DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10560.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Elena

Prjónuð peysa úr DROPS Nepal með löngum ermum, berustykki og mynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 143-15
DROPS Design: Mynstur nr ne-109
Garnflokkur C
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
550-600-700-750-800-850 gr litur nr 0618, kamel
150-150-150-150-200-200 gr litur nr 0206, ljós beige
50-50-50-50-100-100 gr litur nr 3720, millibleikur

DROPS PRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 4 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10560.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A-1 til A-5, mynsturteikningin sýnir 1 mynstureiningu af mynstri.
Mynsturteikningar A-2 til A-5 eru prjónaðar í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI.
Fitjið LAUST upp 176-192-208-224-240-256 l á hringprjóna nr 5 með litnum kamel (mikilvægt er að uppfitjunarkanturinn sé ekki of stífur). Prjónið 1 umf brugðið, 1 umf slétt og 1 umf brugðið. Haldið áfram með mynstur A-1 (= 11-12-13-14-15-16 mynstureiningar hringinn). Þegar A-1 hefur verið prjónað eru 154-168-182-196-210-224 l á prjóni. Haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 77-84-91-98-105-112 l (þetta merkir hliðar). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15 cm, er fækkið um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki, endurtakið úrtöku með 6-6-6-8-12-19 cm millibili 4-4-4-3-2-1 sinni til viðbótar = 134-148-162-180-196-216 l. Þegar stykkið mælist 43-45-46-47-48-49 cm, prjónið mynstur A-2 einu sinni á hæðina – JAFNFRAMT, jafnt yfir í 1. umf, er fækkað um 2 l í stærð S og aukið út um 2 l í stærð M = 132-150-162-180-198-216 l. JAFNFRAMT í síðustu umf eru felldar af 8 l í hvorri hlið í öllum stærðum (þ.e.a.s. 4 l hvoru megin við hvort prjónamerki) = 116-134-146-164-182-200 l, klippið frá. Stykkið mælist ca 49-51-52-53-54-55 cm.
Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 44-48-48-52-52-56 l á sokkaprjóna nr 4 með litnum kamel.
Prjónið 1 umf sléttprjón, haldið áfram með stroff = 2 l sl, 2 l br í 6 cm. Prjónið nú 1 umf sléttprjón jafnframt er fækkað um 4 l jafnt yfir = 40-44-44-48-48-52 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5, setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Prjónið 1 umf sléttprjón, prjónið nú mynstur A-5 einu sinni á hæðina, haldið áfram í sléttprjóni og litnum kamel. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11 cm, er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki undir ermi. Endurtakið útaukningu með 3-4-4-3½-3½-3 cm millibili 9-7-7-8-8-9 sinnum til viðbótar = 60-60-60-66-66-72 l. Þegar stykkið mælist 40 cm, er prjónað mynstur A-2 einu sinni á hæðina – JAFNFRAMT í síðustu umf í mynstri A-2 eru felldar af 8 l við miðju undir ermi, þ.e.a.s. 4 l hvoru megin við prjónamerki = 52-52-52-58-58-64 l. Ermin mælist ca 46 cm, geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermarnar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 220-238-250-280-298-328 l. Hver umf byrjar frá miðju að aftan – setjið 1 prjónamerki hér. Prjónið 1 umf með litnum kamel jafnframt sem lykkjufjöldinn er jafnaður út að 220-242-242-264-286-308 l. Haldið áfram með 0-0-2-4-6-9 umf með litnum kamel áður en mynstur A-3 er prjónað (= 10-11-11-12-13-14 mynstureiningar hringinn). Eftir A-3 eru 200-220-220-240-260-280 l á prjóni. Prjónið 1 umf með litnum kamel jafnframt er fækkað um 10-20-10-20-30-40 l jafnt yfir = 190-200-210-220-230-240 l. Haldið áfram með mynstur A-4. Þegar A-4 hefur verið prjónað eru 76-80-84-88-92-96 l á prjóni. Stykkið er prjónað til loka með litnum kamel. Berustykkið mælist nú ca 21-21-22-23-24-25 cm á hæðina. Prjónið nú upphækkun að aftan við hálsmál með litnum kamel og sléttprjóni þannig: Prjónið 7 l sl framhjá prjónamerki við miðju að aftan, snúið við, herðið þræði og prjónið 14 l br til baka, snúið við, herðið þræði og prjónið 21 l sl, snúið við, haldið áfram að prjóna yfir 7 l fleiri í hverri umf áður en snúið er við þar til prjónaðar hafa verið alls 56-56-56-70-70-70 l, snúið við og prjónið 1 umf sl fram að miðju að aftan.

KRAGI:
Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið 1 umf slétt með litnum kamel jafnframt er aukið út um 8 l jafnt yfir = 84-88-92-96-100-104 l. Haldið áfram með stroff = 2 l sl,2 l br í 3 cm, fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op við handveg.

Mynstur

symbols = litur kamel
symbols = litur millibleikur
symbols = litur ljós beige
symbols = 2 lykkjur slétt saman í þeim lit sem passar fyrir mynstrið
symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjurnar
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 143-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Iveta Lavickova wrote:

Vzor A1: Ked strikujem podla popisu, vzor nevychadza. "1 oko sejmeme hladce, 1 upleteme hladce, 2 oka spleteme hladce a sejmuté přes ně přetáhneme" to su v podstate styri ocka, ktore treba pouzit, ale na obrazku su len tri. Ma vyjst 11 sekvencii vzoru pri velkosti S, no mne vyslo 10 sekvencii + tri ocka. Neviem sa pohnut dalej... Svetrik ma byt darcek, vnucka si ho vybrala, no teraz jej musim povedat, ze kvoli chybe v popise ho mat nebude. Viete mi pomoct?

25.03.2024 - 18:06

DROPS Design answered:

Dobrý den Iveto, popis posledního symbolu ve schématu byl chybně, daný symbol pletete: "1 oko sejmeme hladce, 2 oka spleteme hladce a sejmuté přes ně přetáhneme". Chyba je již opravena. Děkujeme za upozornění a ať se vám hezky plete!

25.03.2024 - 18:32

country flag Anita Sigrist wrote:

Die Anleitung beginnt mit scheinbar mit dem Rumpfteil. Ich verstehe nicht, wo das sein soll. Beginne ich in der Mitte zu stricken, in Richtung Hals, oder was? Wo ist das Muster A1?

30.08.2022 - 23:17

DROPS Design answered:

Liebe Frau Sigrist, der Pullover wird von unten nach oben gestrickt; man beginnt mit dem Rumpfteil (Runden beginnen an der Seite) in Runden bis Armlöcher, dann wird die Arbeit zur Seite gelegt und die beiden Ärmel separat gestrickt. Alle Stücke sind dann auf der Nadel gelegt und die Passe wird in Runden gestrickt - mit verkürtzen Reihen um eine Erhöhung für den Halsausschnitt. Viel Spaß beim stricken!

31.08.2022 - 07:50

country flag Eija wrote:

Haluaisin muuttaa ohjeen Karisma lankaan. Osaan mitata kerätä yms. joita tarvitsisin, käyttäisin mieluummin 4 puikkoja, jotta puserosta ei tulisi niin paksu ja olisi helpommin pestävissä. Kysymys kuuluu: kokoni on M-L ja aion tehdä neuleen XL:n ohjeella. Toimiiko ohje, jos katson lopussa puseron pituuden?

31.10.2021 - 09:09

DROPS Design answered:

Mikäli neulot puseron ohuemmalla langalla, sinun tulee olla tarkkana mittojen kanssa. Tarvittaessa voit neuloa vieläkin suuremman koon mukaisesti, koska erityisesti kirjoneule tekee neuleesta tiukemman (se ei jousta samoin kuin esim. tavallinen sileä neule).

04.11.2021 - 17:27

country flag Jessica wrote:

Hallo, gibt es von dem Pullover auch eine Version als Cardigan? Was muss ich beachten, wenn ich den Pulli als Cardigan stricken möchte?

13.08.2017 - 11:00

DROPS Design answered:

Liebe Jessica, es gibt zu diesem Modell nur Pullover, gerne können Sie eine Jacke dazu anpassen mit der Hilfe ähnlichen Modellen. Ihr DROPS Laden wird Ihnen gerne damit helfen. Viel Spaß beim stricken!

28.08.2017 - 11:11

country flag Pernille Sue Winton wrote:

Hej, jeg vil gerne strikke denne ensfarvet og altså uden mønster, og har købt det dejlige Nepal garn. Det er flere år siden jeg har strikket et større arbejde og jeg er kun lidt øvet generelt - mon det er et problem at strikke denne skønne trøje så...? På forhånd tak for svar :)

09.11.2015 - 12:09

DROPS Design answered:

Hej Pernille. Det tror jeg nu godt du kan. Tag dig god tid, laes godt igennem, se instruktionsvideoerne og spörg hvis der er noget. Husk at strikke en pröve först saa din strikkefasthed passer.

09.11.2015 - 12:38

country flag Anne Marie Willesen wrote:

Gjelder model Elena, DROPS 143-15. Jeg ser at problemet er debatert på tysk, men det blir ikke helt enkelt. Det gjelder genser strikket i M, første rapport med oppslag av 192 m. rapporten strikkes 12 ganger og da er det 192 igjen .Ifølge oppskrift skal det være 168 m igjen - hvordan blir de restrende masker vekk?

17.02.2015 - 10:15

DROPS Design answered:

Hej Anne Marie. I den sidste raekke af A.1 strikker du sammen uden at lave kast. Dvs, du minsker her 2 m per gentagelse over hele pinden (12 x 2 m) 192-24 = 168 m tilbage.

17.02.2015 - 16:08

country flag Maria wrote:

Ich habe vor, meinen wieder aufzuziehen und nochmal in Größe M zu stricken, in der Hoffnung, dass das Muster dann tiefer ansetzt (weil ja mehr Maschen da sind, ergo die Schulterpartie weiter wird). Oder habt Ihr einen anderen Tipp? Ich wäre sehr dankbar dafür, denn ich möchte ihn wirklich nur noch einmal stricken und dann auch tragen...

08.02.2015 - 15:03

country flag Maria wrote:

Ich habe gerade diesen Pullover (den ich auf dem Foto wunderschön finde) beendet. Leider wirkt das Muster in Größe S in keinster Weise so wie auf dem Foto. Es ist viel kleiner und das große helle Hauptmuster liegt nicht auf der Brust, sondern viel höher. Und somit wirken die Proportionen einfach nicht mehr stimmig. Ich habe mir mal auf Rav... die getrickten Varianten dieses Pullovers angeschaut und es sieht bei allen so aus, dass das Muster viel kleiner daherkommt, als beim Original.

08.02.2015 - 15:02

country flag Maria wrote:

Ich habe gerade diesen Pullover (den ich auf dem Foto wunderschön finde) beendet. Leider wirkt das Muster in Größe S in keinster Weise so wie auf dem Foto. Es ist viel kleiner und das große helle Hauptmuster liegt nicht auf der Brust, sondern viel höher. Und somit wirken die Proportionen einfach nicht mehr stimmig. Ich habe mir mal auf Rav... die getrickten Varianten dieses Pullovers angeschaut und es sieht bei allen so aus, dass das Muster viel kleiner daherkommt, als beim Original.

08.02.2015 - 15:01

country flag Iris Acker wrote:

Hey, ich hab den Fehler gefunden, er lag eindeutig bei mir, die Anleitung ist völlig korrekt.

01.01.2014 - 16:56