DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Orion

Prjónuð peysa úr DROPS Delight með stuttum ermum, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S-XXXL.

DROPS 136-16
DROPS Design: Mynstur nr DE-077
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
300-300-350-350-400-450 gr litur nr 04, ljós blár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l og 46 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA, nr 534: 3-3-4-4-4-4 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI:
Til þess að litaskiptin með Delight verði falleg þegar byrjað er á nýjum þræði, verður að finna dokku sem byrjar á þeim lit sem síðast var prjónað með.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir 4 hnappagötum í hægra framstykki í kanti á berustykki – fellið af í byrjun umf frá röngu. 1 hnappagat = fellið af fjórðu l frá miðju að framan og fitjið upp 1 nýja lykkju yfir þá sem felld var af í næstu umf.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S og M: 2, 8 og 14 cm.
STÆRÐ L og XL: 2, 6, 10 og 16 cm.
STÆRÐ XXL og XXXL: 2, 6½, 11 og 16 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofanfrá og niður. Til þess að fá pláss fyrir allar l, er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Munið eftir HNAPPAGAT í hægra framstykki í kanti – sjá útskýringu að ofan!
LESIÐ LEIÐBEININGAR UM BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 138-152-158-166-170-184 l (meðtaldar eru 5 kantlykkjur að framan hvoru megin við miðju að framan) á hringprjóna nr 3,5 með Delight (fitjið upp jafnt og ekki of fast – þetta verður hálsmálið). Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig (frá réttu): Setjið 1. prjónamerki í 21.-22.-23.-23.-24.-26. l, 2. prjónamerki í 54.-60.-62.-66.-67.-72. l, 3. prjónamerki í 85.-93.-97.-101.-104.-113. l og 4. prjónamerki í 118.-131.-136.-144.-147.-159. l, þá eru 20-21-22-22-23-25 l eftir síðasta prjónamerki (l fram að 1. prjónamerki = vinstra framstykki, l milli 1. og 2. prjónamerkis og l milli 3. og 4. prjónamerki = ermar, l milli 2. og 3. prjónamerki = bakstykki og l eftir 4. prjónamerki = hægra framstykki).
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HALDIÐ ER ÁFRAM!
Haldið áfram í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan- jafnframt í umf 1, er aukið út um 1 l hvoru megin við þær 4 l við prjónamerki – aukið út með því að slá 1 sinni upp á prjóninn (= 8 útaukningar). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til þess að koma í veg fyrir göt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf alls 23-25-28-30-32-35 sinnum = 322-352-382-406-426-464 l. Munið eftir HNAPPAGAT! Prjónið 1 umf slétt til baka frá röngu eftir síðustu útaukningu, klippið frá.
Setjið fyrstu 44-47-51-53-56-61 l (meðtalið 1. prjónamerki) á þráð-1 (= vinstra framstykki), setjið eftirfarandi 78-87-94-102-106-115 l á þráð-2 (= ermi), haldið eftir næstu 78-84-92-96-102-112 l (meðtalið er 2. og 3. prjónamerki) á prjóni (= bakstykki), setjið eftirfarandi 78-87-94-102-106-115 l á þráð-3 (= ermi ) og setjið síðustu 44-47-51-53-56-61 l (meðtalið er 4. prjónamerki) á þráð-4 (= hægra framstykki).

BAKSTYKKI:
= 78-84-92-96-102-112 l. Til þess að koma í veg fyrir að hálsmálið verði ekki jafnt vítt að framan og að aftan, eru prjónaðir 4 cm í garðaprjóni fram og til baka yfir lykkjur á bakstykki (endið eftir 1 umf frá röngu), klippið frá.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið inn l af þræði-1 (= 44-47-51-53-56-61 l), fitjið upp 2-4-6-8-10-12 nýjar l undir ermi, prjónið nú yfir lykkjur á bakstykki (= 78-84-92-96-102-112 l), fitjið upp 2-4-6-8-10-12 nýjar l undir ermi og prjónið að lokum inn lykkjur af þræði-4 á prjóninn (= 44-47-51-53-56-61 l). Nú eru 170-186-206-218-234-258 l á prjóni.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka- jafnframt í umf 1 er aukið út um 24-26-28-36-42-46 l jafnt yfir (en ekki auka út yfir þær 10 l sem eru við miðju að framan) = 194-212-234-254-276-304 l. Þegar prjónaðir hafa verið 5 cm í garðaprjóni (stillið af eftir 1 umf frá röngu) er skipt yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið 1 umf slétt frá réttu jafnframt er fækkað um 48-52-58-64-68-76 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir 10 lykkjur við miðju að framan)= 146-160-176-190-208-228 l. Setjið prjónamerki eftir 40.-43.–47.-51.-55.–60. l frá hvorri hlið. Haldið áfram í sléttprjón og 10 l garðaprjón hvoru megin við miðju að framan – JAFNFRAMT í umf 1 frá réttu – eru aukið út um 1 l hvoru megin við 2 prjónamerkin (aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br til þess að koma í veg fyrir göt). Endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu þar til sléttprjónaði hlutinn mælist 40 cm (miðja að aftan). Nú eru prjónaðar 8 umf í garðaprjóni yfir allar l jafnframt er haldið áfram með útaukningu í hliðum. Fellið LAUST af.

VINSTI ERMI:
Prjónað er fram og til baka á hringprjóna nr 3,5 frá miðju undir ermi – setjið prjónamerki fyrir miðju í 2-4-6-8-10-12 l sem fitjaðar voru upp við miðju undir ermi á fram- og bakstykki.
Byrjið við prjónamerki og prjónið upp 1 l í hverja af þeim 1-2-3-4-5-6 l sem fitjaðar voru upp undir ermi við framstykki, prjónið inn 78-87-94-102-106-115 l af þræði-2, prjónið upp 9 l við þá 4 cm í garðaprjóni sem prjónað var aukalega á bakstykki og að lokum er prjónuð upp 1 l í hverja af þeim 1-2-3-4-5-6 l sem fitjaðar voru upp undir ermi við bakstykki. Þ.e.a.s. fram að prjónamerki = alls 89-100-109-119-125-136 l. Setjið líka prjónamerki við miðju á ermi - HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið garðaprjón og stuttar umferðir fram og til baka frá prjónamerki við miðju undir ermi þannig: * Prjónið saman þar til eftir eru 20-21-22-23-24-25 l, snúið við, prjónið þar til eftir eru 20-21-22-23-24-25 l, snúið við, prjónið út umf, prjónið 3 umf yfir allar l *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 10-10-12-12-14-14 cm frá prjónamerki við miðju á ermi. Fellið af allar l.

HÆGRI ERMI:
Prjónið á hringprjóna nr 3,5 með því að byrja á að prjóna upp 1 l í hverj af þeim 1-2-3-4-5-6 l sem prjónaðar voru upp undir ermi við bakstykki, prjónið nú upp 9 l meðfram þeim 4 cm í garðaprjóni sem prjónaðir voru aukalega á bakstykki, prjónið inn 78-87-94-102-106-115 l af þræði-3 og prjónið saman 1 l í hverja af þeim 1-2-3-4-5-6 l sem fitjaðar voru upp undir ermi við framstykki. Prjónið nú til loka á sama hátt og vinstri ermi.

FRÁGANGUR:
Saumið ermasauma undir ermum yst í lykkjubogann. Saumið tölur í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 27.01.2012
HNAPPAGAT:...STÆRÐ XXL og XXXL: 2, 6½, 11 og 16 cm.
Yfirfarið á vefsvæði: 13.05.2013
VINSTI ERMI: Prjónað er fram og til baka á hringprjóna nr 3,5...HÆGRI ERMI: Prjónið á hringprjóna nr 3,5 með því að byrja á að prjóna upp...

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 136-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (57)

country flag Josianne Santoro wrote:

Salve, sto realizzando il modello Orion e ho un problema con le maniche. La spiegazione del modello dice di lavorarle a ferri accorciati ma non indica, almeno io non lo vedo, ogni quante maglie tornare indietro. Mi potete fornire un chiarimento ? Grazie

18.03.2016 - 21:26

DROPS Design answered:

Buonasera Josianne, deve seguire le indicazioni riportate per lavorare i ferri accorciati sulle maniche, a partire dal centro sotto la manica: ad esempio per la taglia S deve lavorare finchè non rimangono 20 m, girare il lavoro, lavorare finché non rimangono 20 m, girare il lavoro, lavorare le m rimaste sul ferro, lavorare 3 ferri su tutte le m *, ripetere da *-* finché la manica non misura 10 cm dal segnapunti. Buon lavoro!

18.03.2016 - 21:36

country flag Klazien Modderman-Bijlsma wrote:

Nog even ter verificatie: het patroon spreekt van twee steekverhoudingen, voor naald 3,5 en voor naald 5. In het patroon wordt uitsluitend melding gemaakt van naald 3,5. In een van de antwoorden op de gestelde vragen wordt aangegeven dat het patroon tot aan het lijf in naald 3,5 wordt gebreid, het lijf in naald 5 en de mouwen in naald 3,5. Is dit correct of wordt het gehele patroon gewoon in naald 3,5 gebreid?

12.11.2015 - 21:19

DROPS Design answered:

Hoi Klazien. Je wisselt in het lijf naar breinaald 5 mm, lees: Ga als er 5 cm in ribbelst zijn gebreid (eindig na 1 nld aan de verkeerde kant) verder met rondbreinld 5 mm., dus beide naalden worden gebruikt.

13.11.2015 - 15:34

country flag Gerda Meijer wrote:

Met welke confectiematen corresponderen XL, XXL en XXXL?

22.04.2015 - 16:32

DROPS Design answered:

Hoi Gerda. Ongeveer 42-44-46, maar om zeker te zijn van je keus, kijk op de maattekening onderaan. Hier staan alle afmetingen in cm per maat. Vergelijk deze met je eigen afmetingen om je maat te kiezen.

23.04.2015 - 13:46

country flag Margot wrote:

Herfra måles arb...rad 2! Där skifter man.

09.04.2015 - 18:54

country flag Susanne Lie wrote:

Hei...skal hele jakken strikkes med pinne 3,5?? Hvor skifter man eventuelt ?? Mvh Susanne

09.04.2015 - 10:51

DROPS Design answered:

Hei Susanne. Jo men på ryg og forstk skifter man til pinde 5 og tager ind og fortsætter i glatstrik således: "Når der er strikket 5 cm med retstrik (afpas efter 1 p fra vrangen) skiftes der til rundp 5. Strik 1 p ret fra retsiden samtidig med at der tages 48-52-58-64-68-76 m ind ..."

22.04.2015 - 16:00

country flag Marjolein wrote:

In het begin van het patroon staat de steek verhouding voor de pennen 3,5mm en voor 6mm. Maar verder in het patroon gaat het alleen nog maar over 3,5 mm maar ik wil het graag breien op 6mm? Waar kan ik dan het patroon vinden?

03.06.2014 - 12:46

DROPS Design answered:

Hoi Marjolein. Je gebruikt beide naalden voor dit patroon. Je breit de panden tot aan het LIJF met breinaald 3,5 mm. Voor het lijf wissel je van breinaald en breit de lijf af met breinaald 5. De mouwen worden met breinaald 3,5 mm gebreid.

03.06.2014 - 13:43

country flag Claudia wrote:

Mich irritiert einfach das Foto weil dort nur das Muster der 10 Blendmaschen sich ändert und der Rest so aussieht als ob er gleich bleibt. Also müsste ich doch die Blendmaschen glatt rechts stricken und den Rest weiter wie vorher auch in Krausrippe.

08.04.2014 - 16:57

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, das Muster ist auf dem Foto nicht gut zu erkennen. Sie stricken den oberen Teil komplett kraus rechts, also auch die Blenden-M. Wenn Sie beim Abschnitt "Vorder- und Rückenteil" angekommen sind und dort dann bis zu der Stelle kraus re gestrickt haben, an der Sie zu Nadel 5 wechseln, stricken Sie glatt re weiter und nur die Blenden-M kraus rechts.

08.04.2014 - 22:35

country flag Claudia wrote:

Hallo, ich bin gerade beim Vor- und Rückenteil und verstehe nicht wie nach dem Wechsel auf Nadelstärke 5 weitergestrickt wird. Muss ich wirklich die Blendmaschen krausrippe stricken (hin und zurück rechts) und den Rest glatt rechts? Auf dem Bild sieht das Muster im Vergleich zu weiter oben nur bei den Blendmaschen anders aus und der rest sieht gleich aus. Wenn ich die Blendmaschen aber weiter Krausrippe stricke bleibt das Musster doch gleich oder?

07.04.2014 - 12:57

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, ich bin nicht ganz sicher, wonach Sie fragen: Sie stricken glatt rechts mit je 10 M. Krausrippe (=kraus rechts) auf beiden Seiten.

08.04.2014 - 11:07

country flag Judy wrote:

What needle size isused for sleeves. I assume it is the smaller needle to match the neck area but the pattern doesn't say.

05.05.2013 - 12:41

DROPS Design answered:

Dear Judy, sleeves are worked with smaller needles, pattern has been edited. Happy knitting!

07.05.2013 - 08:08

country flag Adry wrote:

Volevo sapere se negliaumenti, una volta messo il segno nelle maglie prestabilite, poi il marker lo devo passare o deve sempre restare nella maglia segnata?

05.03.2013 - 02:09

DROPS Design answered:

Buongiorno, i marker servono per indicare il punto degli aumenti e inoltre delimitano le varie parti della giacca: durante il lavoro vanno spostati verso l'alto, devono rimanere nelle m. indicate. Buon lavoro!!

06.03.2013 - 10:52