DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 143-11
DROPS Design: Mynstur nr u-673
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
450-500-550-600-650-700 gr litur nr 54, beige
100-100-100-100-100-100 gr litur nr 39, dökk bleikvínrauður
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 33, millibleikur
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 47, skógargrænn
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 65, gallabuxnablár

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3 – fyrir stroff.
DROPS TRÉTALA KÓKOSHNETA NR 516: 8 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A-1 og A-2. Mynstrið er prjónað í sléttprjóni og sýnir 1 mynstureiningu af mynstri.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 192-208-232-260-284-312 l á hringprjóna nr 3 með litnum dökk bleikvínrauður DROPS Karisma.
Prjónið 1 umf stroff (1. umf = réttan) þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan,* 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, prjónið 2 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar prjónuð hefur verið 1 umf með litnum dökk bleikvínrauður, er skipt yfir í litinn beige/brúnn. Haldið áfram að prjóna stroff þar til það mælist 4 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt jafnframt er fækkað um 22-26-26-30-30-34 l jafnt yfir = 170-182-206-230-254-278 l. Setjið 1 prjónamerki eftir 43-46-52-58-64-70 l inn frá hvorri hlið (= 84-90-102-114-126-138 l milli prjónamerkja á bakstykki). Haldið áfram í sléttprjóni með litnum beige/brúnn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 10 cm, er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hliðum. Endurtakið úrtöku með 4 cm millibili 2 sinnum til viðbótar = 158-170-194-218-242-266 m.
Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm, er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin. Endurtakið útaukningu með 5 cm millibili 2 sinnum til viðbótar = 170-182-206-230-254-278 l.
Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm, fellið af 10 l í hvorri hlið fyrir handveg í næstu umf frá réttu (þ.e.a.s. 5 l hvoru megin við prjónamerki í hliðum)= 150-162-186-210-234-258 l. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 52-56-56-60-64-64 l með litnum dökk bleikvínrauður á sokkaprjóna nr 3. Prjónið 1 umf stroff = 2 l sl, 2 l br. Skiptið yfir í litinn beige/brúnn, haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 6 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4, prjónið 1 umf sléttprjón jafnframt er fækkað um 4-8-8-0-4-4 l jafnt yfir = 48-48-48-60-60-60 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = miðja undir ermi. Haldið áfram með mynstur A-2, síðan er haldið áfram að prjóna ermi með litnum beige/brúnn. Þegar stykkið mælist 10-10-12-10-10-12 cm, er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki við miðju undir ermi. Endurtakið útaukningu með 3-2½-2-3-2½-2 cm millibili 11-13-15-11-13-15 sinnum til viðbótar = 72-76-80-84-88-92 l. Þegar stykkið mælist 47 cm í öllum stærðum, fellið af 10 l undir við miðju, þ.e.a.s. 5 l hvoru megin við prjónamerki =62-66-70-74-78-82 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón nr 4 eins og fram- og bakstykki = 274-294-326-358-390-422 l (ekki prjóna l þegar þær eru settar á prjóninn). Prjónið 1 umf brugðið frá röngu með litnum beige/brúnn jafnframt er fækkað um 8-4-12-8-4-12 l jafnt yfir = 266-290-314-350-386-410 l. Prjónið 0-2-4-2-4-8 umf til viðbótar í sléttprjóni með litnum beige/brúnn, áður en haldið er áfram með mynstur A-1 (1. umf = rétta) með 1 kantlykkju í hvorri hlið – sjá mynstur í þinni stærð!
Eftir úrtöku eru 90-98-106-118-130-138 l á prjóni og stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm upp að öxl. Prjónið nú upphækkun að aftan með litnum beige/brúnn þannig: Prjónið 52-56-60-66-72-76 l sl, snúið við, prjónið 14 l br til baka, snúið við, prjónið 21 l sl, snúið við, prjónið 28 l br. Haldið áfram að prjóna yfir 7 l fleiri í hvert skipti áður en snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 70-70-84-84-98-98 l, snúið við og prjónið út umf. Nú er prjónuð 1 umf brugðið frá röngu yfir allar l jafnframt þar sem fellt er af 6-10-14-22-30-34 l jafnt yfir = 84-88-92-96-100-104 l.
Setjið l á þráð, hálsmálið er prjónað eftir að kantur að framan hefur verið prjónaður.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Listi að framan er prjónaður fram og til baka á hringprjóna nr 3. Prjónið upp ca 144 til 168 l (deilanlegt með 4) innan við 1 kantlykkju meðfram vinstri kanti að framan með litnum beige/brúnn. Prjónið stroff frá röngu þannig: Prjónið 1 l garðaprjón, * 2 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-*, endið með 2 l br og 1 l garðaprjóni. Frá réttu byrjar og endar stroffið með 2 l sl og 1 l garðaprjóni. Haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br þar til stroffið mælist 3 cm, fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið á sama hátt og vinstri kantur að framan, en eftir 1 cm er fellt af fyrir 7 hnappagötum jafnt yfir (hnappagötin eru felld af í brugðnu einingunum séð frá réttu). 1 HNAPPAGAT = prjónið 2 l br saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn – efsta hnappagatið á að vera ca 6-7 cm ofanfrá (það á að vera 1 hnappagat í kanti við hálsmál) og neðsta ca 5-6 cm frá neðri kanti.

HÁLSMÁL:
Hálsmálið er prjónað fram og til baka með litnum beige/brúnn á hringprjóna nr 3 þannig: Prjónið upp 6 l af hægri kanti að framan (innan við 1 kantlykkju), prjónið inn þær 84-88-92-96-100-104 l af þræði í kringum hálsmálið og prjónið upp 6 l af vinstri kanti að framan = 96-100-104-108-112-116 l. Prjónið stroff (1. umf = ranga) þannig: Prjónið 1 l garðaprjón, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-*, endið með 2 l br og 1 l garðaprjón. Haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br með 1 l garðaprjón í hvorri hlið. Þegar hálsmálið mælist 1 cm, fellið af fyrir 1 hnappagati fyrir ofan hin hnappagötin í hægri kanti að framan. Haldið áfram með stoff þar til hálsmálið mælist alls 3 cm, fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

BÓT Á ERMI:
Bótin er prjónuð í garðaprjóni fram og til baka með litnum dökk bleikvínrauður á 2 sokkaprjóna nr 3.
Fitjið upp 10 l. Prjónið 1 umf slétt, í næstu umf er aukið út með 1 l hvoru megin með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við síðustu l, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til þess að sleppa við göt. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf 3 sinnum til viðbótar og síðan í 4. hverri umf 2 sinnum = 22 l. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 12 cm, nú er fækkað um 1 l í hvorri hlið með því að prjóna 2 síðustu l sl saman. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf 1 sinni til viðbótar og síðan í annarri hverri umf 4 sinnum = 10 l eftir. Fellið af, bótin mælist nú ca 15 cm á hæðina og 10 cm á breiddina.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum og saumið tölur í.
Saumið bæturnar fastar á ermarnar með litnum beige/brúnn og stingsaum innan við ystu l. Bæturnar eru saumaðar á ca 21 cm frá neðri hluta ermar og ca 2-3 cm frá prjónamerki við miðju undir og á móti aftari hluta ermar. Festið gjarna bótina á með nálum fyrst og prufið peysuna til þess að sjá hvort bótin sitji á réttum stað áður en hún er saumuð á.

Mynstur

symbols = litur beige
symbols = litur gallabuxnablár
symbols = litur millibleikur
symbols = litur dökk bleikvínrauður
symbols = litur skógargrænn
symbols = prjónað með litnum dökk bleikvínrauðu, saumið í með litnum gallabuxnablár
symbols = prjónað með litnum beige, saumið í með litnum dökk bleikvínrauður
symbols = 2 lykkjur slétt saman frá réttu og 2 lykkjur brugðið saman frá röngu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 143-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (76)

country flag Eva Björmander wrote:

I mönstret står det att man ska sticka på rundsticka fram och tillbaka, att alla maskor ska stickas räta, jag kan inte få ihop det hela. Om man ska sticka runt borde det ju stå att man ska klippa upp, dela på arbetet någon stans, men icke. För att få slätstickning måste man sticka aviga maskor på rundsticka om man ska sticka fram och tillbaka. Hur gör jag. Fråga 2 : är storlekarna små börja jag sticka en storlek L om personen i fråga normalt har storlek M Med vänlig hälsning Eva

16.12.2014 - 11:18

DROPS Design answered:

Hej På fram- och bakstycket ska du sticka fram och tillbaka på rundsticka. Det står att när du ska sticka rätstickning ska du sticka alla varv räta. När du stickar slätstickning stickar du som vanligt vartannat varv räta och vartannat avigt när du stickar fram och tillbaka. Längst ner på mönstret finns det en måttskiss, där kan du se vilken storlek som passar. Lycka till!

15.05.2015 - 10:49

country flag Randi wrote:

Hei. Jeg holder på med jakka, og er akkurat begynt på mønster på bærestykke. Har rett maskeantall i forhold til oppskrifta, men da får jeg ikke hel rapport på siste? Strikker den rundt, med 5m vrang til oppklipp, for å slippe strikke annenhver omg vrang.

26.10.2014 - 17:25

DROPS Design answered:

Hej Randi, Husker du også at trække de 2 kantm fra som vi har med hvis man strikker frem og tilbage? S 266 - 2 = 264 / 12 = 22 gange strikkes diagrammet i small.

28.10.2014 - 09:07

country flag Sonja wrote:

Superfin mönster. Började i Cotton Merino men upptäckte att det inte stämmer med måtten (sticker ganska fast) - att byta till stickor 4,5 blev inte snyggt, så jag repade upp och började följa ett M-mönster för att få S-bredd. Hittills ser det ut som om det fungerar.

24.08.2014 - 14:04

country flag Anja wrote:

Da bin ich ja wirklich froh, dass ich nicht alles wieder auftrennen muss ;-) Herzlichen Dank für die Hilfe! Anja

01.07.2014 - 11:40

country flag Anja wrote:

Den Rumpfteil der Jacke habe ich natürlich am vorderen Rand begonnen. In der Anleitung für die Ärmel steht jedoch:"Zu Beginn der Rd 1 Markierer anbringen (= untere Ärmelmitte)", d.h., dass auch dort die Maschen abgekettet werden und damit ist man zwischen zwei Runden. Anders kann ich das nicht verstehen. Können Sie es bitte noch einmal erklären? Lieben Dank! Anja

01.07.2014 - 08:35

DROPS Design answered:

Liebe Anja, ja, es stimmt, es wird am Übergang der Rd abgekettet. Sie können die ersten 5 M abketten, die Rd stricken und die letzten 5 M abketten, oder Sie ketten die letzten 5 M der Rd ab, dann die ersten 5 M und stricken die Rd noch zu Ende.

01.07.2014 - 09:46

country flag Anja wrote:

Da unten an der Ärmelmitte meine Runde beginnt, kette ich also bevor ich den Ärmel stillege "zwischen" zwei Runden ab (5 Maschen am Ende der einen, 5 Maschen am Beginn der anderen Runde). Stricke ich dann die zweite Runde noch zu Ende, bis ich wieder beim Beginn des Abkettens angekommen bin oder lege ich die Maschen direkt nach dem Abketten still? Danke! Anja

24.06.2014 - 11:10

DROPS Design answered:

Liebe Anja, bei der Jacke haben Sie ja am vorderen Rand begonnen und können daher eigentlich keinen Beginn unter dem Arm haben... für einen Pulli gilt, dass Sie die Rd beenden können, wenn Sie für beide Armausschnitte abgekettet haben. Ansonsten würden Sie ja nur bis zum nächsten Armausschnitt stricken können und hätten dann am Vorder- oder Rückenteil 1 R mehr.

29.06.2014 - 14:29

country flag Mervat wrote:

Hi please i can not understand the inc in the patch how can i make making 1 YO inside outermost st,?? thanks

04.02.2014 - 10:02

DROPS Design answered:

Dear Mrs Mervat, you will inc after 1st st at beg of row and before last st at end of row with 1 yo as shown in the video below. Happy knitting!

04.02.2014 - 14:30

country flag Sandra wrote:

Hallo, ich bin gerade dabei diese Jacke zu stricken. Allerdings kommt mir etwas komisch vor. Und zwar soll man im Rumpf Teil (Größe S) für beide Vorderteile 43M und 86M für den Rücken nehmen. Aber zwischen die Vorderteile kommt doch noch das Bund von 3cm. Meiner Ansicht nach müsste das doch im Rückenteil berücksichtigt werden, damit sich die Seitennaht nicht nach Hinten verzieht. Oder habe ich hier einen Denkfehler?

30.12.2013 - 19:00

DROPS Design answered:

Liebe Sandra, das können Sie so arbeiten wie beschrieben, es zieht nicht nach hinten, bei Jacken hat man oftmals vorne geringfügig mehr Weite als hinten (durch die Blende).

01.01.2014 - 17:01

country flag Anna wrote:

Mein Lieblingsmodell auf Garnstudio.com wurde dieses Jahr vollendet. Tolles Ergebnis, auch dank Maritas Tipp Farbe 55 statt 54 zu verwenden. Falls man etwas großzügiger abmisst- so wie ich- sollte man ggf. eine graue Wolle mehr bestellen.

05.11.2013 - 21:10

country flag Reichl Lilo wrote:

Hab das Jäckchen in Gr L gestrickt. Eins meiner Lieblingsteile. Tolle Farbkombi und schöne Passform. Ein dickes Lob an das Team.

12.10.2013 - 11:05