DROPS Big Fabel
DROPS Big Fabel
75% Ull, 25% Polyamid
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Salt and Pepper

Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Big-Fabel eða 2 þráðum DROPS Fabel með stuttum ermum, röndum og öldumynstri. Stærð XS - XXXL.

DROPS 140-27
DROPS Design: Mynstur nr bf-004
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: XS/S - M/L - XL/XXL - XXXL

Efni:
DROPS BIG FABEL frá Garnstudio
200-300-300-300 gr litur nr 400, svartur
200-300-300-300 gr litur nr 905, svartur/natur
100-200-200-200 gr litur nr 100, natur
100-200-200-200 gr litur nr 200, grár

Eða notið:
DROPS FABEL frá Garnstudio
150-250-250-250 gr litur nr 400, svartur
150-250-250-250 gr litur nr 905, svart & hvítt
100-150-150-150 gr litur nr 100, natur
100-150-150-150 gr litur nr 200, grár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 19 l verði 10 cm á breiddina með öldumynstri (= mynstureining A-1) með 1 þræði Big-Fabel eða 2 þráðum Fabel.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Fabel
DROPS Big Fabel
75% Ull, 25% Polyamid
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A-1 fyrir öldumynstur og mynsturteikningu A-2 fyrir rendur. Mynsturteikning A-1 sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu, 1 mynstureining = 19 l á breiddina. Örvar í mynstri A-1 eiga við um vinstri kant að framan, sjá útskýringu í texta.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst er hægra framstykkið prjónað og fitjað er upp fyrir ermum, síðan er vinstra framstykki prjónað á sama hátt. Síðan eru þessi tvö stykki sett saman og bakstykkið prjónað niður. Til að fá pláss fyrir allar l eru stykkin prjónuð fram og til baka á hringprjóna

HÆGRA FRAMSTYKKI
Fitjið LAUST upp 32-41-51-60 l á hringprjóna nr 5,5 með 1 þræði Big-Fabel eða 2 þráðum Fabel með litnum svartur. Prjónið (1. umf = rétta) þannig: * Prjónið 1 l sl við miðju að framan, umf 1 með mynstri A-1 yfir 29-38-48-57 l (þ.e.a.s. 1½-2-2½-3 mynstureiningar) og endið með 2 l sl í hliðum. Prjónið 1 umf slétt til baka frá röngu yfir allar l *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Haldið áfram með öldumynstur eftir A-1 (næst síðasta l í hlið er prjónuð eins og fyrsta l í A-1), 1 l garðaprjón í hvorri hlið og rendur eftir A-2. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 42 cm í öllum stærðum, fitjið upp 37 nýjar l í lok næstu umf frá réttu = 69-78-88-97 l. Nýju l eru prjónaðar inn í A-1, en þær 8 síðustu l á ermi, eru prjónaðar í garðaprjóni jafnframt þar sem þær eru prjónaðar inn í A-1 (þ.e.a.s. að það verða nú 3½-4-4½-5 mynstureiningar í A-1 + 1 l í hvorri hlið). Þegar stykkið mælist alls 64-66-68-70 cm, setjið 1 prjónamerki í stykkið (= miðja á öxl), merkið í randarmynstri (A-2) hversu langt þú ert komin.
Prjónið nú bakstykki ofan frá og niður – nú verður að prjóna rendur í gagnstæða átt, þ.e.a.s. frá því þar sem þú er komin í mynstri og niður svo að þær passi á móti hver annarri á hliðarsaumum.
Prjónið 2 cm, endið eftir 1 umf frá röngu, geymið stykkið og prjónið vinstra framstykki.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og það hægra, nema spegilmynd – þ.e.a.s. að prjónað er þannig (1. umf = rétta): Prjónið 1 l garðaprjón, 1 l sléttprjón, síðan A-1 yfir 28-37-47-56 l – byrjið við ör í þinni stærð í mynstri (stærð XS/S og XL/XXL byrjar með 2 l sl saman, stærð M/L og XXXL byrjar með 1 uppslætti og síðan 1 l sl), endið með 1 l sléttprjóni og 1 l garðaprjóni við miðju að framan. Þegar fitja á upp l fyrir ermi, verður það að gerast í lok umf frá röngu. Sjáið til þess að stykkið endi á sama stað í mynstri eins og hægra framstykki.

BAKSTYKKI:
Prjónið l af vinstra framstykki eins og áður eftir A-1 og A-2, fitjið síðan upp 16 nýjar l aftan á hálsi, og prjónið inn l af hægra framstykki á prjóninn eins og áður eftir A-1 og A-2 = 154-172-192-210 l. Prjónið nú áfram með mynstri með síðustu 8 l í hvorri hlið í garðaprjóni – það eru nú 8-9-10-11 mynstureiningar af A-1 (í stærð XS/S og XL/XXL verður að auki 1 l aukalega síðust í hvorri hlið, í stærð M/L og XXXL verður að auki 1 l aukalega einungis í annarri hliðinni).
Þegar stykkið mælist ca 22-24-26-28 cm (stillið af svo að það verða prjónaðar jafn margar rendur frá prjónamerki á öxl á bakstykki eins og á framstykki þar sem fitjaðar voru upp l fyrir ermi), fellið af 37 l í byrjun á næstu 2 umf = 80-98-118-136 l eftir á prjóni. Haldið áfram með mynstur með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og 1 l í sléttprjóni innan við þessa l í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist ca 62-64-66-68 cm frá prjónamerki á öxl (stillið af eftir 1 umf frá röngu og í sömu rönd í A-2 eins og byrjun á framstykki), skiptið yfir í svartur. * Prjónið umf 1 með A-1 einu sinni, síðan sl til baka frá röngu yfir allar l *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, fellið síðan af með sl frá réttu.

FRÁGANGUR:
Brjótið stykkið saman tvöfalt við prjónamerki á öxl og saumið hliðarsauma og sauma undir handveg saman innan við 1 kantlykkju.

KANTUR AÐ FRAMAN + KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp með litnum svartur á hringprjóna nr 4 innan við 1 kantlykkju: 290-298-306-314 l upp meðfram hægri kanti að framan, aftan við háls og niður meðfram vinstri kanti að framan (það eiga að vera ca 21 l á 10 cm). Prjónið stroff frá röngu þannig: Prjónið 2 l garðaprjón, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-*, endið með 2 l br og 2 l garðaprjón. Þegar stroffið mælist 5 cm, aukið út um 1 l í hverja og eina af þeim miðju 24 brugðnu mynstureiningunum á hálsi (séð frá réttu) svo að það verða 3 l br og 2 l sl = 314-322-330-338 l. Prjónið nú áfram með sl yfir sl og br yfir br með 2 l garðaprjóni í hvorri hlið þar til kanturinn mælist 10-10-11-12 cm, fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið til að koma í veg fyrir göt
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = litur grár
symbols = litur svartur
symbols = litur svartur/hvítur
symbols = litur natur
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 140-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Catharina Almén wrote:

Jag förstår inte riktigt. I höger framställer står det att de yttersta 8 m stickas räta och att det blir 4 rapporter i stl M. Jag får det inte att gå ihop. Om jag stickar 8 rm ytterst, får jag det till 3,5 rapport. Var är felet?

29.03.2024 - 13:50

DROPS Design answered:

Hei Catharina. De nya m stickas in i diag A-1, men de 8 yttersta m på ärmen, stickas i rätst samtidigt som de stickas i A-1. Altså, selv om de 8 ytterste maskene strikkes rätst, så "tilhørere" de A.1. mvh DROPS Design

08.04.2024 - 08:39

country flag Petra wrote:

Please, I'm stuck on sewing the sides. When I fold the piece the chevron stripes in the sides do not align. Instead of this \ /shape I get this shape / /. How should I sew it together?

11.01.2015 - 13:14

DROPS Design answered:

Dear Petra, the chevron should match on the sides - check that you start left front piece as stated. Happy knitting!

12.01.2015 - 10:09

country flag Olivia Keinänen wrote:

XS/S koon etukappaleen silmukkamäärä ei täsmää mitenkään vaikka kuinka lasken. Muissa kokonumeroissa se on minusta oikein. Jos kuvion tekee 1 1/2 kertaa nuolen osoittamasta kohdasta niin se on yhteensä 28 silmukkaa, ei 29 silmukkaa niin kuin ohje väittää. Mistä tämä yksi ylimääräinen silmukka tulee?

20.12.2013 - 10:10

DROPS Design answered:

Hei! S-määrä täsmää, kun teet vielä puolikkaan mallikerran lopussa langankierron piirroksen mukaisesti (tämä langankierto korvaa viimeistä kavennettua silmukkaa).

20.12.2013 - 16:28

country flag Berit wrote:

Texten Höger framstycke: rad 9 förklarar allt!

26.09.2012 - 20:26

country flag Ingrid Ullberg wrote:

Mönstret140-27. Zigzag mönstret stämmer inte ihop storlek M/L i sidorna när man fogar ihop styckerna. Emotser förklaring av er.

25.09.2012 - 14:48

DROPS Design answered:

Sedan stickas bakst uppifrån och ner - nu måste ränderna stickas åt motsatt håll, dvs från dit du har kommit i diag och neråt, så att de kommer att stämma mot varandra i sidsömmen.

04.12.2012 - 12:15

country flag Ingrid Ullberg wrote:

Mönster 140-27. Ovanstående tröja stickad ,precis färdig, i storlek M/L.när sidorna skall sys ihop visar det sig att zigzag mönstret inte passar ihop.Blir förmodligen fel,eftersom ryggpartiet stickas från nacken och neråt. Således blir också framstycken för långa i förhållande till ryggpartiet.

25.09.2012 - 14:26

country flag Anna Marie Madsen wrote:

Er modellen strikket i glatstrikning? Jeg synes ikke det er tydeligt på mønsterillustrationerne, at se om der er tale om det og når der så samtidig i opkriften øverst skrives retstrikning, men er det ikke kun i startkanten?

23.08.2012 - 12:17

DROPS Design answered:

Ja, det er glatstrikning. Siksak er lavet af mønster A-1 og det er glatstrik. Det er kun startkanten som er retstrik og kantmasken efterfølgende. Efter de første to pinde er A-1 (de hvide firkanter) r fra retsiden og vr fra vrangen.

25.12.2012 - 16:31

country flag Inger wrote:

Morsom modell.

27.06.2012 - 10:08

country flag Elisabeth wrote:

Flot

26.06.2012 - 07:00

country flag Nina wrote:

Elegant og stilig.

22.06.2012 - 09:18