DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5632.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 140-7
DROPS Design: Mynstur nr li-019
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio
400-400-450-500-550-600 gr litur nr 3609, rauður

DROPS HEKLUNÁL nr 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 6 umf í mynstri A.3 verði 10 cm á breidd (1 mynstureining A.1 mælist 3 cm á breidd, 1 mynstureining A.2 mælist 2½ cm á breidd, A.1/A.2 mælist ca 2½ cm á hæð).
DROPS PERLUTALA NR 522 (20 mm): 4 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5632.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

UMFERÐ MEÐ FL (FRAM OG TIL BAKA):
Allar umf með fl byrja á 1 ll (ekki talin með sem 1. fl), heklið 1 fl í hverja l umf hringinn, snúið.

MYNSTUR A.1 (deilanlegt með 5 + 1):
UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 4 ll (= 1 tbst) í 1. fl, haldið áfram – sjá einnig umf 1 í mynstri A.1 þannig: * Heklið 2 ll, 1 kúla með 4 tbst, 2 ll, 1 tbst í næstu fl *, endurtakið frá *-* út umf, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 ll, 3 fl um 1. ll-boga, hoppið yfir 1. kúlu, 2 fl um næsta ll-boga, haldið áfram – sjá einnig umf 2 í mynstri A.1 þannig: * Heklið 1 fl í næsta tbst, 2 fl um næsta ll-boga, hoppið yfir næstu kúlu, 2 fl um næsta ll-boga*, endurtakið frá *-* út umf, endið með 1 fl að síðasta ll-boga í umf (= sami fjöldi fl eins og áður).

MYNSTUR A.2 (deilanlegt með 4+1):
UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 4 ll (= 1 tbst) í 1. fl, haldið áfram – sjá einnig umf 1 í mynstri A.2 þannig: * Heklið 1 ll, heklið 1 kúlu með 3 tbst, 1 ll, 1 tbst í næstu fl *, endurtakið frá *-* út umf, snúið.
UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 ll, 2 fl um 1. ll-boga, 1 fl í næstu kúlu, 1 fl um næsta ll-boga, haldið áfram – sjá einnig umf 2 í A.2 þannig: * Heklið 1 fl í næsta tbst, 1 fl um næsta ll-boga, 1 fl í næstu kúlu, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf endið umf með 1 fl að síðasta ll-boga í umf (= sami fjöldi fl eins og áður).

ÚTAUKNING:
Aukið er út um 1 l með því að hekla 2 l í sömu l.

UMFERÐ MEÐ ST (FRAM OG TIL BAKA):
Allar umf með st eru heklaðar frá réttu. Allar umf með st byrja á 3 ll (= 1. st), hoppið yfir 1. fl frá fyrri umf, heklið 1 st í hverja fl út umf, snúið.

MYNSTUR A.3:
UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 1 umf með st.
UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 umf með fl.

UMF MEÐ FL (HRINGINN):
Allar umf með fl byrja með 1 ll (ekki talin með sem 1. fl), heklið 1 fl í hverja l umf hringinn, endið með 1 kl í 1. fl.

ÚRTAKA – FL:
Heklið 1 fl, geymið að draga þráðinn í gegn alla leið (= 2 l á heklunálinni), heklið nú næstu fl – þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni, nú hefur fækkað um 1 fl yfir 2 l.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið 157-172-187-202-222-242 LAUSAR ll með Lima með heklunál nr 4,5, snúið við og heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið nú 1 fl í hverja ll út umf = 156-171-186-201-221-241 fl, snúið (umf 1 = rétta). Heklið nú MYNSTUR A.1 – sjá útskýringu að ofan = 31-34-37-40-44-48 mynstureiningar + 1 tbst. Þegar UMFERÐ 2 hefur verið hekluð eru 156-171-186-201-221-241 fl í umf. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Heklið A.1 alls 5-5-5-6-6-6 sinnum á hæðina – en í síðustu umf með fl frá röngu er heklað þannig: Heklið 1 ll, 2 fl um 1. ll-boga, 1 fl í næstu kúlu, 1 fl um næsta ll-boga, * 1 fl í næsta tbst, 1 fl um næsta ll-boga, 1 fl í næstu kúlu, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf, endið með 2 fl um síðasta ll-boga = 125-137-149-161-177-193 fl, snúið.
Heklið nú MYNSTUR A.2 – sjá útskýringu að ofan! Þegar UMFERÐ 2 hefur verið hekluð eru 125-137-149-161-177-193 fl í umf. Heklið A.2 alls 5 sinnum á hæðina – en í síðustu umf með fl frá röngu er aukið út um 10-10-12-14-16-18 fl jafnt yfir - LESIÐ ÚTAUKNING = 135-147-161-175-193-211 fl. Nú mælist stykkið ca 27-27-27-30-30-30 cm.
Heklið nú MYNSTUR A.3 – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT í 1. umf með fl frá röngu er aukið út um 9-9-11-13-15-17 l jafnt yfir = 144-156-172-188-208-228 fl. Heklið A.3 alls 6 sinnum (síðasta umf = 1 umf með fl frá röngu), nú mælist stykkið ca 37-37-37-40-40-40 cm, klippið frá og festið enda. Setjið 1 prjónamerki 36-39-43-47-52-57 fl inn frá hvorri hlið í síðustu umf með fl (= 72-78-86-94-104-114 fl á milli prjónamerkja á bakstykki).

KANTUR Á ERMI:
Stykkið er heklað í hring. Heklið 50-52-56-60-64-66 LAUSAR ll með heklunál nr 4,5 með Lima og tengið í hring með 1 kl í 1. ll í fyrstu ll. Umferð 1 er hekluð þannig: Heklið 1 ll, heklið nú 1 fl í hverja ll, endið með 1 kl í 1. fl í byrjun umf (= miðja undir ermi) = 50-52-56-60-64-66 fl. Haldið áfram hringinn með UMFERÐ MEÐ FL – sjá útskýringu að ofan – þar til stykkið mælist 2 cm. Setjið nú 1 prjónamerki í hvora hlið við miðju 12-12-12-14-16-16 l undir ermi = 38-40-44-46-48-50 fl á milli prjónamerkja á ermi. Geymið stykkið og heklið annan kant til viðbótar á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið 1 nýtt prjónamerki við miðju á fram – og bakstykki, héðan er nú mælt! Umferð 1 er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 st í hverja og eina af fyrstu 30-33-37-40-44-49 l á hægra framstykki, heklið 1 st í hverja af þeim 38-40-44-46-48-50 l frá fyrri kant á ermi (þ.e.a.s. ekki er heklað yfir þær 12-12-12-14-16-16 l á milli prjónamerkja við miðju undir ermi), hoppið yfir 12-12-12-14-16-16 l við miðju á hlið á fram- og bakstykki (þ.e.a.s. 6-6-6-7-8-8 l hvoru megin við prjónamerki), heklið 1 st í hverja af næstu 60-66-74-80-88-98 l (= bakstykki), heklið 1 st í hverja af 38-40-44-46-48-50 l frá seinni kant á ermi, hoppið yfir 12-12-12-14-16-16 l á hlið á fram- og bakstykki (þ.e.a.s. 6-6-6-7-8-8 l hvoru megin við prjónamerki), heklið 1 st í hverja af síðustu 30-33-37-40-44-49 l á vinstra framstykki = 196-212-236-252-272-296 st.
Haldið áfram fram og til baka með A.3 eins og áður – JAFNFRAMT Í 3.- 4.- 4.- 4.- 5.- 5. hverri umf með fl frá röngu, fellið af 32-36-40-44-48-54 fl jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA - FL. Endurtakið úrtöku í 6.- 7.- 7.- 7.- 8.- 8. hverri umf með fl síðan í 8.- 9.- 9.- 9.- 10.- 11. hverri umf með fl, að lokum í 9.- 10.- 11.- 11.-12.- 13. hverri umf með fl = 68-68-76-76-80-80 fl eftir (síðasta umf = ranga), berustykkið mælist nú ca 15-17-18-18-20-22 cm frá prjónamerki. Klippið ekki frá.

HÁLSMÁL:
Heklið nú hækkun aftan við hnakka þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Byrjið efst á hægra framstykki, heklið 1 ll, 1 fl í 1. fl, * 1 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* kringum hálsmál, snúið.
UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 fl um hverja ll og 1 ll yfir hverja fl kringum hálsmál þar til eftir eru 12 l (= 6 fl + 6 ll) á hægra framstykki, snúið.
UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hverja ll og 1 ll yfir hverja fl þar til eftir eru 12 l á vinstra framstykki, snúið.
UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja ll og 1 ll í hverja fl kringum hálsmál þar til eftir eru 18 l að kanti á hægra framstykki (= 9 fl og 9 ll), snúið.
UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í hverja ll og 1 ll yfir hverja fl kringum hálsmál þar til eftir eru 18 l að kanti á vinstra framstykki, snúið.
UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hverja ll og 1 ll yfir hverja fl kringum hálsmál þar til eftir eru 24 l fram að kanti á hægra framstykki (= 12 fl og 12 ll), snúið.
UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hverja ll og 1 ll yfir hverja fl þar til eftir eru 24 l fram að kanti á vinstra framstykki. Klippið ekki frá.
Heklið nú 1 hring með fl í hverja fl og í hverja ll, heklið nú umf með fl þar til listinn með fl mælist 2 cm við miðju að framan, klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

KANTUR AÐ FRAMAN:
Heklið frá réttu ca 90-110 fl meðfram kanti við miðju að framan á hægra framstykki (meðtalin er kantur við hálsmál). Heklið nú 1 umf fl frá röngu – JAFNFRAMT sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 92-94-98-102-104-108 fl.
Setjið 1 prjónamerki í skiptingar á milli A.2 og A.3.
Í næstu umf frá réttu er hekluð fl – JAFNFRAMT eru 4 hnappagöt hekluð jafnt yfir á milli prjónamerkis og efstu brún á hálsmáli (1 hnappagat = heklið 2 ll, hoppið yfir næstu fl) – síðasta hnappagatið á að vera ca 1 cm frá efstu brún. Í næstu umf eru heklaðar 2 fl í hvern ll-boga fyrir hnappagati. Heklið umf með fl þar til kanturinn mælist ca 2 cm, klippið frá og festið enda.
Heklið kant meðfram vinstra framstykki alveg eins, nema án hnappagata. Saumið 4 tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.08.2012
Efni: DROPS LIMA frá Garnstudio Nr 3609, rauður:400-400-450-500-550-600 gr
Yfirfarið á vefsvæði: 12.09.2012
FRAM- OG BAKSTYKKI:...Heklið nú MYNSTUR A.1 – sjá skýringu að ofan = 31-34-37-40-44-48 mynstureiningar + 1 tbst. Þegar UMFERÐ 2 hefur verið hekluð eru 156-171-186-201-221-241 fl í umf...Heklið nú MYNSTUR A.2 – sjá skýringu að ofan! Þegar UMFERÐ 2 hefur verið hekluð eru 125-137-149-161-177-193 fl í umf....

Mynstur

symbols = 1 kúla með 4 tvíbrugðnum stuðlum: heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu fastalykkju – bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja og eina af næstu 3 fastalykkjum alveg eins, dragið þráðinn í gegnum allar 5 lykkjur á heklunálinni.
symbols = 1 kúla með 3 tvíbrugðnum stuðlum: heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu fastalykkjju – bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvora af næstu 2 fastalykkjum alveg eins, dragið þráðinn í gegnum allar 4 lykkjur á heklunálinni.
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðul
symbols = 1 fastalykkja
symbols = 1 loftlykkja
symbols = UMFERÐ 1 í mynstri
symbols = UMFERÐ 2 í mynstri
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 140-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (53)

country flag Denise Clemens wrote:

I am not a bobble fan. Will the pattern work by replacing the bobbles with the type stitches where the bobbles are made? What is the meaning for "work over" and "do not work over" stitches? Thank you very much.I

22.01.2024 - 09:58

DROPS Design answered:

Dear Denise, yes, you can skip the bobbles and work 1 stitch in each stitch; it will be flat and there won't be the holes in the lower part. So the whole piece will look the same (the upper and lower parts). On another note, work over means that you will work in or around these stitches (work normally). Do not work over means that you are going to skip these stitches (so you won't be working them). Happy crochetting!

22.01.2024 - 23:33

country flag Denise Clemens wrote:

I am not a bobble fan. Will the pattern work by replacing the bobbles with the type stitches where the bobbles are made? What is the meaning for "work over" and "do not work over" stitches? Thank you very much.I

22.01.2024 - 09:57

DROPS Design answered:

Dear Denise, yes, you can skip the bobbles and work 1 stitch in each stitch; it will be flat and there won't be the holes in the lower part. So the whole piece will look the same (the upper and lower parts). On another note, work over means that you will work in or around these stitches (work normally). Do not work over means that you are going to skip these stitches (so you won't be working them). Happy crochetting!

22.01.2024 - 23:33

country flag Pauline Brotherhood wrote:

When the pattern (Drops 140-7) changes from A1 to A2 the stitches aren't in line but on the pattern picture they are. Am I doing something wrong??

31.08.2022 - 14:21

DROPS Design answered:

Dear Mrs Brotherhood, make sure you worked the last row in A.1 from WS as explained, there should be now 4 sts worked over the 5 sts each A.1 so that you can continue working A.2 (= 4 sts) over each A.1 (= 5 sts). Happy crocheting!

31.08.2022 - 15:06

country flag Zofia wrote:

Why don't you actually do entire tutorials for these designs on YouTube? Some of these pattern instructions get confusing & this would really help with learning to understand the instructions. There are quite few crocheters on there with massive followers & I understand they are making an absolute fortune doing this but they mainly for blankets & very complicated granny squares but not any for some of these 'start from the top down' cardigans. Is that ever going to happen in the near future?

21.06.2021 - 20:29

DROPS Design answered:

Dear Zofia, a pattern might use a number of elements, and elements may be used in a number of patterns. If you learn a certain technique, you can use it for other patterns as well. Our website is available for free to support our yarns (DROPS yarns), and not for other purpouses. Though we might do longer tutorials from time to time, we think that these bits help to understand some details. happy Stitching!

22.06.2021 - 01:59

country flag Susanne wrote:

Ok danke dachte weil das oberteil bis zu den Arm auschnit aus sieht als were es in Runde oben gehäkelt.weil es oben schmaler und zu den arm aus Schnitten breiter wird.\r\nGruß\r\nSusanne

16.12.2020 - 18:09

country flag Susanne wrote:

Hallo eine Frage wird die jacke von oben runter gehäkelt.? Gruß Susanne

12.12.2020 - 09:01

DROPS Design answered:

Liebe Susanne, diese Jacke wird von unten nach oben gehäkelt. Viel Spaß beim häkeln!

14.12.2020 - 10:28

country flag Cornelia Zeller wrote:

Ich wollte die Anleitung zum Model Christel ausdrucken. Leider fehlen beim Ausdruck die Bilder (Diagramme). Muss ich bei Drucken etwas Spezielles berücksichtigen? Freundliche Grüsse C. Zeller

13.02.2020 - 16:36

DROPS Design answered:

LIebe Frau Zeller, Diagramme sind wieder da - jetzt können Sie die Diagramme ausdrücken. Viel Spaß beim stricken!

14.02.2020 - 08:07

country flag SHIRLEY PACK wrote:

I am totally confused with the yoke instructions........at the end of the body I have 156 stitches but at the end of the yoke there are supposed to be 212 without any increases. Where do t he extra 56 stitches come from??

28.08.2019 - 22:28

DROPS Design answered:

Dear Mrs Pack, after you have worked body (= 156 sts), you now work both sleeve edges, then work yoke over the 156 sts + 40 sts for each sleeve skipping 12 sts on each side (for sleeves/armholes) 156-12-12 sts (body) = 132+40-40 sts for the sleeves = 212 sts. Happy crocheting!

29.08.2019 - 09:26

Liliane Lohsmann wrote:

Hallo, ich habe das Problem nach meinem Dafürhalten gelöst und es hat auch geklappt. Die Weste ist sehr schön geworden. Tschüss bis zum nächsten Mal.

26.10.2017 - 10:49

country flag Liliane Lohsmann wrote:

Hallo, es wäre schön, wenn Sie meine Frage vom 17. d.M. beantworten würden. L.Lohsmann

20.10.2017 - 17:58

DROPS Design answered:

Liebe Frau Lohsmann, Entschuldigung für die Späte Anwort. Am besten zeigen Sie die Jacke Ihr Laden, es wird einfacher für sie zu finden, warum es so aussieht. Viel Spaß beim häkeln!

23.10.2017 - 09:21