DROPS Big Fabel
DROPS Big Fabel
75% Ull, 25% Polyamid
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 142-34
DROPS Design: Mynstur nr bf-008
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 – 38/39 – 40/42
Lengd fótar: 22 - 24 - 26 cm
Hæð á sokk: 19 - 21 - 22 cm

Efni: DROPS BIG FABEL frá Garnstudio
200-200-300 gr litur nr 906, villiber

eða notið:
DROPS FABEL frá Garnstudio
150-150-200 gr litur no 671, blár/brúnn/sinnep

DROPS PRJÓNAR NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 33 umf í garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA DÖKK, NR 535: 4 stk

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Fabel
DROPS Big Fabel
75% Ull, 25% Polyamid
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

LEIÐBEININGAR: Í hvert sinn sem snúið er við í miðri umf er tekin 1 l óprjónuð. Herðið á þræðinum og prjónið eins og áður. Þetta er gert til þess að koma í veg fyrir göt á milli umf.

LEIÐBEININGAR FYRIR FRÁGANG:
Táin er dregin saman, setjið þess vegna 1 þráð yst í lykkjubogann í l yst við tánna og látið hann fylgja með út stykkið. Notið þennan þráð til þess að draga tánna saman í lokin.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Athugið prjónfestuna! Sokkurinn er prjónaður fram og til baka frá miðju undir fæti, yfir fótinn og endar við miðju undir fæti. Allur sokkurinn er prjónaður í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan. Sokkurinn er prjónaður með stuttum umferðum yfir tánna þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið yfir allar l.
UMFERÐ 2: Prjónið yfir allar l.
UMFERÐ 3: Prjónið þar til 6-8-10 l eru eftir, snúið við – LESIÐ LEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 4: Prjónið til baka.
Endurtakið þessar 4 umf til loka.

SOKKUR:
Fitjið upp 60-67-74 l á prjóna nr 5 með 1 þræði Big Fabel eða 2 þráðum Fabel. Fyrst er prjónuð upphækkun að aftan þannig:
Prjónið 10 l, snúið við, takið 1 l óprjónaða, prjónið 9 l til baka.
Prjónið 15 l, snúið við, takið 1 l óprjónaða, prjónið 14 l til baka.
Prjónið 20 l, snúið við, takið 1 l óprjónaða, prjónið 19 l til baka.
Stærð 40/42: Prjónið 25 l, snúið, takið 1 l óprjónaða, prjónið 24 l til baka.
Allar stærðir: Prjónið 4 umf yfir allar l (munið eftir stuttum umferðum við tá – þ.e.a.s. gagnstæð hlið við upphækkun). LESIÐ LEIÐBEININGAR UM FRÁGANG!

Fækkið nú lykkjum fyrir hæl þannig:
Setjið 1 prjónamerki í 23.–27.-30. l (frá hlið með upphækkun).
Fækkið um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki í annarri hverri umf alls 7 sinnum = 46-53-60 l. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 8-10-12 cm frá síðustu úrtöku.
Aukið út fyrir hæl þannig: Setjið 1 prjónamerki í 16.–20.–23. l (frá hlið með upphækkun). Aukið út um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki í annarri hverri umf alls 7 sinnum = 60-67-74 l. Prjónið 4 umf yfir allar l.

Prjónið nú upphækkun að aftan þannig:
Stærð 40/42: Prjónið 25 l, snúið við, takið 1 l óprjónaða, prjónið 24 l til baka.
Allar stærðir: Prjónið 20 l, snúið við, takið 1 l óprjónaða, prjónið 19 l til baka.
Prjónið 15 l, snúið við, takið 1 l óprjónaða, prjónið 14 l til baka.
Prjónið 10 l, snúið við, takið 1 l óprjónaða, prjónið 9 l til baka.
Setjið allar l á 1 þráð.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

STROFF:
Fitjið upp 10 nýjar l á prjóninn og prjónið upp 40-44-50 l frá réttu meðfram efri brún á sokk (styttri hlið með upphækkun ) = 50-54-60 l. Prjónið garðaprjón í 10 cm, fellið af.
Á hinn sokkinn er prjónað þannig: Prjónið upp 40-44-50 l frá réttu meðfram efri brún á sokk (styttri hlið með upphækkun) og fitjið upp 10 l í lok umf = 50-54-60 l. Prjónið garðaprjón í 10 cm, fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman lykkjur af þræði og uppfitjunarkanti með lykkjuspori. Saumurinn er undir fæti og upp meðfram stroffi að aftan. Dragið tánna saman. Saumið tvær tölur í hvorn kant, saumið í gegnum öll stykkin.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 142-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Lilou wrote:

J'ai choisi ce modèle sur 2 aiguilles, ne m'en sortant absolument pas avec les doubles pointes, ce qui est la majorité des explications de vos chaussettes, mais je m'aperçois que ce n'est pas plus simple sur 2 aiguilles!!... je crois que je vais définitivement abandonner de faire des chaussettes avec lesexplications des modèles drops. Mais merci quand même pour tous les autres

08.10.2020 - 09:22

DROPS Design answered:

Bonjour Lilou, nous sommes désolés que vous rencontriez autant de souci avec nos modèles de chaussettes, avez-vous pensé à consulter les différentes vidéos et leçons? Rappelez-vous que pour toute assistance personnalisée et individuelle, vous pouvez vous adresser à votre magasin, même par mail ou téléphone on saura vous aider; Bon tricot!

08.10.2020 - 10:59

country flag LILOU wrote:

Bonjour. je ne comprends absolument pas dans l'explication : toutes les tailles "tricoter 4 rgs sur toutes les mailles (ne pas oublier les rangs raccourcis .... coté opposé...."????je trouve que tout est mélangé je n'ai rien compris. Merci de m'éclairer.

08.10.2020 - 09:07

DROPS Design answered:

Bonjour Lilou, pour former la pointe du chausson, vous devez tricoter des rangs raccourcis: 2 rangs sur toutes les mailles, 2 rangs en laissant les 6-8-10 m côté pointe non tricotées. Ainsi, on a moins de rangs côté pointe = à gauche de l'ouvrage vu sur l'endroit; Bon tricot!

08.10.2020 - 10:57

country flag Selam wrote:

I mean what happens to the st. On helping thread?

14.02.2020 - 15:50

DROPS Design answered:

Dear Selam, the stitches from the stitch holder at the end of the socks are sewn together to the cast on edge - see ASSEMBLY. Happy knitting!

14.02.2020 - 16:21

country flag Selam wrote:

I get that but what happens to the 68 st. Before the 10 new cast ons ? Bottom of the socks?

14.02.2020 - 13:52

DROPS Design answered:

Dear Selam, do you mean under LEG part? These 10 stitches are for the flap on the leg part, ie cast on these 10 stitches, pick up 40 to 50 sts along the sock, work garter stitch for 10 cm, cast off. Then sew buttons throught the 10 stitch-section and in the other side of leg part - see picture. Hope this helps. Happy knitting!

14.02.2020 - 14:11

country flag Selam Belay wrote:

Do I cast of the 68 before the new 10 sts?

13.02.2020 - 23:38

DROPS Design answered:

Dear Mrs Belay, in 2nd size you cast on 67 stitches then work short rows starting with 10 sts. Happy knitting!

14.02.2020 - 08:36

country flag Jette Simonsen wrote:

Hej, jeg har brug for hjælp til at forstå denne opskrift. Jeg har slået 60 m op på p 5, så langt så godt, men hvad skal jeg så - skal der startes med vende pinde med det samme ?

26.01.2016 - 11:51

DROPS Design answered:

Hej Jette, ja du fortsætte ifølge opskriften; Strik 10 m vend osv... God fornøjelse!

26.01.2016 - 16:10

country flag Selam wrote:

Thanks for the previous response. Im not sure how the leg is worked, could you please explain 10 new St and pick up 40( for example) Not sure where these 40 st are coming from? Thanks

16.12.2014 - 22:04

DROPS Design answered:

Dear Selam, the text under "leg" refers to the edge worked around the top of the sock, ie you first cast on 10 sts, then pick up 40 sts (in 1st size) along the upper edge of socks (side where you previously worked the first and last short rows for elevation on back) and work 10 cm garter sts over these 50 sts (in 1st size). The 10 sts are the flap that will be sewn with buttons. Happy knitting!

17.12.2014 - 08:42

country flag Selam wrote:

Hi when do i start with ..."remember short rows towards the toe - i.e. in the opposite side of elevation"? thanks

14.12.2014 - 14:15

DROPS Design answered:

Dear Selam, that's correct, the short rows towards the toe are on the opposite side of short rows worked at very beg of sock (and worked again at the end of socks). Happy knitting!

14.12.2014 - 16:38

country flag Petra Gröger wrote:

Liebes Drops-Team, diese Socke gefällt mir sehr gut, würde Sie aber gerne in einem Sockenwollgarn stricken und mit dünneren Nadeln. Habt Ihr eine Anleitung für z.B. Drops Delight ? Oder wie kann ich es mir selbst umrechnen ? Liebe Grüße von einem großen Garnstudio - Drops Fan Petra aus Dresden

23.11.2013 - 15:31

DROPS Design answered:

Liebe Petra, das Modell ist nicht ganz einfach umzurechnen. Alle Anleitungen für dünnere Sockenwolle (DROPS Fabel oder Delight) finden Sie in unserer Musterdatenbank.

25.11.2013 - 07:49

Teresa wrote:

Boa tarde, achei maravilhosa só que tenho dúvidas pois diminui para o calcanhar e depois aumenta estou fazendo e não entendo como costurar, gostaria de ver um desenho e a explicação do que fazer. obrigada.

25.09.2012 - 21:09

DROPS Design answered:

Este modelo não tem esquema porque como é tricotado no sentido do cumprimento da meia, a costura é mais fácil. Os aumentos são para dar melhor forma para o calcanhar da meia. Depois, faz-se uma única costura lateral. Pense em um rectângulo com uma pequena curva a meio (forma para o calcanhar) e será mais fácil imaginar como unir esse rectângulo com uma costura na lateral. Bom tricô!

17.10.2012 - 16:38