DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 21-11
DROPS Design: Mynstur nr ME-054-by
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)
Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
Nr 20, dökk blár:
200-250-250 (300-300) gr

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir af sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA nr 513: 4-4-4 (5-5) st.
--------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan. 1 hnappagat = prjónið 3. Og 4. Lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
Stærð 1/3 mán: 2, 6, 11 og 15 cm.
Stærð 6/9 mán: 2, 7, 12 og 16 cm.
Stærð 12/18 mán: 2, 8, 13 og 19 cm.
Stærð 2 ára: 2, 7, 12, 17 og 22 cm.
Stærð 3/4 ára: 2, 8, 13, 19 og 24 cm.

ÚRTAKA (á við um V-hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 6 KANTLYKKJUM AÐ FRAMAN ÞANNIG:
Þegar fyrsta lykkjan á að vera slétt: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.
Þegar fyrsta lykkjan á að vera brugðin: 2 lykkjur snúnar brugðnar saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri).
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 6 KANTLYKKJUM ÞANNIG:
Þegar síðasta lykkjan á að vera slétt: 2 lykkjur slétt saman.
Þegar síðasta lykkjan á að vera brugðin: 2 lykkjur brugðnar saman.
--------------------------------------------------------

PEYSA:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Byrjið á öðru framstykkinu, fitjið upp nýjar lykkjur fyrir ermi og prjónið upp að öxl. Prjónið hitt framstykkið, setjið síðan bæði framstykkin saman og prjónið niður yfir bakstykki.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 31-35-39 (43-43) lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur við miðju að framan og 1 kantlykkju í hlið) á hringprjón 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: 6 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= kantur að framan), * 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN. Þegar prjónaðar hafa verið alls 4 umferðir stroff er prjónað M.1 með 6 kantlykkjum við miðju að framan í garðaprjóni og 1 kantlykkja garðaprjón í hlið. Munið eftir HNAPPAGAT á hægri kant að framan – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 7-8-9 (10-11) cm prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, M.1 yfir næstu 18-22-22 (26-26) lykkjur, setjið síðustu 12-16-16 (20-20) lykkjur sem voru prjónaðar á þráð fyrir vasalok, haldið áfram M.1 yfir næstu 6-6-10 (10-10) lykkjur og endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 12-16-16 (20-20) nýjar lykkjur yfir lykkjur á þræði = 31-35-39 (43-43) lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 16-17-20 (23-25) cm. LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
V-HÁLSMÁL: Prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir 6 kantlykkjur að framan í byrjun á umferð (aðrar lykkjur á prjóni eru ekki prjónaðar) – þetta er gert til að V-hálsmálið leggist fallega. Prjónið síðan aftur yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir V-hálsmáli í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) þannig: Fækkið um 1 lykkju alls 12-14-16 (16-16) sinnum – sjá ÚRTAKA.
ÚTAUKNING FYRIR ERMI: JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hlið fyrir ermi: 5 lykkjur 4-4-5 (5-5) sinnum, 7 lykkjur 0-1-1 (2-3) sinnum og 25-24-21 (22-27) lykkjur 1 sinni.
Á eftir síðustu útaukningu er haldið áfram með M.1 með 6 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið fyrir kant að framan og ermakant þar til stykkið mælist 27-29-33 (37-40) cm. Nú eru 64-72-76 (88-100) lykkjur á prjóni. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til prjónað hefur verið 1 cm frá prjónamerki – stillið af að síðasta umferð sé frá röngu. Setjið lykkjur á þráð.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og hægra framstykki nema spegilmynd. Passið uppá að M.1 sé prjónað öfugt miðað við hægra framstykki.
ATH: Ekki er fellt af fyrir hnappagötum í vinstri kanti að framan.

BAKSTYKKI:
Setjið til baka 64-72-76 (88-100) lykkjur frá hægra framstykki á hringprjón 4, fitjið upp 14-14-18 (18-22) nýjar lykkjur á prjóninn (= hálsmál aftan í hnakka) og setjið inn 64-72-76 (88-100) lykkjur frá vinstra framstykki á sama hringprjón = 142-158-170 (194-222) lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 6 lykkjur garðaprjón (= ermakantur), M.1 eins og áður yfir næstu 52-60-64 (76-88) lykkjur, 26-26-30 (30-34) lykkjur garðaprjón (= kantur í hálsi að aftan), M.1 yfir næstu 52-60-64 (76-88) lykkjur og 6 lykkjur garðaprjón (= ermakantur). Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 26-26-30 (30-34) lykkjur. Haldið síðan áfram með M.1 eins og áður yfir allar lykkjur með 6 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið fyrir ermakant. Þegar stykkið mælist 7½-8-8 (8½-8½) cm frá prjónamerki á öxl er fellt af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: 25-24-21 (22-27) lykkjur 1 sinni, 7 lykkjur 0-1-1 (2-3) sinnum og 5 lykkjur 4-4-5 (5-5) sinnum = 52-56-64 (72-76) lykkjur eftir á bakstykki. Haldið áfram með M.1 með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 25-27-31 (35-38) cm frá prjónamerki. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir og endið með 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkja garðaprjón. Þegar prjónaðar hafa verið alls 4 umferðir stroff er prjónuð 1 umferð slétt (frá réttu) yfir allar lykkjur áður en fellt er laust af.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðarsauma og sauma undir ermum innan við 1 kantlykkju.
Saumið tölur í. Brjótið uppá neðstu 5 cm á hvorri ermi og saumið e.t.v. niður við uppfitjunarkant með nokkrum sporum.

VASALOK:
Setjið til baka þær 12-16-16 (20-20) lykkjur frá þræði á öðru framstykkinu á hringprjón 4. Prjónið stroff fram og til baka með 1 lykkju garðaprjón og 2 lykkjur slétt í hvorri hlið (séð frá réttu). Þegar vasalokið mælist 2½-2½-3 (3-3) cm fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Saumið vasalokið við framstykki með lykkjuspori í hvora hlið. Saumið vasaopið við botninn á vasalokinu (þar sem lykkjur voru settar á þráð) á bakhlið á stykki. Prjónið annað vasalok alveg eins á hinu framstykkinu.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Checco's Dream

Rebeca, United States

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 21-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (181)

country flag Ingrid Nelis wrote:

De gedraaide averechts samen breien kan ik niet vatten; het filmpje gaat op een bepaald moment veel te vlug ;kun je mij beschrijven hoe dit moet?

16.07.2018 - 19:15

DROPS Design answered:

Dag Ingrid, Je haalt eerst de 2 betreffende steken averechts af, dus je zet ze even op de rechter naald. Dan zet je ze gedraaid terug op de linker naald en dan brei je ze averecht samen. Hopelijk is het o duidelijk voor je. Je kunt het filmpje ook even op pauze zetten tijdens het breien.

22.07.2018 - 12:27

country flag Alita wrote:

Volgens mij klopt de instructie van de knoopsgaten niet. De omslag moet je gewoon breien en niet gedraaid. Anders kan er straks geen knoopje door.

11.06.2018 - 11:11

DROPS Design answered:

Dag Alita, Inderdaad, je hebt gelijk! Het is nu aangepast. Bedankt voor het doorgeven!

12.06.2018 - 10:19

country flag Britt wrote:

Goedendag, als je begint aan het meerderen voor de mauw, in welke steek worden deze in de volgende pen dan gebreid? Aansluitend op de vorige pen krijg ik het niet voor elkaar om dan het m.1 patroon te volgen (ik hou dan steeds een steek over)

10.06.2018 - 03:29

DROPS Design answered:

Dag Britt, Bij het meerderen voor de mouw probeer je zoveel mogelijk door te breien in patroon. Als het niet past, dan stop je halverwege het patroon.

12.06.2018 - 10:04

country flag Jacqueline Lievens wrote:

Kun je dit patroon ook op rechte breinaalden breien i.p.v. Op rondbreinaald? Ik brei liever met rechte naalden, vandaar. Geldt dit ook voor andere patronen, als ze heen en weer gebreid worden?

24.05.2018 - 20:41

DROPS Design answered:

Hallo Jacqueline, Dat zou kunnen, maar bij dit patroon zijn de mouwen aangebreid en dan heb je vrij veel steken op de naald. Daarom kan het handiger zijn om dan met rondbreinaalden te breien. Het hangt er natuurlijk ook een beetje vanaf welke maat je breit. In dit artikel vind je meer informatie over het aanpassen van een patroon om met rechte naalden te breien.

27.05.2018 - 19:53

country flag Ana wrote:

Cuantas veces hago las vueltas cortas en el comienzo del cuello enV ? Una sola vez o siempre al comenzar loe 6 puntos musgo hasta terminar el delantero?

23.05.2018 - 22:33

DROPS Design answered:

Hi Ana, haces las vueltas cortas en el comienzo del cuello V una sola vez. Cordiales saludos!

30.05.2018 - 18:37

country flag Anna wrote:

När jag lägger upp ökningen för ärm i slutet på v för framstycket, 5 m 4 ggr osv. När jag sedan vänder på stycket och stickar avigsida, är det rätstickning jag stickar då på de tillagda ökade maskorna?

22.04.2018 - 18:24

DROPS Design answered:

Hej Anna, maskorna på ärmen skall också stickas i M.1,det är bara de yttersta maskorna på ärmen som rätstickas. Lycka till :)

24.04.2018 - 11:52

country flag Renee wrote:

Thanks,that makes sense to me now.

16.04.2018 - 13:17

country flag Renee wrote:

I'm not sure I understand how the back neck edge and the back main part fit with the left and front side pieces which include sleeves.Can you please draw how the back piece should look before attaching to front sides? Thank you

14.04.2018 - 19:57

DROPS Design answered:

Dear Renee, you first work each front piece separately from bottom up, then back piece will be worked top down: work first the sts from right front piece, cast on new sts for neckline on back piece and work sts from left front piece. Now continue working in pattern and bind off sts for sleeves at the beg of each row as explained, and continue back piece until rib part at the bottom of piece. Happy knitting!

16.04.2018 - 09:06

country flag Anna wrote:

Buonasera La taglia 18 mesi.ho unito il davanti destro con il sinistro,ho avviato 18 mg ho fatto 4 ferri a legaggio nelle 30 mg .Ma al momento di fare tutte le maglie a punto riso escluso i polsi a legaccio non mi compaciono i punti m1 Grazie

03.03.2018 - 20:35

DROPS Design answered:

Buonasera Anna. Se il problema consiste nell'avere p.es 4 m dir (o rov) consecutive, provi ad aumentare 2 maglie durante l'ultimo ferro con le maglie dello scollo lavorate a legaccio. Aumenti queste maglie nelle maglie lavorate a legaccio. In questo modo, il lavoro dovrebbe posizionarsi correttamente. Buon lavoro!

04.03.2018 - 20:07

country flag Anna wrote:

Buonasera La taglia 18 mesi.ho unito il davanti destro con il sinistro,ho avviato 18 mg ho fatto 4 ferri a legaggio nelle 30 mg .Ma al momento di fare tutte le maglie a punto riso escluso i polsi a legaccio non mi compaciono i punti m1 Grazie

03.03.2018 - 20:34