DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10010.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Meredith

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid Silk með kanti að framan með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 141-20
DROPS Design: Mynstur nr ks-067
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KID SILK frá Garnstudio
175-200-200-225-250-275 gr litur nr 05, bleikfjólublár

DROPS SOKKAPRJÓNAR og PRJÓNAR NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm með 2 þráðum úr Kid Silk.
DROPS PRJÓNAR NR 4,5 – fyrir garðaprjón.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10010.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚRTAKA 1 (á við um úrtöku á hliðum):
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkið um 1 l í byrjun umf þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið um 1 l í lok umf þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á prjóni, prjónið næstu 2 l slétt saman, 1 kantlykkja í garðaprjón.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt.

ÚRTAKA 2 (á við um úrtöku við hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkið um 1 l á undan prjónamerki á vinstra framstykki þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið næstu 2 l sl saman, 1 l sl, (prjónamerki), prjónið kantlykkju að framan.
Fækkið um 1 l á eftir prjónamerki á hægra framstykki þannig: Prjónið kantlykkju að framan (prjónamerki), síðan 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið út umf.

SNÚRA PRJÓNUÐ Í HRING:
Prjónið 1 umf slétt = 6 l á prjóni, nú er þráðurinn vinstra megin við prjóninn. Prjónið nú þannig: * Færið allar l hægra megin á sokkaprjóninn án þess að snúa við, herðið á þræði og prjónið yfir allar l *, endurtakið frá *-*. Þegar snúran hefur verið prjónuð, fellið ekki af en klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum allar l og festið vel.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Fitjið laust upp 70-78-84-92-102-112 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) með 2 þráðum úr Kid Silk á prjóna nr 4,5. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í 4-4-4-5-5-5 cm (1. umf = rétta). Í næstu umf frá réttu er skipt yfir á prjóna nr 5 og prjónað áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATH! Kantlykkjur í hliðum eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 5-5-5-6-6-6 cm er fækkað um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA 1.
Endurtakið úrtöku með 4 cm millibili alls 2 sinnum til viðbótar (= alls 3 l færri) = 64-72-78-86-96-106 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm. Í næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING að ofan. Endurtakið útaukningu með 7 cm millibili 2 sinnum til viðbótar (= alls 3 útaukningar) = 70-78-84-92-102-112 l.
Haldið áfram þar til stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm. Fellið nú af fyrir handveg í byrjun hverrar umf þannig: Fellið af 3 l 1-1-1-2-2-2 sinnum, 2 l 1-1-2-2-3-4 sinnum og 1 l 2-4-3-2-4-5 sinnum = 56-60-64-68-70-74 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið nú af miðju 22-22-24-24-26-26 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf frá hálsmáli er fækkað um 1 l = 16-18-19-21-21-23 l eftir fyrir öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 45-49-52-56-61-66 l (meðtalin er 1 kantlykkja) með 2 þráðum úr Kid Silk á prjóna nr 4,5. Prjónið 2 umf slétt (1. umf = rétta). Setjið 1 prjónamerki á undan síðustu 10 l séð frá réttu (= 10 kantlykkjur við miðju að framan), látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. LESIÐ ALLAN KAFLANN FYRIR VINSTRA FRAMSTYKKI ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið nú gatamynstur yfir þær 10 kantlykkjur við miðju að framan og garðaprjón yfir þær l sem eftir eru í 4-4-4-5-5-5 cm þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 10 l eru eftir á prjóni, (prjónamerki), 1 l sl, prjónið næstu 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l sl saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, fitjið upp 1 l = 11 l frá prjónamerki.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 7 l sl = 12 l frá prjónamerki, prjónið út umf.
UMFERÐ 3: Prjónið þar til 12 l eru eftir á prjóni, (prjónamerki), 1 l sl, prjónið næstu 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l sl saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, fitjið upp 1 l = 13 l frá prjónamerki.
UMFERÐ 4: Prjónið 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 9 l sl = 14 l frá prjónamerki, prjónið út umf.
UMFERÐ 5: Prjónið þar til 14 l eru eftir á prjóni, (prjónamerki), 1 l sl, prjónið næstu 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 7 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l sl saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, fitjið upp 1 l = 15 l frá prjónamerki.
UMFERÐ 6: Prjónið 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 11 l sl = 16 l frá prjónamerki, prjónið út umf.
UMFERÐ 7: Prjónið þar til 16 l eru eftir á prjóni, (prjónamerki), 1 l sl, prjónið næstu 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 9 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l sl saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 16 l frá prjónamerki.
UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l sl saman, 13 l sl = 16 l frá prjónamerki – ATH! Snúið við, hér eru prjónaðar stuttar umferðir.
UMFERÐ 9 (= stuttar umferðir umf frá réttu): Prjónið 1 l sl, prjónið næstu 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 9 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l sl saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, fitjið upp 1 l = 17 l frá prjónamerki.
UMFERÐ 10: Prjónið 1 l sl, prjónið næstu 2 l sl saman, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l sl saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 10 sl = 16 l frá prjónamerki, prjónið út umf.
UMFERÐ 11: Prjónið þar til 16 l eru eftir á prjóni, (prjónamerki), 1 l sl, prjónið næstu 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 l sl, * prjónið næstu 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu 2 l sl saman, steypið óprjónuðu l yfir, fitjið upp 1 l = 15 l frá prjónamerki.
UMFERÐ 12: Prjónið 1 l sl, prjónið næstu 2 l sl saman, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l sl saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 8 l sl = 14 l frá prjónamerki, prjónið út umf.
ATH! Munið eftir að skipta yfir á prjóna nr 5 þegar stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm, haldið áfram með gatamynstur yfir kantlykkjur að framan og sléttprjón yfir þær l sem eftir eru með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið til loka.
UMFERÐ 13: Prjónið þar til 14 l eru eftir á prjóni, (prjónamerki), 1 l sl, prjónið næstu 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl, * prjónið næstu 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu 2 l sl saman, steypið óprjónuðu l yfir, fitjið upp 1 l = 13 l frá prjónamerki.
UMFERÐ 14: Prjónið 1 l sl, prjónið næstu 2 l sl saman, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l sl saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 6 l sl = 12 l frá prjónamerki, prjónið út umf.
UMFERÐ 15: Prjónið þar til 12 l eru eftir á prjóni, (prjónamerki), 1 l sl, prjónið næstu 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, * prjónið næstu 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu 2 l sl saman, steypið óprjónuðu l yfir, fitjið upp 1 l = 11 l frá prjónamerki.
UMFERÐ 16: Prjónið 1 l sl, prjónið næstu 2 l sl saman, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l sl saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 4 l sl = 10 l frá prjónamerki – ATH! Snúið við, hér eru prjónaðar stuttar umferðir.
UMFERÐ 17 (= stuttar umferðir frá réttu): Prjónið 1 l sl, prjónið næstu 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, * 1 uppsláttur, prjónið næstu 2 l sl saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, fitjið upp 1 l = 11 l frá prjónamerki.
Endurtakið frá umf 2-17. JAFNFRAMT er tekið úr og aukið út í hlið eins og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm er fækkað um 1 l á undan prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA 2 – fyrir hálsmáli. Endurtakið úrtöku í 6. hverri umf alls 12-12-13-13-14-14 sinnum. Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm er fellt af fyrir handveg eins og á bakstykki. Þegar úrtöku er lokið verða 16-18-19-21-21-23 l á undan prjónamerki (= öxl). Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm fellið af fyrstu 16-18-19-21-21-23 l af í næstu umf frá réttu.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Haldið áfram með gatamynstur eins og áður yfir lykkjur í kanti að framan á vinstra framstykki þar til kanturinn mælist ca 9-9-10-10-10-10 cm frá öxl (endið á umf 2), prjónið 1 umf slétt jafnframt sem fellt er af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 45-49-52-56-61-66 l (meðtalin er 1 kantlykkja) með 2 þráðum af Kid Silk á prjóna nr 4,5. Prjónið 2 umf slétt (1. umf = rétta). Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 10 l séð frá réttu (= 10 kantlykkjur við miðju að framan), látið prjónamerki fylgja með í stykkinu.
LESIÐ ALLAN KAFLANN FYRIR HÆGRA FRAMSTYKKI ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið nú gatamynstur yfir 10 kantlykkjur við miðju að framan og garðaprjón yfir þær l sem eftir eru í 4-4-4-5-5-5 cm þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 10 l eru eftir á prjóni, (prjónamerki), 1 l sl, prjónið næstu 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l sl saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, fitjið upp 1 l = 11 l frá prjónamerki.
UMFERÐ 3: Prjónið 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 7 l sl = 12 l frá prjónamerki, prjónið út umf.
UMFERÐ 4: Prjónið þar til 12 l eru eftir á prjóni, (prjónamerki), 1 l sl, prjónið næstu 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l sl saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, fitjið upp 1 l = 13 l frá prjónamerki.
UMFERÐ 5: Prjónið 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 9 l sl = 14 l frá prjónamerki, prjónið út umf.
UMFERÐ 6: Prjónið þar til 14 l eru eftir á prjóni, (prjónamerki), 1 l sl, prjónið næstu 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 7 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l sl saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, fitjið upp 1 l = 15 l frá prjónamerki.
UMFERÐ 7: Prjónið 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 11 l sl = 16 l frá prjónamerki, prjónið út umf.
UMFERÐ 8: Prjónið þar til 16 l eru eftir á prjóni, (prjónamerki), 1 l sl, prjónið næstu 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 9 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l sl saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 16 l frá prjónamerki.
UMFERÐ 9 (= rétta): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l sl saman, 13 l sl = 16 l frá prjónamerki – ATH! Snúið við, hér er prjónuð stutt umferð.
UMFERÐ 10 (= stutt umferð frá réttu): Prjónið 1 l sl, prjónið næstu 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 9 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l sl saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, fitjið upp 1 l = 17 l frá prjónamerki.
UMFERÐ 11: Prjónið 1 l sl, prjónið næstu 2 l sl saman, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l sl saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 10 sl = 16 l frá prjónamerki, prjónið út umf.
UMFERÐ 12: Prjónið þar til 16 l eru eftir á prjóni, (prjónamerki), 1 l sl, prjónið næstu 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 l sl, * prjónið næstu 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu 2 l sl saman, steypið óprjónuðu l yfir, fitjið upp 1 l = 15 l frá prjónamerki.
ATH! Munið eftir að skipta yfir á prjóna nr 5 þegar stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm, haldið áfram með gatamynstur yfir kantlykkjur að framan og sléttprjón yfir þær l sem eftir eru með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið til loka.
UMFERÐ 13: Prjónið 1 l sl, prjónið næstu 2 l sl saman, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l sl saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 8 l sl = 14 l frá prjónamerki, prjónið út umf.
UMFERÐ 14: Prjónið þar til 14 l eru eftir á prjóni, (prjónamerki), 1 l sl, prjónið næstu 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl, * prjónið næstu 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu 2 l sl saman, steypið óprjónuðu l yfir, fitjið upp 1 l = 13 l frá prjónamerki.
UMFERÐ 15: Prjónið 1 l sl, prjónið næstu 2 l sl saman, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l sl saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 6 l sl = 12 l frá prjónamerki, prjónið út umf.
UMFERÐ 16: Prjónið þar til 12 l eru eftir á prjóni, (prjónamerki), 1 l sl, prjónið næstu 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, * prjónið næstu 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slét, prjónið næstu 2 l sl saman, steypið óprjónuðu l yfir, fitjið upp 1 l = 11 l frá prjónamerki.
UMFERÐ 17 (= rétta): Prjónið 1 l sl, prjónið næstu 2 l sl saman, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l sl saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 4 l sl = 10 l frá prjónamerki – ATH! Snúið við, hér eru prjónaðar stuttar umferðir.
UMFERÐ 18 (= stuttar umferðir frá röngu): Prjónið 1 l sl, prjónið næstu 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l sl saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, fitjið upp 1 l = 11 l frá prjónamerki.
Endurtakið frá umf 3-18. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað og aukið út í hlið eins og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm er fækkað um 1 l á undan prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA 2. Endurtakið úrtöku í 6. hverri umf alls 12-12-13-13-14-14 sinnum. Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm er fellt af fyrir handveg eins og á bakstykki. Þegar fækkun/úrtöku er lokið verða 16-18-19-21-21-23 l á eftir prjónamerki (= öxl). Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm fellið af fyrstu 16-18-19-21-21-23 l af í næstu umf frá röngu.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Haldið áfram með gatamynstur eins og áður yfir lykkjur á kanti að framan eins og áður yfir kantlykkjur að framan á hægra framstykki þar til kanturinn mælist ca 9-9-10-10-10-10 cm frá öxl (endið á umf 3), prjónið 1 umf slétt jafnframt sem fellt er af.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka. Fitjið upp 38-40-42-44-46-48 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) með 2 þráðum úr Kid Silk á prjóna nr 4,5. Prjónið garðaprjón í 4-4-4-5-5-5 cm. Í næstu umf frá réttu er skipt yfir á prjóna nr 5 og prjónað er í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 7-7-7-6-6-6 cm er aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 5-5-4½-4-3½-3½ cm millibili 7-7-8-9-10-10 sinnum til viðbótar (alls 8-8-9-10-11-11 sinnum) = 54-56-60-64-68-70 l.
Þegar stykkið mælist 47-47-46-46-45-45 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs) fellið af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 l 1-1-1-2-2-2 sinnum, 2 l 2 sinnum. Fellið síðan af 1 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 57 cm, fellin nú af í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 l 1 sinni, 3 l 1 sinni. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 58 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma og saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. Saumið hliðar- og ermasauma í eitt innan við 1 kantlykkju.

FRÁGANGUR:
Saumið kant að framan saman við miðju að aftan, saumið hann meðfram hálsmáli aftan við hnakka.

SNÚRA:
Fitjið upp 6 l með 2 þráðum af Kid Silk á sokkaprjóna nr 5 og prjónið SNÚRA PRJÓNUÐ Í HRING – sjá útskýringu að ofan – í ca 72-75-78-81-84-87 cm. Saumið snúruna niður við hliðarsauminn í vinstri hlið utan á peysunni, ca 17-18-19-20-21-22 cm frá neðstu brún. Prjónið aðra snúru til viðbótar alveg eins en ca 100-102-104-106-109-112 cm, saumið niður í hornið í kanti framan á hægra framstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 10.12.2013
HÆGRA FRAMSTYKKI: ..Endurtakið frá umf 3-18...Þegar fækkun/úrtöku er lokið verða 16-18-19-21-21-23 l á eftir prjónamerki (= öxl)...

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Meredith

Anke Horstmannshoff, Germany

Meredith

Monika Martinson, Sweden

Skrifaðu athugasemd um DROPS 141-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Lena S wrote:

Underbar! Hoppas den dyker upp i stora storlekar också. :)

03.07.2012 - 19:43

country flag Åsa Byström wrote:

Ljuvligt läcker kofta

28.06.2012 - 19:27

Laura wrote:

Muito bonito,simples e elegante.

28.06.2012 - 17:06

country flag Josiane wrote:

A avoir sous la main en toutes occasions. Elégant.

17.06.2012 - 07:39

Inacia wrote:

Wonderfull, very feminin

14.06.2012 - 19:41

country flag Julou wrote:

Très joli modèle, simple mais élégant avec sa jolie bordure.

12.06.2012 - 08:03

country flag Do wrote:

Délicatement féminin.

09.06.2012 - 20:16

country flag Monica wrote:

Modello molto femminile

04.06.2012 - 23:40

country flag Nathalie wrote:

On a toujours besoin d'un joli cache-coeur en hiver

03.06.2012 - 17:41

country flag Lisa Karlsson wrote:

Varm, romantisk och vacker. Vad mer kan man begära?

03.06.2012 - 09:10