Teresa wrote:
Ojala lo traduzcan pronto al español o al ingles
01.07.2012 - 19:34Eva wrote:
De mooiste van deze gehele collectie
01.07.2012 - 12:08Caroline wrote:
Meget meget smuk!
25.06.2012 - 20:56Joanna wrote:
Gorgeous
22.06.2012 - 18:37Maria Cecilia wrote:
Sencillamente Divino !!!
20.06.2012 - 01:23Anne wrote:
Such a good design, please translate this soon to English
20.06.2012 - 00:30Betina wrote:
Hvad sker der???.... denne er ikke med.. håber dog alligevel at opskriften bliver frigivet..
19.06.2012 - 11:16Noëlla wrote:
Magnifique!vivement les explications!
17.06.2012 - 20:17Le Chat wrote:
Magnifique !
16.06.2012 - 19:12
Lulu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónað poncho úr DROPS Snow með köðlum og mynsturáferð. Stærð S - XXXL.
DROPS 143-18 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf sl og 1 umf br, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR UM MÆLINGU: Allar mælingar á lengdina eru gerðar í A.4. ÚRTAKA-1 (á við um úrtöku í mynstri A.4): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Þegar fyrsta l á að vera slétt: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Þegar fyrsta l á að vera brugðin: Prjónið 2 l snúnar br saman. FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Þegar síðasta l á að vera slétt: Prjónið 2 l sl saman. Þegar síðasta l á að vera brugðin: Prjónið 2 l br saman. ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku þegar prjónað er brugðið): Öll úrtaka er gerð frá réttu þannig: FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Prjónið 2 l snúnar br saman. FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Prjónið 2 l br saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp – LESIÐ LEIÐBEININGAR UM MÆLINGU. PONCHO: Fitjið upp 194-202-218-226-234-258 l á hringprjóna nr 9 með Snow. Prjónið 1 umf slétt. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið mynstur A.1 (veljið mynstur fyrir þína stærð = 39-39-39-39-43-43 l), * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* yfir næstu 56-60-68-72-72-84 l, 2 l sl, mynstur A.1 (= 39-39-39-39-43-43 l), * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir og endið með 2 l sl. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 214-222-238-246-254-278 l á prjóni og stykkið mælist ca 4 cm. Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið 1. prjónamerki er í byrjun umf, 2. prjónamerki er sett eftir 49-49-49-49-53-53 l (þ.e.a.s. á eftir A.1 á bakstykki), 3. prjónamerki er sett í eftir nýjar 58-62-70-74-74-86 l (þ.e.a.s. á undan A.1 á framstykki) og 4. prjónamerki er sett í eftir nýjar 49-49-49-49-53-53 l (þ.e.a.s. á eftir A.1 á framstykki) = 58-62-70-74-74-86 l á eftir síðasta prjónamerki. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið nú þannig: Prjónið mynstur A.2 (= 16 l), 17-17-17-17-21-21 l br, mynstur A.3 (= 16 l), mynstur A.4 yfir næstu 58-62-70-74-74-86 l, mynstur A.2 (= 16 l), 17-17-17-17-21-21 l br, mynstur A.3 (= 16 l) og mynstur A.4 yfir síðustu 58-62-70-74-74-86 l í umf. JAFNFRAMT í 2. umf með A.2 og A.3, er fækkað um 1 l á eftir 2. og 4. prjónamerki og 1 l á undan 3. og 1. prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í 6. hverri umf, 11-11-10-10-11-9 sinnum til viðbótar og síðan í annarri hverri umf alls 14-16-21-23-22-30 sinnum (þ.e.a.s. að einingin með mynstri A.4 í hvorri hlið verður minni og minni – ATH: Þegar úrtaka er í gangi kemur mynstrið ekki til með að ganga jafnt upp í hliðum alla leið, en sjáið til að mynstrið gangi annars upp). JAFNFRAMT þegar A.2 og A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er næsta umf prjónuð þannig: Prjónið mynstur A.5 í stað A.2 (= 16 l), 2-2-2-2-4-4 l br, A.7 (= 13 l), 2-2-2-2-4-4 l br, mynstur A.6 í stað A.3 (= 16 l), mynstur A.4 fram að 3. prjónamerki, mynstur A.5 (= 16 l), 2-2-2-2-4-4 l br, mynstur A.7 (= 13 l), 2-2-2-2-4-4 l br, mynstur A.6 (= 16 l) og mynstur A.4 yfir síðustu l í umf. Haldið áfram með mynstur þannig: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 43-43-44-45-46-47 cm er sett 1 prjónamerki í hvora hlið við miðju 17-17-17-17-21-21 l að framan og að aftan, þ.e.a.s. í hvorri hlið við einingar með br og kúlum. Nú er fækkað um 1 l í hvorri hlið við þessar einingar – LESIÐ ÚRTAKA-2 (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf, 5-5-5-5-7-7 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. að miðjueiningar með br og kúlum við miðju að framan og við miðju að aftan verða minni og minni). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm er öllum 2 l br fækkað í mynstri A.5 og A.6 að 1 l br (prjónið l br saman). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm – passið uppá að næsta umf er 1.-3.-5. eða 7. umf í A.5/A.6 (síðasta kúla í mynstri A.7 á að vera prjónuð, þ.e.a.s. að þegar mynstur A.7 hefur verið prjónað alls 3 sinnum á hæðina er haldið áfram í sléttprjóni með rönguna út (séð frá réttu) yfir miðju l í ”berjamynstri”) – aukið út um 1 l í miðju br lykkjunni við miðju að framan á poncho með því að prjóna 2 l fram og aftur í sömu l. Haldið áfram að prjóna 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir miðju 6 l við miðju að framan (þær l sem eru eftir eru prjónaðar eins og áður). Í næstu umf á eftir 4 umf í garðaprjóni er stykkinu skipt upp við miðju að framan við op á hálsmál og prjónað er til loka fram og til baka. ATH: Fyrsta umf er prjónuð frá réttu og mynstrið heldur áfram eins og áður en 3 síðustu l í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 59-61-63-65-67-69 cm. Í næstu umf frá réttu eru l í 2 köðlunum í A.5 prjónaðar snúnar sléttar saman, 2 og 2 (= 4 l færri) og l í 2 köðlunum í A.6, sléttar saman, 2 og 2 (= 4 l færri), að auki er fækkað um 12-12-10-10-8-8 l jafnt yfir hinar l (lykkjum er ekki fækkað yfir 3 l í garðaprjóni í hvorri hlið). Eftir úrtöku eru 47-47-49-49-51-51 l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. HETTA: Hettan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna frá opi við miðju að framan. Prjónið 1 umf sl frá réttu JAFNFRAMT er aukið út um 5-5-3-7-5-9 l jafnt yfir (aukið ekki út yfir þær 3 l í garðaprjóni í hvorri hlið) = 52-52-52-56-56-60 l. Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.4 með 3 l garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til hettan mælist ca 34-34-36-36-38-38 cm. Fellið laust af. FRÁGANGUR: Saumið saman hettuna að ofan. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Sarah wrote:
Das ist so toll! Sowas animiert auch junge Menschen, die denken, Stricken wäre nur etwas für Omis, die Nadeln in die Hand zu nehmen!
04.07.2012 - 19:00