 1 fastalykkja í hvora af síðustu 2 fastalykkjum.
UMFERÐ 22 og 23: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 24: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 4 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 4 fastalykkjur yfir síðustu 8 fastalykkjur.
UMFERÐ 25 og 26: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 27: Fækkið um 1 fastalykkju yfir fyrstu 2 fastalykkjur, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 3 fastalykkjur yfir næstu 6 fastalykkjur.
UMFERÐ 28 og 29: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 30: Fækkið um 2 fastalykkjur yfir fyrstu 4 fastalykkjur, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, fækkið um 2 fastalykkjur yfir næstu 4 fastalykkjur.
UMFERÐ 31: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 32: Fækkið um 2 fastalykkjur yfir fyrstu 4 fastalykkjur, heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju þar til 4 fastalykkjur eru eftir, fækkið um 2 fastalykkjur yfir næstu 4 fastalykkjum = 16 fastalykkjur.
Endurtakið umferð 32 2 sinnum til viðbótar = 8 fastalykkjur. Fyllið bananann með vatti. Í næstu umferð er fækkað um 2 fastalykkjur = 6 fastalykkjur eftir, klippið frá, saumið saman síðustu 6 fastalykkjur með endanum.

BANANAHÝÐI:
Stykkið er heklað fram og til baka. Með litnum skærgulur og heklunál 4,5 er hekluð síðasta umferð með litnum skærgulur þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 6 fastalykkjum, snúið. Heklið 12 umferðir með fastalykkjum (allar umferðir byrja á 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju). Í næstu umferð er fækkað um 1 fastalykkju í byrjun og í lokin á umferð, síðan eru þær fastalykkjur sem eftir eru heklaðar 2 og 2 saman í næstu umferð, klippið frá. Endurtakið yfir næstu 8 fastalykkjur í umferð og síðan síðustu 6 fastalykkjur í umferð = 3 bananahýði.
--------------------------------------------------------

KARFA:
Mál: Ca 12 cm á hæðina.
Stykkið er heklað í hring. Byrjið á að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – neðst á körfu með litnum dökk beige með heklunál 4,5.
UMFERÐ 1: Heklið 8 fastalykkjur um galdrahringinn – sjá HEKLAÐ Í HRING!
UMFERÐ 2: Aukið út um 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 16 fastalykkjur.
UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur.
UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 32 fastalykkjur.
UMFERÐ 5: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 40 fastalykkjur.
UMFERÐ 6 (og síðan allar jafnar umferðir): Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
UMFERÐ 7: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 48 fastalykkjur.
UMFERÐ 9: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 56 fastalykkjur.
UMFERÐ 11: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 6 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 64 fastalykkjur.
UMFERÐ 13: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 7 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 72 fastalykkjur.
UMFERÐ 15: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 84 fastalykkjur.
UMFERÐ 17: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 6 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 96 fastalykkjur.
UMFERÐ 19: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 7 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 108 fastalykkjur.
UMFERÐ 21: * 1 fastalykkja í hverja af næstu 8 fastalykkjum, aukið út um 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 120 fastalykkjur.
UMFERÐ 22 - 26: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju, skiptið yfir í litinn pistasía í síðustu fastalykkjunni í síðustu umferð – sjá LITASKIPTI.
Heklið síðan rendur þannig: Heklið 2 umferðir í litnum pistasía, 2 umferðir í litnum dökk beige, 2 umferðir í litnum pistasía. Heklið síðan 1 fastalykkju í hverja fastalykkju með litnum dökk beige þar til karfan mælist ca 10 cm á hæðina (mælt frá efsta kanti þegar karfan liggur flöt). Skiptið yfir í litinn pistasía í síðustu fastalykkjunni í síðustu umferð og heklið 1 umferð með litnum pistasía. Næsta (= síðasta) umferð er hekluð með litnum pistasía þannig: * Heklið 1 fastalykkju, heklið loftlykkjur í ca 14 cm (fyrir handfang), hoppið yfir næstu 16 lykkjur, 1 fastalykkja í hverja af næstu 43 fastalykkjum *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð = 2 loftlykkjubogar fyrir handfang í hvorri hlið á körfu. Heklið með 2 þráðum litnum pistasía með heklunál 5 utan um hvort handfang þannig: Heklið 32 fastalykkjur, klippið frá og festið enda.

----------------------------------------------------------
Gulrót – sjá DROPS Children: 23-57
----------------------------------------------------------
Kiwi - sjá DROPS Children: 23-58
----------------------------------------------------------
Jarðaber - sjá DROPS Children: 23-59
----------------------------------------------------------
Epli - sjá DROPS Children: 23-60
----------------------------------------------------------
Pera - sjá DROPS Children: 23-61
----------------------------------------------------------
Klementína - sjá DROPS Children: 23-62
----------------------------------------------------------
Banani - sjá DROPS Children: 23-63
----------------------------------------------------------
Sveppur - sjá DROPS Children: 23-64
----------------------------------------------------------
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Tutti frutti

Janet, United States

Tutti frutti

Aly, United Kingdom

Tutti frutti

Steffi, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 23-56

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (32)

Alessandra Pautasso wrote:

Please could you translate this pattern in italian language? Thanks!

14.01.2015 - 10:07

DROPS Design answered:

Dear Alessandra. You can find the Italian pattern here

14.01.2015 - 14:29

country flag Sylvie60 wrote:

Un grand grand merci pour ces explications!!!! c'est super gentil

03.11.2013 - 13:16

country flag Desit wrote:

Pas compris comment faire les tiges des pommes et poires , cela me donne une corolle , merci de m'aider

18.09.2013 - 09:58

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Desit, montez 3ml, puis crochetez 2 ms dans la 1ère et 2ème ml, vous avez 4 ms. Continuez en rond = 1 ms dans chacune des 4 ms sans joindre à la fin de chaque tour, jusqu'à ce que vous ayez crocheté un total de 16 ms, soit 4 tours au total. Bon crochet!

18.09.2013 - 10:40

country flag Fride Fiskergård wrote:

Kjekke oppsrifter! :) Har en datter som blir to i sommer, og tenkte hun skulle få massevis av lekemat, og da er disse en fin start :) Vil bare nevne at det er lurt å fylle med vatt før man bare har 6m igjen - da det blir veldig trangt :)

05.03.2013 - 21:21

country flag Hanne Plovstrup wrote:

Hej Drops. Det er ikke nok med 50 g af den pistacie grønne, der skal bruges 100 g :) Mvh Hanne

20.02.2013 - 08:52

country flag Sigrid wrote:

Bonjour, pour information, pour la banane avec peau, il manque les indications avant le tour 1, que l'on retrouve néanmoins pour la banane au-dessus.

16.02.2013 - 14:46

country flag DROPS Design Deutschland wrote:

Runde 10 wird korrigiert, vielen Dank für den Hinweis.

22.10.2012 - 08:34

country flag Biele wrote:

Guten Tag der Pilz ist bei der Runde 10 in dieser Anleitung noch falsch! Danke fürs ändern!

21.10.2012 - 18:43

country flag Biele wrote:

Guten Tag ich habe versucht den Korb zu Häkeln jedoch ist er alles andere als Stabil er fällt in sich zusammen was mache ich falsch? Es sieht bei mir auch anders aus als auf dem Bild! festmaschen Bedeuten mit dem Häckchen durch die masche stechen 1mal um den faden durch die 1 masche ziehn nochmals um den faden danach durch 2 maschen ziehen? oder nur 1 um den Faden danach durch 2 maschen ziehen?

17.10.2012 - 15:06

DROPS Design answered:

Guten Tag Frau Biele, haben Sie eine Maschenprobe gemacht? Mit 18 M auf 10 cm sollte der Korb eigentlich stabil sein. Wie man feste Maschen häkelt können Sie sich auf unserem Instruktionsvideo mit dem Titel: „Häkeln: rund mit festen Maschen“ anschauen.

19.10.2012 - 11:57

country flag Girardin Corinne wrote:

Bonjour, je réalise le panier, et me demande à quel moment la partie verticale se rélève ? C'est ma première réalisation au crochet, et au rang 23 j'ai un fond bien plat ... Merci de votre réponse Bien cordialement Corinne

08.10.2012 - 18:57

DROPS Design answered:

Bonjour Madame Girardin, effectivement le fond du panier va jusqu'au tour 21, à partir du tour 22, on ne fait plus d'augmentations, on va donc avoir un bord droit. Bon crochet !

09.10.2012 - 08:56