Frankie |
|
|
|
Heklaður froskur úr DROPS Paris
DROPS Baby 21-45 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GALDRAHRINGUR: Byrjið með þessari aðferð til að koma í veg fyrir að það myndist gat í miðju (í staðinn fyrir loftlykkjuhring): Haldið í endann á þræðinum og snúið þræðinum einu sinni í hring utan um vinstri vísifingur til þess að úr verði hringur. Haldið í hringinn með vinstri þumli og löngutöng, þráðurinn liggur yfir vinstri vísifingur. Heklunálinni er stungið inn í hringinn, þræðinum er brugðið um heklunálina og þráðurinn dreginn upp úr hringnum, heklið 1 loftlykkju, heklið nú fastalykkju utan um galdrahringinn. Þegar sá fjöldi fastalykkja er kominn sem óskað er eftir, dragið í endann á þræðinum og herðið að. Festið enda á bakhlið. Haldið áfram að hekla í hring. HEKLAÐ Í HRING: Eftir síðustu fastalykkju í umferð, haldið áfram að næstu umferð með 1 fastalykkju í næstu fastalykkju (= fyrsta fastalykkja frá fyrri umferð). ATH: Merkið byrjun umferðar með prjónamerki á milli síðustu fastalykkju í umferð og fyrstu fastalykkju í næstu umferð, látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. 2 FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN: * Stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. LITASKIPTI: Til að fá falleg litaskipti er síðasta fastalykkjan í umferð hekluð þannig: Stingið heklunálinni í síðustu fastalykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina með nýja litnum og dragið í gegnum allar lykkjur á heklunálinni. Haldið áfram að næstu umferð með nýja litnum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- FROSKUR: HÖFUÐ: Stykkið er heklað í hring með litnum pistasía með heklunál 4. Byrjið efst á höfði með því að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan. UMFERÐ 1: Heklið 8 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 16 fastalykkjur. Lesið HEKLAÐ Í HRING. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í næstu 2 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 32 fastalykkjur. UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 32 fastalykkjur. UMFERÐ 6: * 1 fastalykkja í næstu 3 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 40 fastalykkjur. UMFERÐ 7: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 40 fastalykkjur. UMFERÐ 8: * 1 fastalykkja í næstu 4 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 48 fastalykkjur. UMFERÐ 9-13: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 48 fastalykkjur. UMFERÐ 14: * 1 fastalykkja í næstu 6 fastalykkjur, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman – 2 FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN – að ofan, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 42 fastalykkjur. UMFERÐ 15: * 1 fastalykkja í næstu 5 fastalykkjur, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 36 fastalykkjur. UMFERÐ 16: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 36 fastalykkjur. UMFERÐ 17: * 1 fastalykkja í næstu 4 fastalykkjur, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 30 fastalykkjur. UMFERÐ 18: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 30 fastalykkjur. UMFERÐ 19: * 1 fastalykkja í næstu 3 fastalykkjur, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 20: * 1 fastalykkja í næstu 2 fastalykkjur, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 21: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur. Klippið frá og fyllið höfuðið með vatti. AUGU: Stykkið er heklað í hring með litnum pistasía með heklunál 4. Byrjið á að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan. UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í næstu 8 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 20 fastalykkjur. UMFERÐ 5-7: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 20 fastalykkjur. Klippið frá en haldið eftir 30 cm fyrir frágang. Heklið hitt augað á sama hátt og fyllið augun með vatti. BÚKUR: Stykkið er heklað í hring með litnum pistasía með heklunál 4. Byrjið neðst á búk með því að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan. UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í næstu 2 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 5: * 1 fastalykkja í næstu 3 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 30 fastalykkjur. UMFERÐ 6: * 1 fastalykkja í næstu 4 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 36 fastalykkjur. UMFERÐ 7: * 1 fastalykkja í næstu 5 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 42 fastalykkjur. UMFERÐ 8-12: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 42 fastalykkjur. UMFERÐ 13: * 1 fastalykkja í næstu 5 fastalykkjur, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 36 fastalykkjur. UMFERÐ 14-15: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 36 fastalykkjur. UMFERÐ 16: * 1 fastalykkja í næstu 4 fastalykkjur, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 30 fastalykkjur. UMFERÐ 17-18: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 30 fastalykkjur. UMFERÐ 19: * 1 fastalykkja í næstu 3 fastalykkjur, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 20: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 21: * 1 fastalykkja í næstu 2 fastalykkjur, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 22: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 23: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur. Klippið frá en haldið eftir 30 cm fyrir frágang. Fyllið búkinn með vatti. FÓTUR: Stykkið er heklað í hring með litnum kórall með heklunál 4. Byrjið yst á fæti með því að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan. UMFERÐ 1: Heklið 5 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 10 fastalykkjur. UMFERÐ 3-4: * Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju – ATH: Skiptið yfir í litinn ljós turkos í síðustu lykkju í umferð 4 – sjá LITASKIPTI – að ofan = 10 fastalykkjur í umferð. UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju í næstu 3 fastalykkjur, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 8 fastalykkjur. Heklið síðan 1 fastalykkju í hverja fastalykkju þannig: * Heklið 2 umferðir með litnum ljós turkos, 1 umferð með litnum pistasía *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum (= 12 umferðir), heklið síðan 2 umferðir með litnum ljós turkos. Munið eftir að skipta um lit í síðustu lykkju í umferð. Klippið frá en haldið eftir 30 cm fyrir frágang. Heklið hinn fótinn á sama hátt og fyllið fæturna með vatti. HÖND: Stykkið er heklað í hring með litnum kórall með heklunál 4. Byrjið yst á hönd með því að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan. UMFERÐ 1: Heklið 4 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 8 fastalykkjur. UMFERÐ 3-4: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju – ATH: Skiptið yfir í litinn pistasía í síðustu lykkju í umferð 4 . Heklið síðan 1 fastalykkju í hverja fastalykkju þannig: * Heklið 2 umferðir með litnum pistasía, 1 umferð með litnum ljós turkos *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum (= 9 umferðir), heklið síðan 2 umferðir með litnum pistasía. Munið eftir að skipta um lit í síðustu lykkju í umferð. Klippið frá en haldið eftir 30 cm fyrir frágang. Heklið hina höndina á sama hátt og fyllið hendurnar með vatti. FRÁGANGUR: Saumið niður augun (í litnum pistasía) á toppinn á höfði. Saumið munn og augu með afgang af litnum svartur, sjá mynd. Saumið höfuð á búk með smáu spori. Saumið fætur og hendur á búkinn. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (13)
Nicole wrote:
Das mit dem Farbwechsel an den Armen und Beinen finde ich nicht so schön, das sieht nicht sehr sauber aus. Ich werde sie wohl in Reihen häkeln. Das zugefügte Video zeigt übrigens den Farbwechsel beim häkeln in Reihen, und nicht in Runden.
01.10.2013 - 14:45DROPS Design answered:
Liebe Nicole, wir fanden eine Naht etwas störend bei so kleinen Teilen und empfehlen daher in Runden zu häkeln. Aber vielleicht können Sie in abgeschlossenen Runden häkeln (wie im Video gezeigt!) und nicht spiralförmig - dann wird der Runden-Übergang nicht versetzt. Uns hat dies allerdings noch gefallen (siehe Foto).
02.10.2013 - 09:01Julia wrote:
Danke für die Antwort. Scheinbar wirken die Farben dann einfach an meinem Monitor nur anders.
02.09.2013 - 09:06Julia wrote:
Wird hier wirklich in Farbe Pistazie gehäkelt der handelt es sich auf dem Bild um Mint?
01.09.2013 - 15:50DROPS Design answered:
Liebe Julia, der Körper ist mit Pistazie gehäkelt, die Beine pistazie und helltürkis geringelt. Aber selbstverständlich können Sie Frankie so häkeln, wie es Ihnen am besten gefällt!
01.09.2013 - 17:40